Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 20. október 2011 25
Hinn 7. október sl. birtist í Fréttablaðinu grein eftir
Söndru B. Jónsdóttur þar sem
hún skammar íslensk stjórnvöld
fyrir seinagang við setningu
reglugerðar um merkingar á
erfðabreyttum matvælum. Til
að undirstrika mikilvægi reglu-
gerðarinnar vísar Sandra í niður-
stöður sem nýverið birtust í tíma-
ritinu Reproductive Toxic ology
(1) en þar er fullyrt að mælst hafi
próteinið Cry1Ab í blóði hjá hópi
kvenna í Kanada. Framsetning
Söndru á þeim niður stöðum er
með slíkum endemum að ekki
verður orða bundist og langar
mig að benda á nokkur atriði sem
betur hefðu mátt fara.
Ekki heilsufarsrannsókn
Sandra telur að hér hafi verið á
ferðinni „tímamóta heilsufars-
rannsókn”. Hið rétta er að hér
var ekki um að ræða heilsufars-
rannsókn þar sem niðurstöður
mælinga voru ekki tengdar
við heilsufar þeirra kvenna
sem tóku þátt í rannsókninni.
Í greininni kemur aðeins fram
að konurnar, sem sumar voru
þungaðar, voru heilbrigðar við
sýnatöku, að engin vandamál
komu fram í fæðingu og að öll
börnin voru af eðlilegri stærð.
Hvernig Sandra kemst að þeirri
niðurstöðu að um sé að ræða
heilsufarsrannsókn er mér hulin
ráðgáta.
Í grein Söndru segir „[í] rann-
sókninni fannst Bt-eitur sem
splæst er í erfðabreyttar plöntur
(gegn skordýrum) í blóði þung-
aðra kvenna og fóstra…“ og
jafnframt „[n]iðurstaða [rann-
sóknarinnar] var að eitur þetta
kæmi úr erfðabreyttum matvæl-
um…“. Þó svo að Cry1Ab pró-
teinið („Bt-eitrið“) sé að finna í
ákveðnum erfðabreyttum nytja-
plöntum er ekkert í rannsókn-
inni sem styður þá ályktun að
próteinið sem mældist í blóði sé
úr erfðabreyttum matvælum.
Engar vísbendingar
Í umræddri vísindagrein er í
raun hvergi að finna neinar vís-
bendingar um uppruna Cry1Ab
próteinsins en í þessu samhengi
er vert að benda á að próteinið
er m.a. framleitt af jarðvegs-
bakteríunni Bacillus thuringi-
ensis og hefur verið notað sem
vörn gegn skordýrum frá því
löngu fyrir tíma erfðabreytinga
og er enn í dag víða notað óháð
erfðabreytingum, meðal annars
í lífrænni ræktun.
Sandra heldur áfram og segir:
„[e]rfitt er að ímynda sér sterk-
ari vísbendingar um það heilsu-
tjón sem erfðabreytt matvæli
geta valdið neytendum…“. Hér
er rétt að undirstrika að í grein-
inni komu ekki fram neinar vís-
bendingar um neikvæð áhrif
Cry1Ab próteinsins á heilsufar
þeirra kvenna sem greindust
með það í blóði. Einnig er vert
að benda á að fyrri rannsóknir
hafa sýnt að eitrunaráhrif prót-
einsins einskorðast við ákveðnar
tegundir skordýra (2) og engin
áhrif hafa komið fram á heilsu-
far spendýra (3-5).
Gagnrýniverð aðferð
Síðast en ekki síst má með sterk-
um rökum gagnrýna þá aðferð
sem notuð var við að mæla
Cry1Ab próteinið í rannsókninni.
Aðferðin var ekki þróuð til mæl-
inga á próteininu í blóði og sýnt
þykir að hún er ekki ákjósan leg
til slíkra mælinga (6-7). Veikir
þetta mjög niðurstöður rann-
sóknarinnar og hefði nauðsyn-
lega þurft að staðfesta tilvist
Cry1Ab próteinsins í blóðsýnum
með öðrum og betri aðferðum.
Þegar niðurstöður vísinda-
rannsókna eru kynntar almenn-
ingi verður að gera þá kröfu til
þeirra sem það gera að farið sé
fram af yfirvegun, hlutleysis
gætt og að kynntar séu sann-
reyndar niðurstöður. Þetta er
sérstaklega mikilvægt þegar
upplýsingar eru líklegar til að
vekja ótta almennings.
Ekkert af ofangreindu á við
um grein Söndru, þar sem hún
leitast við að draga öfgafullar
ályktanir af umræddum niður-
stöðum án þess að gera grein
fyrir annmörkum rannsóknar-
innar. Af lestri greinarinnar er
ljóst að Sandra gerist sek um
annað af tvennu, að tjá sig um
málefni sem hún hefur tak-
markaðan skilning á eða þá að
afvegaleiða lesendur sína vísvit-
andi með rangfærslum. Hvort er
verra læt ég ósvarað en ljóst er
að tilgangurinn er ekki að upp-
fræða heldur að hræða og ætti
höfundur að fá skammir fyrir.
(1) Aris og Leblanc. 2011.
Reproductive Toxicology 31
[4]: 528-533. (2) Bravo, Jansens
og Peferoen. 1992. Journal of
Invertebrate Pathology 60 [3]:
237-246. (3) McClintock, Schaf-
fer og Sjoblad. 1995. Pesticide
Science 45 [2]: 95-105. (4) Shi-
mada, Miyamoto, o.fl. 2006. In
Vitro Cellular & Developmen-
tal Biology - Animal 42: 45. (5)
Shimada, Murata, o.fl. 2006. The
Journal of Veterinary Medical
Science 68 [10]: 1113-1115. (6)
Chowdhury, Kuribara, o.fl. 2003.
Journal of Animal Science 81
[10]: 2546-2551. (7) Lutz, Wie-
demann, o.fl. 2005. Journal of
Agricultural and Food Chem-
istry 53 [5]: 1453-1456.
Fyrirtækjalausnir Póstsins er
nýtt heiti yfir alla þá þjónustu sem Pósturinn veitir
fyrirtækjum. Allt frá því að koma með og sækja
póstinn á vinnustaðinn daglega yfir í að hýsa vörur
fyrir fyrirtæki, pakka og svo senda.
Hafðu samband við Fyrirtækjalausnir Póstsins í
síma 580 1090. Sjáðu hvort við getum ekki sparað
þér fyrirhöfn, tíma og peninga svo þú getir einbeitt
þér að því að vinna, vinna, vinna …
Vörudreifing Vöruhýsing
Sendla-
þjónusta
Fyrirtækja-
þjónusta
Auglýsinga-
póstur
Viðskipta-
pakkar til
útlanda
Hræðsluáróður gegn erfðabreyttum matvælum
Erfðabreytt
matvæli
Jón Hallsteinn
Hallsson
dósent í erfðafræði við
Landbúnaðarháskóla
Íslands
Framsetning Söndru á þeim niðurstöðum
er með slíkum endemum að ekki verður
orða bundist og langar mig að benda á
nokkur atriði sem betur hefðu mátt fara.