Fréttablaðið - 20.10.2011, Blaðsíða 62
20. október 2011 FIMMTUDAGUR54LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Það var mjög ánægjulegt að kynn-
ast honum. Þetta er helvíti fínn
gaur,“ segir leikarinn Guðjón Þor-
steinn Pálmarsson.
Hann var leiðsögumaður banda-
ríska tónlistarmannsins Johns
Grant þegar hann var staddur
hér á landi vegna tónleika sinna á
Airwaves-hátíðinni á laugardag-
inn.
Guðjón Þorsteinn og vinur hans
hittu Grant fyrir tilviljun í verslun-
inni Dressmann á Laugaveginum
og tókust þá með þeim kynni. „Ég
kynntist tónlistinni hans fyrir ein-
hverju síðan og hún náði mér strax.
Ég tók bara í spaðann á honum og
við tókum tal saman. Við settumst
þrír niður í kaffibolla og blöðruð-
um í einhverja tvo tíma um heima
og geima,“ segir Guðjón, sem leik-
ur um þessar mundir í sjónvarps-
þáttunum Heimsendi. „Hann
hefur átt svo magnaða ævi og ekki
fengið neinn afslátt af lífinu. Það
var ofboðslega gaman að tala við
hann. Hann leyfir sér að hrífast af
því sem er í kringum hann. Það er
ákveðinn eiginleiki sem við mörg
hver þorum ekki að hafa, viljum
bara vera kúl.“
Grant gaf á síðasta ári út sína
fyrstu sólóplötu, Queen of Den-
mark, sem margir gagnrýnendur
töldu eina þá bestu á árinu. Í viðtali
við Fréttablaðið sagðist Grant hafa
beðið í tuttugu ár eftir því að koma
til Íslands og ætlaði hann að dvelja
hér í fimm daga. Miðað við fögur
orð hans í garð Íslands á tónleik-
unum, alla vinina sem hann eign-
aðist hér og þann fjölda mynda sem
hann hefur birt á Facebook-síðu-
sinni frá ferðalaginu er greinilegt
að Grant hefur ekki orðið fyrir
vonbrigðum. „Hann var algjörlega
í skýjunum. Við keyrðum alla leið í
Vík. Það var ekkert sérstakt veðrið
og við sáum ekki nema helminginn
af landinu sem við keyrðum fram
hjá en það breytti ekki neinu. Hann
var alveg frá sér numinn,“ segir
Guðjón. „Svo hefur hann mikinn
áhuga á tungumálinu og var alltaf
að spyrja um einhverja frasa og út
í málfræði. Orð eins og Eyjafjalla-
jökull, hann var ekki lengi að ná
því.“
Guðjón og Grant gengu um
svörtu ströndina í Vík, skoðuðu
Seljalandsfoss og fóru í byggða-
safnið í Skógum. Í Reykjavík kíktu
þeir í Kolaportið og skoðuðu þar
mannlífið. Eftir tónleikana í Hörp-
unni fóru þeir síðan ásamt tveimur
öðrum upp á Hellisheiði að einni af
borholunum sem þar eru. „Þarna
sáum við kraftinn í sinni mögnuð-
ustu mynd gjósa upp úr jörðinni.“
Grant fór einnig á Biophilia-tón-
leika Bjarkar í Hörpunni og á tón-
leika Sinéad O´Connor í Fríkirkj-
unni.
Að sögn Guðjóns hefur Grant
mikinn áhuga á að koma aftur til
Íslands og hver veit nema þeir
félagar endurnýi þá kynni sín.
freyr@frettabladid.is
GUÐJÓN ÞORSTEINN PÁLMARSSON: LEIÐSÖGUMAÐUR JOHNS GRANT
Vináttan hófst í Dressmann
VINIR Guðjón Þorsteinn Pálmarsson. til vinstri, ásamt tónlistarmanninum John Grant
við Seljalandsfoss.
„Útgáfan hefur gríðarlegan
áhuga á hljómsveitinni og telur
að hún eigi eftir að ná langt,“
segir Heather Kolker, umboðs-
maður hljómsveitarinnar Of
Monsters and Men.
Of Monsters and Men hefur
gert samning við útgáfu risann
Universal Music Group um
útgáfu á fyrstu plötu sveitar-
innar, My Head Is an Animal,
erlendis. Útgáfufyrirtækið
Record Records gaf plötuna út á
Íslandi og hefur hún selst í meira
en 2.000 eintökum frá því hún
kom út í september.
Sýndu fleiri útgáfur hljóm-
sveitinni áhuga?
„Já. Við vorum mjög heppin
að hafa marga góða möguleika.
Við tókum okkur góðan tíma í að
finna þá réttu.“
Samningurinn, sem var undir-
ritaður á dögunum, er ávöxtur
vinnu sem hófst í sumar. Kol-
ker segir að hún og meðlimir Of
Monsters and Men séu gríðar-
lega ánægðir með að rétta útgáf-
an sé fundin, en bætir við að nán-
ari upplýsingar hafi hún ekki á
reiðum höndum. Næstu tveir
mánuðir fara í að skipuleggja
útgáfuna og á meðal þess sem
verður ákveðið er hvar og hve-
nær platan kemur út.
- afb
Gat valið úr útgáfufyrirtækjum
„Hún fann mig í gegnum bloggið mitt,“ segir ljós-
myndarinn Saga Sigurðardóttir.
Saga myndaði nýlega japönsku poppstjörnuna
Miliyah Kato fyrir ljósmyndabók sem fjallar um söng-
konuna. Saga var einnig listrænn stjórnandi bókarinn-
ar, sem kemur út á næstu dögum þegar Kato byrjar að
fylgja eftir nýrri safnplötu með tónleikaferð í heima-
landi sínu. Kato er afar vinsæl í Japan og náði toppi
Billboard-listans þar fyrir tveimur árum með laginu
Love Forever.
„Ég átti fyrst að fara til Tókýó að gera
þetta, en svo komu þau til London svo við
gætum gert þetta þar,“ segir Saga, en hún
hefur búið í London undanfarin misseri
og starfað sem tískuljósmyndari. Kato
er mikill aðdáandi Sögu og óskaði eftir
kröftum hennar eftir að hafa skoðað
bloggsíðu hennar. „Það sem mér fannst
svo merkilegt við þetta er að popp-
stjörnur eru yfirleitt með svo mikið
af fólki til að ákveða allt fyrir sig.
Hún fær hins vegar frelsi til að
taka þátt í að móta ímyndina sína.“
Saga hefur í nógu að snúast í
London. Mikið hefur verið fjallað
um ljósmyndirnar hennar í fjöl-
miðlum ytra og vakti auglýsinga-
herferðin sem hún gerði fyrir Top
Shop talsverða athygli. Hún er stödd á
Íslandi í dag, en hún og Hildur Yeoman
fatahönnuður opna sýningu á sam-
starfsverkefni sínu í Hafnarborg 29.
október. Þá kemur hún fram í lokaþætti
Ísþjóðar Ragnhildar Steinunnar á RÚV
í kvöld. - afb
Myndaði japanska poppstjörnu
AÐDÁANDI SÖGU Japanska poppstjarnan Miliyah
Kato er mikill aðdáandi Sögu Sig og fékk hana til að
mynda og stýra ljósmyndabók um sig.
SEMJA VIÐ UNIVERSAL Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur samið við útgáfu-
risann Universal um útgáfu á fyrstu plötu hljómsveitarinnar erlendis.
„Það er karlakór Frímúrara-
reglunnar. Þeir gáfu út disk fyrir
einhverjum fimmtán árum sem
ég hlusta ennþá mikið á.“
Ólafur Jóhannesson, leikstjóri Borgríkis.