Fréttablaðið - 20.10.2011, Síða 56
20. október 2011 FIMMTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
GUÐMUNDUR STEINARSSON er með fimm tilboð í höndunum og veltir nú vöngum yfir framtíðinni. Guð-
mundur staðfesti að vera með tilboð frá þrem úrvalsdeildarliðum. Hann staðfesti að þau væru frá Keflavík og Val en
vildi ekki gefa upp þriðja liðið, sem er Breiðablik samkvæmt heimildum. Hann er einnig með tilboð frá 1. deildarliði og
svo vill 2. deildarliðið Reynir Sandgerði fá hann sem spilandi þjálfara. Guðmundur býst við að spila áfram í efstu deild.
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL
Bayer Leverkusen - Valencia 2-1
0-1 Jonas (24.), 1-1 Andreas Schürrle (52.), 2-1
Sydney Sam (56.).
Chelsea - Genk 5-0
1-0 Raul Meireles (8.), 2-0 Fernando Torres (11.),
3-0 Fernando Torres (27.), 4-0 Branislav Ivanovic
(42.), 5-0 Salomon Kalou (72.).
STAÐAN
Chelsea 3 2 1 0 8-1 7
Leverkusen 3 2 0 1 4-3 6
Valencia 3 0 2 1 2-3 2
Genk 3 0 1 2 0-7 1
F-RIÐILL
Marseille - Arsenal 0-1
0-1 Aaron Ramsey (92.)
Olympiakos - Dortmund 3-1
STAÐAN
Arsenal 3 2 1 0 4-2 7
Marseille 3 2 0 1 4-1 6
Olympiakos 3 1 0 2 4-4 3
Dortmund 3 0 1 2 2-7 1
G-RIÐILL
Shakhtar Donetsk - Zenit St. Pétursborg 2-2
Porto - APOEL Nicosia 1-1
Staðan: APOEL 5 stig, Zenit 4, Porto 4, Shak-
htar Donetsk 2.
H-RIÐILL
AC Milan - BATE Borisov 2-0
1-0 Zlatan Ibrahimovic (35.), 2-0 Kevin-Prince
Boateng (70.).
Barcelona - Viktoria Plzen 2-0
1-0 Andrés Iniesta (10.), 2-0 David Villa (82.).
STAÐAN
Barcelona 3 2 1 0 9-2 7
AC Milan 3 2 1 0 6-2 7
BATE 3 0 1 2 1-8 1
Viktoria Plzen 3 0 1 2 1-5 1
Iceland Express-d. kvenna
Fjölnir - Valur 78-88 (43-52)
Stigahæstar hjá Fjölni: Brittney Jones 33, Katina
Mandylaris 26/21 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 10.
Stigahæstar hjá Val: María Ben Erlingsdóttir 21,
Kristrún Sigurjónsdóttir 20, Melissa Leichlitner 18.
Njarðvík - KR 87-97 (42-50)
Stigahæstar hjá Njarðvík: Lele Hardy 27,
Petrúnella Skúladóttir 22, Shanae Baker 13.
Stigahæstar hjá KR: Reyana Colson 29, Bryndís
Guðmundsdóttir 21, Margrét Kara Sturludóttir 21.
Keflavík - Hamar 105-65 (57-35)
Stigahæstar hjá Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir
32, Jaleesa Butler 16, Birna Valgarðsdóttir 16.
Stigahæstar hjá Hamri: Samantha Murphy 26,
Hannah Tuomi 17, Álfhildur Þorsteinsdóttir 16.
Þýska úrvalsdeildin
Gummersbach - Füchse Berlin 30-30
Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir FB.
Kiel - Melsungen 28-23
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel.
Danska úrvalsdeildin
Bjerringbro/Silkeborg - AG 22-26
Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur
Sigurðsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir AG og
Arnór Atlason þrjú. Guðmundur Árni Ólafsson
komst ekki á blað hjá Bjerringbro/Silkeborg.
Sænska úrvalsdeildin
Jämtland - 08 Stockholm 96-82
Brynjar Þór Björnsson skoraði tólf stig, tók níu
fráköst og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Jämtland.
Helgi Már Magnússon skoraði tólf stig, tók tíu
fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal þremur
boltnum fyrir 08 Stockholm.
Evrópudeild kvenna
Good Angels Kosice - Rivas Ecopolis 81-63
Helena Sverrisdóttir lék í fjórtán mínútur en
skoraði ekki fyrir Good Angels. Hún gaf eina
stoðsendingu og tók eitt frákast í leiknum.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar tóku
stóra ákvörðun í sumar. Þeir
hættu með alla launasamninga
við íslenska leikmenn og ákváðu í
staðinn að treysta á frábært ung-
lingastarf félagsins.
Tveir kjúklingar fengu tæki-
færið í byrjunarliðinu í fyrsta leik,
hinn 17 ára Elvar Már Friðriksson
og hinn 19 ára Ólafur Helgi Jóns-
son, og það er óhætt að segja að
strákarnir hafi verið tilbúnir fyrir
stóra sviðið. Ólafur Helgi og Elvar
Már eru sem dæmi búnir að hitta
saman úr 14 af 23 þriggja stiga
skotum sínum í fyrstu tveimur
leikjunum.
„Burtséð frá úrslitunum lítur
þetta vel út til framtíðar. Þetta
er ákvörðun sem klúbburinn tók
og við erum ekkert að tapa okkur
þótt við höfum unnið tvo fyrstu
leikina því við gerum okkur grein
fyrir því að þetta verður krefjandi
og erfitt verkefni. Við erum að fá
mikinn stuðning í bæjarfélaginu
og við vonumst til að hann verði
öflugur í gegnum súrt og sætt.
Þetta var stór ákvörðun en samt
ekkert svo erfið. Í eðlilegu árferði
hefði ekki verið pláss fyrir þá
alla á næstu misserum en í stað-
inn fá þeir stór tækifæri,“ segir
Einar Árni Jóhannsson, sem þjálf-
ar Njarðvíkurliðið ásamt Friðriki
Ragnarssyni.
Nítján ára fyrirliði liðsins
Enginn leikmaður í deildinni hefur
skorað fleiri þriggja stiga körfur
en Elvar Már í fyrstu tveimur
umferðunum (8) og Ólafur Helgi
er í 2. sæti yfir bestu þriggja stiga
nýtinguna, en 6 af 9 þriggja stiga
skotum hans hafa ratað rétta leið.
„Ólafur Helgi er búinn að vera
mjög framarlega í þessum hópi á
síðustu tveimur til þremur árum.
Hann er flottur leiðtogi og hann
er fyrirliði liðsins þótt hann sé
ekki nema 19 ára gamall. Það var
eitthvað sem við sáum fyrir í maí
þegar við fórum af stað með þenn-
an hóp að Óli yrði einn af lykil-
mönnum þessa liðs,“ segir Einar,
en Ólafur Helgi lét það ekki stoppa
sig að þríúlnliðsbrotna í vor.
Stækkaði um 15 sentimetra
„Það er önnur saga með yngri
manninn. Það kemur ekkert á
óvart að Elvar standi sig því hann
er ofboðslega vinnusamur og
leggur mikið á sig eins og allur
þessi hópur. Hann hefur unnið
hörðum höndum að því síðustu
árin að verða betri en er líka búinn
að taka mikinn vaxtakipp því hann
hefur alltaf verið mjög lágvaxinn,”
segir Rinar og bætir við:
„Hann verður Norðurlanda-
meistari með 1994-árganginum
vorið 2010, fyrir einu og hálfu
ári. Þetta eru einhverjir fjórtán,
fimmtán sentimetrar sem hann
hefur stækkað síðan þá, sem er
ansi mikið. Þetta eru gríðarlegar
framfarir og stór skref sem hann
er búinn að taka á stuttum tíma,“
segir Einar.
Elvar og Ólafur voru báðir í
stuði í fyrsta heimaleiknum á
mánudaginn þegar Njarðvík vann
16 stiga sigur á Haukum í Ljóna-
gryfjunni. Elvar Már var þá með
22 stig og 5 stoðsendingar á 34
mínútum og Ólafur bætti við 18
stigum á 28 mínútum. Húnarnir
hreinlega kveiktu í körfunni og
settu niður 9 af 14 þriggja skotum
sínum. Það verða samt ekki allir
dagar svona hjá ungum leikmönn-
um og það veit Einar.
Ekki jólin alla daga í vetur
„Þetta er annað og stærra svið.
Það er öðruvísi pressa og mikið
í húfi. Við gerum okkur grein
fyrir því að það verða ekki jólin
alla daga hjá okkur í vetur,“ segir
Einar, en liðinu var spáð falli úr
deildinni fyrir mótið.
Ég skil alveg þá sem spáðu
okkur falli því tíu leikmenn eru
farnir frá félaginu. Leikreynsla
meistaraflokksliðsins liggur í
Rúnari og Hirti, sem fara úr því að
vera yngstir í leikmannahópnum í
vor í það að verða elstir í dag fyrir
utan útlendingana. Allt annað eru
bara pjakkar sem eru að stíga sín
fyrstu skref. Það hefur samt alla
tíð legið ljóst fyrir okkur, leik-
mannahópnum og þjálfurunum,
að við ætluðum okkur meira en
almannarómur segir til um,“ segir
Einar. ooj@frettabladid.is
Húnarnir sjóðandi heitir
Njarðvíkingarnir Elvar Már Friðriksson og Ólafur Helgi Jónsson hafa slegið
í gegn í tveimur fyrstu umferðum Iceland Express-deildar karla og hafa nýtt
saman 61 prósent af 23 þriggja stiga skotum sínum í tveimur góðum sigrum.
KVEIKJA Í KÖRFUNNI Elvar Már Friðriksson og Ólafur Helgi Jónsson í sigrinum á
Haukum.
FÓTBOLTI Fernando Torres sýndi í gær að hann er á
réttri leið upp úr lægðinni sinni er hann skoraði tvö
mörk í 5-0 stórsigri Chelsea á belgíska liðinu Genk
í Meistaradeild Evrópu í gær. Á sama tíma vann
Arsenal dramatískan sigur á Marseille
á útivelli þar sem Aaron Ramsey kom
inn á sem varamaður og skoraði sigur-
markið í uppbótartíma.
Barcelona og AC Milan eru saman í
H-riðli og unnu bæði andstæðinga sína
með þægilegum 2-0 sigri. Börsungar
sýndu fádæma yfirburði gegn hinu
tékkneska Viktoria Plzen, sem
náði ekki einu skoti að marki Evr-
ópumeistaranna í gær.
En augu flestra beindust að
ensku liðunum í gær, rétt eins og
í fyrrakvöld, og er þetta í fyrsta
sinn á tímabilinu sem öll fjögur
liðin frá Englandi vinna sína leiki í
sömu vikunni.
Sigur Chelsea gegn Genk var örugg-
ur, þrátt fyrir að Andre Villas-Boas,
stjóri Chelsea, hafi gert sex breytingar
á byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn
Everton um helgina. Fernando Torres
hefur ekki getað spilað með Chelsea í
deildinni að undanförnu vegna leikbanns en hann
nýtti tækifærið í gær og skoraði tvö mörk – sín
fyrstu í Meistara deildinni með Chelsea.
„Það var augljóst hversu hungraður hann er í að
skora mörk. Það var bara óheppni að hann náði
ekki að skora þriðja markið,“ sagði Petr Cech,
markvörður Chelsea, eftir leikinn.
Leikur Arsenal og Marseille í Frakk-
landi var ekki mikið fyrir augað. Arse-
nal fékk þó hættulegri færi en
lengi vel leit út fyrir steindautt
markalaust jafntefli.
Arsene Wenger, stjóri Arse-
nal, ákvað að geyma Ramsey
á bekknum en skipti honum
svo inn á tólf mínútum fyrir
leikslok. Ramsey þakkaði
fyrir sig með því að skora
sigurmarkið. „Aðalmálið er að við
unnum og höfum við nú unnið tvo
leiki í röð. Vonandi getum við
haldið áfram á þessari braut.“ - esá
Chelsea, Arsenal, Barcelona og AC Milan unnu öll leiki sína í Meistaradeildinni:
Torres með tvö í stórsigri Chelsea
GÖMLU LIVERPOOL-MENNIRNIR
Fernando Torres og Raul Meireles
skoruðu fyrstu þrjú mörk Chelsea í
gær og fóru á kostum í leiknum.