Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 6
20. október 2011 FIMMTUDAGUR6
FRÉTTASKÝRING
Hvernig standa mál varðandi orku í
Þingeyjarsýslum?
Þrjú fyrirtæki hafa undirritað
viljayfirlýsingu við Landsvirkj-
un um nýtingu orkunnar í Þing-
eyjarsýslum, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins. Útboð er í
gangi varðandi
hönnun á mann-
virkjum varð-
andi virkjanir
við Bjarnarflag
og Þeistareyki,
sem samanlagt
munu gefa 180
megavött.
A lc oa t i l -
kynnti á mánu-
dag að fyrir-
t æk ið vær i
fallið frá hugmyndum um bygg-
ingu álvers við Bakka á Húsavík.
Margir hafa gagnrýnt stjórnvöld
fyrir þá þróun mála og sagt þau
hafa staðið í vegi fyrir uppbygg-
ingu álversins.
Fyrirtækin sem þegar hafa
undirritað viljayfirlýsingu við
Landsvirkjun eru, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins, PCC
og Thorsil, sem bæði starfa á
sviði kísilmálms, og Charbon Re-
cycling International, sem sér-
hæfir sig í metanólframleiðslu.
Auk þessara fyrirtækja hefur
finnska fyrirtækið Kemira sýnt
áhuga á framkvæmdum á svæð-
inu. Þá hefur nafn kínverska
álframleiðandans Bosai einnig
verið nefnt, en minna er vitað um
hvernig þau mál standa.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra undirritaði í júní vilja-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
og fjögurra sveitarfélaga á Norð-
austurlandi. Þar var lögð áhersla
á mikilvægi þess að jarðvarmi í
Þingeyjarsýslum yrði notaður
til umfangsmikillar atvinnuupp-
byggingar og eflingar byggðar á
svæðinu. Með viljayfirlýsingunni
var stefnt að því að skapa þær
aðstæður að allri nauðsynlegri
forvinnu verði lokið þegar gengið
verður til samninga við einn stór-
an orkukaupanda eða fleiri minni
orkukaupendur um uppbyggingu
orkufreks iðnaðar í Þingeyjar-
sýslum.
Ásamt iðnaðarráðherra skrifuðu
undir viljayfirlýsinguna fulltrúar
Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveit-
ar, Tjörneshrepps og Norðurþings.
Sveitarstjóri síðastnefnda sveit-
arfélagsins, Bergur Elías Ágústs-
son, lýsti yfir vonbrigðum með nið-
urstöðu Alcoa, en sagði hana í takt
við þær nýju áherslur sem ítrekað
hefðu komið fram hjá stjórnvöldum
og Landsvirkjun.
Bergur hefur sagt að enn sé stefnt
að því að skapa 600 til 800 störf í
héraðinu. Í samtali við Fréttablað-
ið í ágúst sagði hann það hafa verið
markmiðið frá 1998. „Ef við gerum
það með álveri þá er það flott, ef
það er eitthvað annað þá er það
fínt,“ sagði hann þá og bætti við að
í raun væri allt klárt, aðeins þyrfti
að ganga frá samningum við orku-
kaupendur.
Nú þegar Alcoa er fallið frá
áformum sínum má búast við að
aukinn þungi færist í viðræður við
hin fyrirtækin. kolbeinn@frettabladid.is
Viljayfirlýsingar um
orkuna fyrir norðan
Þrjár viljayfirlýsingar hafa verið undirritaðar um orku í Þingeyjarsýslum.
Metanólframleiðsla og kísilmálmur í undirbúningi. Útboð vegna mannvirkja
tveggja virkjana er í gangi. Fimm fyrirtæki eru nefnd til sögunnar.
BERGUR ELÍAS
ÁGÚSTSSON
HÚSAVÍK Alcoa er hætt við álver á Bakka en þrjú fyrirtæki hafa undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um nýtingu orku í
Þingeyjarsýslum. MYND/KK
EFNAHAGSMÁL Sjálfstæðismenn
leggja til að fólk geti skilað inn
lyklunum að húsnæði sínu ef
almenn skuldaúrræði duga því
ekki. Þannig geti fólk afsalað sér
fasteigninni til lánardrottins og
losnað undan skuldbindingum í
staðinn.
Þetta er meðal þess sem er að
finna í efnahagstillögum Sjálf-
stæðisflokksins sem lagðar hafa
verið fram á Alþingi. Í tillögunum
er lögð áhersla á að auka ráðstöfun-
artekjur heimilanna, ljúka endur-
skipulagningu skulda þeirra og
draga úr áhrifum verðtryggingar.
Þingmenn flokksins leggja til
að viðskiptavinum Íbúðalána-
sjóðs verði boðið að skipta úr verð-
tryggðum lánum í óverðtryggð
með föstum vöxtum til fimm ára
og að kannað verði með hvaða
hætti megi koma til móts við
þá sem fengið hafa lánsveð
en ekki notið góðs af 110
prósenta leiðinni.
Þá vilja þeir meðal ann-
ars afnema stimpilgjöld,
tryggja að afskrifaðar skuld-
ir verði ekki skattlagðar sem
tekjur, endurskoða álagn-
ingu á nauðsynjavörur,
lækka skatta, ráðast í stórátak í
fjárfestingum og draga enn frekar
úr umsvifum hins opinbera.
Flokksmenn munu standa fyrir
fundum um allt land næstu vikur
til að kynna átakið. Formaðurinn,
Bjarni Benediktsson, heldur
fyrsta slíka fundinn í Valhöll
klukkan tólf í dag. - sh
Þingmenn Sjálfstæðisflokks leggja fram viðamiklar tillögur í efnahagsmálum:
Sjálfstæðismenn styðja lyklaleiðina
RÍÐUR Á VAÐIÐ Flokksformaður-
inn Bjarni Benediktsson
kynnir tillögurnar og
svarar fyrirspurnum
í Valhöll í dag.
Ert þú ánægð(ur) með
ákvörðun Alcoa um að hætta
við álver á Bakka?
Já 42,8%
Nei 57,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að efla samfélagsþjónustu í
stað fangelsisrefsingar?
Segðu skoðun þína á visir.is
SJÁVARÚTVEGUR Starfsfólk upp-
sjávarfrystihúss HB Granda á
Vopnafirði frysti yfir tuttugu
þúsund tonn af síld og makríl á
vertíðinni sem lauk um síðustu
helgi. Um vinnslumet er að ræða
enda er þetta tæplega 27 prósenta
aukning frá vertíðinni í fyrra,
enda þótt afli skipa félagsins í
tegundunum hafi dregist saman
um tæplega fimmtán prósent
milli ára.
Þetta kemur fram í samantekt
uppsjávarsviðs HB Granda sem
sagt er frá á heimasíðu félagsins.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar, deildarstjóra hjá Granda,
voru nú fryst um 11.500 tonn af
makríl og um 8.900 tonn af síld.
Mikil aukning varð í vinnslu
á makríl milli ára því í fyrra
voru fryst 4.800 tonn af makríl
á Vopnafirði. Vinnsla á norsk-
íslenskri síld dróst hins vegar
saman um 2.400 tonn en síldar-
kvótinn var mun minni í ár en í
fyrra. Aflasamdráttur skipa HB
Granda á síldveiðunum í ár nam
um 7.500 tonnum.
Heildaraflinn á nýliðinni vertíð
nam um 37.200 tonnum af síld og
makríl en aflamagnið í fyrra var
tæplega 43.700 tonn.
- shá
Yfir 20 þúsund tonn af makríl og síld unnin í uppsjávarfrystihúsi HB Granda:
Vinnslumet sett á Vopnafirði
LANDAÐ Á VOPNAFIRÐI Skip HB Granda
lönduðu tugum þúsunda tonna af upp-
sjávarfiski á Vopnafirði á vertíðinni.
MYND/JÓN SIGURÐARSON
DANMÖRK Dönsk stjórnvöld
áforma að hækka sakhæfisaldur
aftur úr 14 árum upp í 15 ár.
Stjórn Venstre og Íhaldsflokks-
ins færði aldurinn niður fyrir um
einu ári. Talsmaður Venstre segir
við danska ríkisútvarpið að ekki
sé gert ráð fyrir fangelsis dómum
yfir 14 ára börnum, heldur séu
önnur úrræði til staðar þegar
dómur hafi verið kveðinn upp.
Stjórnin svarar því hins vegar til
að hingað til hafi lækkun sak-
hæfisaldurs ekki skilað neinum
árangri. - þj
Réttarkerfið í Danmörku:
Vilja sakhæfi
aftur upp í 15 ár
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi
KJÖRKASSINN