Fréttablaðið - 20.10.2011, Page 40
20. október 2011 FIMMTUDAGUR32
BAKÞANKAR
Sigríðar
Víðis
Jónsdóttur
Nú situr Heinz
Á TOPPNUM
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
NEI!
Ekki segja mér að
þú sért frosin
AFTUR?!!! VIRKAÐU!
Ég held ekki
að það sé nein
hjálp í því að
ýta fast á
lyklaborðið.
Það
hjálpar
aðeins,
jú!
Hvar er
mamma? Í sturtu. Er hún með
gemsann?
Ætli það
nokkuð,
hún er jú í
sturtu.
Ég prófa
aftur.
Þú hlustar
ekkert
á mig,
er það
nokkuð?
Ég trúi ekki
að hún sé
ekki að
svara!
Jú. Jú.
Bara hug-
mynd, sko.
Þannig að þér finnst of mikið
að þvo sófann upp úr klór?
Læknirinn sagði að þótt
hér fyndist lús væri það
ekki merki um
óþrifnað á
heimilinu, ekki satt?
Það geta allir fengið
lús, óháð ástandinu
á heimilinu?
LÁRÉTT
2. afkvæmi, 6. tímaeining, 8. heldur
brott, 9. tækifæri, 11. þessi, 12. frá-
rennsli, 14. fyrirmynd, 16. skóli, 17.
samræða, 18. skelfing, 20. ætíð, 21.
faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. sálga, 3. frá, 4. frelsarinn, 5.
augnhár, 7. rafstraumur, 10. æxlunar-
korn, 13. stefna, 15. gerviefni, 16. dá,
19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lamb, 6. ár, 8. fer, 9. lag,
11. sá, 12. afrás, 14. mótíf, 16. ma, 17.
tal, 18. ógn, 20. sí, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. kála, 3. af, 4. messías,
5. brá, 7. rafmagn, 10. gró, 13. átt, 15.
flís, 16. mók, 19. nú.
Herra Kartöfluhaus
á von á mikilvægu
símtali og hefur því
lagt eyrað við tólið til
að missa ekki af því...
ATHYGLISBRESTUR er … að vera á kassa í
búð en veskið varð eftir heima. Að hafa ekki
græna glóru um hvert pin-númerið á kort-
inu er. Eða bara vera á kassanum og reyna
að borga með ökuskírteininu.
ATHYGLISBRESTUR er endurtekning
hversdagsins, óður til gullfiska. Mánudag-
ur: Hvar eru lyklarnir mínir og vettling-
arnir? Þriðjudagur: Hvar eru lyklarnir og
vettlingarnir? Miðvikudagur: Obbobbb, nú
vantar ekki bara lyklana heldur gleymdist
gemsinn á eldhúsborðinu. Fimmtudagur:
Ach so, það var þetta með þessa bannsett-
ans lykla …
ATHYGLISBRESTUR er ekki einungis fyrir
ráðvillta karlmenn og orkumikla stráka
í yfirfullum bekk. Athyglisbrestur er að
gleyma að dekkið á hjólinu er sprungið,
gleyma þvotti í þvottavélinni, gleyma að
hlaða símann, gleyma að hringja til baka,
setjast ofan á gleraugun, eyða ítrekað
formúu í illa sniðna sundboli til útleigu
á sundstöðum eftir að sundfötin
gleymdust heima.
ATHYGLISBRESTUR er að skreyta
líkamann skipulega með marblettum.
Rekast utan í alla hurðarkarma í
augsýn, horn á borðum og skápum.
Athyglisbrestur er tilraun í veiru-
fræði: Að gleyma nesti í vösum og
skúffum og finna fenginn þegar hann
er tekinn að skríða sjálfur fram í dagsljósið.
Að vera alltaf jafnbjartsýn þegar banana
er stungið ofan í tösku en finna hann síðar
sprunginn í frumeindir, horfa hugsandi
á bananaslímið yfir öllu og hugsa: Ah, já,
alveg rétt.
ATHYGLISBRESTUR býður upp á alls kyns
undarlegheit. Að setjast ofan á tyggjó og
skutla uppáhaldsbuxunum í frysti í mötu-
neyti til að ná slummunni úr – en gleyma
buxunum og ranka ekki við sér fyrr en
tveimur vikum síðar. Ó, var frystirinn
risavaxin kjötgeymsla og er tyggjóið núna
dottið úr en buxurnar ónýtar vegna viður-
styggilegs óþefs af frystu kjötblóði?
ATHYGLISBRESTUR er helsi en líka ham-
ingja. Honum fylgir oft eiginleiki til að ná
ofureinbeitingu í tengslum við ákveðna
hluti. Athyglisbrestur er að segja hinu
ómögulega stríð á hendur. Að hringja í flug-
félag til að afpanta flug sem þegar er farið.
Að horfa stolt á köku bakast inni í ofni og
finna síðan helminginn af þurrefnunum
enn á eldhúsbekknum. Athyglisbrestur er
að sulla olíu á gólfið, stíga ofan í hana án
þess að taka eftir því og spora eldhúsgólfið
út. Vera lengi að þrífa. Fara óvart í sömu
sokkabuxurnar daginn eftir – og spora í
þetta sinn út alla íbúðina.
ATHYGLISBRESTUR er … oft ansi hress-
andi!
Nei, ha, hvað var ég að gera?