Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 4
25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR4
NÁTTÚRA Skráning Náttúrufræði-
stofnunar (NÍ) og Landgræðslu
Íslands (LÍ) sýnir að lúpína hefur
tekið sér varanlega bólfestu á
stórum svæðum á hálendinu og í
helstu náttúruperlum Íslands sem
hafa verið friðlýstar. Forgangsmál
er að stemma stigu við útbreiðslu
lúpínu á hálendinu.
Notkun framandi jurta tegunda
er bönnuð á Íslandi ofan 500
metra hæðar yfir sjó. Skráning á
útbreiðslu þeirra sýnir hins vegar
að lúpínu er að finna á 43 reitum á
hálendinu sem hver um sig eru 500
sinnum 500 metrar að stærð. Sam-
svarandi tölur fyrir friðlýst svæði í
landinu eru 118 reitir og hraun frá
sögulegum tíma 120 reitir. Notkun
framandi tegunda er bönnuð á öllum
þessum svæðum.
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
NÍ, segir að ef ekki verði brugð-
ist við án tafar sé ljóst að umfang
vandans verði meira en ráðið verði
við. Hann starfar í nefnd á vegum
umhverfisráðuneytisins sem undir-
býr aðgerðir til að stemma stigu
við útbreiðslu lúpínunnar. Nefndin,
sem kemur saman á morgun, skilaði
umfangsmikilli skýrslu til ráðherra
í apríl í fyrra. Þá var boðað að ráð-
ist yrði gegn útbreiðslu lúpínu með
skipulögðum hætti. „Forgangurinn
er á hálendið núna,“ segir Jón Gunn-
ar spurður um áherslur nefndar-
innar.
Jón Gunnar segir það talið víst
að útbreiðslan sé miklum mun
meiri en skráning svæða segir til
um, eins og kemur jafnframt fram
í ný útkominni Hvítbók um náttúru-
vernd, þar sem sérstaklega er
fjallað um lúpínuna sem aðsteðjandi
hættu í náttúru Íslands.
Nú er svo komið að lúpína vex
víða á láglendi þar sem land er frið-
að eða sauðfjárbeit lítil, en eink-
um þó við þéttbýli og á skógrækt-
ar- og landgræðslusvæðum. Hefur
útbreiðsla hennar stóraukist eftir
1990 en hún var upphaflega flutt
hingað til lands um aldamótin 1900.
Í skýrslu lúpínunefndarinnar
segir að það sé brýnt að lágmarka
það tjón sem lúpína, og aðrar óæski-
legar tegundir, hafa á líffræðilega
fjölbreytni og önnur náttúruverð-
mæti. Hins vegar verður lúpínan
áfram mikilvæg jurt í landgræðslu
og forræktun fyrir skógrækt á
rýrum svæðum enda þekkt að lúp-
ína hefur verið notuð mikið til land-
græðslu og vegna skógræktar með
góðum árangri. svavar@frettabladid.is
GENGIÐ 24.10.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,0103
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,74 115,28
182,64 183,52
158,60 159,48
21,299 21,423
20,588 20,710
17,401 17,503
1,5062 1,5150
181,24 182,32
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Ranghermt var í umfjöllun um
tónleikaröð Karlakórs Hreppamanna
í tilefni af 200 ára afmæli Franz
Liszt að tónleikarnir í Selfosskirkju
væru á morgun. Þeir tónleikar verða
miðvikudaginn 2. nóvember.
Sýning í Safnahúsinu á Ísafirði er um
Kristínu Ólafsdóttur sem fyrst kvenna
á Íslandi lauk námi í læknisfræði.
Nafn hennar var misritað í blaðinu
í gær. Beðist er velvirðingar á þeim
mistökum.
LEIÐRÉTT
Í LAXÁ Á ÁSUM Nýtt veiðihús verður
reist við ána.
STANGVEIÐI Til stendur að reisa allt
að 328 fermetra veiðihús við Laxá
á Ásum í Húnavatnssýslu. Þó að
veiði í Laxá hafi dalað nokkuð er
áin ein sú dýrasta á landinu.
Fram til þessa hefur aðeins
verið veitt á tvær stangir í ánni
og ætti því að verða rúmt um
gesti í nýja veiðihúsinu sem í
fyrsta áfanga verður þó aðeins
192 fermetrar. Bæjarstjórn
Blönduóss hefur samþykkt að
úthluta veiðifélagi Laxár lóð
undir veiðihúsið í landi Hnjúka og
gefið byggingarleyfi fyrir fyrsta
áfanga hússins. - gar
Breytingar við dýra veiðiá:
Risaveiðihús við
Laxá á Ásum
Flæðir yfir hálendið
og friðlýstar perlur
Lúpína hefur myndað varanlega stofna allvíða á hálendinu. Sama vandamál
er komið upp á friðlýstum svæðum. Notkun framandi tegunda er bönnuð á
þessum svæðum. Hálendið er í forgangi við að hamla frekari útbreiðslu.
ÚTBREIÐSLUKORT LÚPÍNU Í skýrslu lúpínunefndarinnar er útbreiðslan sýnd í
10x10 kílómetra reitum árin 2009 og 2010, eftir endurmat. Myndin sýnir að
landnám jurtarinnar nær til alls landsins í meiri eða minni mæli.
STÚLKAN Litla stúlkan skömmu áður en
vöruflutningabíll ók yfir hana. MYND/AP
PEKING, AP Lögreglan í Kína hefur
handtekið tvo ökumenn sem eru
grunaðir um að hafa ekið yfir
tveggja ára stúlku. Atvikið átti
sér stað á fjölfarinni götu í suður-
hluta Kína fyrir nokkru. Um
langa hríð hafði enginn afskipti
af stúlkunni sem lá á götunni, en
hún lést viku síðar.
Dauði stúlkunnar vakti mikla
athygli í kínverskum fjölmiðlum,
sem sögðu atvikið bera vott um
dvínandi náungakærleik í land-
inu. Í sjö mínútur eftir að fyrri
bíllinn ók á stúlkuna gengu eða
hjóluðu átján manns framhjá án
þess að veita henni athygli. - fb
Ekið á litla stúlku í Kína:
Tveir ökumenn
handteknir
HEILBRIGÐISMÁL Samningar milli
Sjúkratrygginga Íslands og tann-
lækna hafa ekki tekist.
Í ágúst síðastliðnum kvaðst for-
stjóri Sjúkratrygginga vona að tak-
ast myndi að landa rammasamn-
ingi við tannlækna í september.
Nú standa hins vegar yfir við-
ræður við þá tannlækna sem þátt
tóku í átaki velferðarráðuneytisins
í sumar um gjaldfrjálsar tann-
lækningar fyrir börn tekjulágra.
Viðræðurnar snúast um að þeir
ljúki þeim skoðunum og viðgerðum
sem ekki tókst að klára í sumar. - ibs
Viðræður án árangurs:
Ekki samið við
tannlæknaLúpína er skilgreind sem framandi ágeng plöntutegund sem getur valdið
verulegum breytingum á vistkerfum þar sem hún vex og ógnar því líffræði-
legri fjölbreytni á hverjum stað. Nokkrar slíkar tegundir plantna vaxa hér en
af þeim er lúpínan talin mesti vágesturinn.
Framandi ágeng plöntutegund
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
12°
11°
10°
11°
12°
10°
11°
26°
15°
21°
17°
26°
8°
15°
21°
10°Á MORGUN
8-13 m/s SV- og V til,
annars hægari.
FIMMTUDAGUR
Víða fremur
hægur vindur.
2
3
5
4
3
4
5
8
77
-1
9
9
3
8
2
5
6
4
5
11
6
7
8
6
7
8
7
6
5
5
6
VÆTUSAMIR
DAGAR Úrkoma
í kortunum en
ekkert regnhlífar-
veður því það
verður strekkingur
á köfl um. Slydda
eða snjókoma N-
til í dag í fyrstu.
Hlýnar þó í veðri
og hiti 5-10 stig á
morgun.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
130 handteknir
Lögreglan í Chicago handtók 130
mótmælendur í gær sem neituðu að
yfirgefa útivistarsvæði í borginni. Alls
voru um eitt þúsund mótmælendur
á staðnum. Mótmælin í Chicago eru
í takt við þau sem byrjuðu á Wall
Street fyrir nokkrum vikum.
BANDARÍKIN
ÍÞRÓTTIR Íslenska landsliðið
í brigde tapaði fyrir því hol-
lenska í átta liða úrslitum á
heimsmeistara mótinu í gær.
Íslendingar náðu þó sigri í
tveimur spilalotum af þremur
í gær. Þeir hafa jafnframt náð
markmiði sínu, sem var að kom-
ast í hóp átta bestu landsliðanna.
Jón Baldursson, Þorlákur Jóns-
son, Aðalsteinn Jörgensen, Bjarni
Einarsson, Magnús Magnússon
og Sigurbjörn Haraldsson spiluðu
fyrir Íslands hönd en Björn
Eysteinsson var fyrirliði. - þeb
Heimsmeistaramót í bridge:
Íslenska lands-
liðið úr leik
VIÐSKIPTI Fjórtán verslunar-
eigendur og húsgagnaframleið-
endur ætla í mál við Arion banka
vegna Pennans. Penninn, sem er
að fullu í eigu Arion banka, tap-
aði samtals rúmum milljarði
króna í fyrra og árið á undan, en
Arion banki hefur sett á annan
milljarð króna í formi lána og
hlutafjáraukningar í félagið.
Skúli Rósantsson, eigandi
Casa húsgagnaverslunar, er einn
þeirra sem ætla í mál, og hann
sakar bankann um óeðlilega við-
skiptahætti.
„Þetta er eitthvað sem ekki
er lengur hægt að bjóða okkur
upp á. Að Arion banki og þetta
gæluverkefni Höskuldar banka-
stjóra sé búið að setja 1,7 millj-
arða króna í andvana fyrirtæki
á tveimur og hálfu ári. Þetta er
með ólíkindum,“ segir Skúli.
Penninn hefur nú tekið á leigu
stórt húsnæði við hliðina á Casa
og hyggst opna þar húsgagna-
verslun. Skúli segir þetta
ólíðandi vinnubrögð. „Það er
næsta skref hjá okkur að hjóla
í Samkeppniseftirlitið, því þeir
virðast ekki vera að gera neitt
og leggja blessun sína yfir það
sem bankinn gerir og bankinn
virðist hafa leyfi til að gera hvað
sem er.“ - þþ
Fjórtán verslunareigendur ósáttir við framgöngu bankans í málefnum Pennans:
Ætla að höfða mál gegn Arion banka
HÚSNÆÐI PENNANS Penninn hefur
tekið þetta húsnæði við hliðina á Casa á
leigu og hyggst opna húsgagnverslun.