Fréttablaðið - 20.10.2011, Page 32
FIMMTUDAGUR 20. október 20114
Bæjarlind 6
S. 554 7030
Eddufelli 2
S. 557 1730
Sendum í póstkröfu
Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is
40%
Afsláttur
af völdum vörum
í nokkra daga.
Gerið góð kaup
Nýtt kor
tatímabi
l
YFIRHAFNARDAGAR!
15% AFSLÁTTUR
Síðustu dagar/gildir
til 22. október
Ármúla 18, 108 Reykjavík
Sími 511-3388
Opið mán-fös 9-18, lau 11-15
STÆKKUNAR-
GLERSLAMPAR
Fallega
Jólaskeiðin
frá Ernu
Verð 16.500,-
ERNA
Skipholti 3, s.552 0775, erna.is
Kringlunni
af öllum
Dior
vörum
Dior dagar í Lyf & heilsu Kringlunni
Kaupauki frá Dior: Falleg gjöf fylgir við kaup á tveim hlutum frá Dior á meðan birgðir endast.
Frá fimmtudegi til mánudags mun sérfræðingur frá Dior kynna:
- Nýjan J´adore jólailm
- Frábæran nýjan Forever farða
- Jóla og árshátíðarlitina í ár í takmörkuðu upplagi
20%
AFSLÁTTUR
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá Nice
Tískuviku í París lauk fyrir tveimur vikum og enn var margt um áhugaverða hönnuði
í lokin. Til dæmis má nefna
Alexander McQueen eða rétt-
ara sagt hönnun Söru Burton
sem tók við listrænni stjórn eftir
dauða McQueens á síðasta ári.
Sara Burton hefur náð góðum
tökum hönnun sinni, fetar slóð
McQueens en setur um leið sitt
eigið mark á stílinn. Ekki spillir
heldur fyrir að hún skyldi valin
til að hanna brúðarkjól Kate
Middleton fyrir brúðkaup hennar
og Vilhjálms prins í sumar og
því er áhugi tískupressunnar enn
meiri fyrir vikið. Hællausu háu
skórnir eru líklegir til að verða
á síðum tískutímaritanna á
næstunni þó ég efist um
að þeir séu sérsaklega
þægilegir. Andlit fyrir-
sætnanna voru hulin með
blúndum, þær voru einnig
með bleikt kögur á flík-
unum. Svo mátti sjá fölgráa
kjóla með olíuslettum komn-
ar á efnið líkt og fyrir
mistök.
Stella McCart-
ney virðist
áskrifandi að lofi
í tískuheiminum
og hefur með
tímanum skapað
sitt eigið nafn þó
sjálfsagt hafi hún
nú aldrei þurft að
lepja dauðann úr
skel í æsku. Hún
hefur fjarlægst
víðar mussur
og formlaus-
ar flíkur, nú er
tískan kynþokka-
full og ögrandi.
„Summer of
love“ var yfir-
skriftin og
leiðir hugann
að Kaliforníu
og popp-
stjörnum.
Á sýningarpöllunum mátti sjá
mjög stutta kjóla, samfestinga
sem eru í miklu uppáhaldi hjá
Stellu sem segir þessa flík hæfa
öllum líkamsgerðum. Einnig
sáust jakkaföt með vesti í karl-
mannlegum stíl. Efnin innihalda
fjörleg munstur og mikið er um
kóngabláan lit.
Í tískunni er ekkert endan-
legt og menn og tískuhús koma
og fara. En svo er einnig hægt
að lífa öðru lífi sem passar vel
inn í þá áráttu í dag að endur-
gera það sem áður hefur verið
hannað í tískunni. Nú eru liðin
fimm ár frá því að Paco Rabanne
hætti. Tískuhúsið sem er í hönd-
um katalónsku grúppunnar Puig
hefur haldið áfram að selja ilm-
vötn Rabannes, meðal annars
mest selda herrailmvatnið á
markaðnum, One Million. En
á síðasta ári var reynt að
nýju við tískuna með frægri
málmtösku Rabannes, „69“.
Indverjinn Manish Arora
mundar nú blýantinn, en hann
hefur vakið athygli fyrir
Bollywood-tísku sína
síðustu ár. Ekki
dugði minna en
Pompidou-safnið
fyrir endurkom-
una þó ekki væri
nú fullt út úr
dyrum en Arora
þykir hafa tekist
nokkuð vel upp
með málmkjóla
Rabanne sem er
líklega ekki svo
langt frá glingri
Bollywood eftir
allt saman.
Engar fréttir
af Marc Jacobs
og Dior en nú
segja sögur að
það sé vegna
þess að samn-
ingarnir hafi
dregist á lang-
inn.
bergb75@free.fr
Upprisa og annað líf
HavetoHave.com er ný
vefsíða þar sem hægt
er að kaupa fatnað,
skó og fylgihluti. Þar
sem mörgum konum
þykir erfitt að versla á
netinu vegna þess að
þær geta ekki fengið álit
vinkvennanna á fatnað-
inum býður þessi síða
upp á að deila myndum
af fötunum á Facebook
og Twitter og fá við-
brögð annarra áður en
kaupin eru gerð.
www.havetohave.
com