Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 26
Ráðist var í verkefnið vorið 2010. Leitað var til nokkurra reyndra jökla- manna sem hafa ferðast ýmist á vélknúnum farartækjum eða gangandi og greining gerð á hvað æskilegt væri að hafa á slíkum kortum. Samhljómur var um nokkur atriði sem hafa verið notuð til hliðsjónar við vinnu verksins: Flokkun sprungusvæða þarf að vera einföld og auðlærð Upplýsingar á útgefnum kortum verða að sýna hættusvæði, ferða- leiðir (GPS ferlar) og jafnvel útsýnisstaði.   Strax var ljóst að sprungsvæðakort geta einungis verið gild í takmark- aðan tíma. Ekki er hægt að ábyrgjast upplýsingar um sprungusvæði vegna örra jöklabreytinga og þau eru því aðeins til viðmiðunar. Velt var vöngum yfir öðrum hættum á jöklum, hvernig koma má upplýs- ingum um þær í texta og þá einnig góðum ráðum um ferðatækni. Með þetta veganesti var síðan mótað einfalt flokkunarkerfi þar sem sprungusvæði eru skilgreind í fjögur hættustig. Kortlagningin er unnin eftir nýleg- um loft- og gervitunglamyndum af jöklunum auk nákvæms hæðalínu- grunns og ljósmynda af jöklum sem teknar voru úr flugvél síðsumars 2010. Sprungusvæði eru merkt sem flákar. Flákarnir vitna um ástand jökla síðsumars og sýna umfang sprungusvæða í ákveðnu árferði. Ljóst er að flestir ferðast um jöklana síðla vetrar og að vori þegar aðstæð- ur eru aðrar. Af kortum fást því upplýsingar um ástand jökulsvæða undir snjóþekju. Hægt verður að sækja gögn sem birtast á algengum tegundum GPS leiðsögutækja; þessi Kortlagning sprungusvæða á jöklum Tilgangur ekki að banna eða vekja falskt öryggi Öræfajökull 10. ágúst 2010. Hrundið hefur verið af stað verkefni þar sem sprungusvæði á jöklum eru kortlögð með það að markmiði að auka öryggi. Vonast er til þess að sprungukort geti hjálpað ferðamönnum að velja hættuminnstu leiðirnar yfir jökla og forðast lífshættuleg sprungusvæði. Stefnt er að því að síðar á árinu 2010 megi hlaða niður af veraldarvefnum sprungusvæðakortum af stærstu jöklum landsins auk valinna GPS leiðarferla endurgjaldslaust. Snævarr Guðmundsson gögn, eða myndþekjur, sýna flákana með auðkennislit í kortaviðmóti tækjanna. Sama framsetning verður notuð á kortum. Ferðalangar eiga því að átta sig á því hvernig sprungu- svæði er undir snjóþekju sem ekið er yfir og metið aðstæður í ljósi þess. Auk kortanna til útprentunar verða fáanlegar sprungusvæðaþekjur sem leggjast yfir kort í gps tækjum. Samhliða gerð sprungukortanna verða lagðir út GPS leiðarferlar sem ætlað er að sýna „öruggustu“ leið hverju sinni. Reynt verður að sneiða hjá sprungusvæðum eins og kostur er. Tilgangurinn er tvíþættur: í fyrsta Sprungusvæðaþekjur leggjast myndrænt yfir kort í GPS tækjum. lagi er vonast til að þeir sem eru óvanir jöklaferðum notfæri sér leiðar- lögnina og komi til með að halda sig á eða nærri þeim og forðist þar af leið- andi hættuleg sprungusvæði. Í öðru lagi geta ferðalangar, sem eru t.d. staddir annars staðar á jöklum, valið að fylgja slíkum leiðum, ef veður versnar eða aðstæður breytast á ein- hvern hátt, ef þeir telja hana vera öruggari t.d. vegna nýrri upplýsinga. Mikilvægt er að hér komi fram að tilgangurinn með kortlagningu sprungusvæða og útgáfu leiða er ekki að skilgreina hvar má ferðast og hvar ekki, né að banna fólki á nokkurn hátt að fara inn á sprungusvæði. Ekki er heldur ætlunin að vekja falskt öryggi. Ferðalög á jöklum eru og verða ábyrgð þeirra sem taka sér þau sér á hendur. Þessi vinna hefur nú verið kynnt fjölda manna innan raða björg- unarsveitanna (Landsbjargar) og ferðasamtaka, eins og F4x4, Lands- sambandi vélsleðamanna og annarra útivistarfélaga. Jafnframt hefur verkefnið verið kynnt fyrirtækjum sem gera út á jöklana. Fræðslu og kynningu verður haldið áfram nú í vetur. Mikilvægt er að einhugur ríki um þetta málefni sem snertir alla þá sem stuðla vilja að ferðaöryggi á jöklum landsins. Tilgangur ekki að banna eða vekja falskt öryggi Sprungusvæði á Hagafellsjökli 3. október 2010. Nefnd skipuð af umhverfisráðherra setti í desember fram drög að nýjum náttúruverndarlögum, en við vinnu þeirra var lítið sammráð haft við hagsmunaaðila. Búið er að loka á athugasemdaferli, birta hina svoköll- uðu hvítbók og áfram er haldið án samstarfs eða samvinnu við hags- munaaðila. Mjög áríðandi er að skoða muninn á náttúruverndarlögum í Noregi og Svíþjóð, en í Svíþjóð var mikil samvinna við alla hagsmunaað- ila og þar náðist góð í þessum mikil- væga málaflokki. Komin er inn ný skilgreining á vegum í nýjum náttúruverndarlögum. Hvað gerist ef skilgreining þar er önn- ur en í umferðarlögum? Hvor skilgreiningin gildir gagnvart Skilgreina vegi í bæði umferðar- og náttúruverndarlögum? dóm- stólum? Ef ákært er fyrir hraðakstur, gilda þá umferðarlög og ef ákært er fyrir utanvegaakstur, gilda þá náttúruverndarlög. Það verður að taka af öll tvímæli um gildi skil- greininga samkvæmtþessum lögum. Gert er ráð fyrir að umhverfisráð- herra geti takmarkað eða bannað akstur á jöklum og frosinni og snævi þakinni jörð vegna náttúruspjalla. Það vantar lagaákvæði um hvernig þetta mat á náttúruspjöllum verði framkvæmt og hvaða viðmið notuð. Umhverfisráðherra getur tak- markað eða bannað akstur vegna óþæginda fyrir aðra. Hverjir eru aðrir og hvernig á að meta óþægindi? Er til staðall um óþægindi og við hvað er miðað? Hvað erunátttúruspjöll? Hvað eruóþægindi fyriraðra? Kortagrunni á aðhafna Hvað er utanvegaakstur og hvernig á að mæla hann? Kortagrunnur sá sem stefnt er að vinna og klára fyrir árið 2016 er algjörlega ófullnægjandi hvað varðar framkvæmd við ferlun, skráningu, umsjón, daglegan rekstur, upp- lýsingaskyldu og framsetningu. Hvergi er gert ráð fyrir fjármagni í vinnu við ferlun í kortagrunn. Ekkert samráð er við hagsmuna- aðila s.s. félagasamtök, ferðaþjón- ustu og almenning. Ekki er gert ráð fyrir endurskoðun á kortagrunni í náinni framtíð. Hvergi er talað um lagalega upplýsingaskyldu eða framsetn- ingu upplýsinga úr kortagrunni. Engar upplýsingar eru til um tilkynningarskyldu þeirra sem munu     Enn verið að brjóta ákvæði Árósarsáttmálans og stjórnsýslukærum á eftir að fjölga Endurskoðun á náttúruverndarlögum í uppnámi hafa undanþágu til aksturs utan hins almenna vegakerfis. Samt er talað um að utanvegaakstur hafi aukist. Hvaðan koma þær staðreyndir og hvernig á að mæla þetta? Þúsundir aðila munu hafa undan- þágu til utanvegaaksturs s.s um 20.000 aðilar innan hjálparsveita, hundruðir bænda með sitt heimilis- fólk, vísinda- og rannsóknaraðilar og fleiri hópar. Hvernig verður utanvegaakstur þessara aðila skráður? Taka þarf af allan vafa um hvernig mæla eigi hann og hvernig aðgreint verði á milli ólögmæts og lögmæts utanvegaavegaksturs. Þetta þarf að skilgreina í nýjum í náttúru- verndarlögum og setja reglur um tilkynningarskyldu þeirra sem hafa undanþágu til aksturs utan hins almenna vegakerfis. Undanþágur vegna utanvegaaksturs Tryggja verðuralmannarétt Náttúruverndarlög verða að tryggja almenningi rétt til að ferðast um landið. Ferðafólk hefur í vaxandi mæli mætt ólögmætum lokunum og engin ákvæði í nýjum drögum treysta rétt almennings til að ferðast um löglega vegslóða á einkalandi. Lögin þurfa að kveða skýrt á um að óheimilt sé að hindra ferðafólk í að ferðast um landið á lögmætum vegumslóðum. Þetta eru aðeins nokkur dæmi úr drögum að nýjum náttúruverndar- lögum og ef allt væri tekið fyrir, væri það efni í heila bók. Það stefnir í að enn eitt málið tengt ferðafrelsi íslendinga verði unnið án samráðs og samvinnu við almenning, útivistar- samtök og aðila í ferðaþjónustu. Ákvæði Árósarsáttmálans verða líklega þverbrotin og stjórnsýslu- kærum mun því líklega fjölga verulega á næstu mánuðum og árum. Guðmundur G. Kristinsson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.