Morgunblaðið - 19.06.2010, Page 42
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Diskurinn Grannmetislög kom út á
dögunum en hann hefur að geyma
lög sem Haukur Tómasson tónskáld
samdi við ljóð Þórarins Eldjárns
sem birtust í bókinni Grannmeti og
átvextir. Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir syngur inn á plötuna en Ca-
put-hópurinn sér um undirleik.
Haukur, sem er þekktastur fyrir
þunga nútímaklassík, segist hafa
samið lögin á árunum 2004-2009 fyr-
ir dætur sínar. „Þær eignuðust
þessa bók hans Þórarins og eigin-
lega heimtuðu að ég syngi ljóðin fyr-
ir þær, það var sko ekki nóg að lesa
þau. Ég fór svo að spila þetta fyrir
þær á píanóið og þær sungu undir.
Ég man nú ekki hvernig það kom til
að ég fór að útsetja þetta fyrir Caput
en þetta er flottur hópur og svo var
bara frábært að fá Guðrúnu Jó-
hönnu Ólafsdóttur til að syngja inn á
þetta með okkur. Hún er með frá-
bæra rödd sem hentar þessum lög-
um mjög vel,“ segir Haukur en upp-
tökur fóru fram í Salnum í Kópavogi
vorið 2009.
Skondnar og
skemmtilegar persónur
Í ljóðunum birtast ýmsar skondn-
ar og skemmtilegar persónur eins
og Veran Vera, Spagettíkarlinn,
Þvermóður, feita geitin og margir
fleiri. Haukur þekkir persónurnar
orðið ansi vel enda svo að segja búið
með þeim í nokkur ár. „Ætli uppá-
haldskarakterinn sé ekki Þver-
móður, hann er svolítið skemmtilega
þver á allan hátt, en ég er þegar far-
inn að semja tónlist við fleiri ljóð úr
þessari bók þannig að kannski ég
gefi diskinn út aftur seinna endur-
bættan.“
Ljóðabókin, sem er eftir eitt ást-
sælasta skáld landsins, Þórarin Eld-
járn, kom út árið 2001 og inniheldur
99 ljóð og einn losarabrag en hún var
myndskreytt á litríkan hátt af systur
Þórarins, Sigrúnu Eldjárn. Þórarinn
segist vera nokkuð ánægður með út-
gáfuna. „Ég heyrði lögin fyrst flutt á
tónleikum í fyrra og leist bara nokk-
uð vel á en það var alveg sjálfsagt að
leyfa Hauki að nota þessi ljóð eftir
mig þegar hann leitaði eftir því á sín-
um tíma.“
Þórarinn segir að hann hafi gert
mikið út á orðaleik í þessari ljóðabók
en titillinn er bara eitt af fjölmörg-
um dæmum um það. „Ef maður seg-
ir titilinn hratt þá heyrist manni að
sagt sé grænmeti og ávextir þó sú sé
ekki raunin en þetta er heilmikil
þula þar sem talið er upp allt sem
fæst í grannmetisdeildinni og át-
vaxtadeildinni. Það koma auðvitað
margar persónur fyrir í öllum þess-
um ljóðum eins og til dæmis Veran
Vera sem reynist vera geimvera og
svo auðvitað Þvermóður en það er
allt saman þvert hjá honum, hann er
með þverslaufu og spilar á þver-
flautu og býr í Þverholti en það
mætti segja að ég sé í flestum
ljóðanna að leika ýmiss konar orða-
leiki.“
Caput-hópurinn sá um undirleik á
plötunni en hann var stofnaður árið
1988 af ungum tónlistarmönnum.
Ýmsir tónlistarmenn hafa komið
fram með þessum hóp en í þessu
verkefni samanstendur hann af þeim
Kolbeini Bjarnasyni á flautu, Eiríki
Erni Pálssyni á trompet, Zbigniew
Dubik á fiðlu, Sigurði Halldórssyni á
selló og Snorra Sigfúsi Birgissyni á
píanó. Stjórnandi upptökunnar er
Guðni Franzson.
Furðuvera Veran Vera kemur fyrir á Grannmetislögum.
Diskur með sönglögum Hauks Tómassonar upp úr bók
Þórarins Eldjárns Grannmeti og átvextir kominn út
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Flott Caput-flokkurinn er fjölmennur og síbreytilegur en ekki koma allir að
disknum með Grannmetislögunum.
Orðaleikir og ein-
kennilegar persónur
Mynd/Sigrún Eldjárn
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
Hljómsveitin Sudden
Weather Change gef-
ur út sjö tommu og fagnar
því með tónleikum 44
»
Rithöfundurinn
José Saramago
lést í gær á
spænsku eyjunni
Lanzarote, 87
ára að aldri.
Saramago
fékk nób-
elsverðlaunin í
bókmenntum
1998 og skrifaði
meðal annars
bókina Blindu, sem segir frá því
þegar heil þjóð missir sjónina.
Saramago fæddist í þorpinu Az-
inhaga í Portúgal. Hann hætti í
skóla 12 ára og lærði lásasmíði.
Fyrsta skáldsaga hans kom út 1947,
en 19 ár voru í næstu bók. Sara-
mago tók þátt í byltingunni, sem
steypti einræðisstjórn Portúgals
1974. Árið 1990 flutti hann frá
Portúgal þar sem stjórnvöld leyfðu
ekki að bók eftir hann, Guðspjallið
samkvæmt Jesú Kristi, keppti um
evrópsk bókmenntaverðlaun.
Saramago var með hvítblæði. Í
yfirlýsingu sagði að hann hefði lát-
ist hjá fjölskyldu sinni. Bækur hans
seldust í milljónum eintaka og voru
þýddar á yfir 30 tungumál, þar á
meðal íslensku. Síðasta bók hans
kom út 2005 og fjallaði um glund-
roða í ónefndu landi þegar fólk
hætti að deyja. kbl@mbl.is
José
Saramago
látinn
Fékk Nóbelsverð-
launin árið 1998
Rithöfundurinn
José Saramago.
Út er komin ljósmyndaljóða-
bókin Skuggi af skáldi eftir
Ólaf Skorrdal. Þetta er þriðja
ljóðabók höfundar, en áður
hefur hann gefið út bækurnar
Ferðalag (1997) og Sögur sálar
(2005).
Einnig hefur Ólafur gefið út
bækurnar Engillinn minn
(2005) og Lýðræði fjöldans –
ritsafn (2008) og tónlistardisk-
inn First Contact (2005) ásamt
myndbandinu Darker Times (2005).
Skugga af skáldi, sem er 28 síður, þar af 24 ljós-
myndir teknar af höfundi, er hægt að nálgast á
slóðinni http://skorrdal.is/skuggi-af-skaldi/. Á
http://skorrdal.is/ má finna öll verk höfundar.
Ljóðmyndir
Skuggi af skáldi
eftir Ólaf Skorrdal
Skugga af skáldi
Tónlistarmaðurinn Agnar Már
Magnússon var útnefndur
bæjarlistamaður Garðabæjar
árið 2010 við hátíðlega athöfn
í Vídalínskirkju við hátíðlega
athöfn í Vídalínskirkju á
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Gunnar Einarsson, bæj-
arstjóri Garðabæjar, afhenti
Agnari starfsstyrk listamanns,
en bæjarstjórn Garðabæjar
hefur valið bæjarlistamann sl.
átján ár í samráði við menningar- og safnanefnd
bæjarins.
Agnar starfar nú sem djasspíanisti en kennir
jafnframt píanóleik við djassdeild Tónlistarskóla
FÍH.
Tónlist
Agnar Már bæj-
arlistamaður
Agnar Már
Magnússon
Á morgun kl. 14:00 veitir Einar
Falur Ingólfsson leiðsögn um
sýninguna Sögustaðir – í fót-
spor W.G. Collingwoods í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Á
sýningunni má sjá ljós-
myndaverk eftir Einar Fal
sem unnin eru með hliðsjón af
vatnslitamyndum, teikningum
og ljósmyndum sem breski
myndlistarmaðurinn og forn-
fræðingurinn William Gers-
hom Collingwood málaði og tók á tíu vikna ferða-
lagi sínu um Ísland sumarið 1897. Sýningin er
hluti af Listahátíð í Reykjavík 2010. Á sýningunni
er að auki hluti þeirra rúmlega 300 verka sem
Collingwood málaði hér á landi.
Myndlist
Leiðsögn um Sögu-
staði í Bogasal
Einar Falur
Ingólfsson
Ég hitti í morgun voða skrítna veru
með víraflækjuhár og græna peru
bláa tungu og tíu litlar hökur
og tær sem minntu á rjómapönnu-
kökur.
Hvaðan skyldi hún vera þessi vera?
Vandi sýndist mér úr því að skera:
Ef til vill frá Höfn í Hornafirði?
Hreinlegast var bara að ég spyrði.
En sem ég var að spá og spekúlera
hvort spurt ég gæti: Hvaðan ertu,
vera?
Þá sagði veran: – Daginn, góðan
daginn,
daginn kæri vinur, glaðan haginn.
Og undireins þá heyrði ég á hreimn-
um
að hún var utan úr geimnum.
Veran Vera
LJÓÐ: ÞÓRARINN ELDJÁRN
Listaháskóli Íslandsauglýsir eftir
umsóknum um
starf fagstjóra í vöruhönnun
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf
fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild
skólans. Um er að ræða 50% starfshlutfall. Umsækjandi
skal vera starfandi vöruhönnuður, hafa sterka faglega sýn
og búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á faggreininni.
Hlutverk fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúr-
deild er auk almennrar kennslu að hafa umsjón með námi
nemenda í vöruhönnun, veita ráðgjöf og gagnrýni á verk
nemenda, og í samráði við deildarforseta og prófessors í
vöruhönnun stýra þeim verkefnum sem lúta að skólastarfinu.
Gerð er krafa um háskólagráðu í vöruhönnun, auk
starfsreynslu. Við ráðningu er lagt til grundvallar að
umsækjandi hafi verið virkur þátttakandi í því samfélagi
listanna sem skólinn byggir upp.
Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skila ekki síðar
en mánudaginn 28. júní næstkomandi til Listaháskóla
Íslands, aðalskrifstofu, Skipholti 1, 105 Reykjavík. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.lhi.is