Fréttablaðið - 19.11.2011, Qupperneq 8
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR8
Í undirbúningi er söguleg heimildarmynd um Eimskip. Ef þú átt gamalt efni (kvikmyndir
eða ljósmyndir) sem mögulega tengist sögu Eimskipafélagsins höfum við áhuga á að
heyra frá þér.
Vinsamlegast hafðu samband við Rúnar í síma 822 2516 eða sendu okkur tölvupóst á
runar@windowseat.is eða jonthor@windowseat.is
Áttu efni um Eimskip?
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
Fí
to
n
/
SÍ
A
Suðurlandsbraut 16
104 Reykjavík
Sími 561 1199
INDÓNESÍA, AP Hillary Clinton, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, fer
til Búrma innan skamms að hitta
leiðtoga herforingastjórnarinn-
ar í von um að tryggja þar frek-
ari þróun í lýðræðisátt, nú þegar
„vottur af framförum“ hefur gert
vart við sig, eins og Barack Obama
Bandaríkjaforseti orðar það.
Aung San Suu Kyi, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Búrma,
ákvað í gær að taka boði herfor-
ingjastjórnarinnar um að skrá
flokk sinn, Lýðræðishreyfinguna,
sem löggildan stjórnmálaflokk á ný
og bjóða fram í næstu kosningum.
Flokkurinn tók ekki þátt í þing-
kosningum á síðasta ári, vegna
þess að hann treysti ekki herfor-
ingjastjórninni til að tryggja að
kosningarnar yrðu sanngjarnar.
Lýðræðishreyfingin vann stór-
sigur í þingkosningum árið 1990,
en herforingjastjórnin tók ekki
mark á því og setti Suu Kyi í stofu-
fangelsi. Henni var ekki endanlega
sleppt úr stofufangelsinu fyrr en að
loknum þingkosningunum á síðasta
ári, þegar herforingjastjórnin hafði
tryggt sér áframhaldandi völd.
„Ef Búrma heldur áfram á braut
lýðræðisumbóta getur landið end-
urnýjað samskipti sín við Banda-
ríkin,“ sagði Obama á leiðtogafundi
Suðaustur-Asíuríkja, sem haldinn
er á Indónesíu. - gb
Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, býður sig fram:
Bandarísk yfirvöld lofa samstarfi
AUNG SAN SUU KYI Ætlar að bjóða fram
í næstu kosningum. NORDICPHOTOS/AFP
BELGÍA, AP Meira en ellefu
stjórnmálamenn hafa reynt
að koma saman ríkisstjórn
í Belgíu frá því síðast var
kosið til þings. Þær tilraun-
ir hafa engum árangri skil-
að og landið hefur því verið
án ríkisstjórnar í meira en
fimm hundruð daga.
Að vísu er bráðabirgða-
stjórn starfandi í landinu,
en hún hefur takmarkað umboð og á
til dæmis erfitt með að koma í gegn
nauðsynlegum efnahagsumbót-
um, sem Evrópusambandið krefst
að verði orðnar að veruleika fyrir
miðjan næsta mánuð.
„Við erum enn að reyna,“ sagði
Wouter Beke, leiðtogi Flæmska
kristilega demókrataflokksins,
eftir að leiðtogar sósíal-
ista, frjálslyndra og kristi-
legra demókrata höfðu
varið enn einni nóttinni
í fundarhöld sem litlum
árangri skiluðu.
Samkomulag strandar á
ágreiningi flæmskumæl-
andi og frönskumælandi
stjórnmálamanna, sem
deila um það hvernig völdin
skuli skiptast milli héraða landsins
og miðstjórnar í Brussel.
Jafnvel þótt gróft samkomulag
hafi tekist í síðasta mánuði um aukin
völd heim í héröðin hefur útfærsl-
an dregist á langinn. Nokkur bjart-
sýni ríkir þó um að brátt fari að sjá
fyrir endann á þessum langdregnu
stjórnarmyndunarviðræðum. - gb
Meira en fimm hundruð dagar frá þingkosningum:
Stjórnarmyndun
gengur ekkert
WOUTER BEKE
STJÓRNSÝSLA Skipuð hefur verið
hæfisnefnd vegna ráðningar
á nýjum forstjóra Bankasýslu
ríkisins.
Dr. Ásta Bjarnadóttir, vinnu-
og skipulagssálfræðingur, er
formaður nefndarinnar en aðrir
nefndarmenn eru dr. Friðrik
Már Baldursson hagfræðingur
og Tryggvi Pálsson hagfræð-
ingur.
Hæfisnefndin mun móta
vinnuferli fyrir mat á umsækj-
endum í samræmi við þær kröf-
ur sem fram koma í auglýsingu
um starfið. Þá verður ferlið lagt
undir stjórn Bankasýslunnar
til samþykktar. Í kjölfarið mun
nefndin framkvæma mat á
hæfni umsækjenda og leggja
fyrir stjórnina. - mþl
Bankasýsla ríkisins:
Hæfisnefnd
skipuð vegna
ráðningar
SLYS Lögreglan óskar eftir vitnum
að umferðarslysi sem varð á
Kringlumýrarbraut á áttunda tím-
anum í gærmorgun, sunnan við
bensínstöð N1 í Fossvogi.
Dökkgrárri Toyotu Aygo var
ekið suður Kringlumýrarbraut-
þegar ökumaðurinn missti stjórn
á bílnum með þeim afleiðingum að
ökutækið fór yfir tvær akreinar og
hafnaði á vegriði.
Þeir sem urðu vitni að slysinu
geta haft samband við lögreglu í
síma 444-1000 eða í gegnum net-
fangið abending@lrh.is. - bj
Lögregla leitar að vitnum:
Bíll lenti á veg-
riði í Fossvogi
1. Hvað heitir íslenski skákmaður-
inn ungi sem er aðeins einum
áfanga frá stórmeistaratitli?
2. Hvað heitir nýráðinn verkefna-
stjóri hjá Leikfélagi Akureyrar?
3. Hver er kynþokkafyllsti
karlmaður í heimi samkvæmt
bandaríska tímaritinu People?
SVÖR:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson. 2. Helga
Mjöll Oddsdóttir. 3. Bradley Cooper.
EVRÓPUMÁL Styrkur íslensks sjávar-
útvegs og mikilvægi greinarinnar
fyrir efnahag landsins er einn af
helstu styrkleikum Íslands í yfir-
standandi aðildarviðræðum við
ESB. Þetta kom fram í máli Kol-
beins Árnasonar, formanns samn-
ingahóps Íslands um sjávarútvegs-
mál, á morgunfundi Viðskiptaráðs
Íslands í gær.
„Við hljótum að leggja áherslu
á þennan styrk í okkar nálgun
að viðræðunum að það sé feng-
ur í að hafa okkur innan borðs,“
segir Kolbeinn og vísar til þess að
sjávarútvegur hér á landi sé sjálf-
bær og skili arði. Ef til inngöngu
kæmi yrði Ísland stærsta fisk-
veiðiríkið í ESB með um þriðjung
af heildarafla sambandsins.
„Við höfum staðið okkur vel og
greinin skilar okkur arði. Það,
ásamt öðrum stórum greinum
eins og álframleiðslu og ferða-
mannaiðnaði, yrði til þess að ef við
gengjum í sambandið myndum við
í grunninn leggja meira af mörk-
um til sambandsins en það sem við
fengjum beint þaðan.“
Kolbeinn segir það munu veita
Íslandi sterka stöðu varðandi
stjórn yfir eigin málum. „Enda
hlýtur það að vera öllum til góða,
jafnt Íslendingum og þeim löndum
sem fyrir eru í ESB, að greinarnar
fái að blómstra áfram sem hingað
til.“
Hann bætir því við að mikilvægi
sjávarútvegsins fyrir efnahag
Íslands sé óumdeilt og það skapi
ákveðna sérstöðu sem rétt sé að
byggja á í samningaviðræðunum.
Sjávarútvegurinn nemur um 12%
af landsframleiðslu hér á landi á
meðan hann er einungis um 0,1%
af heildinni hjá ESB.
Efasemdir hafa verið á lofti
um að við hugsanlega inngöngu
Íslands geti reglum sambands-
ins verið breytt þannig að þær
sérlausnir sem Ísland fengi yrðu
mögulega ógiltar. Kolbeinn segir
þær áhyggjur vera óþarfar.
„Við leggjum áherslu á að
fastsetja reglurnar um okkar
hagsmuni inn í fyrirhugaðan
aðildarsamning. Það jafngildir
grundvallarsáttmálum sambands-
ins og verður þess vegna ekki
breytt nema með okkar samþykki.
Hagsmunirnir yrðu þá tryggðir,
ekki bara við inngöngu heldur til
framtíðar.“
Staðan í sjávarútvegsmálunum
er nú þannig að framkvæmda-
stjórn ESB er að vinna að rýni-
skýrslu um málaflokkinn, en hún
verður vart tilbúin fyrr en undir
árslok. Þá hefst vinna að gerð
samningsafstöðu, en formlegar
viðræður um sjávarútveg gætu
byrjað í júní á næsta ári.
thorgils@frettabladid.is
Sterkur sjávar-
útvegur styrkir
samningsstöðu
Formaður samningahóps Íslands við ESB um
sjávarútvegsmál segir samningsstöðu sterka. Ísland
yrði stærsta sjávarútvegsríki ESB ef til aðildar kæmi.
Formlegar sjávarútvegsumræður gætu hafist í júní.
Enda hlýtur það að
vera öllum til góða,
jafnt Íslendingum og þeim
löndum sem fyrir eru í ESB,
að greinarnar fái að blómstra
áfram sem hingað til.
KOLBEINN ÁRNASON
FORMAÐUR SAMNINGAHÓPS ÍSLANDS UM
SJÁVARÚTVEGSMÁL
SAMNINGAMENN Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, og
Kolbeinn Árnason, formaður samningahóps um sjávarútveg, fóru yfir stöðuna í ESB-
viðræðunum á fundi Viðskiptaráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?