Morgunblaðið - 19.06.2010, Side 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
rausnarlegar gjafir á þetta fyrrver-
andi æskuheimli sitt sem er merki-
legt hús með mikla sögu, sem Gyða
kann vel að segja frá.
Á grænfarfuglaheimilinu
Ytra-Lóni hefur mikil uppbygging
verið í gangi og gistirými eru þar nú
rúmlega fimmtíu. Um sólstöðurnar
er þar mikil hátíð og verður þá á
Ytra-Lóni opnað fyrsta List-
farfuglaheimilið hér á landi, Art Hos-
tel Ytra-Lón. Í vetur hefur Ytra-Lón
átt samstarf við Myndlistarskólann á
Akureyri en nemendur í fag-
urlistadeild hafa unnið að verkefninu
„Outer Space Art Place“ en það felst
m.a. í rýmis- og umhverfishönnum og
tengingu umhverfisins við bygging-
arnar á staðnum. Afrakstur af vinnu
þessa listafólks verður sýndur á opn-
uninni, næstkomandi mánudag en
einnig verða ljósmynda- og mynd-
listasýningar á Ytra-Lóni. Ábúendur
og eigendur Ytra-Lóns eru hjónin
Mirjam Blekkenhorst og Sverrir
Möller ásamt börnum sínum og
bjóða þau gesti velkomna á þessa
lista- og sólstöðuhátíð á Langanesi.
Lífið á Langanesi
Morgunblaðið/ Líney Sigurðardóttir
Sauðaneshús Gyða Þórðardóttir fagnar þjóðhátíðardeginum við æsku-
heimili sitt á Sauðanesi og gaf þangað fánastöng og íslenska fánann.
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Langanes er áhugavert svæði
fyrir ferðafólk sem í auknum mæli
leggur leið sína þangað. Sauðanes-
hús er gjarnan fyrsti áfangastað-
urinn þegar lagt er af stað á Langa-
nesið en þessi fyrrverandi
prestsbústaður var byggður árið
1879 úr steini og er elsta steinhús í
Þingeyjarsýslum. Minjasafn er nú í
húsinu, auk þess sem þar er upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn og veit-
ingasala með þjóðlegum veitingum.
Húsið fékk myndarlega gjöf nú á
þjóðhátíðardaginn en það er fána-
stöng með áletruðum silfurskildi
ásamt íslenska fánanum. Gefandinn
er fyrrverandi íbúi hússins, Gyða
Þórðardóttir en hún er fædd og upp-
alin í prestsbústaðnum, þar sem for-
eldrar hennar bjuggu frá 1918 til árs-
ins 1955, prófastshjónin séra Þórður
Oddgeirsson og frú Ragnheiður
Þórðardóttir og er gjöfin til minn-
ingar um þau, eins og segir á silf-
urskildinum. Gyða hefur áður gefið
Ný sundlaug á Blönduósi er tilbúin og var opnuð al-
menningi á miðvikudag. Nemendur í 4., 5. og 6. bekk
grunnskólans á Blönduósi fengu að fara fyrstir allra í
laugina og var spenningurinn svo mikill að börnin
voru komin upp í hæstu hæðir til að prófa vatns-
rennibrautina áður en blaðaljósmyndarar náðu að
smella af fyrstu myndunum. Einnig reyndist erfitt að
fylgja eftir fyrstu reglu allra sundlauga; „bannað að
hlaupa á sundlaugarbakkanum“, enda mikil eft-
irvænting og gleði yfir nýju sundaðstöðunni.
Eftir að krakkarnir höfðu fengið sinn skammt af
busli og notað rennibrautina óspart var aðgangur
opnaður öðrum og notuðu margir góða veðrið til að fá
sér sundsprett og prófa nýju aðstöðuna. Formleg
vígsla sundlaugarinnar fer fram á Húnavöku um
miðjan júlí en þá verða tvö ár liðin frá fyrstu skóflu-
stungunni. Aðsóknin í nýju sundlaugina hefur verið
mikil, ekki síst á þjóðhátíðardaginn en þá var mikið
blíðviðri í bænum. Síðustu daga hefur verið mjög gott
veður á Blönduósi og er mikill fjöldi á tjaldstæðinu
að sögn starfsmanns upplýsingamiðstöðvarinnar í
bænum. Sundlaugin er opin alla virka daga frá 9-21
og um helgar frá 10-18.
ingibjorgrosa@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hátt uppi Sundlaugarsvæðið er hið glæsilegasta og státar af himinhárri vatnsrennibraut.
Buslað í nýrri sundlaug á Blönduósi
Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is
Sólarmegin
Á lengsta degi ársins, mánudagskvöldið 21. júní, býður TM til
Esjugöngu með leiðsögn reyndra fararstjóra frá Ferðafélagi Íslands.
Allir viðskiptavinir TM eru velkomnir ásamt fjölskyldum sínum.
Göngufólk safnast saman í Esjustofu við rætur Esju (hjá Mógilsá) kl. 20.00
þar sem farið verður í létta upphitun. Gangan hefst svo kl. 20.30.
Fararstjórar FÍ fræða göngufólk um náttúru og sögu og það sem fyrir augu ber.
TM gefur öllum göngugörpum buff og vatnsflösku. Að göngu lokinni býður TM
upp á kakó í Esjustofu, sem verður opin allt kvöldið.