Fréttablaðið - 20.10.2011, Síða 64
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hættir í stjórn DV
Halldór Jörgensson, framkvæmda-
stjóri Microsoft á Íslandi, sagði
sig úr stjórn DV 26. september
síðastliðinn. Halldór segir ástæðu
þess vera þá að hann hafi verið
undirmannaður í starfi sínu hjá
Microsoft og stjórnarstörf fyrir DV
hafi tekið of mikið af tíma hans.
„Ég hafði bara nóg annað að gera,“
segir Halldór. Í apríl í fyrra var
skipað í stjórn DV ehf., nýs félags
um rekstur DV og DV.is. Formaður
er Lilja Skaftadóttir listaverkasali.
Í varastjórn eru Steingrímur
Stefnisson veitingamaður og Lára
Hanna Einarsdóttir,
bloggari, þýðandi og
leiðsögumaður.
Aðrir stjórnarmenn
eru Hildur Helga
Sigurðardóttir
fjölmiðlakona, Jón
Trausti Reynisson,
ritstjóri DV, og Þórir
Jökull Þor-
steinsson
prestur.
Fréttakona gerir kaupmála
Eins og kom fram í fjölmiðlum í
sumar gekk fréttakonan María
Sigrún Hilmarsdóttir að eiga
útgefandann Pétur Árna Jónsson.
Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni
í júlímánuði og það var biskupinn
sjálfur, Karl Sigurbjörnsson, sem
gaf þau saman. Veislan og athöfnin
var öll hin glæsilegasta, mektarfólk
úr Sjálfstæðisflokknum og frá RÚV
var meðal gesta eins og DV greindi
frá. María og Pétur feta
í fótspor fjölmargra
unga hjóna nú
um stundir og
hafa gert með
sér kaup-
mála, að því er
Sýslumaðurinn
í Stykkishólmi
hefur kunngjört
í Lögbirtinga-
blaðinu.
- sv, fgg
1 Réttað yfir fyrrum
fegurðardrottningu
2 Danir fara á allt að 10
stefnumót á viku
3 Skildu fórnarlambið eftir með
alvarlegar innvortis blæðingar
4 María ósátt við að hætta
5 Bæjarstjóra sagt upp störfum