Morgunblaðið - 19.06.2010, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.06.2010, Qupperneq 19
Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Mikil óvissa ríkir um áhrif dóms Hæstaréttar á fjármögnunarfyrir- tæki þar sem ekki liggur fyrir hvern- ig eigi að endurreikna lánasamninga. Það er því óljóst hvernig fyrirtækj- unum sem um ræðir reiðir af, og hver áhrifin á lánardrottna og eigendur þeirra verða. Stjórnvöld áætla að heildarupphæð lána til bifreiðakaupa með tengingu við erlenda mynt séu um 100 milljarðar króna. Þá eru ótal- in sams konar lán til kaupa á húsnæði og atvinnutækjum, svo dæmi séu tekin. Heildarupphæð lána sem dóm- urinn tekur til er því að líkindum mun hærri. Hagsmunaaðilar bíða þess nú að skorið verði úr um hvern- ig lánin verða endurreiknuð, en nokkrir kostir eru hugsanlegir í þeim efnum. Til að mynda væri hægt að miða við vexti Seðlabankans, eða þá að fylgja einfaldlega þeirri greiðslu- áætlun sem gerð var í upphafi og samningsvextir því notaðir til endur- reiknings. Gylfi Magnússon, efna- hags- og viðskiptaráðherra, ýjaði að því að líkleg lending væri að miðað yrði við vexti Seðlabankans. Það væri þó ekki í verkahring fram- kvæmdavaldsins að ákveða það. SP-Fjármögnun, sem er í meiri- hlutaeigu Landsbankans, er með um 14 þúsund lánasamninga, en í krónu- tölu skiptast þeir nokkurn veginn jafnt á milli einstaklinga og fyrir- tækja. Haraldur Ólafsson, forstöðu- maður fyrirtækjalausna, segir töl- urnar sem um ræðir vissulega stórar. Fáist skynsamleg niðurstaða í málið telur hann þó að SP muni standa það högg af sér. Erfitt sé að fá botn í mál- ið á meðan forsendurnar séu ennþá jafn óljósar og þær eru. Talsmaður Íslandsbanka tekur í sama streng varðandi fjármögnunarstarfsemi bankans, erfitt sé að meta stöðuna. Fjármögnun Íslandsbanka sé rekin sem hluti af bankanum og hann sé vel í stakk búinn til að standa straum af hugsanlegum endurgreiðslum. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær telur Halldór Jörgensson, forstjóri Lýsingar, úrskurðinn koma fyrir- tækinu illa. Það sé þó í stakk búið til að taka á sig hugsanlegar afskriftir. Magnús Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Avant, segir að þar á bæ verði dómurinn ígrundaður á næstunni. Ljóst sé að höggið sem fylgi afskrift- um verði mikið. Lýsing, SP-Fjármögnun, Avant og Íslandsbanki Fjármögnun hafa öll sent frá sér tilkynningu þess efnis að innheimtuaðgerðum og vörslusvipt- ingum verði frestað um sinn, eða þangað til óvissuástandinu léttir og ljóst verður hvernig endurgreiðslu- fyrirkomulagi lánanna verður hátt- að. Dómurinn setur allt úr skorðum  Þúsundir lánasamninga í lausu lofti  Fjármögnunarfyrirtæki segja algjöra óvissu um framhaldið Uppnám Úrskurður Hæstaréttar á miðvikudag hefur sett starfsemi fjár- mögnunarfyrirtækja úr skorðum. Innheimtu hefur verið frestað í bili. Fréttir 19VIÐSKITPI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010 Laugardagur 19.6. kl 16 í Hjalladal: Gróðursetning og grillaðar pylsur á vegum Skógræktarfélagsins og Gámaþjónustunnar í Jólaskóginum. Laugardagur og sunnudagur 19.6. og 20.6. frá kl 10-17 á Elliðavatni: Jurtir í skóginum. Kristbjörg Kristmundsdóttir og Hildur Hákonardóttir. Skráning í síma: 861 1373. Mánudagur 21.6. kl 20 á Elliðavatni: Fuglaskoðun með Jakobi Sigurðssyni frá Fuglavernd. Þriðjudagur 22.6. kl 20 á Elliðavatni: Söguganga á bökkum vatnsins með Helgu Sigmundsdóttur. Fjölskyldan tálgar í tré með Ólafi Oddssyni frá kl 18-22. Skráning í síma: 863 0380. Miðvikudagur 23.6. kl 20 í Elliðavatni: Ókeypis veiði og fræðsla um vatnið með Jóni Kristjánssyni fiskifræðingi. Fimmtudagur 24.6 kl 20 efst á Heiðarvegi: Gönguferð með Ferðafélagi Íslands undir leiðsögn Auðar Kjartansdóttur. Fjölskyldan tálgar í tré með Ólafi Oddssyni frá kl 18-22. Föstudagur 25.6. frá 14-17 á Elliðavatni: Afmælisráðstefna. Tónleikar með Kríu Brekkan, Sólveigu Öldu og Boybandinu í Dropanum við Furulund frá kl 21-01. Rúta frá Lækjartorgi. Laugardagur 26.6. frá kl 13-16 á Vígsluflöt: Fjölskylduhátíð. Sunnudagur 27.6. Elliðavatn: Veiðidagur fjölskyldunnar. Ókeypis i vatnið allan daginn. Nánari upplýsingar á www.heidmork.is Heiðmörk 60 ára Skógræktarfélag Reykjavíkur býður til afmælishátíðar 19.-27. júní Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Ákveði Alþingi að breyta með laga- setningu gengistryggðum lánum, sem nú hafa verið dæmd ólögleg, í verðtryggð lán gæti skapast bóta- skylda á ríkið. Lögfræðingar, sem Morgunblaðið talaði við, segja að nú þegar búið er að dæma lánin ólögleg sé líklegast að líta eigi á þau sem venjuleg óverðtryggð lán. Verði þeim breytt með afturvirkum hætti í verðtryggð lán megi líta svo á að um eignaupp- töku sé að ræða í skilningi eign- arréttarákvæðis stjórnarskrárinnar og þar með skapist ríkinu bóta- skylda. Staða lántakenda gengistryggðra lána gagnvart bönkum og öðrum lánafyrirtækjum verður líklega flók- in í nánustu framtíð. Í mörgum til- vikum hafa lántakendur líklega of- greitt af lánum sínum og eiga því kröfu á fyrirtækin. Hugsanlega verður hægt að skuldajafna í ein- hverjum tilvikum ofgreiddum af- borgunum og eftirstöðvum af lán- unum. Þeir sem greitt hafa upp sín lán nú þegar eiga hins vegar kröfur á fyrirtækin, sem þeir gætu þurft að sækja fyrir dómi. Almennar kröfur Fari allt á versta veg og fjár- mögnunarfyrirtækin verði gjald- þrota vegna dómsins færast þessar kröfur lántakenda á þrotabúið. Slíkar kröfur myndu teljast al- mennar kröfur í þrotabúin og fást greiddar á eftir launakröfum og öðr- um forgangskröfum. Í tilvikum fjár- mögnunarfyrirtækja, sem ekki voru með innlán, má ætla að forgangs- kröfur verði ekki háar, en staðan er hins vegar allt önnur í bönkum sem tekið hafa við innlánum. Vegna þess hve staða einstakra fyrirtækja og lántakenda er mis- munandi eftir aðstæðum er útilokað annað en að fleiri dómsmál muni fylgja í kjölfarið og að langur tími muni líða þar til afleiðingar geng- istryggðu lánanna hafa verið gerðar upp. Það ferli er vissulega hægt að stytta með lagasetningu, en stíga verður varlega til jarðar í þeim efn- um ef forða á ríkissjóði frá því að þurfa að greiða bætur. Lög gætu skapað bótaskyldu  Ofgreiddar afborganir af lánum teljast almennar kröfur við gjaldþrot Morgunblaðið/RAX Kröfur Margir þeirra sem tóku gengistryggð bílalán eiga líklega kröfu á hendur fjármögnunarfyrirtækjum og bönkum eftir dóm Hæstaréttar. Fjöldi fjár- mögn- unarfyr- irtækja hefur ákveð- ið að fresta öllum inn- heimtuað- gerðum og aðfarar- kröfum þar til skorið verður úr um það með hvaða hætti end- urreikna á lánasamninga. Tals- maður Samtaka fjármálafyrir- tækja segist vona að botn fáist í málið sem fyrst, helst strax eft- ir helgi. Tímasetning úrskurð- arins – daginn fyrir frídag og svo skömmu fyrir helgi – bendi til þess að stjórnvöld vilji gefa sér andrúm til þess að bregðast við úrskurðinum og áforma næstu skref. Þangað til það ger- ist er líklegt að fjármögn- unarfyrirtækin haldi að sér höndum og bíði þess sem verða vill. Beðið eftir svörum HVAÐ GERIST NÚ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.