Fréttablaðið - 19.11.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.11.2011, Blaðsíða 10
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR10 Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s J ó n s s o n & L e ’m a c k s • jl .i s • s Ía Góðir posar á hagstæðum kjörum Þjónusta allan sólarhringinn Viðskiptavinir á landsbyggðinni fá senda posa sér að kostnaðarlausu Mundu að panta posa fyrir jólaverslunina á www.borgun.is eða í síma 560 1600. Alltaf nóg að gera fyrir jólin! Christine AssAnge Berst fyrir son sinn. nordicphotos/AFp ÁstRALíA Christine Assange, móðir Wikileaks-stofnandans Julians Assange, tók sér stöðu fyrir utan þinghúsið í Ástralíu á miðvikudag þegar Barack Obama Bandaríkjaforseti var í heim- sókn. Hún krafðist þess að Obama beitti sér fyrir því að komið yrði í veg fyrir framsal Assange frá Bretlandi til Svíþjóðar, þar sem hans er óskað til yfirheyrslna vegna ásakana um kynferðisbrot gegn tveimur konum. Hún hefur einnig skrifað til Kevins Rudd, utanríkisráðherra Ástralíu, og farið fram á að Ástralar grípi inn í málið. - gb Móðir Julians Assange: Vill að Obama stöðvi framsal svíþjóð Eftir nokkur ár munu Svíar halda aftur þjóðaratkvæða- greiðslu um hvort taka eigi upp evruna. Þetta er mat Carls Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Bildt segir í viðtali við Dagens Industri að Svíar hefðu átt að gerast aðilar að myntbandalaginu um leið og það var stofnað. Í viðtalinu viðurkennir Bildt þó að það hafi komið sér vel fyrir Svía að taka ekki þátt í evrusamstarfinu vegna ástands- ins nú. Samtímis hafi þó Svíar haft gagn af tilvist evrunnar. - ibs Utanríkisráðherra Svíþjóðar: Kosið um evru eftir nokkur ár hrAðskreiðAstA fjórhjólið Breski uppfinningamaðurinn colin Furze brunar á fjórhjólinu sínu, sem getur komist upp í 115 kílómetra hraða á klukkustund, mun hraðar en önnur slík farartæki. FréttABlAðið/AFp viðskipti Lán sem Seðlabanki Íslands veitti þegar hann seldi hinn danska FIH-banka fyrir rúmu ári, svokallað seljendalán, er sem stendur tugmilljarða lægra virði en upphaf- legur höfuðstóll þess. Lars Rohde, forstjóri ATP-lífeyrissjóðsins sem var á meðal kaup- enda bankans, fullyrti í danska viðskipta- blaðinu Börsen í gær að Seðlabankinn myndi tapa tugum milljarða á sölunni. Rohde situr einnig í stjórn FIH. Bankinn tapaði um 19 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2011. FIH-bankinn var að fullu í eigu Kaupþings fyrir hrun. Öll hlutabréf hans voru sett sem veð fyrir 500 milljónum evra, 79,5 milljörðum króna á gengi dagsins í dag, láni til bankans hinn 6. október 2008. Lánið átti að vera til fjögurra daga. Áður en það var endur- greitt féll Kaupþing. Seðlabankinn gekk í kjölfarið að veðinu. Í september 2010 var tilkynnt að Seðla- bankinn hefði selt FIH til fjárfestingarhóps sem samanstóð af dönsku lífeyrissjóðunum ATP og PFA, sænska tryggingafélaginu Folksam og fjárfestinum Christian Dyvig. Kaupverðið var 5 milljarðar danskra króna, um 107 milljarðar króna. Um 62 milljarðar króna fengust greiddir í tveimur hlutum fram til janúar 2011 en 66,3 milljarðar króna voru í formi seljendaláns sem Seðlabankinn veitti og er á gjalddaga 31. desember 2014. Þrátt fyrir að höfuðstóll seljendalánsins væri hár var lánið bundið við gengi FIH með ýmsum hætti. Í fyrsta lagi verður hann lækkaður með tilliti til þess taps sem FIH verður fyrir vegna eigna á efnahagsreikn- ingum sínum frá miðju ári 2010 og fram að gjalddaga lánsins. Á fyrstu níu mán- uðum ársins 2011 hefur FIH afskrifað 11,9 milljarða króna. Á seinni helmingi ársins 2010 afskrifaði hann 33,7 milljarða króna. Heildarafskriftir FIH frá því að Seðlabank- inn seldi hann hafa því numið um 45,6 millj- örðum króna. Fréttablaðið hefur vitneskju um að spár stjórnenda FIH geri ráð fyrir að afskrifa þurfi milljarðatugi til viðbótar fram að gjalddaga seljendalánsins. Í öðru lagi átti mögulegur hagnaður FIH af fjárfestingarsjóðnum Axcel III, sem er að fullu í eigu bankans, að koma til hækkunar á höfuðstól seljendalánsins. Helsta eign Axcel III er 57,4% hlutur í skartgripaframleiðand- anum Pandoru og hagnaður sjóðsins er nán- ast einvörðungu bundinn við gengi bréfa í fyrirtækinu. Pandora var skráð á markað 5. október í fyrra og skráningargengið var 210 danskar krónur. Axcel-sjóðurinn skuldbatt sig til að eiga sinn hluta í eitt ár eftir skráningu til að tryggja að ekki yrði offramboð á bréf- um. Hlutabréfin hækkuðu upphaflega mikið og fóru upp í 367,5 danskar krónur í janúar. Síðan þá hefur gengi þeirra hríðfallið, for- stjóri Pandoru verið rekinn og afkomuspám verið breytt verulega til hins verra. Gengi bréfanna í lok dags í gær var 49 dansk- ar krónur, eða 13,3% af því sem það var í janúar. Sem stendur er Axcel-sjóðurinn því ekki að fara að skila miklum hækkunum á seljendaláninu. Seðlabankinn vill ekki gefa upp hvert bók- fært virði seljendalánsins er í dag og ítrekar að lánið sé ekki á gjalddaga fyrr en í lok árs 2014. thordur@frettabladid.is Kaupþingslánið verður dýrt Stjórnarmaður í FIH fullyrðir að Seðlabanki Íslands muni tapa tugum milljarða á sölunni á FIH, sem hann tók að veði fyrir risaláni til Kaupþings. 66,3 milljarða seljendalán mun lækka mikið eins og staðan er í dag. tAp yfirvofAndi seðlabankinn lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra 6. október 2008 og tók Fih sem veð. Þremur dögum síðar var bankinn fallinn. ORkUmÁL Forsvarsmenn Orku- veitu Reykjavíkur og fyrirtækis- ins Geogreenhouse ehf. skrifuðu í gær undir samning um kaup á orku ásamt heitu og köldu vatni sem nota á til ylræktar á Hellisheiði. Stefnt er að því að framleiða tómata til útflutnings í gróðurhús- um vestan Hellisheiðarvirkjunar. Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að framleiða nokkur þúsund tonn af tómötum á ári sem selja á til Bretlands. Samningurinn nær til fyrsta áfanga ylræktarinnar, sem áform- að er að taka í notkun haustið 2012. Samkvæmt upplýsingum frá Orku- veitunni má búast við að um 50 störf verði til vegna fyrsta áfangans, sem þó er aðeins fjórðungur af endan- legri stærð versins. Byggð verða 50 þúsund fermetra gróðurhús, sem þurfa um níu megavött af orku. Annar áfangi, sem verður jafn stór hinum fyrsta, á samkvæmt áætlunum að verða tilbúinn haustið 2014. Síðasti áfanginn er ótímasettur. Stærsti eigandi Geo- greenhouse ehf. er Sölufélag garð- yrkjumanna, en auk þess eiga í félaginu Investum Holding og Nýsköpunarsjóður. - bj Áforma byggingu 50 þúsund fermetra gróðurhúss við virkjun OR á Hellisheiði: Framleiða tómata til útflutnings UndirritUn sigurður Kiernan, stjórnar- formaður Geogreenhouse, og Bjarni Bjarnason, forstjóri or, undirrituðu samning um orkusölu í gær. Matsfyrirtækið Moody´s lækkaði lánshæfiseinkunn Fih úr Ba2 í B1 með neikvæðum horfum. Með niðurfærslunni færðist bankinn enn neðar í hinum svokallaða ruslflokki. Bankinn er auk þess á athugunarlista Moody´s. helstu ástæður áhyggna matsfyrirtækisins eru þær að Fih fékk um 1.100 milljarða króna lán og ábyrgðir á skuldabréfum frá danska ríkinu sem hluta af björgunarpakka þess fyrir þarlent fjármálakerfi. lánin og skuldabréfin eru á gjalddaga frá ágúst 2012 til júní 2013. Fih þarf að endurfjármagna þessi lán, enda er hand- bært fé bankans sem stendur einungis tæp 10% af þeim. heildareignir bankans voru metnar á 1.840 milljarða króna í lok september síðastliðins. skuldin við danska ríkið er því um 60% af öllum eignum bankans sem stendur. fih neðar í ruslflokknum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.