Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.11.2011, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 11.11.2011, Qupperneq 34
4 föstudagur 11. nóvember B ryndís er uppalin í Þorlákshöfn og hóf snemma að æfa sund hjá móður sinni sem var sundþjálfari. Hún náði góðum árangri sem sund- kona og setti alls sjötíu Íslandsmet í sundi, keppti fyrir hönd Íslands á þremur Evrópumeistaramótum og einnig á Ólympíuleikunum árið 1988. Bryndís kemur úr mik- illi sundfjölskyldu og á tímabili voru öll fjögur systkinin í lands- liðinu á sama tíma. „Við höfum öll synt með landsliðinu og á einum tímapunkti vorum við öll í lands- liðinu á sama tíma, sem þótti afar sérstakt.“ Tuttugu og fjögurra ára gömul ákvað Bryndís að tími væri kom- inn til að huga að framhalds- lífi eftir sundið og hóf nám við Íþróttakennaraskólann á Laugar- vatni. Hún vildi þó ekki hætta al- farið allri íþróttaiðkun þó að sund- gleraugun voru komin á hilluna og hóf að æfa kraftlyftingar og júdó. Árið 1995 útskrifaðist Bryndís frá Laugarvatni og sama ár vann hún titilinn Sterkasta kona Íslands í fyrsta sinn. „Ég kynntist síðan þýskum manni og flutti út til Þýskalands og bjó þar í ein tíu ár og keppti á meðan bæði í sundi og í aflraun- um. Ég bjó í litlum bæ rétt fyrir utan München í Suður-Þýskalandi og þar ríkti mikil sveitamenning sem átti ágætlega við mig.“ DREGUR OG ÝTIR BÍLUM Bryndís segist alltaf hafa verið sterk og að það sé ekki mikill munur á styrk hennar nú og árið 1995. „Það er helst munur á styrk í búknum sjálfum, ég hef lagt meiri áherslu á það undanfarið. En einhvern tímann náði ég að lyfta 200 kílóum í rétt- stöðulyftu með stöngina fyrir ofan hné. Ég tel að ég gæti náð því líka í dag ef ég reyndi. Ég tók 180 kíló á æfingu um daginn og ég held ég sé alveg jafn sterk núna og ég var þá.“ Innt eftir því hvort aflraunum fylgi mikil slysahætta segir Bryn- dís slysahættuna helst fólgna í því að vera illa undirbúin fyrir keppni. „Maður þarf að þjálfa með það í huga að það koma alltaf hreyfing- ar sem eru ekki væntanlegar. Maður þarf að vera í góðu formi og beita sér rétt.“ Bryndís segir kraftakeppni í raun ganga út á það að hreyfa hluti sem eru sýnilegir í okkar daglega lífi. „Við drögum og ýtum bílum, lyftum lóðum, berum sandpoka og lyftum trédrumbum. Við þurf- um líka að halda á alls konar hlut- um út frá líkamanum eins lengi og hægt er, þetta eru til dæmis ket- ilbjöllur eða sverð. Til að sigra í svona keppni þarf maður að vera ofarlega í öllum greinunum, það er vont að vera lélegur í einni grein því þá á maður á hættu að tapa niður stigum.“ Þegar Bryndís er spurð hvort hún sé ekki fyrsta manneskj- an sem vinir og vandamenn leiti til ef bíllinn festist í skafli skell- ir hún upp úr. „Ég geri ekki svo- leiðis og reyni sjálf að eiga góðan bíl sem festist ekki í sköflum. Það er þó vissulega praktískt að vera sterkur, ég finn til dæmis sjaldan til mikillar þreytu eftir vinnudag- inn og get því komið heim og átt góðan eftirmiðdag með börnun- um og góðan svefn. Þetta fæst allt með íþróttaiðkun og því að halda sér í góðu formi.“ „FJÓRBURAR“ Á HEIMILINU Bryndís er í sambúð með Bene- dikt Magnússyni, heimsmeistara í kraftlyftingum og þjálfara. Þau kynntust árið 2009 þegar Bryn- dís var dómari í keppninni um sterkustu konu landsins og var Benedikt aðstoðardómari henn- ar. „Það skemmtilega við þetta er að við eigum bæði tvíbura sem fæddust með fjögurra daga milli- bili. Ég á stelpu og strák og hann á tvær stelpur og öll eru þau þriggja og hálfs árs gömul. Heimilinu er stjórnað með harðri hendi og við reynum að halda uppi mikl- um aga. Við öðluðumst bæði mik- inn sjálfsaga með öguðu uppeldi og viljum að börnin okkar öðlist þennan sjálfsaga líka. Það gerir eigið líf mikið auðveldara. Það er ofboðslega mikil vinna að ala upp „fjórbura“ og við skiljum hvort annað ógjarnan eftir eitt með öll fjögur heldur reynum að vera allt- af tvö,“ segir hún og hlær. Benedikt stundar sjálfur kraft- lyftingar og þjálfar einnig Bryn- dísi fyrir mót og því er ekki nema von að börnin séu farin að sýna íþróttinni einhvern áhuga. „Þau fylgjast með æfingum og lyfta öllu sem hægt er að lyfta og vilja endi- lega prófa að taka í lóð. Þau herma eftir því sem fyrir þeim er haft.“ SKILUR FORVITNINA Bryndís segist aldrei hafa upplif- að annað en jákvæð viðbrögð frá fólki í kringum sig en segir Bene- dikt oftar fá spurningar frá for- vitnu fólki en hún sjálf. „Ég held að fólk sé frekar að læða spurn- ingum að Benedikt en að mér. Ég skil svo sem forvitnina því ég er 85 kíló að þyngd og er „humongous“ núna þar sem ég át á mig ein fimm kíló fyrir keppnina og vöðvarnir því allir fullir af næringu og vatni. Ég veit ekki hvaða álit karlmenn hafa á þessu, sumir hrífast en þeir sem eru neikvæðir halda því oftast bara fyrir sig,“ segir hún glettnislega. „Það eru margir sem pæla í kven- leika og lyftingum og ég hef áður sagt að maður eigi ekki að blanda þessu tvennu saman. Maður á að fá að vera íþróttakona í friði án þess að þurfa að vera í G-streng og með tútturnar út í loftið. Fólk á að virða íþróttamanninn, sama hvort það sé karl eða kona, og leyfa honum að stunda þá íþrótt sem hann vill án úreldra hugmynda um hvað sé karlaíþrótt eða konuíþrótt. Fitness finnst mér til dæmis út í hött því ef tveir kvenkyns keppendur eru jafn- ir að stigum og önnur er flöt en hin með sílíkon þá vinnur þessi með sílíkonið. Mér finnst það gera lítið úr konunni og ég færi sjálf aldrei í fitness bara út af þessu.“ Bryndís Ólafsdóttir hlaut titilinn Sterkasta kona Íslands á laugar- daginn var. Hún er marg- faldur meistari og er þetta í fimmta sinn sem hún hampar titlinum. Viðtal: Sara McMahon Mynd: Valgarður Gíslason Ég veit ekki hvaða álit karlmenn hafa á þessu, sumir hrífast en þeir sem eru neikvæðir halda því oftast bara fyrir sig. DREGUR EKKI BÍLA UPP ÚR SNJÓSKÖFLUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.