Fréttablaðið - 19.11.2011, Blaðsíða 109
LAUGARDAGUR 19. nóvember 2011 73
Leikkonan Demi Moore sendi frá
sér tilkynningu til US Weekly um
að hún hefði ákveðið að segja skil-
ið við eiginmann sinn til sex ára,
Ashton Kutcher. Parið var ávallt
ófeimið að tjá hvort öðru ást sína
á opinberum vettvangi og notaði
Twitter gjarnan til þess, Moore
ákvað þó að binda enda á hjóna-
band þeirra í kjölfar frétta um
framhjáhald Kutchers.
„Það er með sorg í hjarta sem
ég hef ákveðið að sækja um skiln-
að frá Ashton. Sem kona, móðir
og eiginkona hef ég í hávegum
ákveðin gildi og vegna þeirra hef
ég ákveðið að taka þetta skref.
Þetta eru erfiðir tímar fyrir mig
og fjölskyldu mína og því bið ég
um að fólk sýni okkur nærgætni
meðan á þessu stendur,“ sagði í
tilkynningu Moore.
Moore og Ashton Kutcher tóku
saman árið 2003 og giftu sig tveim-
ur árum síðar. Með fyrrverandi
eiginmanni Moore, Bruce Willis,
og dætrum þeirra myndaði parið
hamingjusama stórfjölskyldu, sem
er fáheyrt í Hollywood, og vakti
því athygli fjölmiðla. Í gegnum
árin hafa þó reglulega verið flutt-
ar fréttir af glaumgosahegðun
Kutchers en parið stóð ávallt af sér
fjölmiðlafárið sem fylgdi í kjölfar
slíkra frétta. Hinn 24. september á
þessu ári flutti US Weekly fréttir
af því að Kutcher hefði eytt nótt
með stúlku frá San Diego. Stúlkan,
Sara Leal, kom stuttu síðar fram
í fjölmiðlum og staðfesti fréttina.
Moore og Kutcher virtust ætla
að standa af sér fjölmiðlafárviðrið
einnig í þetta sinn en augljóst var
að vandinn risti djúpt og Moore
var að ganga í gegnum mikla
erfiðleika og sorg.
Sækir um skilnað frá Kutcher
ERFIÐLEIKAR Parið glímdi við mikla
erfiðleika eftir að US Weekly flutti fréttir
af einnar nætur gamni sem Kutcher átti
með Söru Leal. NORDICPHOTOS/GETTY
Svo virðist sem Bandaríkjamenn
séu búnir að fá nóg af Kardashi-
an-fjölskyldunni því á netinu og
víðar má finna undirskriftalista
þar sem fólk er hvatt til að snið-
ganga þætti þeirra og vörur.
Netsíðan BoycottKim.com
hefur fengið hundrað þúsund
undirskriftir auk þess sem fólk
hefur farið fram á að sjónvarps-
þættir um líf fjölskyldunnar
verði teknir af dagskrá. Comcast,
fyrirtækið sem framleiðir þætt-
ina, hefur miklar áhyggjur af
þessari þróun. „Kard-
ashian-fjölskyldan
reiðir sig alfarið
á trúverðugleika
sjónvarpsþátta
sinna, nú þegar
hann er úti, hvað
eiga þau þá
eftir?“ spurði
Leslie Bruce,
blaðamaður
Hollywood
Reporter.
Óvinsæl
fjölskylda
ÞREYTA
Banda-
ríkjamenn
eru búnir
að fá nóg af
Kardashian-fjöl-
skyldunni.
NORDICPHOTOS/GETTY