Fréttablaðið - 19.11.2011, Síða 16
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR16
Aðalfundur SVFR
verður haldinn laugardaginn
26. nóvember næstkomandi klukkan 13.30
á Grand hótel, Sigtúni 28, í Reykjavík.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Utankjörstaðarkosning fer fram á
skrifstofu félagsins 21. - 25. nóvember
klukkan 11 til 15.
Hjálpargögnum frá Rauða krossi Íslands var dreift í
Sómalilandi til um 2.500 flóttamanna, sem búa við
hrikalegar aðstæður, sumir án húsaskjóls. Dreifingin er
liður í neyðaraðstoð Rauða krossins og Rauða hálfmán-
ans í Sómalíu, en Rauði kross Íslands hefur nú varið um
50 milljónum króna til hjálparstarfsins.
Hjálparstarf Rauða kross Íslands í Sómalíu er tvíþætt.
Framlög almennings voru notuð til að kaupa bætiefna-
ríkt hnetusmjör, sem er gefið alvarlega vannærðum
börnum í sunnanverðri Sómalíu. Vestrænir hjálparstarfs-
menn sem hafa hætt sér inn á verstu hungursvæðin
hafa verið drepnir eða þeim rænt. Alls er búið að dreifa
matvælum til einnar milljónar manna í sunnanverðri
Sómalíu. Þeirra á meðal eru 20.000 börn sem njóta góðs
af vítamínríka hnetusmjörinu sem keypt var fyrir framlög
almennings á Íslandi.
Hjálpargögnin sem verið er að dreifa til flóttamanna
í norðanverðu landinu – meðal annars í Sómalilandi –
voru keypt fyrir framlag Fatasöfnunar Rauða krossins.
Hægt er að styðja áframhaldandi hjálparstarf með því
að hringja í söfnunarsíma Rauða krossins 904-1500
og leggja þannig 1.500 krónur fram til aðstoðarinnar.
Föt verða hjálpargögn
Rauði krossinn dreifir hjálpargögnum
Hjálpargögnum frá Rauða
krossi Íslands var dreift í
Sómalilandi í vikunni. Þórir
Guðmundsson, sviðsstjóri
hjálparsviðs, fylgdist með
dreifingunni, sem hann
segir hafa gengið afar vel
fyrir sig.
„Tilgangurinn með ferðinni var
að við vildum fullvissa okkur um
að það fé sem almenningur hefði
látið okkur í té með framlögum og
fötum væri vel nýtt á vettvangi.
Og eftir að hafa fylgst með dreif-
ingunni get ég staðfest að mjög
vel og fagmannlega var að þessu
staðið,“ segir Þórir Guðmundsson,
sviðsstjóri hjálparsviðs Rauða
krossins á Íslandi, sem er nýkom-
inn að utan eftir að hafa sótt Sóm-
alíu heim. „Ég vildi meðal annars
sannfæra mig um að skjólstæðing-
ar væru valdir með tilliti til þess
hversu berskjaldaðir þeir væru og
hversu mikla þörf þeir hefðu fyrir
þau hjálpargögn sem við vorum að
dreifa.“
Það voru sjálfboðaliðar Rauða
hálfmánans, systursamtaka Rauða
krossins, sem dreifðu hjálpar-
gögnunum, plastdúkum, eldunar-
áhöldum, teppum, hreinlætispökk-
um, brúsum og fötum. Afhending
varanna fór fram í hæðum fyrir
utan Hargeysa, höfuðborg
Somalilands.
„Við fórum talsvert út fyrir
höfuð borgina, upp í hlíðar þar
sem fólk hefst við á skraufþurri
mölinni þar sem eini gróðurinn er
kaktus og þyrnirunnar. Fólk reis-
ir sér kofa úr sprekum og þekur
loft og veggi með því sem tiltækt
er. Plastdúkar á borð við þá sem
við komum með geta verið hrein
lífsbjörg,“ segir Þórir, sem meðal
annars hitti fólk sem hafði sofið
úti í sjö nætur og var afar fegið
því að geta reist sér betri skýli.
Þórir segir það hafa verið
ánægjulegt að fylgjast með
hve skipulega og fagmannlega
var staðið að dreifingu hjálpar-
gagnanna. „Fólkið sem sá um
dreifinguna vissi alveg hvað
það var að gera og því myndað-
ist ekkert öngþveiti eins og vill
gerast ef gögnum er dreift með
óskipulagðari hætti.“
Þórir hélt sig í norðurhluta Sóm-
alíu, sem kallast Somaliland og
hefur raunar lýst yfir sjálfstæði
frá Sómalíu en ekki hlotið alþjóð-
lega viðurkenningu. Í Suður- og
Mið-Sómalíu er ástand svo slæmt
og stjórnleysi svo mikið eftir ára-
tuga borgarastríð að vestræn-
ir hjálparstarfsmenn hætta sér
ekki þangað. Rauða hálfmánan-
um hefur þó verið leyft að sinna
hjálparstörfum þar og sómalskir
sjálfboðaliðar séð um dreifingu
hjálpargagna, nú nýverið 700 þús-
und skammta af bætiefnaríku
hnetusmjöri sem keypt var fyrir
íslenskt söfnunarfé. „Þó að það sé
viðvarandi vannæring í norður-
hluta Sómalíu er ekki sama hung-
ursneyðin þar og fyrir sunnan.
Hnetusmjörskammtarnir sem
við dreifum í suðurhlutanum eru
hugsaðir fyrir börn og þrátt fyrir
óöldina hefur Rauða krossinum
verið leyft að dreifa hjálpargögn-
um þar, sem betur fer,“ segir Þórir
að lokum.
Lífsbjörg Rauða krossins í Sómalíu
DREIFINGIN GEKK VEL Gögnum var dreift í Sheikh Omar-flóttamannabúðunum fyrir utan Hargeysa í Sómalilandi við mikla ánægju þeirra sem fengu úthlutað. Myndir/Rauði krossinn
Á VETTVANGI Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparstarfssviðs Rauða kross Íslands,
heldur ræðu við upphaf dreifingar hjálpargagna í Sómalilandi.
Sigríður Björg
Tómasdóttir
sigridur@frettabladid.is