Fréttablaðið - 20.10.2011, Page 8

Fréttablaðið - 20.10.2011, Page 8
20. október 2011 FIMMTUDAGUR8 SAMFÉLAGSMÁL Á Íslandi starfa rúmlega þrjú þúsund sjálfboða- liðar með Rauða krossinum, eða einn af hverjum 300 Íslending- um. Þessi tölfræði er eftirtektar- verð því samkvæmt útreikn- ingum Alþjóða Rauða krossins starfar einn af hverjum 30 þús- und sem sjálfboðaliði Rauða krossins eða Rauða hálfmánans á heimsvísu. Nú er yfirstandandi Rauða- krossvikan, þar sem félagið vill vekja athygli á framlagi sjálfboðaliða Rauða kross- ins til samfélagsins. Tilefni Rauðakross vikunnar er Evrópu- ár sjálfboða liðans undir yfir- skriftinni Tíminn er dýrmætur. Rauðakrossdeildir um allt land kynna verkefni sín þessa viku. Um tíu þúsund manns nota reglulega þjónustu Rauða kross Íslands, en félagið áætlar að um helmingi fleiri njóti góðs af starfinu óbeint. Ársframlag sjálfboðaliða er talið um 302 þúsund klukkustundir, sem sam- svarar 145 ársverkum. Sé það framreiknað samkvæmt meðal- launum í landinu þyrfti að greiða 700 milljónir króna í laun fyrir þau verk sem unnin eru í sjálf- boðastarfi á vegum félagsins. - shá Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Kvennaleikfimi Nýtt námskeið hefst 31. október Kennsla er á mán, mið, og föst. kl. 16.30 Þjálfari er Þóra Sif Sigurðardóttir, íþróttafræðingur Verð fyrir 4 vikur er 13.900 kr. eða 9.900 í áskrift Gamla góða leikfimin fyrir allar konur sem vilja auka styrk og vellíðan. Styrktaræfingar, lítil hopp og æfingar fyrir maga, rass og læri: Skráðu þig núna í síma 5601010 eða á heilsuborg@heilsuborg.is Íslensk framleiðsla Fæst í apótekum um land allt STERKAR KALK TÖFLUR INNIHALDA D-VÍTAMÍN EKKERT GELATÍN LÖGREGLUMÁL Úraránið í verslun Michelsen úrsmiða þykir stórt á alþjóðlegan mælikvarða Rolex. Listi yfir þau úr sem var rænt á mánudag hefur verið afhentur fyrirtækinu og lögreglu, að sögn Franks Michelsen úrsmiðs. Hann gefur ekki upp hversu mörgum úrum var stolið. Frank hefur lofað milljón krón- um í verðlaun fyrir upplýsingar sem geta orðið til þess að ránið verði upplýst. Hann segist hafa fengið fjölda ábendinga en bend- ir fólki á að hafa samband við lög- regluna ef það hefur upplýsingar um málið. Lögregla hefur ekki fundið nein- ar vísbendingar um að skoti hafi verið hleypt af þegar þrír menn ruddust inn í verslun Michelsen úrsmiða á ellefta tímanum á mánu- dagsmorgun, samkvæmt upplýsing- um Fréttablaðsins. Lögregla hefur undir höndum myndir af ræningjunum þar sem þeir voru að athafna sig í verslun- inni, en þekkir þá ekki. Í gær var því ekki vitað hverjir voru þarna að verki, hverrar þjóðar þeir eru, né hvort þeir hafa komist af landi brott eftir ránið. Þá hefur ekki fundist tangur né tetur af þýfinu. Ránið virðist hafa verið þaul- skipulagt. Í bílnum sem mennirnir flúðu á af ránsstað og skildu eftir við Smáragötu voru tvær leikfanga- byssur sem þeir notuðu til að ógna fólki í versluninni. Engin fingraför hafa fundist á byssunum, enda voru þeir með hanska, grímur og hett- ur þegar þeir ruddust inn og þrifu með sér úrin úr tveimur sýningar- skápum þar. Myndbandsupptaka úr versluninni sýnir að mennirnir voru örsnöggir að athafna sig og héldu starfsfólkinu í skefjum með leikfangabyssunum, brutu skápana og sópuðu út úr þeim. Lögreglan hefur lýst eftir manni í rauðri úlpu sem upptaka úr öryggis myndavél sýndi að var að sniglast fyrir utan verslunina morguninn sem ránið var fram- ið. Upplýsingar sem almenningur hefur veitt hafa ekki leitt til þess að kennsl hafi verið borin á hann. Af fjórum bílum sem stolið var á höfuðborgarsvæðinu helgina áður en ránið var framið eru þrír komnir í leitirnar. Talið er að einn bílanna hafi ræningjarnir notað til að komast á ránsstað og til að flýja burt eftir verknaðinn. Sá bíll fannst við Smáragötu og þar hverfur slóð ræningjanna. Stolinn bíll sem skilinn var eftir í gangi við Vegamótastíg er jafnvel talinn tengjast málinu, en þó er það ekki fullvíst. jss@frettabladid.is thorunn@frettabladid.is Rolex telur ránið stórt á alþjóðavísu Enn er leitað að þremur mönnum sem réðust inn í úraverslun við Laugaveg á mánudagsmorgun. Slóð þeirra hverfur við Smáragötu. Ábendingar hafa ekki borið árangur. Ránið þykir stórt á alþjóðlegan mælikvarða Rolex. VERSLUNIN Frank Michelsen í versluninni skömmu eftir að ráðist var þar inn. Engin fingraför hafa fundist og mennirnir þekkjast ekki í öryggismyndavélum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1 Hvað kallast hreyfingin sem ætlar að fletta ofan af vændis- kaupendum? 2 Hvað heitir ísraelski hermaður- inn sem slapp úr haldi Hamas- samtakanna í fyrradag? 3 Með hvaða sænska knattspyrnu- liði leikur landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir? SVÖR: 1. Stóra systir. 2. Gilad SHalit. 3. Malmö. Vakin er athygli á starfi þrjú þúsund sjálfboðaliða Rauða kross Íslands: Framlagið metið á 700 milljónir Verkefni Fjöldi Neyðarvarnir/skyndihjálp: 750 Heimsóknavinir: 500 Fataverkefni: 450 Ungmennaverkefni: 260 Starf með innflytjendum: 255 Hjálparsíminn 1717: 100 Heilsuvernd fyrir fíkla: 56 Málefni hælisleitenda: 36 Rauðakrosshúsin: 35 Stjórnar- og deildarstörf: 415 Fjöldi sjálfboðaliða MANNRÉTTINDI Bandaríkjamenn, Rússar og ýmsar Evrópuþjóðir hafa á undanförnum árum selt mikið af vopnum til Mið-Austur- landa og Norður-Afríku þrátt fyrir að miklar líkur væru á að þau yrðu notuð til að fremja alvarleg mann- réttindabrot. Þetta segir í nýrri skýrslu mann- réttindasamtakanna Amnesty Inter national, þar sem greint er frá vopnasölu til Barein, Egyptalands, Líbíu, Sýrlands og Jemen frá árinu 2005. Í skýrslunni eru Austurríki, Belgía, Búlgaría, Tékkland, Þýska- land, Indland, Ítalía, Spánn, Sviss, Rússland, Tyrkland, Úkraína, Bretland og Bandaríkin sögð hafa selt þangað vopn og annan búnað. Niðurstaða skýrslunnar er að raunhæft eftirlit með vopnasölu skorti og þörf sé á alþjóðlegum vopnaviðskiptasáttmála sem hafi það að markmiði að tryggja virð- ingu fyrir mannréttindum. „Stjórnvöld sem í dag segjast standa í samstöðu með fólki í Mið- Austurlöndum og Norður-Afríku eru mörg þau sömu og hafa nýlega afhent vopn, byssukúlur og ýmis tól og tæki sem voru og eru notuð til að drepa, særa og handtaka friðsama mótmælendur í löndum á borð við Túnis, Egyptaland, Sýr- land og Jemen,“ segir í tilkynn- ingu frá samtökunum. - sh Amnesty segir vopn frá Vesturlöndum notuð til að brjóta á mannréttindum: Brestir í eftirliti með vopnasölu VESTRÆN VOPN Mannréttindasamtök segja alþjóðlegan vopnaviðskiptasáttmála skorta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NEYTENDUR Mest seldu vörurnar í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli eru áfengi og sælgæti. Vefsíðan Túristi.is hefur nú fengið lista yfir tíu vinsælustu vörurnar. Þrjár útgáfur af M&M sælgætinu ná á topp tíu listann og er það eina sælgætið sem nær slíkum vinsældum. Víking bjór er vinsælastur, þá M&M Peanut butter, Egils Gull, Brennivín miniature, M&M Chocolate, M&M Peanut, Reyka Vodka, Brennivín, Iceland Spring og í tíunda sæti er Tuborg Grøn. - sv Bjórinn vinsæll í Fríhöfninni: Mest selt af bjór og súkkulaði VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.