Morgunblaðið - 19.06.2010, Qupperneq 44
44 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
Hljómsveitirnar Dikta, Agent
Fresco og Endless Dark troða upp á
skemmtistaðnum Sódómu Reykja-
vík í kvöld og verður húsið opnað kl
23. Dikta og Endless Dark haf-
averið duglegar að troða upp að
undaförnu en Agent Fresco kemur
fram aftur eftir góða pásu.
Dikta, Agent Fresco og
Endless Dark í kvöld
Fólk
Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum, Sudden Weather Change, gefur í dag út
sjö tommu smáskífuna The Thin Liner og inni-
heldur hún lögin „Thin Liner“ og „The Whaler“
sem meðlimir sveitarinnar kláruðu að taka upp
fyrir stuttu.
„Við fengum tækifæri til að vinna með honum
Aroni Arnarsyni sem hefur m.a. verið að taka
upp mikið með Kimono. Þetta var í fyrsta sinn
sem við höfum komist í svona alvöru stúdíó, en
þessi tvö lög höfum við verið að taka fyrir á tón-
leikum og fengið góðar undirtektir,“ segir
bassaleikarinn Bergur Thomas Anderson.
Bergur segir meðlimir sveitarinnar hafa verið
mjög ánægðir með lögin sem tekin voru upp með
Aroni og því tilvalið að gefa út smáskífu.
„Við vorum í rosalegum ham þegar við vorum
að semja lögin og afraksturinn af þessari vinnu
skilaði sér algjörlega. Þetta er sánd sem við höf-
um ekki fengið hjá okkur áður og svo skemmir
ekki útgáfuformattið á smáskífunni,“ segir
Bergur.
Sveitin hyggur svo að frekari útgáfum síðar á
þessu ári, þar á meðal er fyrirhuguð svokölluð
deili-skífu þar sem þeir deila fjögurra laga plötu
með hljómsveitinni Reykjavík! Þeir félagar eru
nýkomnir heim af stuttu tónleikarferðalagi þar
sem spilað var fyrir Belga, Þjóðverja og Breta.
Til að fagna heimkomunni og útgáfunni mun
hljómsveitin spila á tónleikum í dag kl. 16 í Hav-
arí í Austurstræti.
gea@mbl.is og matthiasarni@mbl.is
Gefa út sjötommu og fagna með tónleikum
Morgunblaðið/Heiddi
Bjartasta vonin Sudden Weather Change.
Úti-tónleikarnir MúsMos verða
haldnir í þriðja sinn á Álafossi í
Mosfellsbæ. Tónleikarnir eru
haldnir til þess að gefa ungu og
upprennandi tónlistarfólki sem er
að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni
tækifæri til að stíga á svið. Átta
hljómsveitir spila á MúsMos í dag. Í
ár verða það sveitirnar Mystur,
Snjólugt, Cancer City, St. Peter the
leader, Hydrophobic starfish, For a
minor reflection, mosfellsku söng-
konurnar María Ólafsdóttir og
Hreindís Ylfa, ásamt gestasveitinni
Endless Dark. Frítt er á tónleikana
sem hefjast kl. 15 og standa til yfir
til kl. 20.
Úti-tónleikarnir Mús-
Mos í Kvosinni í dag
Pabbahelgi númer þrjú verður
haldin á Kaffibarnum í kvöld. For-
sprakkar pabbahelganna eru þeir
Benni B-Ruff og Gísli Galdur sem
báðir hafa getið sér gott orð sem
plötusnúðar undanfarin ár. Þeir fé-
lagar auglýsa eftir hressu og
skemmtilegu fólki til að halda uppi
fjörinu með sér, sem hefst kl. 23.
Pabbahelgi númer þrjú
á kaffibarnum
„Ég myndi segja að þetta væri svona
týpísk Laddaplata en lögin eru sum-
arleg svo þetta er sumarplata líka,“
segir grínistinn Þórhallur Sigurðs-
son um nýjan geisladisk sem kom út
hinn 17. júní. Hann ber nafnið
„Bland í poka“ en í pokanum má
finna ýmislegt að þessu sinni, m.a.
DVD-disk með „Hún er allt of feit“-
slagaranum sem var fyrst gerður
frægur fyrir átján árum og fleira
glænýtt efni. Tónlistin er ýmist út-
lend eða eftir Ladda en Laddi semur
allflesta texta. „Ég er ánægður með
öll lögin og náttúrlega hef ég veikan
blett fyrir mínum lögum sem ég
samdi, þetta voru annars lög sem
Björgvin var búinn að safna saman,
enda mikill safnari hvert sem hann
fer, hann heyrir einhver lög og setur
þau í poka og segir þetta alveg full-
komið fyrir Ladda.“
Mói gamli og Skúli
Persónur koma fyrir sem aðdá-
endur Ladda munu vafalítið þekkja.
Móa gamla bregður fyrir, Saxa
lækni og Skúla ásamt fleirum góð-
kunnum úr grínheimum. „Ég vildi
nýta gömlu karlana, Móa gamla og
Skúla. Mói fær að koma með annan
smell úr Austurstrætinu.“ Björgvin
Halldórsson kom að gerð plötunnar
en þeir Laddi unnu síðast saman fyr-
ir átján árum með miklum árangri.
„Björgvin Halldórsson pródúseraði
plötuna og var einn af útsetjurunum
líka, við gerðum síðast saman „Of
feit fyrir mig“ fyrir átján árum.
Menn hafa aðeins rætt að gera
kannski tónlistarmyndband af þess-
ari plötu en ekkert fast svona.“
Hann er ánægður með afrakstur
samstarfsins en platan hefur verið
tilbúin í nokkurn tíma. „Þarna eru
mörg skemmtileg lög eins og
bombadilla og svo er ég þarna með
nokkur lög sem ég er bara mjög
ánægður með.“ Þá er boðið upp á ör-
leikþátt eftir Friberg og mætir
Laddi þar í jólasögu Skröggs.
Draugar úr fortíðinni
„Platan átti að koma út fyrir jólin í
fyrra og þetta þótti henta svona þá
en Bjöggi fann þetta einhvers staðar
og þýddi þetta.“ Fleiri koma þó og
heimsækja okkur úr fortíðinni en
draugar Skröggs en „Jón spæjó
snýr aftur“ er eitt af lögum geisla-
disksins og fáum við þá að heyra
meira af honum. „Það er skemmti-
legt að fá hann, þetta er söngur um
hann en það heyrist ekki í honum,
bara lag um að spæjarinn sé mættur
aftur á kreik.Við erum mjög ánægð-
ir með þetta, ég og Björgvin,“ segir
Þórhallur að lokum. gea@mbl.is
Jón spæjó snýr aftur
Í fyrsta sinn sem Laddi og Bó vinna saman síðan „Of feit fyrir mig“
Rykið dustað af mörgum gömlum persónum á nýjum geisladisk Ladda
Laddi Á nýrri plötu má finna gamlar persónur og nýtt efni.
Kakkalakkinn – Eiríkur Fjalar
Krúttlegt par – Laddi
Bombadilla – Laddi
Portofino – Saxi læknir
Saga úr sveit – Laddi
Ég syng í míkrófón – Laddi
Á Hawaí – Laddi
Bingó, bingó, bingó – Mófreður gamli
Jón spæjó snýr aftur – Laddi
Nokkur lög af disknum
LADDI GEFUR ÚT NÝTT EFNI
Hljómsveitin Silfurberg samanstendur af sex einstaklingum,
söngkonu og fimm hljófæraleikurum, en leiðir þeirra lágu
saman í Tónlistarskóla FÍH. Í sumar ætla sexmenningarnir að
flytja norræn þjóðlög í eigin útsetningum. Notalegar og djass-
aðar útsetningar ætlaðar öllum aldurshópum.
Listahópur Hins húsins
Silfurberg
Í sumar ætlar Homo Superior að fara í loftið með útvarpsþátt-
inn Skúrinn og verður hann í loftinu á fimmtudagskvöldum á
Rás 2. Í þættinum ætla þær Selma, Sunna og Katrín að fjalla
um tónlistarhátíðir; uppruna þeirra, sögu, hápunkt, áhuga-
verðar hljómsveitir og í raun flest sem þeim viðkemur.
Útvarp Homo Superior
Fyrirbærið Ljóðverk er tilraun þeirra Snorra Rafns Halls-
sonar og Más Mássonar Maack til að endurvekja áhuga fólks á
íslenskum skáldskap, opna augu vegfarenda fyrir borgar-
landi Reykjavíkur og um leið ögra eftirtektarleysi einstak-
linga í erilsömu nútímasamfélagi.
Ljóðverk
Ljósmynd/Jorri