Morgunblaðið - 19.06.2010, Side 40
40 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
Orð dagsins: Og á þeim degi mun ég
bænheyra, segir Drottinn. Ég mun
bænheyra himininn, og hann mun
bænheyra jörðina. (Hs. 2, 21.)
Víkverja varð það á að velta fyrirsér hvort Þjóðverjar hefðu orð-
ið andsetnir af brasilískum fótbolta-
móði þegar þeir sigruðu Ástrala
fjögur núll á dögunum. Heldur fór
lítið fyrir sambataktinum hjá Þjóð-
verjum á HM í gær því að þeir stein-
lágu fyrir Slóvenum. Þetta hefur
orðið tilefni til háðulegra ummæla
um þýska liðið, ekki sé lengur talað
um þýska stálið, heldur þýska kálið
og þýska undrið sé nú þýska glundr-
ið.
x x x
Þjóðverjarnir geta örugglega náðsér á strik á ný, en brátt fer
þessi heimsmeistarakeppni ekki
bara að verða athyglisverð fyrir
markaþurrð, heldur ósvífna fótbolta-
dverga, sem ekki koma fram við ris-
ana af tilhlýðilegri virðingu. Aðdá-
endur spænskrar knattspyrnu
froðufella nú af bræði yfir niðurrifs-
fótbolta Svisslendinga og tala um
ósigur knattspyrnunnar. Stað-
reyndin er engu að síður sú að Sviss-
lendingar gerðu sér lítið fyrir og
lögðu Spánverja með einu marki
gegn engu og voru óheppnir að
skora ekki annað mark. Víkverji er
reyndar þeirrar hyggju að aðdrátt-
arafl fótboltans felist einmitt í hinum
óvæntu úrslitum. Allt getur gerst,
dvergarnir geta sigrað risana, ekk-
ert er gefið.
x x x
Gestgjafarnir eiga alla samúðVíkverja. Suður-Afríka hefur
haldið þessa keppni með miklum
sóma hvað sem líður tuði um kulda
vegna þess að þar sé nú hávetur.
Víkverji veit ekki betur en að um
gervalla Evrópu sé spilaður fótbolti
um hávetur án teljandi kveinstafa.
En gengi suður-afríska landsliðsins
hefur ekki verið upp á marga fiska
og eftir jafntefli við Mexíkó og
þriggja marka tap gegn Úrúgvæ
verða líkurnar á að liðið komist
áfram upp úr riðlinum að teljast
hverfandi. Þó eygja þeir glætu sigri
þeir Frakka, sem hafa leikið hreint
hörmulega í Suður-Afríku, með
nokkrum yfirburðum og Úrúgvæ
sigrar Mexikó í lokaviðureigninni í
riðlinum. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gaffals, 4 ganga
ójafnt, 7 góðmennska, 8
skjálfa, 9 ráðsnjöll, 11 ró,
13 uppmjó fata, 14 saum-
aði lauslega, 15 þráður, 17
hendi, 20 trylla, 22 poka,
23 þáttur, 24 ræður við, 25
undirnar.
Lóðrétt | 1 tónverkið, 2
skurðurinn, 3 hand-
færaveiðar, 4 bjarndýr-
sungi, 5 gladdi, 6 dýrin,
10 heldur, 12 greinir, 13
skil, 15 næða, 16 auð-
ugan, 18 rándýr, 19
eldstó, 20 guðir, 21 hags.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bardaginn, 8 játar, 9 akkur, 10 kot, 11 meina,
13 Teits, 15 hæsin, 18 sigla, 21 ern, 22 groms, 23 atóms,
24 staðfasta.
Lóðrétt: 2 aftri, 3 dýrka, 4 glatt, 5 nakti, 6 hjóm, 7 gras,
12 nýi, 14 efi, 15 hagl, 16 skolt, 17 nesið, 18 snara, 19
gróft, 20 assa.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú þarft að beita sjálfan þig
meiri aga svo að þú náir að skila af þér
þeim verkefnum sem þú hefur tekið að
þér. Leiðin liggur upp á við að nýju.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Íhugaðu hvernig þú getur aukið
lífsgæði þín, sérstaklega varðandi heils-
una. Sýndu fyrirhyggju í fjármálum því
óvæntir atburðir geta gerst.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú munt líklega lenda í deilum
um stjórnmál, trúmál eða heimspeki í
dag. Settu því ekki upp hundshaus þótt
þér líki þær ekki allar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er auðveldari kostur að velja
beinu brautina en stundum kalla mál á
það að menn hafi kjark til þess að brjóta
nýjar leiðir. Temdu þér meiri tillitssemi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Aflaðu þér upplýsinga um yf-
irmanninn eða fyrirtækið, þú færð stöðu-
hækkun með því að sýna frumkvæði.
Einbeittu þér að færri málum og sinntu
þeim.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert óvenju ástríðufull/ur og
gætir jafnvel orðið ástfangin/n af yf-
irmanni þínum í dag. Það gæti reynst
þér fjötur um fót.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu það eftir þér að upplifa æv-
intýrið og fara ótroðnar slóðir. Forðastu
að taka þátt í hlutum sem eru einskis
virði og því hrein tímasóun.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Verkefni í vinnunni hallast
hættulega mikið í öfuga átt. Mundu að
hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og þú
þarft að hafa fyrir þeim.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Margt í sambandi vina er of
djúpt til að skilgreina það. Hugsanlega
finnur þú hjá þér hvöt til þess að koma
vini til hjálpar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gerðu það sem þú getur til að
bæta aðstæður fjölskyldu þinnar, heimili
þitt eða fasteignir. Dagurinn hentar vel
til skipulagningar og verkefna sem krefj-
ast vandvirkni og þolinmæði.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef þú ættir að ráða einhvern
til þess að gera það sem þú gerir mynd-
irðu líklega borga viðkomandi þrisvar
sinnum meira en þú aflar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Losaðu þig við getgátur í
tengslum við verkefni í vinnunni með því
að leita beint til þess sem veit allt, eða
að minnsta kosti þess sem veit mest.
Stjörnuspá
19. júní 1915
Kvenréttindadagurinn. Kon-
ungur staðfesti breytingar á
stjórnarskránni. Konur fengu
þá kosningarétt og kjörgengi
til Alþingis, en fyrst í stað
var miðað við 40 ára og eldri.
19. júní 2005
Þess var minnst með baráttu-
fundi á Þingvöllum að níutíu
ár voru síðan konur fengu
kosningarétt til Alþingis. Í
Reykjavík voru bleikir borð-
ar hengdir á styttur bæj-
arins.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Elín Bjarna-
dóttir, Rétt-
arholtsvegi 35,
verður níutíu og
fimm ára á
morgun, 20. júní.
Hún tekur á móti
ættingjum og
vinum í Korn-
hlöðunni, Lækj-
arbrekku, Bankastræti 2, milli kl.
15 og 18.
95 ára
Halldóra Ingi-
marsdóttir frá
Þórshöfn á
Langanesi er ní-
ræð í dag, 19.
júní. Af því til-
efni tekur hún á
móti ættingjum
og vinum á Dval-
arheimilinu Hlíð
á Akureyri milli kl. 16 og 18 á af-
mælisdaginn.
90 ára
Sigurlaug
Pétursdóttir
húsmóðir frá
Fremstagili í
Langadal er
áttræð í dag,
19. júní. Sig-
urlaug bjó áður
á Hávallagötu
20 en er nú bú-
sett á hjúkrunarheimilinu Sól-
túni.
80 ára
Magnús R. Gíslason tannlæknir er áttræður í
dag. Hann ætlar að bjóða vinum og fjölskyldu
heim til sín í Vesturbæinn til að fagna með sér í
tilefni dagsins.
„Við Gyða settumst niður og skráðum niður
hverjum við vildum bjóða. Fyrr en varði voru
um þrjú hundruð nöfn komin á listann,“ segir
Magnús. Því miður ná þau ekki að taka á móti
öllum þrjú hundruð heima á Aflagrandanum.
Þau ætla því að láta sér nægja að bjóða þeim
allra nánustu.
Magnús R. Gíslason á að baki farsælan feril
sem tannlæknir. Hann starfaði áratugum saman við tannlækningar
og rak sína eigin tannlæknastofu við Grensásveg.
Magnús var áður giftur Dóru Jóhannsdóttur, en hún lést fyrir
sex árum. Saman áttu þau þrjú börn. Elstur er Jóhann Þór verk-
fræðingur, næst í röðinni er Sigríður Dóra læknir og yngstur er
Gylfi, hagfræðingur og ráðherra. Magnús er í sambúð með Gyðu
Stefánsdóttur.
Magnús R. Gíslason er áttræður í dag
Vildi gjarnan bjóða fleirum
Sudoku
Frumstig
5
6 7 9 2 4
3 2 9 5
9 4 5
6 7
2 7 4
1 3
7 1 4 3
5 1
3 4 7
2 9 3 5
8 6
6 4 8
8 7 9 6 5
3
4
6 2 7 3
4 5
7 6 1
8 2
1 4 7
8 2 5
5 3
7 5 3 9
4
6 3 8
4 2 9
2 1 7 5 9 6 4 8 3
5 9 3 2 4 8 7 6 1
8 4 6 1 3 7 5 9 2
3 7 9 6 5 2 8 1 4
6 8 2 3 1 4 9 5 7
1 5 4 8 7 9 3 2 6
9 2 5 7 6 3 1 4 8
4 3 8 9 2 1 6 7 5
7 6 1 4 8 5 2 3 9
2 7 1 5 4 3 6 9 8
5 4 6 9 2 8 3 7 1
3 9 8 7 6 1 2 4 5
4 8 2 6 9 5 1 3 7
9 1 5 2 3 7 8 6 4
7 6 3 8 1 4 9 5 2
6 2 7 4 8 9 5 1 3
1 5 9 3 7 2 4 8 6
8 3 4 1 5 6 7 2 9
5 3 9 8 6 7 2 1 4
2 8 4 9 5 1 3 6 7
6 7 1 4 3 2 9 5 8
4 6 8 7 2 5 1 3 9
7 9 2 3 1 8 5 4 6
1 5 3 6 9 4 7 8 2
8 1 5 2 4 9 6 7 3
9 4 6 1 7 3 8 2 5
3 2 7 5 8 6 4 9 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 19. júní, 170. dag-
ur ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4.
Rxe4 Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Bd3 c5
7. 0-0 Rxe4 8. Bxe4 Rf6 9. Bg5
cxd4 10. Rxd4 Be7 11. Bf3 0-0 12.
Dd3 Db6 13. Had1 Hd8 14. Be3
Da5 15. Db5 Dc7 16. Db3 Bd7 17.
c4 e5 18. Rb5 Bxb5 19. cxb5 e4
20. b6 De5 21. Be2 a6 22. g3 Bc5
23. Bxc5 Dxc5 24. Hc1 De7 25.
Hc7 Hd7 26. Hfc1 Had8 27. Hxd7
Hxd7
Staðan kom upp á öflugu at-
skákmóti sem lauk fyrir skömmu í
Odessu í Úkraínu. Sergei Karjak-
in (2.739) hafði hvítt gegn Jurij
Drozdovskij (2.625). 28. Bxa6! h5
svartur hefði einnig tapað eftir
28. … bxa6 29. Hc8+ Re8 30. b7.
29. Bb5 Hd6 30. Hc7 Rd7 31.
Hxb7 h4 og svartur gafst upp um
leið.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Djúpt hugsað.
Norður
♠432
♥KG843
♦D986
♣4
Vestur Austur
♠KD875 ♠G96
♥2 ♥D96
♦1073 ♦ÁG5
♣D1063 ♣8752
Suður
♠Á10
♥Á1075
♦K42
♣ÁKG9
Suður spilar 4♥.
Þegar farið er í saumana á mögu-
leikum sagnhafa virðist sem hann gefi
alltaf spaðaslag og tvo á tígul. Sem
þýðir að samningurinn hangir á tromp-
drottningunni. Og það virðist engin
sérstök ástæða til að staðsetja hana
þriðju í austur, eða hvað?
Spilið er frá úrslitaleik Vanderbilt-
keppninnar 1967 og í suður var kunnur
spilari á þeim tíma, Paul Levitt (1939-
93). Levitt dúkkaði ♠K, sem kom út, en
fékk næsta slag ♠Á. Hann spilaði nú
hárnákvæmt. Tók ♣Á og stakk lauf.
Trompaði þriðja spaðann heima, spil-
aði hjarta á kónginn og hjarta til baka
á tíuna! Þegar tían hélt var málinu lok-
ið, en Levitt var við því búinn að gefa á
♥D aðra fyrir aftan. Þá hefði vestur
orðið að spila sér í óhag: spaða í tvö-
falda eyðu, laufi upp í ♣KG eða hreyfa
tígulinn.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is