Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 58
20. október 2011 FIMMTUDAGUR50
golfogveidi@frettabladid.is
FÆRRI LAXAR veiddust í Miðfjarðará í
sumar en í fyrra þegar heildarveiðin
varð 4.043 fiskar miðað við 2.364
í ár.
1.679
Þrettán ár eru liðinn síðan
Jóhannes Sturlaugsson, líf-
fræðingur hjá Laxfiskum
ehf., hóf óslitnar rannsókn-
ir á stórurriðanum í Þing-
vallavatni. Á þeim tíma
hefur fjöldi urriða sem
koma til hrygningar í Öxará
á hverju hausti tífaldast.
Um síðustu helgi var farin hin
árlega fræðsluganga Urriðadans
á vegum Þjóðgarðsins á Þingvöll-
um og Laxfiska. Gengið var upp
með Öxará að Prestakrók þar sem
áin fellur úr Drekkingarhyl þar
sem stórurriðar voru skoðaðir og
fjallað um lífshætti þeirra. Fjöldi
manns komu til að berja augum
þennan tignarlega konung Þing-
vallavatns sem fyrir fáum árum
var orðinn fáliðaður. Það hefur
breyst.
Jóhannes hefur rannsakað Þing-
vallaurriðann óslitið frá árinu
1999. Markmið rannsóknanna eru
tvíþætt; afla gagna um útbreiðslu,
atferli og umhverfi urriðans árið
um kring og vakta hrygningar-
stofninn, en til að ná markmið-
unum eru nýttar ýmsar nálganir,
eins og notkun rafeindafiskmerkja,
fiskteljari og neðanvatnskvik-
myndun.
Jóhannes segir að í byrjun hafi
ekki allir séð tilganginn með rann-
sóknum á urriðanum, enda stofn-
inn orðinn ansi fáliðaður. Nú hefur
mikið áunnist í rannsóknum á lífs-
háttum urriðans og þær upplýsing-
ar eigi vel heima með þeim ítarlegu
upplýsingum sem aflað hefur verið
um ýmsa aðra þætti lífríkis Þing-
vallavatns, samanber rannsóknir á
bleikjustofnunum fjórum sem þar
lifa. „Urriðinn var fáliðaður en
hann var alltaf þarna. Þess mikil-
vægara var að rannsaka þennan
stofn“, segir Jóhannes.
Jóhannes segir að viðamesti
hluti rannsóknanna byggist á
notkun rafeindafiskmerkja. „Bæði
notum við einfaldari gerð raf-
merkja sem gera kleift að aðgreina
einstaklingana og flóknari merki
sem gera kleift að fylgjast náið
með hegðun þeirra. En slík vökt-
un á ferðum urriðanna stendur í
eitt til tvö ár og í sumum tilfellum
lengur með því að merkja endur-
heimta fiska aftur.“
Hrygningarfiskar eru meirihluti
þeirra urriða sem eru merktir. Sú
merking fer fram í Öxará en einn-
ig eru merktir ókynþroska fiskar
frá seiðum og upp í væna geld-
fiska. Endurheimtur á merkjum
eru að mestu leyti í Öxará, þar
sem stórurriðinn kemur ítrekað til
hrygningar en einnig frá stang- og
netaveiddum fiski í vatninu.
Alger kaflaskipti urðu í sögu
Þingvallaurriðans þegar útfall
vatnsins, Efra-Sog, var þvergirt
og straumvatnið leitt um jarð-
göng í Steingrímsstöð. Jóhannes
segir að stofninn sem þar hryngdi
sé horfinn en þar hrygni þó í dag
urriðar sem runnir séu frá slepp-
ingum seiða af Öxarárstofni í litlu
mæli. Hrygning sé í litlu mæli
einnig í Ölfusvatnsá og Villinga-
vatnsá en Öxarárstofninn beri þó
uppi hrygninguna að baki urriðan-
um í Þingvallavatni.
Gleðitíðindin eru að Þingvalla-
urriðinn hefur styrkst umtalsvert.
Árið 1999 komu til hrygningar ein-
hverjir tugir fiska en í haust voru
þeir um 600. Helstu skýringuna
á fjölgun urriðans telur Jóhann-
es meðal annars liggja í því að
hrygningarstofninn stækkaði ört
í kringum aldamótin þegar urrið-
ar undan veglegri sleppingu á seið-
um undan Öxarárfiski 1993 fóru
að skila sér og urriðar frá þeirri
hrygningu þeirra fiska eru nú að
skila sér í Öxará. Einnig megi
benda á að hlýnun undangenginna
ára auki velgengni urriða hér-
lendis almennt enda sé hann hér á
norður mörkum útbreiðslu sinnar.
Þingvallaurriðinn verður gam-
all og nær oft tíu til tólf ára aldri.
Jóhannes hefur jafnframt fundið
fiska allt upp í sextán ára gamla.
Þessir höfðingjar kalla auðvitað
á stangveiðimenn sem á hverju
vori egna fyrir þennan fisk. Lýs-
ingar veiðimanna í viðtölum við
Fréttablaðið segja söguna alla:
„Þetta var eins og að togast á við
jarðýtu,“ varð einum að orði. Það
er því einstakt að ná stórurriða á
land, enda ekki margir sem upp-
lifa það.
Jóhannes hefur skilning á þessu
en minnir á að urriði sem er kom-
inn yfir 60 sentimetra og um 2,5-3
kíló innihaldi að jafnaði meira
kvikasilfur en æskilegt sé með
tilliti til manneldis. Fjöldi urriða
í Þingvallavatni er óræð tala en
hver fiskur sem fær frelsið aftur
skiptir máli. Veiðimenn verða jafn-
framt að hafa vakandi auga með
hvort veiddir fiskar eru merktir,
því hver og einn slíkur skilar mik-
ilvægum upplýsingum.
Á vefsíðu Laxfiska, laxfiskar.is,
má sækja sér mikinn fróðleik um
Þingvallaurriðann og fleiri fiska
frá rannsóknum Laxfiska.
svavar@frettabladid.is
Hrygnir í hundraða vís
FISKABÚR Jóhannes og samstarfsmaður hans Erlendur Geirdal fönguðu nokkra urriða til að sýna gestum á Urriðadansi. Þeir voru
á bilinu 12 til 16 pund en Þingvallaurriðinn verður mun stærri, sérstaklega geldfiskar sem koma seint til hrygningar. Ungviðið var
sérstaklega áhugasamt um þennan merkilega fisk. FRÉTTABLAÐIÐ/SVAVAR
GÓÐKUNNINGJAR Suma urriðana hittir Jóhannes fyrir ár eftir ár. Um helgina tranaði
sér fram urriði sem skellti sér með Jóhannesi á Vísindavöku í Háskólabíó í septem-
ber. Sami fiskur var veiddur og merktur við hrygningu 2008, aftur við stangveiðar
2009 í Þingvallavatni og enn aftur við hrygningu 2010. Nú veiddist hann fjórða árið í
röð. FRÉTTABLAÐIÐ/SVAVAR