Fréttablaðið - 19.11.2011, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.11.2011, Blaðsíða 30
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR30 S ystkinin Þórarinn, Sig- rún og Ólöf Eldjárn hafa öll lifað og hrærst í heimi bókmenntanna um ára- bil, hvert á sínu svið- inu. Öll komu þau með myndarlegum hætti að bókaút- gáfu þetta haustið. Nýútkomin er bók Sigrúnar, Náttúrugripasafnið, sem er framhald af Forngripasafn- inu sem kom út í fyrra. Hávamál hafa verið gefin út í nýrri útgáfu, þar sem Þórarinn enduryrkir spak- mæli Óðins við myndir Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur. Ólöf heldur sig meira á bak við tjöldin en þau hin. Hún þýddi hina vinsælu bók Húshjálpina eftir Kat- hryn Stockett yfir á íslensku og þá sat hún í ritnefnd fyrir Íslenska listasögu, sem kom út fyrr í haust í fimm bindum. Það má því fast- lega gera ráð fyrir að Eldjárn- snafnið komi upp úr ansi mörgum jólapökkum þetta árið. Aðeins eitt systkinanna gefur ekkert út fyrir jólin. Það er yngsti bróðirinn, Ingólfur Eldjárn tannlæknir. Ólöf: „Það hefði nú verið gaman að hafa hann með í þessu viðtali.“ Sigrún: „Já, en hann er náttúr- lega að vinna, annað en við hin!“ Engin stimpilklukka heima Öll starfa þau sjálfstætt, bóka- systkinin þrjú. Það hefur ýmsa kosti, svo sem þá að hægt er að bjóða blaðamanni í kaffispjall og súkkulaði klukkan 10 að morgni. En eru þau ekki alltaf í vinnunni? Ólöf: „Ég fer í vinnuna inn í mitt vinnuherbergi og er farin úr vinnunni þegar ég er komin út úr því.“ Sigrún: „En ertu ekki stundum inni í herberginu þegar þú átt að vera komin út úr því?“ Ólöf: „Jú, reyndar stundum, sér- staklega þegar ég er að þýða.“ Þórarinn: „Ertu með stimpil- klukku í þessu herbergi?“ Ólöf: „Nei, svo er ei!“ Sigrún: „Ég veit eiginlega aldrei hvort ég er í vinnunni eða ekki. Annaðhvort er ég alltaf í vinnunni eða alltaf í fríi. Ég geri engan greinarmun á þessu.“ Þórarinn: „Þetta er eiginlega þannig hjá mér líka, þótt það sé misjafnt eftir því hvar verkefnin eru stödd. Annars eru þeir sem eru að semja eitthvað aldrei í fríi. Því jafnvel þegar maður sefur getur mann dreymt eitthvað sem er mikilvægt að ná niður á blað.“ Sigrún: „Það er alveg hræðilegt að vita að maður hafi fengið alveg ofboðslega góða hugmynd en geta engan veginn munað hver hún var.“ Þórarinn: „Og hugmyndin verð- ur æ betri eftir því sem maður gleymir henni rækilegar.“ Æskuárin á Þjóðminjasafninu Nýja bókin hennar Sigrúnar, Nátt- úrugripasafnið, er önnur bókin í þríleik um Rúnar, sem flytur út á land með pabba sínum þar sem hann verður safnstjóri. Sigrún: „Þetta er sprottið út frá því að við ólumst upp á Þjóðminja- safninu, þar sem pabbi var þjóð- minjavörður. Í þá daga var ekk- ert náttúrugripasafn til sýnis, en það var í geymslu niðri í kjallara. Maður rakst því stundum á þessi uppstoppuðu dýr. Í húsinu var líka Listasafn Íslands og vaxmyndsafn. Alls konar spennandi hlutir!“ Ólöf: „Okkur fannst þetta svo sem ósköp eðlilegur staður til að alast upp á. Það var helst að vinum manns úr skólanum hafi þótt þetta spennandi staður.“ Af safninu á Bessastaði Eins óvenjulegt æskuheimili og Þjóðminjasafnið var tók ekki venjulegra heimili við næst. Faðir þeirra systkina, Kristján Eldjárn, tók við forsetaembættinu árið 1968 og þá fluttist hersingin að Bessa- stöðum, að Ólöfu undanskilinni. Ólöf: „Ég var flutt að heiman þegar þau fóru á Bessastaði. Ég var farin til útlanda til náms en ég dvaldi á Bessastöðum á sumrin og part úr vetri.“ Þórarinn: „Fyrsta árið sem pabbi og mamma voru þarna var ég í 6. bekk í Menntaskólanum. Svo fór ég utan til náms. Eftir að ég gifti mig bjuggum við hjónin svo eitt ár á Bessastöðum.“ Sigrún: „Ég var 14 ára þegar pabbi varð forseti og bjó á Bessa- stöðum í fimm ár. Ég var náttúr- lega unglingur og mig langaði ekkert sérstaklega að flytja út í sveit. En ég gerði það nú samt. Við vorum keyrð í skólann á morgnana, ég, dóttir bílstjórans og sonur ráðskonunnar. Oft tók ég Hafnarfjarðarstrætó heim og þurfti þá að fara út við afleggjar- ann. Þangað var ég oftast sótt, en stundum gleymdist það og þá fór ég bara heim á puttanum. Það var að mörgu leyti ágætt að vera þarna. Það var hægt að fara á skauta á tjörninni og svo var þarna æðar- varp sem var gaman að ganga um, ef maður mundi eftir að girða bux- urnar ofan í sokkana svo maður fengi ekki á sig fló.“ Ólöf: „Það var nú eiginlega bara yngsti bróðir okkar sem má segja að hafi alist upp á Bessastöðum. Hann var sjö ára þegar var flutt á Bessastaði og fór í sveitaskólann.“ Fólkið valdi sinn mann En var það ekki undarleg stund þegar pabbi þeirra varð forseti? Ólöf: „Þetta var auðvitað stórt skref að stíga en maður tók þessu bara eins og öðru.“ Sigrún: „Það var kannski aðal- lega í kosningabaráttunni sem þetta var svolítið skrýtið.“ Þórarinn: „Já, en maður bara reyndi að leiða hana hjá sér eins og hægt var.“ Ólöf: „Hann var kosinn með miklum meirihluta.“ Sigrún: „Hann var náttúrlega að keppa við pólitíkus, en fólkið valdi sinn mann.“ Þórarinn: „Ég held að hann sé eini forsetinn sem hefur verið kjörinn með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða. Að vísu var einu sinni kona sem gerði Vigdísi þann greiða að bjóða sig fram gegn henni. Þar með fékk hún um 90 pró- sent atkvæða þeirra sem mættu á kjörstað.“ Ólöf: Hann sat þrjú kjörtímabil en ætlaði svo að snúa sér af fullu afli að fræðunum.“ Sigrún: „En hann fékk bara tvö ár. Það var svolítið svindl.“ Þórarinn: „Hann þurfti að fara í hjartaaðgerð í Bandaríkjunum vegna kransæðasjúk- dóms. Þessi ferð end- aði öðruvísi en til stóð en hann fékk blóðtappa eftir aðgerðina. Hann var 65 ára. Maður áttar sig æ betur á því, eftir því sem maður færist nær í aldri, að hann var kornungur maður þegar hann lést.“ Myndskreytt og ljóðskreytt Allir sem hafa fylgst með íslenskum barna- bókmenntum undan- farin 20 ár vita að þau Sigrún og Þórar- inn vinna oft saman að bókum sínum. Oft- ast er það Sigrún sem myndskreytir bækur Þórarins en stundum ljóðskreytir Þórarinn bækur Sigrúnar. Sigrún: „Það er svo- lítið skemmtilegt að breyta til á þennan máta. Við höfum unnið nokkrar bækur þannig að ég mála myndirnar fyrst og Þórarinn ljóðskreytir svo. Fyrst var það bók sem heitir Gleymmérei og svo bæk- urnar Stafrófskver og Talnakver.“ Þórarinn: „Og svo náttúrlega bókin Tíu litlir kenjakrakkar. Þar settum við líka Íslandsmet í hraða. Sigrún kom með hugmyndina, í kjölfarið á þessu mikla uppþoti vegna endurútgáfu Tíu lítilla neg- rastráka. Frá því hugmyndin kvikn- aði og þangað til bókin kom út liðu 6 vikur.“ Sigrún hefur ritað á fimmta tug barnabóka en hún hefur ekki alveg nákvæma tölu á því. Þórarinn skrif- ar líka ljóð og skáldsögur fyrir full- orðna en tekur alltaf upp pennann fyrir börnin af og til. Af hverju halda þau bæði svona mikilli tryggð við barnabókmenntirnar? Sigrún: „Mér finnst í fyrsta lagi mjög skemmtilegt að gera bækur fyrir krakka og svo finnst mér afskaplega mikilvægt að einhver sé að sinna þessu.“ Þórarinn: Ég hafði samið bækur fyrir fullorðna áður en fyrsta ljóðabókin mín fyrir börn kom út, Óðfluga, sem Sig- rún myndskreytti. Þá var gjarnan talað um þetta eins og ég hefði gert einhverja stór- kostlega uppgötvun, að það væri hægt að yrkja ljóð fyrir börn. Ég hef síðan lagt mig eftir því að þefa uppi ljóðabækur handa börnum og það er til fullt af þeim.“ Sigrún: „En það hafði myndast eitt- hvert gat þarna í millitíðinni.“ Þórarinn: „Já, það hafði enginn verið að sinna þessu í ein- hvern tíma. Í svona rímuðum og hátt- bundnum ljóðum er eitthvað sem höfðar til barna á alveg sérstakan hátt. Þetta renn- ur oft inn í þau á þann hátt sem ég kalla skapandi misskilning, sem er mjög frjór.“ Siglt milli skers og báru En hefur Ólöf ekkert komið að sam- starfi þeirra Sigrúnar og Þórarins? Ólöf: „Nei, nei, ekki svoleiðis. Nema hvað þegar Þórarinn gaf út fyrstu sjálfútgefnu ljóðabókina sína, Kvæði árið 1974, teiknaði Sig- rún myndirnar, en ég sá um fjöl- ritun, innheimtu og dreifingu með dyggri aðstoð yngsta bróðurins, Ingólfs, sem hjólaði með ritið um allan bæ. Annars er helst að ég hafi lesið yfir eitthvað af því sem þau hafa verið að gera.“ Þórarinn: „Já, því fyrir utan að vera þýðandi er hún einhver magn- aðasti yfirlesari sem til er. Það er ekki margt sem fer framhjá henni.“ Ólöf: „Ég hef verið í bókabrans- anum nær alla mína starfsævi, meðal annars í 17 ár sem ritstjóri. Fyrir fjórum árum sagði ég upp og fór að vinna sjálfstætt. Síðan hef ég þýtt meira en ég gerði áður.“ Nýjasta þýðingin er bókin Hús- hjálpin eftir, sem á sér stað í Suð- urríkjum Bandaríkjanna árið 1962. Ólöf: „Það var svolítill vandi að þýða þessa. Hún er sögð af þremur konum, tveimur svörtum og einni hvítri. Þær svörtu tala Suðurríkja- ensku, segja ain‘t og svona, þannig að það var dálítill vandi að láta þær tala öðruvísi en þá hvítu.“ Sigrún: „Þessi munur er náttúr- lega ekki til í Íslandi.“ Ólöf: „Nei, það er vandinn. Ég leysti þetta með því að hugsa meira um talmál heldur en ritmál. Það skipti miklu máli að láta þær ekki tala bjánalega eða barnalega. Maður siglir milli skers og báru.“ Bíómyndin sem gerð var eftir bókinni hefur notið mikilli vin- sælda. Hvernig þótti þýðandanum takast til? Ólöf: „Ég er sátt við þessa bíó- mynd. Það hefði verið hægt að gera hana svo miklu verr. Það eru auð- vitað alls konar smáatriði sem eru ekki með og stundum er atburðarás- inni þjappað saman, enda er ekki hægt að gera bíómynd upp úr 500 síðna bók öðruvísi.“ Sigrún: „Ég á eftir að sjá hana. En ég er hins vegar búin að sjá Bakka-Baldur, hún var mjög flott.“ [Innskot: Bakka-Baldur fjallar um Baldur Þórarinsson, frá Bakka í Svarfaðardal. Úr dalnum eru þau systkinin ættuð.] Þórarinn: „Þær eru að hlaðast upp bíómyndirnar sem ég á eftir að sjá. Ég er alveg kominn í vandræði. Ég þarf helst að vera í bíói næsta mánuðinn.“ Skapandi og frjór misskilningur Sigrún, Þórarinn og Ólöf Eldjárn koma öll nokkuð við sögu í bókaútgáfu haustsins. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ræddi við þau um æskuár í Þjóðminjasafninu, unglingsár á Bessastöðum og síðast en ekki síst um bækur, sameiginlega ástríðu systkinanna þriggja. SYSTKININ ELDJÁRN Þau Sigrún, Þórarinn og Ólöf eru öll á kafi í bókmenntum, hvert á sínu sviðinu. Þau eiga einn bróður til viðbótar, Ingólf. Hann var sá eini í hópnum sem valdi ekki bækurnar að ævistarfi, en hann er tannlæknir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sigrún: „Ég var 14 ára þegar pabbi varð forseti. Mig langaði ekkert sérstaklega að flytja út í sveit.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.