Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 12
20. október 2011 FIMMTUDAGUR
Notaðu Nicky þegar
þú ert búinn!
AFMÆLISMÁLÞING
UM ÍSLENSKA
ÞRÓUNARSAMVINNU
HÁSKÓLI ÍSLANDS | 21. OKTÓBER | KL. 13:30
Í tilefni 40 ára afmælis íslenskrar þróunarsamvinnu,
30 ára afmælis Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og 10
ára afmælis Íslensku friðargæslunnar er efnt til málþings
föstudaginn 21. október kl 13:30 í Öskju, sal 132.
Heiðursfyrirlesari er Dr. Paul Collier frá Oxford háskóla.
DAGSKRÁ
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra opnar málþingið
Can Africa catch up: and can we help?
Dr. Paul Collier, prófessor við Oxford háskóla
Fyrirspurnir úr sal
Um íslenska þróunarsamvinnu
Hermann Örn Ingólfsson, sviðsstjóri
Þróunarsamvinnusviðs utanríkisráðuneytisins
Rannsóknir Collier: stefnumörkun, framkvæmd og kennsla
Jónína Einarsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild HÍ
Hvað er að frétta af þróunarsamvinnu?
Valgerður Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri MA-náms í blaða-
og fréttamennsku við Félags- og mannvísindadeild HÍ
Umræður: Valgerður Sverrisdóttir, formaður
samstarfsráðs um þróunarsamvinnu, stýrir umræðum
Fundarstjóri verður Engilbert Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ
Boðið verður upp á léttar veitingar að loknu málþinginu kl. 16:15
Dr. Paul Collier
Hagfræðiprófessor og
stjórnandi Centre for the
Study of African Economies
við Oxford-háskóla. Hann
er einn virtasti fræðimaður
samtímans og hefur ritað
mikið um þróunarmál, en
meðal þekktustu verka
Collier eru bækurnar The
Bottom Billion, Why the
Poorest Countries are
Failing and What Can Be
Done About It (2008), Wars,
Guns and Votes (2009) og
The Plundered Planet: Why
We Must – and How We
Can – Manage Nature for
Global Prosperity (2010).
ALLIR
VELKOMNIR
GRIKKLAND Töluvert ofbeldi braust
út í gær í tengslum við mótmæli
í Aþenu, höfuðborg Grikklands,
gegn aðhaldsaðgerðum stjórn-
valda. Í mótmælendahópnum
voru allmargir grímuklæddir sem
gengu hvað harðast fram í eyði-
leggingunni.
Tveggja daga allsherjarverk-
fall hófst í gær og lágu bæði
flug samgöngur og almennings-
samgöngur niðri auk þess sem
verslanir og skólar voru lokuð.
Gríska stjórnin samþykkti í
september að skera enn meira
niður í ríkisrekstri, hækka skatta,
selja eignir, segja upp fólki og
draga úr bótagreiðslum.
Stjórnin er með þessu að reyna
að uppfylla kröfur Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og Evrópu-
sambandsins, sem neita að veita
Grikkjum aðstoð við að grynnka
á skuldasúpu ríkisins nema þeir
taki sjálfir almennilega til í ríkis-
fjármálunum.
Gríska þingið gengur til
atkvæða í dag um þennan nýj-
asta aðhaldspakka, í von um að
fá næsta framlag frá AGS og
ESB upp á átta milljarða evra. Að
öðrum kosti verður ríkis sjóður
þurrausinn um miðjan næsta
mánuð og ófær um að greiða laun
og eftirlaun.
Í sumar samþykktu evrópsk-
ir bankar, helstu lánardrottnar
gríska ríkisins, að veita 21 pró-
sents afslátt af lánunum og taka
þannig á sig hluta fallsins sem
fyrir sjáanlegt er.
Um síðustu helgi hét G20-ríkja-
hópurinn, samstarfsvettvangur
20 helstu efnahagsvelda heims, að
veita AGS þann stuðning sem þyrfti
til að hann gæti hjálpað kreppu-
ríkjunum að takast á við vandann.
Um næstu helgi koma síðan leið-
togar Evrópusambandsins saman
í Brussel til að taka ákvarðanir
um næstu skref í baráttunni við
skuldavanda Grikklands og fleiri
evruríkja. Boðað hefur verið að
þau skref muni taka af allan vafa
um að tekið verði á vandanum svo
dugi til að bjarga evrunni.
Meginhugmyndirnar virðast
ganga út á þrennt: Að Grikkjum
verði veitt meiri eftirgjöf skulda,
að neyðarsjóður ESB verði efld-
ur enn frekar og að þeim bönkum
sem tæpast standa verði hjálpað
við að komast út úr erfiðleikunum.
gudsteinn@frettabladid.is
Allsherjar-
verkfall lam-
ar Grikkland
Tveggja daga allsherjarverkfall hófst í gær í Grikk-
landi til að mótmæla aðhaldsaðgerðum stjórnvalda.
G20-ríkin hafa heitið veglegri aðstoð. Um næstu
helgi ætlar ESB að taka ákvarðanir um næstu skref.
ÁTÖK Í AÞENU Að minnsta kosti hundrað þúsund manns tóku þátt í mótmælum í
gær. Sumir hentu grjóti og eldsprengjum í lögregluna. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUMÁL Tveimur af samn-
ingsköflunum í aðildarviðræðum
Íslands og Evrópu sambandsins
sem nú standa yfir, annars vegar
um frjálsa för vinnuafls og hins
vegar um hugverkarétt, var lokað
í gær á ríkjaráðstefnu Íslands og
ESB.
Umfjöllun um kaflana hófst
í gær, en þar sem íslensk lög-
gjöf byggir á samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið er hún
samsvarandi og í ESB-ríkjunum.
Í frétt á vef utanríkis-
ráðuneytis ins kemur fram að nú
hafi sex af 35 samningsköflum
ESB-laga verið opnaðir og fjórum
hafi þegar verið lokað.
Þar er jafnframt haft eftir
Stefáni Hauki Jóhannessyni,
aðalsamningamanni Íslands, að
áhersla sé lögð á að Ísland verði
tilbúið að opna „allt að helming
allra samningskafla fyrir jól og
afganginn í formennsku Dan-
merkur í ESB fyrir mitt næsta ár
2012“.
Næsta ríkjaráðstefna er ráð-
gerð í Brussel hinn 12. desem-
ber næstkomandi og mun Össur
Skarphéðins son utanríkisráðherra
sækja hana fyrir Íslands hönd. - þj
Aðildarviðræður Íslands við ESB í fullum gangi:
Tveimur köflum lokað