Fréttablaðið - 20.10.2011, Side 34

Fréttablaðið - 20.10.2011, Side 34
Glæsilegir kaupaukar frá Guerlain með tveimur keyptum vörum í línunni þar af einu kremi. 20% afsláttur af GUERLAIN línunni dagana 20.-22. október í snyrtivöruverslun Glæsibæ. Sérfræðingur GUERLAIN veitir faglega ráðgjöf ásamt því að kynna nýjungar. • Lingerie De Peau, nýr kökufarði sem gefur húðinni góðan raka og hefur sömu náttúrulegu áferð og húðin sjálf „Second Skin“. • Abeille Royale, nýtt augnkrem, í þessari einstöku kremlínu, sem vinnur á öllum einkennum öldrunar þ.e. rakagefandi, dregur úr hrukkum og framkallar ljóma. • Abeille Royale, nýtt andlitsvatn sem endurnærir húðina, fyllir hana raka, örvar blóðflæðið og róar. Vellíðan er algjör við notkun andlitsvatnsins. Draumur konunnar er nú upp- fylltur með nýja kökufarðanum frá Guerlain. Farðinn blandast húðinni fullkomlega og útkoman verður sama áferð og húðin sjálf, „Second Skin“. Kökufarðinn er allt í senn rakagefandi, hyljari og samlagast húðlit hverrar konu fullkomlega. Kynning D-vítamínsskortur er nú talinn heimsfarald-ur og á það sérstaklega við um lönd á norð-lægum slóðum þar sem erfiðara er að fram- leiða D-vítamín frá sólinni,“ útskýrir Haraldur Magnússon, osteópati og umsjónarmaður vefsíð- unnar Heilsusidan.is. Haraldur mun halda erindi á sérstakri D-vítamín ráðstefnu sem haldin verð- ur í fyrramálið á Reykjavík Natura, þar sem hann mun fjalla um ástæður þess að D-vítamínskortur er að verða eitt helsta vandamál nútímamannsins, ólíkt því sem var hjá forfeðrum okkar. „Frummaðurinn fékk ríkulegt magn D-vítam- íns frá sólinni og einnig úr fæðu sinni með því að borða innyfli og dýrafitu sem er d-vítamín ríkasti hluti fæðunnar. Í samanburði eyðir nútíma- maðurinn mestum tíma innanhúss eða þá kapp- klæddur og með sólarvörn utanhúss. Mataræði hans er meira og minna D-vítamínssnautt og eina úrræðið er að taka inn D-vítamín í fæðubótar- efnum,“ útskýrir Haraldur. Hann segir eftirfarandi reikniformúlu gagnlega svo finna megi réttan dagskammt hvers og eins. „Prófessor Robert Heaney frá Creighton-háskól- anum í Bandaríkjunum er einn helsti sérfræð- ingur á þessu sviði í heiminum. Hann mælir með 75IU (alþjóðaeiningum) af D-vítamíni á hvert kíló líkamsþyngdar. Það sama á við um börn, og er skammturinn þá aukinn eða minnkaður eftir því hvort fólk er þyngra eða léttara,“ upplýsir Harald- ur og hvetur fólk til að vanda valið þegar kemur að því að velja hreint D-vítamín. „Í hillum verslana er margt misjafnt í boði og mikilvægt að velja gæðavörumerki. Ég mæli ein- dregið með NOW eða sambærilegu gæðamerki sem stenst kröfur og hefur á sér GMP-staðal (Good Manufacturing Process). Sá staðall tryggir gæði framleiðslu og að innihald sé í samræmi við merkingar á glösunum. NOW er einnig með fljót- andi D-vítamíndropa sem henta börnum sem vilja ekki belgina og er auðvelt að fela í mat og drykk“. „Dr. Michael Holick, ásamt fleiri virtum vísinda mönnum, fullyrðir að D-vítamín- skortur auki hættu á beinþynningu, krabba- meini, sjálfs ónæmissjúkdómum, sýkingum og hjarta sjúkdómum. D-vítamín hefur því mikið forvarnar gildi og stuðlar að heilbrigðri virkni ónæmis kerfisins,“ segir Haraldur. Upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vef- síðunni www.heillheimur.is D-vítamín lengir lífið Sérfræðingar telja að opinberar ráðleggingar á D-vítamíni séu allt of lágar og þyrftu helst að vera 5-10 sinnum hærri til að verjast fjölda lífsstílssjúkdóma. Haraldur Magnússon osteópati verður með fyrirlestur á ráð- stefnu um D-vítamín í fyrramálið, en þar ber hann nútíma- lifnaðarhætti saman við lífsstíl frummannsins. MYND/ANTON Sala á sixpensurum jókst um 75 prósent á haustmánuðum hjá verslunarrisanum Marks & Spencer. Stórstjörnur á borð við Daniel Craig, Brad Pitt, Liev Schreiber og Justin Timberlake hafa undan- farna mánuði og ár sést skarta klassískum six- pensurum. Áhrifin hafa ekki látið standa á sér og er hið klassíska höfuðfat nú orðið hluti af hvunndagstískunni. Verslunarkeðjan Marks & Spencer til- kynnti nýverið að sala á sixpensurum í Bret- landi hefði aukist um 75 prósent á haustmánuðum og af þeim sökum hefði verið ákveðið að auka vöru- úrvalið um þriðjung. Sömu sögu er að segja hjá versl- uninni John Lewis en þar hefur sala hattanna aukist um 18 pró- sent milli ára. Vinsældir sixpensarans eru þó ekki alveg nýtilkomnar því sala þeirra hefur aukist jafnt og þétt síðustu tvö ár. Vinsældirnar ná ekki aðeins til Bret- lands heldur hefur sixpensarinn einnig náð fótfestu í landi derhúfunnar, Banda- ríkjunum. Klassískir og sívinsælir sixpensarar Justin Timberlake verður gáfumanna- legur með pottlok og gleraugu. Brad Pitt hefur oft skartað sixpensaranum í gegnum tíðina. Daniel Craig færir töff- araskapinn á nýtt stig með sixpensar- anum. 6 FIMMTUDAGUR 20. október 2011 Hótelkeðjuerfinginn Paris Hilton hefur glatt margan Evrópubúann með nærveru sinni undanfarið. Í vik- unni gekk hún tískupallinn á tísku- vikunni í Úkraínu. Þar skartaði hún heiðgulum kjól eftir hönnuðinn Andre Tan. Þá settist hún einnig í dómarasæti í fegurðarsamkeppni Úkraínu. Undanfarnar vikur hefur hún ferðast víða. Hún dvaldi til dæmis um tíma í Póllandi. Þá var hún nýlega komin heim frá Mumbai á Indlandi þar sem hún kynnti nýju töskulínu sína og þar áður var hún í Tyrklandi þar sem hún kynnti nýja skólínu úr sinni smiðju. Paris á ferð og flugi PARIS HILTON HEFUR FERÐAST VÍÐA UNDANFARNAR VIKUR. Paris sýnir hönnun Andre Tan á tísku- vikunni í Kíev í Úkraínu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.