Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 21
60 myndatökumenn og tíu frétta- menn sjónvarpsins eiga að fylgjast með brúðkaupinu og hátíðarhöld- unum um helgina. Hafa fengið nóg Fréttavefur Dagens Nyheter skýrði þó frá því í gær að ný skoðanakönnun benti til þess að meirihluti Svía hefði fengið sig full- saddan á gífurlegri umfjöllun sænskra fjölmiðla um brúðkaupið síðustu mánuði. Sænsku kvöldblöðin hafa að undanförnu gefið út 24 síðna auka- blöð um brúðkaupið daglega. Sænska ríkissjónvarpið hefur sýnt alls 40 klukkustunda þætti og heim- ildarmyndir um konungsfjölskyld- una. Þar að auki hefur sjónvarpið sýnt fjögurra stunda þátt daglega frá sérstöku „konungsmyndveri“ frá því á föstudaginn var, auk mikillar umfjöllunar í fréttatímum. „Áhuginn á brúðkaupinu ætti að vera í hámarki núna. Umfangs- mikil umfjöllun fjölmiðlanna virðist hins vegar hafa haft þveröfug áhrif. Meirihluti Svía hefur nú þegar feng- ið nóg af henni,“ sagði Dagens Nyheter. Blaðið skírskotaði til skoðanakönnunar sem bendir til þess að 61% Svía telji að fjölmiðl- arnir hafi fjallað of mikið um brúð- kaupið. Um helmingur þátttakend- anna í könnuninni sagðist ætla að fylgjast með brúðkaupinu og hátíðarhöldunum. Gert hafði verið ráð fyrir því að tugir þúsunda ferðamanna myndu fara til Stokkhólms vegna brúð- kaupsins en ferðamálaráð borgar- innar segir að færri hafi komið þangað en spáð var. Mörg hótel í Stokkhólmi séu ekki fullbókuð. Skipulögð var umfangsmikil brúðkaupshátíð í borginni, LOVE Stockholm 2010, en áhuginn á henni hefur verið minni en gert var ráð fyrir, að sögn Dagens Nyheter. Stuðningurinn við konungdæmið minnkar Mikil umfjöllun fjölmiðlanna um konungsfjölskylduna í aðdrag- anda brúðkaupsins virðist einnig hafa stuðlað að því að stuðningurinn við konungdæmið hefur minnkað verulega. Skoðanakönnun, sem gerð var fyrir 15 árum, benti til þess að um 70% Svía styddu konungdæmið og aðeins 10% voru andvíg því. Samskonar könnun bendir nú til þess að aðeins 46% Svía styðji kon- ungdæmið og fjórðungur þeirra vilji að það verði lagt niður og stofnað verði lýðveldi. Reuters Fréttir 21ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010 Sýningin Náttúran í hönnun verður opnuð í dag 19. júní í Ljósafossstöð. Þar verður boðið í ferðalag um hlut- gerða náttúru íslenskra hönnuða og skyggnst inn í hugarheim þeirra. Sýnendur eru rúmlega 30 talsins. Sýningin verður opin til 28. ágúst, alla daga vikunnar. Opnunartími er 13–17 virka daga og 13–18 um helgar. Náttúran í hönnun er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Landsvirkjunar. Nánari upplýsingar www.honnunarmidstod.is www.landsvirkjun.is Sýningarstjóri Hlín Helga Guðlaugsdóttir Hönnuðir á sýningunni Árni Grétarsson Aurum Björg Juto Borðið/Leir 7 Dagný Bjarnadóttir Friðgerður Guðmundsdóttir Guðrún Björk Jónsdóttir Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir HAF Hanna Jónsdóttir Hreinn Bernharðsson Hildur Yeoman Hrafnkell Birgisson Ingibjörg Hanna Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Jón Björnsson Katrín Ólína Kría design Kristín Birna Bjarnadóttir Óðinn Bolli Ragnheiður Ösp Hugdetta Sigríður Sigurjónsdóttir Sigríður Sigþórsdóttir Sigurður Már Helgason Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir Sruli Recht Steinunn Sigurðardóttir Tinna Gunnarsdóttir Tuesday Project Vík Prjónsdóttir Þórunn Árnadóttir Viktoría krónprinsessa er 32 ára að aldri og nýtur talsverðra vin- sælda í Svíþjóð, er þekkt fyrir af- slappaða framkomu, stillingu og hlýju en hefur einnig getið sér orð fyrir að vera með bein í nefinu. Brúðgumi hennar, Daniel West- ling, er 36 ára og var lítt þekktur í Svíþjóð áður en hann trúlofaðist prinsessunni. Hann rekur nokkrar lúxuslíkamsræktarstöðvar og hitti Viktoríu sína í fyrsta skipti árið 2001 þegar hann varð einkaþjálf- ari hennar. Hermt er að faðir Viktoríu, Karl Gústaf konungur, hafi í fyrstu ver- ið andvígur því að hún giftist Westling og óttast að samband þeirra gengi ekki vegna gerólíks bakgrunns þeirra og uppeldis. Prinsessan er sögð hafa staðið uppi í hárinu á föður sínum og neitað að gefa ástina upp á bát- inn. Staðfesta hennar í deilunni er talin hafa aukið vinsældir hennar meðal Svía og hún hefur oft reynst vera vinsælust allra í sænsku konungsfjölskyldunni í skoðanakönnunum. „Viktoría er mjög sterk kona,“ sagði Johan T. Lindwall, sem skýrði fyrstur frá ástarsambandi hennar og Westling í dagblaðinu Expressen í maí 2002. „Hún er krónprinsessa Svíþjóðar og hann venjulegur sveitamaður sem varð einkaþjálfari hennar, þannig að mínum augum gat þetta ekki gengið upp,“ sagði Lindwall. Hermt er að Westling hafi síðan fengið ýmiskonar þjálfun og fræðslu til að búa hann undir lífið í konungsfjölskyldunni. Hann er vel liðinn, þykir glæsilegur og vel samboðinn sænsku konungsfjöl- skyldunni í allri sinni dýrð. Westling ólst upp í Ockelbo, 2.700 manna bæ, og starfaði í skóla fyrir börn með sérþarfir áð- ur en hann flutti til Stokkhólms þar sem hann hóf störf í líkams- ræktarstöð. Prinsessa með bein í nefinu VIKTORÍA OG BRÚÐGUMI HENNAR ERU VEL LIÐIN Stærsti gullpeningur í heimi verður brátt settur á uppboð í Vín í Austurríki eftir að fjárfestingar- fyrirtæki sem átti peninginn varð gjaldþrota. Peningurinn, sem er frá árinu 2007, er metinn á eina milljón Bandaríkjadala, eða sem svarar tæpum 130 milljónum króna. Búist er þó við að hann verði sleginn á fjórar milljónir dala, eða rúmar 500 milljónir króna. Peningurinn vegur 100 kíló og er 53 cm í þvermál. Sérfræðingar segja að hann sé úr hreinu gulli sem sé mjög mjúkt. Þurft hafi að þróa nýja aðferð til að búa til gullpening af þessari stærð. Reuters Stærsti gullpen- ingur heimsins settur á uppboð Ástralskur karlmaður var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í gær fyrir að blása tyggjókúlu í réttarsalnum. Ekki nóg með það heldur sprengdi hann kúluna um leið og hann leit í augu dómarans. Var hann látinn laus þar sem lögmaður hans áfrýj- aði dómnum og taldi hann allt of harðan. Mirza Zukanovic, sem er tvítug- ur, var í réttarsal í Melbourne vegna árásarákæru. Í stað þess að svara dómaranum sem beið þess að heyra hvað maðurinn hefði til mál- anna að leggja, blés hann upp tyggjókúluna með fyrrnefndum árangri. Í fangelsi fyrir að blása tyggjókúlu Viðbúnaður Verðir við kon- ungshöllina í Stokkhólmi í gær þegar hirð Svíakonungs var önnum kafin við að undirbúa brúðkaup krónprinsessunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.