Fréttablaðið - 19.11.2011, Síða 20

Fréttablaðið - 19.11.2011, Síða 20
20 19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR Evrópumálin snúast um fram-tíðina. Þau snúast um hvort við Íslendingar ætlum að taka skref- ið fram á við og treysta samband okkar við önnur sjálfstæð ríki innan vébanda Evrópusambandsins, eða hvort við ætlum að standa í stað og láta EES-samninginn duga. Sjá til, vona það besta og gera enn eina til- raun með sjálfstæða örmynt á sam- eiginlegum markaði, með eða án gjaldeyrishafta. Svo eru þeir sem vilja stíga skrefið tilbaka, segja upp EES- og Schengen-samningun- um. Halda á heiðina eins og Bjart- ur forðum daga. Fram á við, standa í stað, afturábak. Um þetta snýst valið. Ég er staðfastlega þeirrar skoðun- ar að langbesta leiðin til þess að eiga vitræna umræðu um þessa valkosti sé að leiða til lykta aðildarviðræður Íslands og ESB. Aðeins þannig fáum við úr því skorið hvort þær hindr- anir sem hingað til hafa fælt okkur frá því að sækjast eftir fullri aðild séu raunverulegur tálmi eða tilbúið bitbein. Aðeins með því að semja um aðild kemur í ljós hvort sá ávinningur sem aðrar þjóðir hafa notið við aðild á ekki líka við um Ísland. Aðeins aðildarsamningur losa okkur við getgátur um hvað sé gerlegt í samn- ingum og svarar spurningum okkar um kosti og galla aðildar. Þá fyrst getur íslenska þjóðin tekið sjálf- stæða ákvörðun um eigin framtíð. Samningaviðræðurnar eru þegar hafnar. Þær hafa hingað til gengið mjög vel. Við höfum þegar opnað 6 kafla af 33 sem um þarf að semja, og lokið viðræðum um fjóra. Það er nánast einsdæmi. Vonir standa til þess að um mitt næsta ár verði við- ræður hafnar um alla málaflokka, og lokið um meirihluta samnings- kafla. Þá fer að sjá til lands. Ávinningurinn af Evrópu Í umræðunni núna er mikilvægt að greina milli þess sem við vitum og vitum ekki, á milli reynslu fortíðar og væntinga framtíðar. Það sem við vitum er að Ísland hefur notið ríku- legs ávinnings af þátttöku í Evrópu- samvinnunni. Aðild Íslands að Atl- antshafsbandalaginu tryggði öryggi okkar á viðsjárverðum tímum kalda stríðsins. Aðildin að EFTA og síðar EES skaut traustum þverbitum undir íslenskt atvinnulíf og útflutn- ing okkar. Allar þessar ákvarðanir voru umdeildar á sínum tíma og það þurfti pólitíska forystu og framsýni til að ná þeim í gegn. Í dag er óum- deilt að með þátttöku í Evrópusam- vinnunni höfum við tryggt öryggi og bætt lífskjör Íslendinga, aukið fjölbreytni og samkeppnishæfni í atvinnulífinu og skapað tækifæri fyrir íslenskar fjölskyldur og fyr- irtæki sem annars hefðu lifað við fábreytni og einangrun. Spurningin sem við stöndum núna frammi fyrir er hvort sú ákvörðun að gerast fullgildur þátt- takandi í ESB muni með sama hætti treysta enn frekar fullveldi okkar og framtíð. Reynsla ann- arra ríkja er vísbend- ing. Öll ríkin sem geng- ið hafa í ESB telja það hafa þjónað sínum hags- munum. Frændur okkar Írar segja aðildina hafa gert þeim kleift að stíga upp úr sárri fátækt. Vinir okkar í Eistlandi hafa notið góðs af fjárfest- ingum og útflutningi. Og norrænar bræðraþjóðir okkar í Svíþjóð, Danmörk og Finnlandi hafa allar notið ESB-aðildar, hver með sínum hætti. Enginn kvartar undan því að hafa glatað sjálfstæði sínu eða yfirráðum yfir auðlindum. Og ekkert aðildar- ríki vill ganga úr sambandinu, ekki einu sinni mínir góðu vinir í breska Íhaldsflokknum! Nýverið kolfelldu David Cameron og hans menn til- lögu um að fram færi þjóðar- atkvæðagreiðslu um úrsögn. Bretar eru evróskeptískir en þeir vita sem er að aðildin tryggir hag Bretlands. Þessa vegna sögðu þeir Já við Evr- ópu og Nei við óvissu og einangrun. En hvað með krísuna? Enginn dregur fjöður yfir þá stað- reynd að Evrópa glímir núna við erfiðan efnahagsvanda. En sá vandi er skuldavandi og hann er ekki bundinn við Evrópu heldur teygir anga sína um allan heim. Um það vitnar skýrsla AGS í vik- unni. Evrópusambandsríkin hafa nú þegar gripið til margvíslegra róttækra ráðstafana til að vinna sig út úr þessu og tryggja að skuldsetn- ing einstakra ríkja geti ekki endur- tekið sig. Það er mín bjargföst trú að evran muni koma sterkari og stöðugri út úr þessum hreinsun- areldi. Menn geta verið sammála eða ósammála því mati. En í Evrópu eru menn sammála um eitt: Núver- andi efnahagserfiðleikar kalla á meiri samvinnu, ekki minni, og það er enginn að gefast upp. Við þurfum meiri Evrópu til að vinna okkur út úr vandanum. Hvað sem krísunni líður er ávinningur Evrópusamvinnunnar óbreyttur. Kostir innri markaðar Evrópu munu áfram skila sér í bættri samkeppnishæfni, auknum útflutningi og atvinnu eins og Sam- tök atvinnulífsins þekkja svo vel. Kostir Evrópusamstarfs um nýsköp- un og vísindi, menningu og mennt- un, rannsóknir og þróun, skapa hagvöxt og störf. Það hafa Samtök iðnaðarins og íslensk nýsköpunar- fyrirtæki margsinnis bent á. Og grundvallarkostir evrunnar sem fel- ast m.a. í stöðugleika, innra og ytra aðhaldi, lægri vöxtum og verð- bólgu, aukinni fjár- festingu og atvinnu hafa ekki breyst. Þ e s s v e g n a kalla forystumenn íslenskra fyrirtækja eftir upptöku hennar. Íslensk heimili taka undir það. Skulda- vandi Grikklands, Ítalíu og fleiri ríkja breytir engu um þessa grundvallar- kosti Evrópusamvinn- unnar. Það má leiða að því líkur að um það leyti sem við Íslend- ingar kjósum um aðild verði Evrópusambandið búið að treysta innviði sína og umgjörð efnahagsmála svo um munar. Þá býðst Íslandi aðild að enn sterkara ESB. Framtíðarsýn og stefnufesta Stóra myndin er þessi. Við vitum að Evrópusamvinnan á vettvangi EES og EFTA hefur reynst okkur Íslend- ingum vel og að Evrópusambands- aðild hefur reynst aðildarríkjunum vel. Um það vitnar reynsla ann- arra Norðurlandaríkja, vina okkar í Eystrasaltsríkjunum og annarra aðildarríkja. Með því að ljúka aðild- arviðræðum og fá aðildarsamning á borðið vitum við með vissu hverj- ir kostir og gallar aðildar eru og getum vegið þá og metið út frá hags- munum Íslands. Allt tal um að Evrópa sé komin að fótum fram, um endalok sjálfstæð- is og auðlindaafsal stenst ekki skoð- un. Yfirstandandi skuldavandi ein- stakra Evrópuríkja er ekki tilefni til óðagots. Stjórnmálin snúast um stefnu- festu og framtíðarsýn. Barátta æstustu Evrópuandstæðinganna fyrir því að ganga gegn meirihluta- vilja Alþingis, hætta við og breyta umsókninni í bjölluat hefur fengið lítinn hljómgrunn. Þó að skiptar skoðanir séu um aðild eins og vera ber í lýðræðissamfélagi hafa kann- anir sýnt að 2/3 hluti Íslendinga vilja ljúka viðræðum og kjósa um aðildarsamning. Íslendingar vilja fá að kjósa um framtíðina. Það munu þeir fá að gera. Ég skrifaði grein í síðustu viku sem hét „Hvað framleiðir Ísland?“ og færði fyrir því rök að framleiðsla Íslands væri ekki jafn mikið í evrum og tölur Hagstof- unnar gefa til kynna. Nú hafa sam- tökin Já Ísland, sem berjast fyrir aðild Íslands að ESB, vitnað í þess- ar ófullkomnu tölur Hagstofunnar til að reyna að sannfæra fólk um að ekki sé neitt vit í því fyrir Ísland að notast við aðra mynt en evru. Ég hefði vonast eftir uppbyggilegri rökræðu en raun ber vitni. Í meðfylgjandi skífuriti sést skipting útflutningstekna Íslands, ef leiðrétt er fyrir því að ál er hvergi verðlagt í evrum, heldur dollurum, en Hagstofan metur það ranglega í evrum því álið er sent til Rotter- dam, til umskipunar. Eins eru sjáv- arafurðir sem seldar eru alþjóð- lega, það er til landa utan Evrópu, oftast verðlagðar í dollurum og það er leiðrétt í þessari mynd. Myndin ber það glögglega með sér að mikil- vægasta mynt í útflutningi Íslands er dollarinn. Og það kemur ekki á óvart því Ísland framleiðir fyrst og fremst hrávörur sem alls staðar eru verðlagðar í dollurum. Einn virtasti álitsgjafi heims um peningamál, Martin Wolf, sem heimsótti landið fyrir 2 vikum, sagði það fásinnu að blanda saman peningastefnu og aðild að ríkja- bandalagi. Hann sagði þetta vera tvö aðskilin mál, sem þau eru sannanlega, og að Ísland gæti tekið upp hvaða mynt sem er á nokkrum vikum, meira að segja evru. Hann sagði jafnframt að sér litist ekki á framtíð evrunnar, hún væri allt of óviss, og Kanadadollari hent- aði Íslendingum betur. Kanadadoll- ara má líkja við dollara fyrir 100 árum þegar auðlindir Bandaríkj- anna voru að mestu ósnertar og því er ljóst að Kanadadollari mun halda verðgildi sínu betur en Bandaríkja- dollari. Íslendingar hljóta að kjósa mynt sem heldur verðgildi sínu. Stóra myndin ESB-aðild Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Skipting útflutningstekna Íslands Dollar 37% Evra 27% Pund 14% Dönsk króna 7% Norsk króna 6% Sænsk króna 4% Aðrar myntir 5% Ég var stödd í bókabúð þegar mér datt í hug af rælni að skoða hvað Hannes Hólmsteinn Gissurarson segði um Sigfús Daðason í bók sinni Íslenskir kommúnistar. Í síðasta kafla bókarinnar, „Nokkrar niðurstöður“, segir: „Eftir uppreisnina í Ungverja- landi 1956 gekk Petrína Jakobs- son úr Sósíalistaflokknum, en Katrín Thoroddsen bifaðist ekki. Jón úr Vör mótmælti ofbeldis- verkum Kremlverja í lok sjötta áratugar, en Sigfús Daðason var ófáanlegur til þess“ (bls. 531). Þetta fullyrðir Hannes Hólm- steinn án nokkurra röksemda. Hann tilgreinir ekki heimildir sínar, hver eða hverjir það voru sem reyndu án árangurs að fá Sigfús til að mótmæla þessum ofbeldisverkum. Skemmst er frá því að segja að þetta eru helber ósannindi. Sigfús Daðason var vissu- lega pólitískur en hann var ekki flokkspólitískur. Hann var víð- sýnn og tók ávallt sjálfstæðar ákvarðanir. Sem dæmi má taka að Sigfús hélt til náms í Frakk- landi árið 1951 þó svo að Krist- inn E. Andrésson, sem var honum afar góður á æskuárun- um og Sigfús mat mikils, vildi að hann færi til Moskvu eða Austur- Þýskalands þar sem hægt var að fá ríflega styrki til náms. Sigfús var í París þegar Sov- étríkin gerðu innrás í Ungverja- land 4. nóvember 1956. Að beiðni ritstjórnar tímaritsins Birtings skrifaði Sigfús 26. sama mán- aðar greinina „Fyrirspurn svar- að“ sem birtist í 4. hefti ritsins 1956. Í greininni fór hann hörð- um orðum um arðrán stórþjóða á smáríkjum og fordæmdi afdrátt- arlaust ofbeldisverk stórvelda gagnvart smáþjóðum, bæði inn- rás Sovétmanna í Ungverjaland og Breta og Frakka í Egyptaland. Hann minnti jafnframt á „for- dæðuverkin“ sem framin voru „í Indókína og Guatemala, Kenya og Alsír, Egyptalandi og Mada- gascar.“ Í XIV kvæði í Höndum og orðum (1959) – „Hvílíkar lygar hvílík óheilindi hvílík sögu- leg stórslys“ – tekur Sigfús upp þráðinn á ný og fjallar með eftir- minnilegum hætti um pólitískan veruleika smáríkja og hervelda. Eftir innrás Varsjárbanda- lagsins í Tékkóslóvakíu 21. ágúst 1968 skrifaði Sigfús, sem þá var einn þriggja ritstjóra Tímarits Máls og menningar, ritstjórn- argrein „Um Tékkóslóvakíu og sósíalismann“. Niðurstaða hans var að ekkert gæti réttlætt inn- rásina. Greinin fékkst ekki birt. Handrit Sigfúsar að greininni er varðveitt á Handritadeild Lands- bókasafnsins og á það hefur Sig- fús skrifað „varð ekki birt“. Í staðinn birti Kristinn E. Andr- ésson greinina „Stúdentahreyf- ingin“. Þessi dæmi sýna að Sigfús var alla tíð sama sinnis í afstöðu sinni til stórvelda og smáríkja. Hann stóð með hinum kúguðu gegn kúgurunum. Þess vegna ítreka ég að sú staðhæfing Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar að Sig- fús Daðason hafi verið ófáanlegur til að mótmæla ofbeldisverkum Kremlverja í Ungverjalandi er staðlausu stafir. Hafa skal það sem sannara reynist Að halla réttu máli Gjaldmiðlar Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur Yfirstandandi skuldavandi einstakra Evrópuríkja er ekki tilefni til óðagots. Stjórn- málin snúast um stefnufestu og framtíðarsýn. Menning Guðný Ýr Jónsdóttir ekkja Sigfúsar Daðasonar Þess vegna ítreka ég að sú stað- hæfing Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar að Sigfús Daðason hafi verið ófáan legur til að mót- mæla ofbeldisverkum Kremlverja í Ungverja- landi eru staðlausu stafir. BÓKIÐ AUGLÝSINGAR TÍMANLEGA: ÍVAR ÖRN HANSEN S: 512 5429, GSM: 615 4349 ivarorn@365.is Sérblað um hamborgarhrygg kemur út þann 23. nóvember. HRYGGUR HAM BORGAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.