Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010 Vandlegar merkingar Það fer vart á milli mála að stígarnir í Öskjuhlíðinni eru ætlaðir jafnt gangandi vegfarendum sem hjólreiðagörpum. Nú er sumarið gengið í garð og þá nýta Íslendingar svo sannarlega tímann og eru úti við sem mest þeir mega. Margir borgarbúar leggja leið sína í Öskjuhlíðina og þá er gott að hafa alveg á hreinu hverjum göngustígarnir eru ætlaðir. Kristinn Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur því fram að 17. júní sé sér- stakur „heilladagur“ fyrir Íslendinga. Ekki vegna þess að þá öðlaðist þessi fá- menna þjóð fullt sjálfstæði, heldur vegna þess að leið- togaráð Evrópusambands- ins ákvað að hefja viðræður við Ísland um aðild að sam- bandinu. Mikill meirihluti Íslendinga er á móti aðild og ljóst er að meirihluti þingmanna er einnig mótfallinn aðild, þótt nokkrir þeirra hafi samþykkt að óska eftir viðræðum eftir pólitísk hrossakaup milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Það er hrein ósvífni af hálfu utanrík- isráðherra að kalla það „heilladag“ þegar samþykkt er að ganga gegn meirihluta þjóðarinnar. En það er eftir öðru sem rík- isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tekur sér fyrir hendur, í stað þess að ráðast í að- gerðir til að leysa vanda heimila og fyr- irtækja. Íslendingar hafa aldrei samþykkt að sækja um aðild að Evrópusambandinu. „Heilladagur“ utanríkisráðherra er í óþökk meirihluta Íslendinga. Alþingi samþykkti 16. júlí á liðnu ári þingsályktun utanríkisráðherra með nokkrum breytingum, þar sem ríkisstjórn- inni var falið að leggja inn umsókn um að- ild Íslands að Evrópusambandinu. Tillagan var samþykkt með 33 atkvæðum gegn 28 en tveir þingmenn greiddu ekki atkvæði. Frá fyrstu tíð hefur ályktunin verið um- deild enda í andstöðu við vilja meirihluta þjóðarinnar. Andstaðan við aðild hefur aukist á síðustu mánuðum og þá ekki síst meðal aðila atvinnulífsins. Aðlögun hafin Eftir að hafa setið á Alþingi í nokkrar vikur hefur mér orðið ljóst að ýmsir þeirra þingmanna sem stóðu að samþykkt þess að sótt var um aðild að Evrópusambandinu hafa áttað sig á því hvernig umsóknarríki er gert að standa að umsókn sinni og í raun hefja svokallað aðlögunarferli löngu áður en niðurstaða hefur fengist í við- ræðum um umsókn. Í þessu sambandi er vert að vitna til upplýsinga sem birtast á upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins en þar segir: „Að loknum samningaviðræðum um hvern einstakan kafla tekur við vinna er snýr að því að yfirfæra samnings- niðurstöðuna í lagatexta. Sú vinna fer fram í sérstökum vinnu- hópi ráðherraráðsins sem síðan ber textann undir umsóknarríki. Þessi vinna fer í raun fram sam- hliða samningaviðræðum um aðra kafla og bíður því ekki heildar- niðurstöðu viðræðna. Þegar öllum köflum hefur verið lokað með þessum hætti liggur aðildarsamn- ingur fyrir.“ Ljóst er að ríkisstjórn Sam- fylkingar og Vinstri grænna [VG] hefur þegar hafið vinnu að því að laga allt lagaumhverfi landsins að kröfum Evrópusambandsins, án þess þó að viðræðum um aðild sé lokið og í raun ekki hafnar með formlegum hætti. Þessi aðlög- un er gerð í skjóli og stuðningi Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, sem fyrir kosningar á síðasta ári lofaði kjósendum að standa einarður gegn aðild. Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu VG studdi meirihluti þingmanna flokksins aðild- arumsókn. Andstaða flokksins við aðild var hins vegar skýr fyrir þingkosningarnar í apríl 2009 og ítrekuð á flokksráðsfundi 16. janúar 2010. Í ályktun fundarins segir meðal annars: „Flokksráðið ítrekar andstöðu Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusam- bandinu. Þrátt fyrir að nú hafi verið sótt um aðild að sambandinu er það eindreginn vilji flokksráðs að Ísland haldi áfram að vera sjálfstætt ríki utan Evrópusambands- ins.“ Þá eru ráðherrar, þingmenn og fé- lagsmenn VG hvattir til þess að halda stefnu flokksins um andstöðu við aðild að Evrópusambandinu á lofti og berjast ein- arðlega fyrir henni. Umsókn dregin til baka Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráð- herra og formaður VG, greiddi atkvæði með aðildarumsókn en sagði í umræðum um atkvæðagreiðsluna meðal annars: „Öll eigum við það sameiginlegt, þing- menn VG, að áskilja okkur rétt til mál- flutnings og baráttu utan þings sem innan í samræmi við grundvallaráherslur flokks- ins og okkar sannfæringu. Það tekur einn- ig til þess að áskilja okkur rétt til þess að slíta samningaviðræðum skili þær ekki fullnægjandi árangri á hvaða stigi málsins sem er sem og auðvitað að hafna óvið- unandi samningsniðurstöðu.“ Þessi yfirlýsing Steingríms J. Sigfússon- ar er mikilvæg enda felur hún það í sér að þeir þingmenn VG sem studdu aðild- arumsókn áskildu sér rétt til þess að end- urskoða umsóknina. Yfirlýsingin verður ekki skilin með öðrum hætti en að VG telji að þingmenn flokksins hafi rétt til þess að styðja tillögu um að draga umsókn um að- ild að Evrópusambandinu til baka, hvenær sem er, óháð þátttöku í ríkisstjórn, enda ljóst að umsóknin skili ekki tilætluðum árangri. Frá því að meirihluti Alþingis samþykkti umsókn um aðild að Evrópusambandinu hefur staða sambandsins gjörbreyst. Gríð- arlegir efnahagslegir erfiðleikar steðja að sambandinu og sum ríki þess, sem eru inn- an evrusvæðisins, glíma við jafnvel djúp- stæðari erfiðleika en Ísland. Vegna þessa þykir einsýnt að Evrópusambandið þarf að taka allt skipulag sitt til endurskoðunar. Við slíkar aðstæður þjónar það ekki hags- munum Íslands að standa í aðildarvið- ræðum við ríkjabandalag sem ljóst er að mun taka gríðarlegum breytingum – breytingum sem Ísland mun aldrei geta haft áhrif á. Þó ekki væri af öðrum ástæð- um er það fullkomið ábyrgðarleysi af hálfu íslenskra stjórnvalda að ganga til við- ræðna við ríkjabandalag sem stendur á efnahagslegum og pólitískum krossgötum. Einnig liggur fyrir að sameiginlegt mynt- samstarf meirihluta ríkja Evrópusam- bandsins glímir við mikinn vanda. Trú- verðugleiki evrunnar hefur beðið hnekki. Meðal forystuþjóða evrusvæðisins er uppi ríkjandi krafa um að ríkisfjármál verði samþætt og þar með gengið enn frekar gegn fullveldi einstakra ríkja. Hug- mynd um að Ísland taki upp hina sameig- inlegu mynt – evru – var og er ein helsta röksemd þeirra sem barist hafa fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fyrir utan að slíkt kemur aldrei til greina fyrr en eft- ir nær einn áratug er það talið ólíklegra en áður að upptaka evru þjóni hagsmunum Íslands. Fjórir þingmenn úr öllum flokkum, utan Samfylkingar, hafa lagt fram þingsályktun á Alþingi um að draga umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka. Fyrsti flutn- ingsmaður er Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Tillagan er tímabær og nauðsynlegt að Alþingi ræði hana og afgreiði. Athyglin ekki á því sem skiptir máli Með því að samþykkja að draga aðild- arumsókn til baka er ekki verið að taka af- stöðu til þess hvort það kunni að þjóna hagsmunum Íslendinga að ganga til liðs við Evrópusambandið í framtíðinni. Vand- inn við umsóknina nú er a.m.k. þríþættur. Í fyrsta lagi er efnahagsleg staða Ísland þannig að hún veikir stöðu landsins gagn- vart Evrópusambandinu. Í öðru lagi er einnig ljóst að alla pólitíska forystu skortir í umsóknarferlinu. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur rétti- lega bent á þessa staðreynd og telur rétt að draga umsóknina til baka. Í þriðja lagi liggur fyrir að umsóknin um aðild hefur truflað uppbyggingarstarf íslensks efna- hagslífs. Stór hluti stjórnkerfisins sinnir litlu öðru en verkefnum sem tengjast um- sókn að bandalaginu en á meðan liggja önnur mál í skúffum. Aðildarumsókn að Evrópusambandinu hefur dregið athyglina frá meginverk- efnum löggjafans og framkvæmdavaldsins, sem er að vinna að endurreisn atvinnulífs- ins. Við þessu varaði Atli Gíslason, þing- maður VG, þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu þegar aðildarumsókn var samþykkt: „Það blasir við mér og mörgum fleirum að þessi aðildarumsókn gengur gegn brýn- um hagsmunum sjávarútvegs og landbún- aðar og þar með landsbyggðarinnar. Það er borin von, það er tálsýn, blekking að við fáum undanþágur í þeim efnum frá grund- vallarreglum Rómarsáttmálans, fjórfrels- inu, frá hinu sameiginlega markaðssvæði. Umsóknin felur í sér að hafin er vegferð sem vegur að sjálfstæði og fullveldi lands- ins. Umsóknin er í mótsögn við stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs eins og ég skil hana. Umsóknarferlið og allt sem því fylgir hindrar að við getum unnið af þeim krafti við að bjarga heim- ilum landsins og atvinnulífinu sem okkur er lífsnauðsynlegt. Málið er auk þess til þess fallið að kljúfa þjóðina þegar aldrei er meiri þörf á samstöðu en nú.“ Eftir Óla Björn Kárason » Það er hrein ósvífni af hálfu utanríkisráðherra að kalla það „heilladag“ þegar sam- þykkt er að ganga gegn meiri- hluta þjóðarinnar. Óli Björn Kárason „Heilladagur“ án samþykkis þjóðarinnar Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.