Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 44
20. október 2011 FIMMTUDAGUR36
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Hæðasmára 6 | Hafnarborg
af öllu NOW D-vítamíni
15%
afsláttur
Rannsóknir hafa sýnt að
Íslendingar fá alltof lítið
D-vítamín.
Tíminn er
Skoðaðu nýja vefsíðu!
www.raudikrossinn.is
Já, það er rétt!
Meðal sjálfboðaliðaverkefna okkar eru:
gerast sjálfboðaliði
gerast félagi
gerast MANNVINUR
styrkja starfið með fjárstuðningi
gefa föt
Sjálfboðaliðar Rauða krossins
vinna óeigingjarnt hjálparstarf í þágu samfélagsins. Að vera
sjálfboðaliði Rauða krossins er mjög gefandi og skemmtilegt
og það er alltaf pláss fyrir gott fólk. Þú getur látið gott af þér
leiða með því að:
Hjálparsími Fata-
söfnun
Rauða krossins
Athvörf
Félagsvinir
Frú Ragnheiður Neyðarvarnir
Tombólubörn
Prjónahópar
Heimsóknavinir Göngum
til góðs
landssöfnun
Rauða krossins
Rauða krossins
dýrmætur
Stoltur styrktaraðili:
Fatabúð Hjálpræðishersins
Garðastræti 6, Reykjavík.
Opin alla virka daga
kl. 13.00 - 18.00.
... af notuðum fötum ...
MIKIÐ ÚRVAL
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 20. október 2011
➜ Tónleikar
20.00 Björn
Thoroddsen
býður til sinnar
árlegu gítar-
veislu í Salnum.
Meðal þeirra
sem koma
fram eru Robin
Nolan, Bjöggi
Gísla, Gummi P,
Hákon Möller,
Þórður Árna,
Dóri Braga,
Siggi Ólafs,
Jón Hilmar og
Hjörtur Steph.
Bjössi ætlar
að fá þessar gítarhetjur til að glíma við
mörg af meistaraverkum gítarsögunnar
og á boðstólum í Salnum verða blús,
django, jazz, rokk og metall.
20.30 Hljómsveitin Grúsk verður með
útgáfutónleika í Gaflaraleikhúsinu, Vík-
ingastræti í Hafnarfirði. Á tónleikunum
koma fram söngvararnir Bergsveinn Ari-
liusson, Björgvin Ploder, Guðrún Helga
Jónsdóttir, Heiða Ólafsdóttir, Hallberg
Svavarsson, Margrét Guðrúnardóttir og
hljóðfæraleikararnir Birkir Rafn Gíslason,
Einar Oddsson, Hallberg Svavarsson,
Kristján Blöndal, Pétur Hjaltested,
Stefán Ingimar Þórhallsson. Miðar á
tónleikana fást á www.midi.is og við
innganginn.
21.00 Hljómsveitirnar Two Tickets To
Japan og Murrk spila í Nýlenduvöru-
verslun Hemma og Valda. Frítt inn.
21.00 Kelly Joe Phelps & Corinne West
troða upp á Græna hattinum á Akur-
eyri. Beggi Smári og Smári Tarfur sjá um
upphitun. Miðaverð er 2.000 krónur.
➜ Opnanir
17.00 Sýning Soffíu Gísladóttur verður
opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Sýningin samanstendur af myndum
sem hún tók þegar hún bjó í Madríd á
Spáni árið 2008. Sýningin er opin virka
daga frá 12-19 og um helgar frá 13-17.
Sýningin verður opin til 21. desember.
Aðgangur er ókeypis.
17.00 Sýning með verkum Georgs
Guðna myndlistarmanns verður opnuð
í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýning
Georgs Guðna er fjórða sýningin í sýn-
ingarröð Listvinafélags Hallgrímskirkju,
Kristin minni. Georg Guðni fæddist í
Reykjavík árið 1961 en lést hinn 18. júní
síðastliðinn. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 9-17 og stendur til 7. janúar 2012.
➜ Fundir
12.00 Jafnréttisnefnd
Háskóla Íslands stendur
fyrir málstofu í hádeginu
þar sem þau Sigríður
Þorgeirsdóttir og Hilmar
Magnússon munu
fjalla um umræðu og
andóf í jafnréttisbaráttu.
Fundarstjóri er Þórunn
Sveinbjarnar dóttir.
Málstofan fer fram í
Öskju, í stofu N-131,
og stendur frá kl. 12-13.
13.30 Félag kennara á eftirlaunum
heldur fund í bókmenntaklúbbnum í
Kennarahúsinu. Steinunn Jóhannesdótt-
ir kemur og kynnir bókina Heimanfylgja.
13.30 Dagskrá í Félagsmiðstöðinni
Aflagranda 40 í tilefni veturnátta. Bryn-
dís Jónsdóttir talar um veturnætur, eigin
upplifanir og reynslu. Leikin létt lög á
píanó við söng samkomugesta. Árni
Björnsson þjóðháttarfræðingur segir frá
gömlum hefðum um veturnætur. Kaffi,
spilað, sungið og fleira.
➜ Hönnun
20.00 Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt
mun velta fyrir sér stöðu hönnunar
og hönnuða, erindi hönnunar og innri
verkfæra til að koma erindum sínum
á framfæri á sameiginlegum fyrirlestri
Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Listasafns
Reykjavíkur og Listaháskólans. Fyrir-
lesturinn er í Hafnarhúsinu. Aðgangur
er ókeypis.
➜ Kvikmyndir
18.00 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
sýnir heimildarmyndina Á þaki heimsins
í stofu 101 í Odda. Allir velkomnir og
aðgangur ókeypis. Nánari upplýsingar
má finna á konfusius.hi.is.
➜ Tónlist
21.00 Plötusnúðurinn Alfons X stýrir
HúsDJúsi á Kaffibarnum.
22.00 Jónas sér um tónlistina á
Vegamótum.
22.00 Gísli Galdur leikur tónlist af
plötum á Prikinu.
➜ Myndlist
20.00 Jeannette Castioni ræðir við
gesti um verk sitt og þátttöku í sýning-
unni Í bili í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Með í för verður Ólöf Gerður Sigfús-
dóttir sýningarstjóri. Aðgangur er
ókeypis en nánari upplýsingar um dag-
skrá má finna á hafnarborg.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
„Sökum annríkis þá fer ég alltof sjaldan í leikhús og í bíó.
Er reyndar dugleg að sækja tónleika og vil nota tækifærið
hér og hrósa nýyfirstaðinni Airwaves-hátíð. Fór á dögunum
á Fólkið í kjallaranum sem mér fannst frábær í alla staði.
Eins ætla ég að sjá Töfraflautuna í Hörpu og hlakka mikið til.
Ég stefni á að fara á Klúbbinn en mér þykja óhefðbundnar
sýningar spennandi og finnst hressandi þegar tónlistarmenn
tvinnast inn í verk. Svo er ómissandi hjá mér og Sögu dóttur
minni að fara á Litla tónsprotann, tónleikaröð Sinfóní-
unnar fyrir börn.“
Gímaldin hefur gefið út plöt-
una Þú ert ekki sá sem ég valdi.
Hljómsveitin, með Gísla „Gím-
aldin“ Magnússon í forgrunni,
var stofnuð í byrjun síðasta árs.
„Þetta er allt frá þessum rólegu
völsum eins Cowboy Junkies
kalla þetta, upp í að vera alvöru
rokkkeyrsla,“ segir Gísli um
plötuna sem var tekin upp „live“
undir stjórn Garðars Eiðs sonar.
Með Gísla í bandinu eru Gísli
Már Sigurjónsson og Þorvaldur
H. Gröndal. Til að bæta þriðja
Gíslanum við var ákveðið að
fá blokkflautuleikarann Gísla
Helgason til að spila í laginu
Þjóðsaga. Gísli „Gímaldin“ hefur
mikið spáð í gömul logos-fræði
sem snúast um mátt orðsins. Síð-
asta plata hans, Sungið undir
radar, fór einmitt undir radar-
inn að hans sögn. „Nöfn hafa
galdrakraft í sér og þegar þú
skírir plötu Sungið undir radar,
eru miklar líkur á því að hún fari
undir radarinn,“ segir hann í létt-
um dúr. - fb
Vals og rokkkeyrsla
GÍMALDIN Gísli Gímaldin, til hægri, og Þorvaldur H. Gröndal úr hljómsveitinni
Gímaldin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gott í leikhúsi: Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi
Fólkið í kjallaranum frábær sýning