Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 38
25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR22
F O R S A L A Á
Þuríður Sigurðardóttir
þriðju tónleikarnir
Gestasöngvarar:
Jóhann Vilhjálmsson og Sigurður Pálmason
fimmtudaginn 27. október
Nr.3
minningar
H L J Ó M S V E I T I N
S É R U M U N D I R L E I K
MIÐASALA ER EINNIG Í SÍMA: 5 700 400 - MIÐASALA SALARINS
KRASSANDI
SPENNA
„Elsebeth Egholm hefur stíl. Með bókaflokknum um
blaðakonuna Dicte Svendsen hefur hún skapað lítinn
alheim og sagnaform í sérflokki.“ BER L INGSK E T IDENDE
FR Á GL ÆPASAGNADROTTNINGU DANMERKUR
koma mjög við sögu í sýningunni.
Að þessum þætti loknum voru
gestirnir 24 leiddir inn í tónleikasal
Norræna hússins. Þar settust allir
á hvíta stóla sem raðað hafði verið
í hring, söngur ómaði og örlaga-
nornin Urður hóf upp raust sína.
Það var heillandi að ganga inn í
heiminn sem hafði verið skapaður
fyrir þetta verk og ekki hægt að
segja annað en Norræna húsið sé
nýtt á hugvitsamlegan hátt. Sumir
þættirnir voru einkar vel heppn-
aðar innsetningar. Örlaganornin
Verðandi flækt í reipi var eftir-
minnileg mynd, sömuleiðis blóð-
fórnin og umbreytingin á bóka-
safni Norræna hússins í veislusal
var ævintýraleg. Við veislu borðið
myndaðist skemmtileg stemn-
ing, áhorfendur eru í veislu undir
stjórn Loka, sem var vel leikinn af
Morten Burian.
Í heildina má segja að hinn sjón-
ræni þáttur þessa verks hafi verið
frábær, leikmynd, lýsing, búning-
ar – allt var þetta magnað. Sög-
unni vindur fram í gegnum sjón-
ræna þáttinn og texta sem er bæði
brot úr Völuspá og samtímatexti
aðstandenda. Bragðlaukarnir voru
líka sendir í ferðalag með sjö rétta
máltíð þar sem gæðavín var fram-
borið með hverjum rétti. Þættirn-
ir spiluðu vel saman – uppbygging
matseðilsins rímaði vel við sög-
una.
Völuspá segir frá tilurð heims-
ins og ragnarökum. Söguna
þekkjum við þó að kvæðin séu
kannski framandi. En maður þarf
alls ekki að vera vel að sér í nor-
rænum fræðum til að njóta kvöld-
stundarinnar í Norræna húsinu,
frekar að vera tilbúinn til að láta
koma sér á óvart og njóta lífsins.
Sýningin er samstarfsverkefni
Norræna hússins og danska leik-
hússins Republique. Hugmynda-
smiðir eru danskir, Dorte Holbæk,
sviðsmynda- og búninga hönnuður,
Alette Scavenius leikrita höfundur,
Mette Sia Martinussen, sem er
kunn í heimalandinu fyrir Matar-
leikhús sitt, og Martin Tulinius
leikstjóri. Hann er þekktur fyrir
sýningar sem leggja áherslu á
hið sjónræna og samruna miðla.
Íslenskt innlegg er til að mynda
frábær ljósahönnun Aðalsteins
Stefánssonar og matreiðsla Gunn-
ars Karls Gíslasonar. Leikararn-
ir eru líka flestir íslenskir, þeir
standa sig vel.
Miðinn á verkið kostar nær
20.000 krónur þannig að þessi
samruni sjónlistar og matargerðar
kostar sitt. En það er dýrt að fara
út að borða með stæl á Íslandi og
hér fá gestir meira en bara mat á
disk. Áhugafólk um mat og menn-
ingu fær því sannarlega eitthvað
fyrir peninginn.
Sigríður Björg Tómasdóttir
Niðurstaða: Sjónlist og sælkeramatur
spila saman í eftirminnilegri fram-
setningu á Völuspá.
22
menning@frettabladid.is
Leikhús ★★★★
Völuspá
Leikstjóri: Martin Tulinius
Sviðsmynd og búningar: Dorte
Holbek Matreiðslumenn: Mette
Sia Martinussen og Gunnar Karl
Gíslason Leikritahöfundur og
textavinna: Alete Scavenius
Ljósahönnun: Aðalsteinn
Stefánsson Myndbandshönnun:
Mikal Bing Hljóðhönnun: Emil
Sebastian Boell
Sýningin Völuspá – A Nordic Food
Expedition er kynnt sem ferðalag
fyrir öll skilningarvitin. Í henni
eru leidd saman forn kveð skapur,
Völuspá, og hin nýja norræna
matar gerð – og er mark miðið að
gestur á þessari skemmtun upplifi
nýtt og spennandi leikhús skyn-
færanna.
Fyrirheitin lofuðu góðu og
undir rituð mætti spennt á vett-
vang leiksins, Norræna húsið.
Þar var tekið á móti gestum
með freyðivíni af brosmildum
þjónustu stúlkum.
Skömmu síðar hófst leikurinn.
Eldri kona og ung stúlka báðu
gesti að fylgja sér og fyrsti þáttur
verksins hófst við Gróðurhús Nor-
ræna hússins. Heimurinn varð til
með ljósagerningi, gestir fengu að
bragða rót lífsins – framborna af
þjónustustúlkunum sem reyndust
Nýstárleg Völuspá
FORTÍÐIN Norræna húsið er nýtt á hugvitsamlegan hátt í frumlegri Völuspá sem sýnd er þar um þessar mundir.
LISTAMANNSSPJALL Í FLÓRU Sýningu Þórarins Blöndals myndlistarmanns í Listagili á Akureyri, Guli skúr 8,
lýkur laugardaginn 29. október. Fimmtudaginn 27. október verður boðið upp á spjall við listamanninn í Flóru. Viðmælandi
hans verður Hlynur Hallsson, myndlistarmaður og listrænn ráðunautur í Flóru. Spjallið hefst klukkan 20.
Basie, beint af augum er yfirskrift
tónleika Stórsveitar Reykjavíkur
sem haldnir verða í Kaldalónssal
tónlistarhússins Hörpu næsta
laugar dag, 29. október, klukkan 15.
Eins og nafnið gefur til kynna er
dagskrá Stórsveitarinnar helguð
stórsveit Count Basie og þá sér-
staklega útsetjaranum og tón-
skáldinu Sammy Nestico. Sá skrif-
aði fyrir Basie-bandið á árunum
1967 til 1984. Flutt verður öll tón-
listin af hinni rómuðu plötu „Basie
Straight Ahead“ frá árinu 1968,
auk nokkurra annarra verka frá
sama tíma.
Stjórnandi er Sigurður Flosa-
son, en hann hefur áður meðal
annars stjórnað sveitinni í dag-
skrám helguðum tónlist Thad
Jones og Bob Brookmeyer.
Basie, beint
af augum
COUNT BASIE
Stórsveitin
heiðrar djassar-
ann í Hörpu á
laugardag.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.