Fréttablaðið - 11.11.2011, Side 30
JÓLABAKSTUR
„Ensk jólakaka er sparikaka og
engin jól í Ástralíu ef kökuna
vantar á borðið,“ segir Deborah
yfir bakstrinum sem hún hóf að
þróa þegar hún flutti til Íslands
fyrir 21 ári, því heima í Ástralíu
er vaninn að kaupa jólakökuna úr
búð.
„Það er lítið mál að baka enska
jólaköku þótt í hana fari margvís-
legt hráefni. Ég vil vökva hana í
mánuð og geta byrjað að smakka
um miðja aðventu, en kakan er svo
mikið spari að maður fær sér nett-
ar sneiðar og lætur hana duga til
áramóta. Heimilisfólkið er sólgið
í kökuna, en ég fel hana í lokuðu
boxi þar sem enginn finnur hana,“
segir Deborah hlæjandi og sæl á
íslenskum vetri, þegar sumartíð
stendur sem hæst í Ástralíu.
„Jól í Ástralíu eru yfir grilli á
ströndinni eða við sundlaug. Þar
er útilokað að innbyrða þungan
mat vegna hita og flestar jólagjaf-
ir snúa að sumrinu. Íslensk jól eru
því miklum mun hátíðlegri og það
þykir mér yndislegt, eins og ljós í
glugga, bakstur á aðventu og allar
hefðirnar. Mamma hefur átt ein
jól hjá okkur og fannst þau henn-
ar allra bestu á ævinni,“ segir
Deborah, sem ávallt heldur tvenn
pakkajól við fögnuð barna sinna.
„Ég vil opna pakkana frá minni
fjölskyldu á jóladagsmorgun eins
og tíðkast í Ástralíu en á aðfanga-
dagskvöld höldum við íslensk jól.
Ég fæ alltaf heimþrá af og til, þótt
mér líði vel á Íslandi, en það á trú-
lega við alla sem búa fjarri ætt-
jörð sinni og ekki síst um jól.“
thordis@frettabladid.is
Ekki jól án jólakökunnar
Ástralinn Deborah Leah Bergsson var á ferðalagi um heiminn þegar hún réði sig í fisk á Patreksfirði til
að ná sér í meiri farareyri. Þá kom ástin og hér er Deborah enn. Hún segir engin jól án enskrar jólaköku.
Deborah er fædd á Nýja-Sjálandi en fluttist átta ára til Ástralíu. Hún útskrifaðist af
skrifstofubraut MK í vor og leitar nú að vinnu. Hér bakar hún með syninum Andrew og
setur líka jólakökudeig í múffuform til fallegra vinagjafa á aðventunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kökukefli og piparkökuform sem og annað dót til jólabaksturs er gott
að vera búinn að finna til nokkrum dögum áður en sjálfur baksturinn hefst.
Stundum eru þessir hlutir ekki á vísum stað og þarf að eyða drjúgum tíma í
að finna þá. Eða þá kaupa einhver tól til bakstursins sem vantar upp á.
340 g smjör (mjúkt)
2 bollar púðursykur
6 egg
2 og 2/3 bollar hveiti
klípa af salti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. allrahanda
1 tsk. negull
1 tsk. kanill
340 g ljósar rúsínur
340 g dökkar rúsínur
340 g kúrennur (ég
hef notað þurrkaðar
apríkósur, skornar í litla
bita)
115 g súkkat
180 g kokkteilber (bland-
aðir litir)
½ bolli afhýddar
möndlur, hakkaðar fínt
fínt rifinn börkur og safi
úr sítrónu
¼ bolli romm/sérrí/
brandí (eða appelsínu-
safi)
Setjið bökunarpappír
í kringlótt kökuform.
Hrærið saman smjör
og sykur þar til létt og
ljóst. Bætið við eggjum,
einu í einu, ásamt
hluta hveitis. Sigtið nú
hveiti í aðra skál og
bætið við salti, lyftidufti
og kryddi. Hrærið
saman og blandið út í
þurrkuðum ávöxtum,
súkkati, kokkteil-
berjum og hökkuðum
möndlum. Hrærið
eggja- og smjörblöndu,
sítrónuberki, sítrónu-
safa og helmingi
áfengis saman við.
Hellið deiginu í form
og sléttið úr.
Bökunartími ræðst af
lögun og stærð forms-
ins. Mælt er með bökun
í 3½ klukkustund, en
best að athuga kökuna
eftir 1½ klukkustund.
Stingið þá prjóni í
kökuna. Ef hann er þurr
og kakan hæfilega stíf
er hún tilbúin. Bakist
við 140°C.
Vökva þarf kökuna
einu sinni í viku með
afgangi af víni eða
appelsínusafa, um
2-3 matskeiðar hverju
sinni. Best er að stinga
á hana göt með prjóni
svo vökvinn renni betur
inn í hana. Kakan er
tilbúin eftir mánuð en
sumir geta ekki beðið
svo lengi.
ENSKA JÓLAKAKAN HENNAR DEBORUH
Krydduð, áfeng og gómsæt á aðventunni og yfir hátíðarnar.