Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGVetrardekk ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 20112 Max1 skiptir þig öllu í dag Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Ívar Örn Hansen, ivarorn@365.is., s. 512 5429| Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Dekkjasalan var stofnuð fyrir einu og hálfu ári. Fyrir-tækið býður nýja þjónustu sem snýst um að fólk sem á dekk og/eða felgur sem það hefur ekki not fyrir getur komið með vöruna í Dekkjasöluna, þar sem gerður er umboðssölusamningur. Dekkja- salan auglýsir vöruna, selur og leggur andvirðið að frádregnum sölulaunum inn á reikning við- komandi. Verðlagningin er í hönd- um eiganda dekkja, starfsmenn Dekkjasölunnar leiðbeina einung- is hvað sambærilegar vörur eru að seljast á. Sumir vilja verðleggja lágt til að flýta fyrir sölu. Fyrsta skrefið hjá kaupendum dekkja er því að at- huga hvort réttu dekkin séu til hjá Dekkjasölunni og spara sér tölu- verða fjárhæð. Öryggi þeirra sem kjósa að versla hagkvæmt á notaða mark- aðnum eykst á skipulögðum markaði sem þessum. Farið er yfir allar vörur þegar þær koma inn og veittur er sjö daga skilafrestur ef vara reynist gölluð. Einnig má benda á að þar sem allar vörur eru skráðar lágmarkast hættan á því að verslað sé með þýfi. Að sögn starfsmanna Dekkja- sölunnar hefur þetta framtak mælst vel fyrir og margir látið í ljós ánægju með að kominn sé skipulagður markaður með vörur sem þessar. Dæmi eru um að fólk hafi komið með 20 til 30 dekk í sölu þegar verið er að taka til í bíl- skúrnum. Er fólki bent á að henda ekki dekkjum án þess að koma við hjá okkur og fara yfir hvort eitt- hvað sé nothæft. Ekki má gleyma umhverfisþættinum sem felst í því að nýta dekk til fullnustu. Einnig má geta þess að á staðn- um eru um 600 stök dekk sem passa inn í ganga ef eitt skemmist. Allt er skráð og það tekur skamma stund að sjá hvort vara sé til. Dekkjasalan heldur úti öflugri heimasíðu www.dekkjasalan.is þar sem hægt er að skoða allar vörur sem eru í umboðssölu. Á síðunni kemur m.a. fram vöru- lýsing, verð og myndir. Allar vörur á heimasíðunni eru í vöruhúsi fyrirtækisins að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði. Þegar ekki eru til notuð dekk í þeim stærðum sem fólk vantar getur Dekkjasalan útvegað ný á samkeppnishæfu verði. Á Dekkja- sölunni er einnig séð um viðgerð- ir, umfelgun, neglingu og fleira sem dekkjum viðkemur á sann- gjörnu verði. Það er heitt á könn- unni og allir í góðu skapi. Dekkjasalan er opin frá klukk- an 8 til 18 virka daga, til klukkan 21 þriðjudaga og fimmtudaga og frá klukkan 10 til 16 laugardaga. Dekkjasalan – Nýtt fyrirtæki – Ný hugsun Dekkjasalan ehf. að Dalshrauni 16 er umboðssala fyrir notuð dekk og felgur. Fyrirtækið er eina umboðssalan á Íslandi sem sérhæfir sig í dekkjum, felgum og öðru því tengdu. Valdimar Sigurjónsson er stofnandi og eigandi Dekkjasölunnar. Hann bendir á heima- síðu fyrirtækisins www.dekkjasalan.is, þar sem hægt er að skoða allar vörur sem eru í umboðssölu. Á síðunni kemur meðal annars fram vörulýsing, verð og myndir. Dekkjasalan er umboðssala fyrir notuð dekk. Þú kemur með dekkin til okkar og við seljum þau fyrir þig Dalshrauni 1 www.dekkjasalan.is 587 3757 MIKIL EFTIRSPURN ! 16 Dalshrauni 16 www.dekkjasalan.is dekkjasalan@dekkjasalan.is 587 3757 - 777 3757 UMBOÐSSALA FYRIR NOTUÐ DEKK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.