Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 36
25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. heilu, 6. ólæti, 8. slæða, 9. hey- skaparamboð, 11. í röð, 12. saman- safn, 14. áburður, 16. skóli, 17. skarð, 18. stansa, 20. nudd, 21. sleit. LÓÐRÉTT 1. land í asíu, 3. tveir eins, 4. land, 5. mein, 7. ganga örugglega frá, 10. hús- freyja, 13. samstæða, 15. óviljugur, 16. flinkur, 19. tvíhljóði. LAUSN Pa ss ið yk ku r þa rn a up pi í tr éh ús in u st rá ka r LÁRÉTT: 2. öllu, 6. at, 8. lín, 9. orf, 11. bd, 12. syrpa, 14. gúanó, 16. fg, 17. rof, 18. æja, 20. nú, 21. rauf. LÓÐRÉTT: 1. laos, 3. ll, 4. líbanon, 5. und, 7. tryggja, 10. frú, 13. par, 15. ófús, 16. fær, 19. au. Þannig liggur í þessu. Ha? Kemur hún ekki? Nei, það gengur ekki upp núna. En... hún ætlaði að búa hjá okkur í þrjár vikur! Já, en svona er þetta bara. Mamma er komin með ofnæmi fyrir hundum! Ææææ en leiðin- legt! Kannski er hann ekki vonlaus sóði, kannski er þetta einhvers konar gjörningur. Hvað er í matinn? Ég ætla að leyfa Sollu og Hannesi að ákveða það. Þau rifust aðeins en voru á end- anum sammála um að hafa pasta. Ókei... hvað tefur þá? Ég er að bíða eftir að þau ákveði hvers konar pasta. S paghettí! Makkarónur ! Makkarónur! Spaghettí ! Tillaga liggur nú fyrir Alþingi um að veita lögreglunni heimildir til að fylgj- ast með fólki, án þess að nokkur rökstuðn- ingur liggi fyrir um hvort það hefur framið glæp eða ekki. Slíkt athæfi hefur verið klætt í fagmannlegt og ógagnsætt hugtak undir heitinu forvirkar rannsóknarheimild- ir, en hið ágæta orð njósnir nær því betur. Heimildir til að fylgjast með og skrifa skýrslur um fólk, sem ekkert hefur til saka unnið. Mögulega hyggur einhver viðkom- andi á glæp, en þar sem ekki þarf að fylgja rökstuddur grunur um slíkt er allt eins lík- legt að svo sé alls ekki. EFLAUST býr góður hugur að baki slíkri tillögu frekar en hnýsni um ferðir sam- borgaranna. Tillagan gengur hins vegar svo freklega á réttindi borgaranna að undrum sætir að hún sé til umræðu. Að það þurfi ekki einu sinni að rökstyðja fyrir dómara að ætlunin sé að fylgjast með ein- hverjum er fráleit hugsun. ÁTTMENNINGARNIR sem leggja til- löguna fram vilja að slíkum njósnum sé beint gegn „atferli sem talið er ógna almenningi, öryggi ríkisins og sjálf- stæði þess“. Á huldu er hins vegar hver á að skilgreina öryggi ríkisins, hvað þá sjálfstæði þess. Samkvæmt röksemdum margra ESB-andstæð- inga næði þetta yfir alla fylgismenn aðildar að Evrópusambandinu. Í GREINARGERÐUM vegna innkaupa Ríkislögreglustjóra, sem Ríkisendur- skoðun gagnrýndi, kom fram að grein- ingardeild lögreglunnar telur að hér hafi ríkt viðvarandi hættuástand frá falli bankanna. Það ríki enn. Er það nægt hættuástand til að fylgjast með fólki sem ekki hefur enn framið brot? Það veit enginn, verði tillagan sam- þykkt, því ekki þarf rökstuðning með njósnunum. ÞVÍ MIÐUR er tillagan hluti af breyttu hugarfari sem ryður sér æ meira til rúms. Réttindi borgaranna eru vegin, metin og léttvæg fundin og fórnað á alt- ari einhverra óskilgreindra hagsmuna. Eftir árásir á Tvíburaturnana í Banda- ríkjunum hefur sú tilhneiging orðið fyrir ferðarmeiri að öllu megi fórna á alt- ari öryggis. Skerða megi réttindi fólks, bara ef hægt er að halda því öruggu. Það er svo að sjálfsögðu yfirvaldsins hverju sinni að skilgreina hvað öryggi er. TILLAGA sem þessi er stórhættuleg, bæði í sögulegu ljósi sem nútímanum. Stjórnarskrár og mannréttindasátt- málar hafa sérstaklega tiltekið réttindi borgara og tillagan brýtur á þeim. VALD SPILLIR, sérstaklega eftirlits- laust vald. Úr slíku valdi á að draga, ekki að auka það. Burt með réttindi borgaranna MARKAÐURINN KEMUR ÚT Á MORGUN Umfjöllun um skakka stöðu á ýmsum samkeppnismörkuðum. BANKARNIR TAKMARKA SAMKEPPNI ÖRLAGASTUND EVRUSVÆÐISINS Fréttaskýring um nýjustu björgunaraðgerðir Evrópu- sambandsins og áhrif þeirra á þjóðríki og fjármálafyrirtæki.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.