Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 24
24 20. október 2011 FIMMTUDAGUR
www.tk.is
ERUM EINGÖNGU
Á LAUGAVEGI 178
Laugavegi 178 - Sími. 568 9955
FIMMTUDAG TIL MÁNUDAGS
20%
AFSLÁTTUR AF
vertu
vinur á
Facebook
Í TÉKK-KRISTAL
ÖLLUM
MATAR & KAFFISTELLUM
HNÍFAPÖRUM
SWAROVSKI SKARTGRIPUM
ÖLLUM GLÖSUM
IITTALA VÖRUM
ÍTÖLSKUM HITAFÖTUM
MÁLVERKUM
og fleiru og fleiru
Fallegar
NÝTT KORTATÍMABIL
Þegar fjórtán þúsund Hafn-firðingar mótmæltu í byrjun
árs 2009 þeim áformum þáver-
andi heilbrigðisráðherra, Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar, að skerða
sjúkraþjónustu á St. Jósefsspít-
ala í Hafnarfirði bjóst enginn við,
að það yrði síðar hlutskipti ráð-
herra í velferðarstjórn, Guðbjarts
Hannes sonar, að taka ákvörðun
um lokun St. Jósefsspítalans og
það gegn hans eigin fyrri fyrir-
heitum um áframhald þeirrar
starfsemi spítalans, sem nú hefur
verið tekin ákvörðun um að hætta.
En í yfirlýsingu ráðherrans, sem
hann sendi frá sér 31. janúar sl. og
kynnt var á bæjarstjórnarfundi
12. október sl. felst viðurkenning
hans á því, að legudeild almennra
lyflækninga verði áfram í hús-
næði St. Jósefsspítalans. Forveri
ráðherrans, Ögmundur Jónasson,
hafði einmitt lagt áherslu á slíka
nýtingu spítalans.
Það er óþolandi, að ráðherra
svíki fyrri fyrirheit sín í máli því,
sem hér um ræðir og óverjandi að
leggja niður alla starfsemi á virtri
sjúkrastofnun, sem í 85 ár hefur af
viðurkenndum myndarbrag þjónað
Hafnfirðingum og ótal fleirum.
Ólögmæt ráðstöfun
Samkvæmt þinglýstu afsali á
Hafnarfjarðarbær 15% eignar-
hluta í St. Jósefsspítalanum. Sá
hluti var keyptur á þeim forsend-
um St. Jósefssystra við sölu spít-
alans, að áfram yrði sjúkrahúss-
rekstur í húsnæði spítalans. Það
vildi bærinn tryggja með kaupum
sínum á eignarhlutanum. Þar sem
húsnæði spítalans er í sameign
bæjarins og ríkissjóðs bar við-
komandi ráðherra að mínum dómi
skylda til að hafa samráð við bæj-
aryfirvöld um það áform sitt að
breyta nýtingu húsnæðisins með
því að leggja þar niður alla sjúkra-
þjónustu.
Bæjarstjóri upplýsti á fundi
bæjarstjórnar 12. október sl., að
hann hefði fyrst í fréttum útvarps
kvöldið áður heyrt um ákvörðun
ráðherrans að loka ætti St. Jósefs-
spítalanum. Framkoman gagnvart
Hafnarfjarðarbæ í þessu máli er
óafsakanleg og ráðstöfunin að
ljúka allri starfsemi spítalans án
samþykkis eða samráðs við bæinn
sem meðeiganda er að mínu mati
ólögmæt.
Óvirðing sýnd St. Jósefssystrum
Þegar St. Jósefssystur seldu spítal-
ann árið 1987 eftir 60 ára rekstur,
sem mótaðist af hagsýni og fórn-
fýsi, fór salan fram á þeim for-
sendum systranna, að „spítalinn
yrði áfram rekinn með svipuðu
sniði og verið hafði“ eins fram
kemur í skráðum heimildum. Var
mér sem ráðgjafa systranna við
söluna og í stjórn spítalans um
árabil vel kunnugt um þá áherslu
systranna, að spítalinn gegndi
áfram sama hlutverki og verið
hafði allt frá stofnun hans árið
1926.
Þegar gengið var frá sölu spítal-
ans féllst þáverandi heilbrigðis-
ráðherra, Ragnhildur Helgadóttir,
og Þorsteinn Pálsson fjármála-
ráðherra á þá eindregnu ósk
bæjar yfirvalda í Hafnarfirði, að
starfsemi spítalans skyldi haldið
áfram á sem flestum sviðum. Að
ætla sér nú að leggja niður alla
starfsemi St. Jósefsspítalans yrði
því á sinn hátt svik við St. Jósefs-
systur og óvirðing við minningu
þeirra.
Engan veginn er ljóst, að ráð-
herra getið sparað ríkissjóði pen-
inga með því að leggja niður núver-
andi starfssemi á St. Jósefsspítala
og flytja á aðra staði. Þá er ekkert
tillit tekið til annarra verðmæta,
sem við það glatast og aldrei verða
metin til fjár. Hér er átt við mikil-
vægi nærþjónustu og það örugga
athvarf, sem St. Jósefs spítali hefur
verið okkur Hafnfirðingum og
mörgum fleiri og ekki síst þann
einstaka anda, sem ætíð hefur ríkt
á spítalanum og rekja má beint til
Jósefssystranna og þeirra fórn-
fúsa og kærleiksríka líknarstarfs.
En orð fer af því, hversu frábær og
persónuleg öll hjúkrunarþjónusta
hefur ætíð verið á St. Jósefsspítala.
Áskorun til þingmanna
Hér með er skorað á þingmenn að
hindra, að atlagan að St. Jósefs-
spítala takist og með því standa
vörð um þá mikilvægu hags-
muni sjúklinga að fá áfram notið
ómetan legrar aðhlynningar á þeim
spítala, sem er eitt besta og elsta
sjúkrahús landsins, sameiginlegt
hjarta og stolt okkar Hafnfirðinga.
Atlagan að St. Jósefsspítala
Heilbrigðismál
Árni
Gunnlaugsson
lögmaður
Samkvæmt þinglýstu afsali á Hafnar-
fjarðarbær 15% eignarhluta í St. Jósefs-
spíalanum. Sá hluti var keyptur á þeim
forsendum St. Jósefssystra við sölu spítalans, að áfram
yrði sjúkrahússrekstur í húsnæði spítalans.
Máttur samvitundar
Við hjónin fórum að velta fyrir okkur grein í Frétta-
blaðinu þann 14. október sl. eftir
Pawel Bartoszek, þar sem því er
haldið fram að kirkjan sé ekki
leiðarljós í siðferðisefnum. Nú
yrði það hrokafullt af okkur að
halda því fram að hún sé það á
sama hátt og það getur falið í sér
sama hroka að halda því fram að
hún sé það ekki. Það virkar víst
aldrei vel þegar við alhæfum um
sérstök mál og stofnanir í sam-
félaginu.
Við veittum því athygli í
umræddri grein að spurt var
hvort Þjóðkirkjan eða önnur
trúfélög væru marktæk þegar
kemur að því að vísa veginn í
siðferðisefnum, trúleysingjanum
fyndist það ekki, en hver yrði þó
að gera það upp við sig. Það virð-
ist vera þannig í allri í umræðu-
hefð í dag að það skortir samtal
og samstarf þvert á allar línur og
gildir einu hvort um er að ræða
pólitíska umræðu eða trúarlega.
Hvers vegna finnst okkur
ekki mark takandi á hvert öðru?
Kirkjan hefur lagt ýmislegt gott
á siðferðislegar vogarskálar í
gegnum tíðina, það hafa trúleys-
ingjar líka gert, stjórnmálamenn,
pistlahöfundar og ótalmargir
aðrir. Er staðan orðin þannig í
dag að við erum svo upptekin af
baráttunni um eigin málstað að
við erum hætt að geta átt samtal
og samvinnu um það sem leiðir
til heilla?
Þegar kemur að almanna-
heill, þurfum við að tala saman.
Þegar við iðkum gott samskipta-
siðferði, eigum við samtal og
spyrjum áður en við staðhæfum,
skiptumst svo á skoðunum.
Þá göngum við ekki út frá því
sem vísu að allir séu á sömu
skoðun, en lítum á hvert samtal
sem tækifæri til að læra nýja
hluti, vinnum þannig á því sem
aðgreinir okkur og finnum það
sem tengir okkur saman.
Fjölbreytileiki í skoðunum á að
vera tækifæri en ekki hindrun.
Þó erum við ekki að taka upp
hanskann fyrir skoðanir sem
meiða manneskjuna eða koma í
veg fyrir að hún lifi lífi í fullri
gnægð. Slíkar skoðanir eru ekki
í anda kirkjunnar né nokkurs
annars.
Þó ber okkur að varast þá
hættu sem gætir í ákveðinni
miðstýringu þegar kemur að
skoðana frelsi. Það takmarkar
frelsið til að ákveða hvað er
okkur og börnunum okkar fyrir
bestu og styður við þá þróun að
gera einstaklinga og stofnanir
tortryggilegar í samfélaginu í
dag. Það getur ekki verið væn-
legt að reyna að miðstýra því
hvað er rétt og rangt í siðferðis-
legum, trúarlegum og pólitískum
málum. Það gerir ekkert annað
en að auka á flokkadrætti og
draga skýrari línur á milli ein-
staklinga og hópa í samfélaginu.
Á þann hátt eykst aðgreining
frekar en dregur úr henni, en sá
úrdráttur ætti að vera markmið
í allri umræðu. Það er ekki nóg
að einstaklingar séu tortryggðir
heldur er jafnvel grafið undan
trúverðugleika heillar stéttar
eins og sjá má í athugasemdum
netmiðla, t.d. að mönnum flökri
við það eitt að heyra prest nefnd-
an á nafn vegna þess að til eru
kirkjunnar þjónar, sem brjóta af
sér. Við vitum að í öllum stéttum
samfélagsins er fólk sem brýtur
af sér siðferðislega, þótt það
starfi undir boðskap, sem leið-
beinir í allt aðra átt.
Ófáir hafa heyrt um vegpresta,
sem benda á leiðina en fara
hana ekki sjálfir. Slíkt verður
vissulega tortryggilegt, en það
á við um okkur öll og kirkjan er
ekki einvörðungu prestar. Við
vinnum að góðu siðferði saman,
kirkjan vill verða samferða í
þeim málum, höfuð hennar Jesús
Kristur ákvað ekki fyrir neinn
hvað hann vildi verða, hann
nefnilega spurði, hann spurði
þann veika fyrst hvort hann vildi
verða heill og síðan fylgdi hann
honum eftir.
Það gefur auga leið að Jesús
sjálfur studdi ekki við ofbeldi
né nokkuð annað það sem grefur
undan trausti hér á jörð. Það er
einmitt þess vegna sem sumir
vilja trúa því, sem hann segir og
það er hlutverk kirkjunnar þjóna
sem og annarra að koma því til
leiðar.
Eitt er þó verra en allt annað
og það er þegar þjónar kirkj-
unnar vinna myrkraverk í skjóli
þess boðskapar, sem kirkjan vill
rækta og vitna um. Það er öllum
ljóst. Við viljum ekki slíka þjóna,
en það er aðeins eitt sem hægt er
að gera til þess að burtreka svo-
leiðis ósóma og það er að upplýsa
og vinna saman að því að gera
veruleikann opnari og standa
ekki í vegi fyrir því með því að
alhæfa á neikvæðan hátt um vett-
vang er vill í eðli sínu vel. Mesti
lærdómur okkar og stærsta tæki-
færi okkar í dag er að reyna að
mætast á miðri leið og eyða sam-
félagsmeinum. Það krefst þess að
við reynum að skilja fjölbreyttan
bakgrunn okkar.
Það hefur sjaldan verið talað
eins mikið um siðbót samfélags-
ins okkar eins og eftir hið verald-
lega hrun, sem var ekki síður
andlegt. Erum við á réttri leið
í þeirri umræðu eða sökkvum
við dýpra og dýpra á hverjum
degi niður í skotgrafahernað
og mannskemmandi umræðu?
Gleymum því ekki að kynslóð-
ir framtíðarinnar fylgjast náið
með umfjöllun fullorðinna á net-
inu og læra það sem fyrir þeim
er haft. Ábyrgðin er okkar sem
og valið. Það er einlæg skoðun
okkar hjóna að við eigum að velja
það sem styrkir okkur og eflir
í samtali, í skoðunum og í lífinu
almennt. Reynslan til þessa sýnir
að niðurdrepandi samtal litað
tortryggni hefur fleytt okkur
heldur stutt. Hvernig væri að láta
á nýja umræðuhefð reyna og öllu
jákvæðari?
Trúmál
Bolli Pétur
Bollason
sóknarprestur
í Laufási
Sunna Dóra
Möller
guðfræðingur og
æskulýðsfulltrúi í
Akureyrarkirkju
Erum við á réttri
leið í þeirri um-
ræðu eða sökkvum við
dýpra og dýpra á hverj-
um degi niður í skot-
grafahernað og mann-
skemmandi umræðu?