Morgunblaðið - 19.06.2010, Page 18
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Áður en dómur Hæstaréttar um
ólögmæti myntkörfulána féll á
fimmtudag síðastliðinn hafði Fjár-
málaeftirlitið kannað ítarlega hver
áhrifin yrðu fyrir hvern og einn
banka í versta og besta falli. Þetta
staðfestir Gunnar Andersen, for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins. Áfram-
haldandi vinna stendur yfir í kjölfar
niðurstöðu Hæstaréttar, en þegar
eftir því var falast var Fjármálaeftir-
litið ekki reiðubúið að láta af hendi
tölulegar upplýsingar um hugsan-
legan skaða á efnahagsreikningum
íslenskra banka.
Allt að 60% eigin fjár undir
Bankarnir sjálfir liggja að sama
skapi yfir eigin lánabókum þessa
dagana til að fá mynd á áhrif á efna-
hagsreikninga, en ekki hefur tekist
að fá upplýsingar þaðan um hversu
mikill skaðinn kann að vera. Þó kem-
ur fram í ársreikningi NBI fyrir árið
2009 að ef öllum erlendum lánum
bankans yrði breytt yfir í krónulán,
gætu áhrif þess á efnahagsreikning
bankans numið á milli 30 og 100
milljörðum króna. Reyndar hefur ís-
lenska krónan styrkst frá áramótum,
sem lækkar hæstu upphæð sem
kemur til greina. Samkvæmt þriggja
mánaða uppgjöri NBI stóðu erlend
lán í 379 milljörðum í lok mars 2010.
Enn mikil óvissa
Ekki liggur enn fyrir hvernig tek-
ið verður á gengistryggðum lánum á
bókum bankanna – það er að segja
hvort þau verða færð niður í samn-
ingsverð eða hvort þau verða end-
urreiknuð frá degi lánveitingar, eins
og þau hefðu verið verðtryggð í ís-
lenskum krónum. Í öllu falli verður
að teljast líklegt að NBI muni þurfa
á einhverju fjárframlagi frá íslenska
ríkinu að halda, en í uppgjöri bank-
ans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins
er bókfært eigið fé rúmlega 160
milljarðar króna. Fari allt á versta
veg samkvæmt væntingum stjórn-
enda Landsbankans, munu tæplega
tveir þriðju eigin fjár bankans
þurrkast út.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráð-
herra, sagði við fréttamenn eftir rík-
isstjórnarfund í gær að ekki væri
víst að ríkið þyrfti að grípa inn í
vegna niðurstöðu Hæstaréttar.
Hann sagði einnig að hugsanlega
yrði horft til vaxta Seðlabankans við
endurreikning á lánum. Gylfi sagði í
samtali við Morgunblaðið í síðustu
viku að ríkið myndi grípa inn í mál
NBI ef svo færi að dómur Hæsta-
réttar félli lánveitendum í óhag.
Íslandsbanki og Arion banki hafa
ekki birt uppgjör fyrir fyrstu þrjá
mánuði ársins, en síðarnefndi bank-
inn hefur raunar gefið út að það
verði ekki gert. Í ársreikningi Arion
banka fyrir árið 2009 kemur fram að
gengistryggð lán fyrir alls 234 millj-
arða eru á bókum bankans, þó sú tala
hafi líklega lækkað nú vegna gengis-
styrkingar krónunnar það sem af er
ári. Í reikningnum segir einnig að
gjaldeyrismisvægi vegna erlendra
lána til viðskiptavina með tekjur í
krónum nemi 188 milljörðum króna.
Raunvirði þess misvægis liggi hins
vegar nærri 66 milljörðum. Af þess-
um tölum má ráða að bankinn gerir
ráð fyrir mun minni heimtum af er-
lendum lánum en sem nemi nafnvirði
þeirra.
Íslandsbanki var um síðustu ára-
mót með tæplega 250 milljarða af er-
lendum lánum á sínum bókum. Í árs-
reikningi fyrir árið 2009 segir hins
vegar að stærstur hluti erlendu lán-
anna sé til viðskiptavina með tekjur í
íslenskum krónum og því talið að
heimtur af þeim verði takmarkaðar.
Alls er leiðrétt í erlendu lánunum
fyrir 157 milljarða króna, sem þýðir
að bankinn áætlar ríflega 90 millj-
arða heimtur af erlendu lánunum,
eða tæp 37%. Lánin hafa lækkað
vegna gengisstyrkingar, en bankinn
hefur fært allan nettógengishagnað
vegna yfirfærðra, erlendra lána á af-
skriftareikning, eða 37,4 milljarða.
Raunvirði lána metið mun lægra
Bankarnir þegar afskrifað af lánum í erlendri mynt til viðskiptavina með tekjur í íslenskum krónum
Morgunblaðið/RAX
Húsnæði Eftir því sem innlendir vextir hækkuðu jókst ásókn í erlend lán.
Bankarnir áttu jafnframt nóg af gjaldeyri sem þurfti að koma í vinnu.
18 FréttirVIÐSKITPI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
A
R
PI
PA
R
PI
P
PI
P
BW
A
BW
AAA
BW
A
BW
A
\T
BW
A
\T
BW
A
BWB
•S
ÍSÍSÍ•S
ÍSÍ•••
A
•1
A
•
AA
01
64
9
01
64
9
01
64
9
01
64
99
01
6461
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is
Miklar sviptingar urðu á skuldabréfa-
markaðnum í gær en feikileg ásókn
var í verðtryggð íbúðabréf og ávöxt-
unarkrafa íbúðabréfa fór vel niður
fyrir 350 punkta Vísitala Gamma fyrir
verðtryggð bréf hækkaði um 1,5% í
viðskiptunum en veltan nam ríflega 9
milljörðum króna. Vísitalan fyrir
óverðtryggð ríkisbréf hækkaði um
0,5% og nam veltan með þau tæplega
7,5 milljörðum króna.
Þeir sérfræðingar sem blaðið
ræddi við voru sammála um að þessar
breytingar á skuldabréfamarkaðnum
væru að einhverju leyti viðbrögð við
dómi Hæstaréttar um lögmæti geng-
islána.
Óvissa um áhrif úrskurðarins á
stöðu bankanna þýði að eigendur inn-
lána færi fé sitt í í skuldabréfamark-
aðinn og þá einna helst verðtryggð
íbúðabréf. Úrskurður Hæstaréttar
hafi reyndar magnað upp þróun sem
var hafin fyrir nokkru.
Einnig vakti athygli í gær að ávöxt-
unarkrafan á verðtryggðu íbúðabréf-
in fór langt undir 3,5% í gær. Þetta
þýðir að krafan er orðin mun lægri en
sú arðsemiskrafa sem er gerð til fjár-
festingar lífeyrissjóðanna. Umtals-
verð eftirvænting er á skuldabréfa-
markaðnum um hvernig krafan muni
þróast á næstu vikum. Lækkun kröf-
unnar er meðal annars rakin til vax-
andi væntinga um að ofangreind arð-
semiskrafa verði lækkuð með
einhverri útfærslu á næstu misserum.
ornarnar@mbl.is
Mikil ásókn í verðtryggt
Morgunblaðið/G.Rúnar
Kauphöll Íslands Augljós viðbrögð við úrskurði Hæstaréttar um gengislán
má sjá á skuldabréfamarkaðnum.
Miklar hækk-
anir á skuldabréfa-
markaðnum í gær
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
NBI lýsir 1,4 milljarða kröfu í
þrotabú Arena Holding, en félagið
var stofnað utan um eignarhald á
51,2% hlut í Hands Holding. Sam-
kvæmt upplýsingum frá fulltrúa
skiptastjóra Arena Holding er fé-
lagið eignalaust. Ekki hefur tekist
að grafa upp hvað varð um eign-
arhlutinn í Hands Holding. Einnig
hafi reynst erfitt að fá forsvars-
menn Arena Holding í skýrslutöku.
Í eigu Baugs og Fons
Eini stjórnarmaður fyrirtækisins
í dag er Þorsteinn M. Jónsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Glitnis og
stjórnarmaður í FL Group. Arena
Holding var
stofnað í maí
2007, en Baugur
Group átti 40% í
félaginu, Fons
30% og Icon 30%.
Síðastnefnda fé-
lagið hefur verið
brottfellt úr fyr-
irtækjaskrá. Sem
kunnugt er eru
skipti þrotabúa
Baugs og Fons nú yfirstandandi, en
lýstar kröfur í þrotabú þeirra félaga
eru samtals vel á fjórða hundrað
milljarða króna.
Óvissa um verðmat
Eini opinberi ársreikningur
Arena Holding er frá árinu 2007, en
þar eru skuldir félagsins skráðar
ríflega 1,2 milljarðar króna. 51,2%
eignarhlutur í Hands Holding er
jafnframt metinn á ríflega 1,6 millj-
arða króna. Á þeim tíma sem Arena
Holding var stofnað átti Teymi
48,7% hlut í Hands Holding. Teymi
seldi hins vegar bróðurpart þess
eignarhluta haustið 2007, eftir að
hafa keypt Landsteina Streng og
Hug-Ax út úr félaginu. Á þeim tíma
var eignarhlutur Teymis í Hands
Holding bókfærður á ríflega 100
milljónir króna, sem er í ósamræmi
við verðmatið í bókum Arena.
Málefni Hands Holding reyndust
kröfuhöfum Teymis óþægur ljár í
þúfu við endurskipulagningu þess,
en ábyrgðir félagsins vegna Hands
Holding eru á fimmta milljarð.
Eignalaust Arena Holding
Skuldar 1,4 milljarða vegna kaupa á hlut í Hands Holding
Þorsteinn M.
Jónsson
Mikið mæddi á starfsmönnum
símavers Íslandsbanka í gær,
fyrsta viðskiptadaginn eftir úr-
skurð Hæstaréttar um ólög-
mæti gjaldeyristengdra lána.
Álagið var slíkt hjá Íslands-
banka Fjármögnun að á tímabili
var ekki einu sinni hægt að
bjóða þeim sem hringdu að bíða
á línunni. Starfsmaður í þjón-
ustuveri sagði nokkurrar eft-
irvæntingar hafa gætt hjá við-
skiptavinum, fólk væri spennt
að komast að því hvaða áhrif úr-
skurðurinn hefði á fjárhag þess.
Viðskiptavinir
spenntir