Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 18
20. október 2011 FIMMTUDAGUR18 Umsjón: nánar á visir.is – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 68 24 1 0/ 11Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur D-3 vítamín er nauðsynlegt fyrir alla – börn, konur og karla. Gildir til 31. október 2011. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) heim- ilaði í gær Íslandsbanka að kaupa BYR þrátt fyrir að bankinn hafi áður hlotið ríkisaðstoð. Auk þess veitti stofnunin áframhaldandi heimild fyrir 5 milljörðum króna víkjandi lánafyrirgreiðslu íslenska ríkisins til sameinaðs banka. Þar með hafa allir eftirlitsaðilar sem þurftu að fjalla um samruna bank- anna lagt blessun sína yfir hann. Það eina sem vantar til þess að hann geti gengið í gegn er að íslenska ríkið fái lagaheimild til að selja hlut sinn í fjármálafyrirtæki. Slíka heimild er að finna í frum- varpi til fjáraukalaga vegna ársins 2010. Þau verða að öllum líkindum afgreidd í desember. Samkvæmt upplýsingum úr fjármálaráðuneyt- inu stendur ekki til að leggja fram sérstakt frumvarp sem myndi heimila sölu ríkisins á hlut sínum í Byr. Því verður allt að tveggja mánaða bið á samrunanum. Í lögum er nú þegar heimild til að selja hlut ríkisins í sparisjóðum. Sú heimild nær hins vegar ekki til Byrs þar sem sparisjóðnum var breytt í hlutafélag þegar ríkið tók hann yfir í apríl 2010. Fjármálaeftirlitið (FME) og Samkeppniseftirlitið veittu á mánudag samþykki sitt fyrir sam- runa Íslandsbanka og Byrs. Niður- staða samkeppnisyfirvalda byggði á því að Byr uppfyllti skilyrði um fyrirtæki á fallandi fæti, sem yrði órekstrarhæft ef Íslandsbanki fengi ekki að kaupa það. Íslands- banki greiðir á annan tug millj- arða króna fyrir Byr. - þsj Allir eftirlitsaðilar hafa lagt blessun sína yfir kaup Íslandsbanka á Byr: Ríkið tefur sameiningu bankanna ÍSLANDSBANKI Eftir að samruni bankanna tveggja hefur verið kláraður munu núverandi viðskiptavinir Byrs verða viðskiptavinir Íslandsbanka. Þýska flutningslausnafyrirtækið DB Schenker hefur opnað skrifstofu á Íslandi. Fyrirtækið býður upp á heildarlausnir á sviði vöruflutninga og vörustjórnunar og rekur um 2 þúsund skrif- stofur í 131 landi. Hjá því starfa alls 90 þúsund manns. Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri DB Schenker á Íslandi, segir mikil tækifæri felast í samstarfi við fyrirtæki hér á landi. Hann er þess fullviss að alþjóðlegt net fyrirtækisins geti komið innlendum fyrirtækjum að góðum notum. Þeim verði nú tryggð sama þjónusta og DB Schenker býður um allan heim. DB Schenker er stærsta fyrirtæki í Evrópu á sviði flutninga á landi og í lestarflutningum. Þá er það númer tvö á heimsvísu í flutningum með flugi og númer þrjú á heimsvísu í sjóflutningum. Ingvar Nilsson, framkvæmdastjóri DB Schenker á Norðurlöndunum og í Bretlandi, segir fyrirtækið vilja tengja íslenska markaðinn við alþjóðlega starfsemi fyrirtækisins. Það sérhæfi sig í að finna hagkvæmustu flutningsleiðir fyrir fyrirtæki og bjóði þeim að fylgjast með staðsetn- ingu sendinga hvar sem er í heiminum. Skrifstofan hér á landi mun einbeita sér að því að sinna þjónustu við inn- og útflytjendur á Íslandi en auk þess verður hér byggð upp þekkingarmið- stöð fyrirtækisins á sviði frystiflutninga. - mþl Alþjóðlega flutningslausnafyrirtækið DB Schenker opnar skrifstofu í Reykjavík: Stórt flutningafyrirtæki opnar á Íslandi DB SCHENKER Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri DB Schenker á Íslandi, (til vinstri) ásamt lykilstarfsmönnum frá skrifstofum fyrirtækisins í Svíþjóð og Þýskalandi. Félag í 100% eigu Arion banka jók hlutafé í Pennanum á Íslandi um 200 milljónir króna hinn 21. september síðastliðinn. Greitt var fyrir hina nýju hluti með reiðufé. Nýi Penninn, sem var stofnaður í apríl 2009, tapaði rúmum millj- arði króna á árunum 2009 og 2010 þrátt fyrir að skuldir upp á um 8 milljarða króna hafi verið skild- ar eftir í þrotabúi gamla Pennans og að Arion banki hafi breytt um 1,2 milljarða króna skuld í hlutafé þegar félagið var sett á fót. Eigið fé Pennans var ekki orðið neikvætt þegar ákvörðun um hlutafjárinnspýtinguna var tekin, en rekstur félagsins hefur þó verið þungur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Arion banki tók yfir Pennann ehf. í lok mars 2009. Skömmu síðar stofnaði bankinn nýtt félag utan um rekstur Pennans á Íslandi. Hið nýja félag á og rekur versl- anir Eymundsson, Pennans, Grif- fils og Islandia. Samhliða var tæp- lega 1,2 milljarða króna skuld við Arion banka breytt í hlutafé. Þetta var gert með blessun Samkeppnis- eftirlitsins. Í ákvörðun þess kom fram að Penninn sé talinn hafa háa markaðshlutdeild og sterka stöðu í sölu á meðal annars bókum og tímaritum. Þar segir einnig að tilgangur Arion banka sé „ekki sá að eiga og reka fyrirtækið til lang- frama“. Penninn er þó enn í eigu Arion banka tveimur og hálfu ári eftir að ákvörðun Samkeppnis- eftirlitsins var birt. Eignir að andvirði 2,4 milljarð- ar króna voru færðar yfir í nýja félagið og skuldir upp á 1,9 millj- arða króna fylgdu einnig með. Rúmur helmingur þeirra skulda voru viðskiptaskuldir, að mestu við birgja. Sú ákvörðun að taka yfir þær skuldir var tekin til þess að valda birgjunum sem minnstu tjóni og halda þannig mikilvæg- um viðskiptasamböndum við. Sam- kvæmt upplýsingum frá Arion banka var sú ákvörðun þó veru- lega íþyngjandi fyrir efnahag Pennans. Til viðbótar við þetta lánaði Arion banki síðan Pennanum 500 milljónir króna í febrúar 2010 sem notaðar voru til að greiða skuld hans við þrotabú Kaupþings og yfirdráttarskuld. Eignabjarg, eign- arhaldsfélag í 100% eigu Arion banka, hefur haldið utan um eign bankans í Pennanum. Skiptum á þrotabúi gamla Penn- ans, sem var endurnefnt GPI ehf. eftir þrot, lauk í ágúst síðastliðn- um. Ógreiddar kröfur í búið námu nærri 7,5 milljörðum króna. For- gangs- og veðkröfur greiddust en almennir kröfuhafar fengu einungis um 42 milljónir króna saman lagt í sinn hlut. Langstærsti kröfuhafi Pennans var skilanefnd Kaupþings. thordur@frettabladid.is Tap Pennans milljarður á tveimur árum Hlutafé í Pennanum var aukið um 200 milljónir í lok september. Félag í 100% eigu Arion skráði sig fyrir því og greiddi í reiðufé. Reksturinn í bata. EYMUNDSSON Penninn opnaði nýja Eymundsson-verslun á Skólavörðustíg nokkrum mánuðum eftir að Arion banki hafði tekið félagið yfir. Staðan á ritfangamarkaði er um margt sérstök. Utan Pennans eru helstu aðilarnir á þeim markaði A4 og Office 1. A4 varð gjaldþrota árið 2009 og reksturinn settur inn í nýtt félag, A4 Skrifstofa og skóli ehf. Það félag var síðan selt á um 300 milljónir króna til Björg slhf., fagfjárfestasjóðs í eigu skilanefndar Sparisjóðabankans sem rekinn er af Arev verðbréfum. Hið nýja A4 tapaði 95,5 milljónum króna á árinu 2010 og eigið fé fyrirtækisins um síðustu áramót var 55 milljónir króna. Félagið sem átti Office 1 fór í greiðslustöðvun um mitt ár 2009. Rekstur- inn var settur inn í nýtt félag og seldur til fyrrum stjórnenda og eigenda félagsins síðasta sumar eftir opið söluferli. Kaupverðið var ekki gefið upp. Hið nýja félag hefur ekki gefið út ársreikning, enda stofnað í ár. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi gamla Office 1 (sem nú heitir Tékklistinn ehf.) skuldaði félagið 826 milljónir króna í lok árs 2009. Allir stærstu urðu gjaldþrota Íslenski tölvuleikjaframleið- andinn CCP hefur sagt upp 20 prósentum starfsmanna sinna. Starfsmönnum á skrifstofu fyrir- tækisins í Atlanta fækkar um 80 og um 34 í Reykjavík. Uppsagnirnar eru liður í skipu- lagsbreytingum hjá CCP. Hyggst fyrirtækið einbeita sér að áfram- haldandi þróun sinnar helstu vöru, EVE-Online, og að þróun leiksins DUST-514 sem koma á út á næsta ári. Hins vegar verð- ur hægt á þróun leiksins World of Darkness sem CCP hefur einnig unnið að. „Þessi ákvörðun er tekin með hliðsjón af markaðsaðstæðum, mati okkar á því hvar tækifæri fyrirtækisins liggja og hvar kröftum okkar er beitt á áhrifa- ríkastan hátt,“ segir Þorsteinn Högni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar hjá CCP. Þorsteinn segir að starfsmönn- um við þróun EVE-Online og DUST-514 fækki ekki við þessar aðgerðir. Þvert á móti sé stöðu- gildum við þróun DUST-514 fjölg- að. Aukinn kraftur verði svo færð- ur í þróun World of Darkness á ný í kjölfar þess að DUST-514 kemur út á næsta ári. Í tilkynningu frá CCP segir að gripið hafi verið til þessara ráð- stafana þar sem komið hafi í ljós að fyrirtækið hafi verið með of mikið í gangi á sama tíma miðað við stærð. Þá er lögð áhersla á að áskrifendum að EVE hafi fjölgað síðastliðið ár og að þróun World of Darkness hafi ekki verið hætt, heldur einungis hægt á henni. Loks kemur fram í tilkynning- unni að fyrirtækið muni í sam- starfi við viðeigandi stofnanir veita þeim sem nú missa vinnuna aðstoð við að finna ný störf. - mþl Um 20 prósentum starfsmanna sagt upp við skipulagsbreytingar hjá CCP: CCP segir upp fjölda starfsmanna EVE-ONLINE Áskrifendum að EVE- Online hefur fjölgað ár frá ári frá því að leikurinn kom út árið 2003. FLEIRI HÖFÐU ATVINNU hér landi á þriðja ársfjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra.1.600
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.