Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2011, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 19.11.2011, Qupperneq 38
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR38 F ormannsskipti í íslenskum stjórnmálaflokkum hafa yfir- leitt farið fram án mikilla átaka, í það minnsta fyrir opnum tjöld- um. Þá hafa flokksformenn oft- ast getað verið rólegir yfir stöðu sinni þar sem fátítt hefur verið að sitjandi formenn fái mótframboð gegn sér. Sem dæmi má nefna að í 82 ára sögu Sjálf- stæðisflokksins hefur sitjandi formaður ein- ungis fimm sinnum fengið mótframboð, þar af í fyrra og á landsfundi nú um helgina. Verði Bjarni endurkjörinn verður hann fyrsti formaður stjórnmálaflokks á Íslandi sem hefur þrisvar sinnum sigrað annan frambjóðanda í formannskjöri. Þó ber að taka fram að lengi vel voru formenn í stóru flokkunum ekki valdir í almennri kosningu á landsfundi. Þá er það hefð í kosningum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að allir fundargestir eru í raun í kjöri. Nokkur merkileg formannskjör hafa þó farið fram og verður hér stiklað á stóru um formannsslagi í íslenskri stjórnmálasögu. Hermann felldi Jónas og átök í Alþýðuflokki Segja má að fjórflokkakerfið svokallaða hafi þegar verið komið fram í alþingis- kosningunum 1931. Þá buðu fram Sjálf- stæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Alþýðu- flokkur og Kommúnistaflokkur. Nokkrum árum síðar klauf Bændaflokkurinn sig frá Framsókn en í kosningunum 1942 var fjór- flokkurinn aftur kominn fram nema þá hafði Kommúnistaflokkurinn sameinast hluta Alþýðuflokksins í Sósíalistaflokknum. Fyrsti formaður fjórflokks sem settur var af var Jónas Jónsson frá Hriflu. Jónas varð formaður Framsóknar árið 1934 en í ríkisstjórnum sem flokkurinn veitti forystu á árunum 1934 til 1942 var Hermann Jónas- son forsætisráðherra, ekki Jónas. Sagt var að þingmenn flokksins hefðu óttast að Jónas yrði of einráður sem forsætisráðherra auk þess sem Alþýðuflokksmenn, sem mynd- uðu stjórnina ásamt Framsókn, voru ekki hrifnir af þeirri tilhugsun að Jónas yrði for- sætisráðherra. Á landsfundi flokksins árið 1944 kaus miðstjórn hans svo Hermann for- mann í stað Jónasar sem hafði þótt ganga full hart fram í málflutningi sínum miss- erin á undan. Næstu ár sátu flokksformenn á friðarstóli en upp úr 1950 fór að gæta talsverðra vær- inga í Alþýðuflokknum. Fór svo að lokum að Hannibal Valdimarsson felldi Stefán Jóhann Stefánsson úr sessi árið 1952 en var svo sjálfur felldur tveimur árum síðar. Stefán Jóhann hafði verið formaður frá árinu 1938 og var forsætisráðherra á árun- um 1947 til 1949. Stuðningsmenn Stefáns voru í helstu valdastöðum flokksins árið 1952 en talsverðrar óánægju gætti með for- ystuna meðal almennra flokksmanna. Þótti Stefán hafa misst eldmóðinn og vera í litlum tengslum við verkalýðshreyfinguna. Var Hannibal fenginn til að bjóða fram gegn honum og hafði öruggan sigur. Formannstíð Hannibals varð hins vegar stutt. Hann gerðist ritstjóri Alþýðublaðs- ins meðfram formannsstörfum og ritaði þar um stefnu flokksins dag frá degi. Hann hafði hins vegar lítið samband við aðra flokksmenn auk þess sem Stefán Jóhann og stuðningsmenn hans unnu gegn honum. Þegar nálgaðist landsfund 1954 virtist hann njóta lítils stuðnings í flokknum og fór svo að Haraldur Guðmundsson, gamalreyndur þingmaður, tók við sem formaður um hríð. Átök í Sjálfstæðisflokknum Jóhann Hafstein lét af formannsembætti í Sjálfstæðisflokknum árið 1973 vegna heilsubrests. Við af honum tók Geir Hall- grímsson varaformaður, sem látið hafði af embætti borgarstjóra nokkrum mánuðum fyrr eftir þrettán ára setu. Geir var kjör- inn varaformaður árið 1971 eftir hatramma baráttu við Gunnar Thoroddsen sem hafði snúið aftur í stjórnmálin eftir skamma veru í Hæstarétti og tap í forsetakosningunum 1968. Geir varð forsætisráðherra eftir kosningar 1974 og sat í fjögur ár. Í kosningunum 1978 tapaði flokkurinn hins vegar miklu fylgi, ekki síst vegna erfiðs ástands í efnahagsmál- um, og fór í stjórnarandstöðu. Árið eftir fékk Geir mótframboð á landsfundi, fyrstur for- manna Sjálfstæðisflokks. Gegn honum bauð sig fram Albert Guðmundsson, þá borgar- fulltrúi og þingmaður og fyrr verandi knatt- spyrnuhetja. Albert hafði þó ekki erindi sem erfiði og vann Geir léttan sigur. Í kjölfar þingkosninga í desember 1979 gekk flokksformönnunum bölvanlega að mynda ríkisstjórn. Fór svo að lokum að Gunnar Thoroddsen, þá varaformaður, klauf Sjálfstæðisflokkinn og myndaði ríkisstjórn með Framsókn og Alþýðubandalagi með hluta þingflokksins á bak við sig. Árið 1981 var aftur komið að landsfundi og settu deilur vegna klofningsins mikinn svip á fundinn. Þá bauð Pálmi Jónsson, land- búnaðarráðherra og einn þingmannanna sem mynduðu stjórnina með Gunnari, sig fram til formanns gegn Geir. Sigraði Geir örugglega í formannskosningunum, fékk tæp 66 prósent atkvæða. Pálmi fékk rúm 20 prósent og Ellert B. Schram tæp 10 prósent. Geir sat sem formaður í tvö ár til við- bótar en fékk slæma útreið í prófkjöri fyrir þingkosningar 1983 og náði ekki kjöri á þing. Hann lét í kjölfarið af embætti for- manns og á landsfundi haustið 1983 var kosinn nýr formaður; Þorsteinn Pálsson, þá alþingismaður. Hlaut Þorsteinn tæp 57 pró- sent atkvæða en Friðrik Sophusson, þá vara- formaður, fékk tæp 27 prósent. Þá fékk Birg- ir Ísleifur Gunnarsson, þá alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri, tæp 17 prósent. Tveir formannsslagir í Alþýðubandalaginu Í Alþýðubandalaginu var regla að formaður skyldi ekki sitja lengur en í átta ár í senn. Árið 1987 þurfti Svavar Gestsson að láta af formannsembætti vegna þessa. Á þeim tíma geisuðu mikil átök í flokknum milli tveggja fylkinga sem kallaðar voru „flokkseigenda- félagið“ og „lýðræðiskynslóðin“. Svavar tilheyrði þeirri fyrri en meðal forkólfa þeirrar seinni var Ólafur Ragnar Gríms- son. Í formannskjöri um haustið bauð Ólaf- ur Ragnar sig fram og háði tvísýna kosn- ingabaráttu við Sigrúnu Stefánsdóttur, þá bæjar fulltrúa á Akureyri. Fór svo að Ólafur Ragnar hafði sigur í kjörinu með rúm 60 prósent atkvæða. Átta árum síðar var aftur kominn tími til að skipta um formann og aftur tókust á sömu fylkingar. Þá buðu sig fram til for- manns Margrét Frímannsdóttir, þá þing- maður, sem talin var til stuðningsmanna Ólafs Ragnars og Steingrímur J. Sigfús- son sem var í Svavars-armi flokksins og hafði verið varaformaður í sex ár. Voru kosningarnar enn tvísýnni en árið 1987 en aftur var það sami armur sem bar sigur úr býtum. Margrét hlaut 53,5 prósent atkvæða gegn 46,5 prósentum. Varð Mar- grét þar með fyrst kvenna formaður eins fjór flokkanna. Svilar í hár saman Síðustu ár hafa formannsslagir einnig sett svip sinn á pólitíkina á Íslandi. Árið 2005 bauð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sig fram gegn svila sínum Össuri Skarphéðinssyni, þá formanni Samfylkingarinnar. Ingibjörg hafði leitt R-lista samstarfið í Reykjavík frá 1994 til 2003 og verið farsæll borgar- stjóri. Árið 2003 fór hún í landsmálin og var stillt upp sem forsætisráðherraefni Samfylkingar innar fyrir þingkosningar það ár. Flokkurinn jók fylgi sitt í kosningunum en náði þó ekki þeim árangri sem að hafði verið stefnt og komst ekki í ríkisstjórn. Á landsfundinum 2005 var Ingibjörg þó kosin formaður með um tvo þriðju atkvæða. Ári síðar fór fram formannskjör í Fram- sóknarflokknum. Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra sagði af sér formennsku um vorið eftir slakan árangur flokksins í sveitar- stjórnarkosningum. Var kosið á milli Sivjar Friðleifsdóttur, þá heilbrigðis ráðherra, og Jóns Sigurðssonar, sem ekki hafði starfað í fremstu víglínu stjórnmálanna áður en hafði verið virkur innan flokksins um áratugi. Vann Jón sigur í kjörinu með tæpum 55 pró- sentum atkvæða gegn rúmum 44. Tíð formannsskipti urðu í flokknum árin á eftir en næst fór fram formannskjör árið 2009 þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, nýgræðingur í stjórnmálum, var kjör- inn formaður. Einnig voru í framboði Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður. Þegar úrslit voru tilkynnt urðu hins vegar mistök og var Höskuldur ranglega kynntur sem nýr formaður. Sama ár var Bjarni Benediktsson kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins eftir kjör gegn Kristjáni Þór Júlíussyni þingmanni. Á landsfundi flokksins í fyrra var Bjarni síðan endurkjörinn, þá gegn Pétri Blöndal. Áflog í íslensku flokkunum Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina bítast Bjarni Benediktsson, formaður, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti í Reykjavík, um formannsstól flokksins. Formannsslagir hafa verið fátíðir í íslenskri stjórnmálasögu en þeir sem farið hafa fram hafa margir skilið eftir djúp spor í sögu landsins. Magnús Þorlákur Lúðvíksson fjallar um formannsslagi í íslenskum stjórnmálum. Árið 1984 bauð Jón Baldvin Hannibalsson, þá þingmaður, sig fram gegn Kjartani Jóhannssyni, sitjandi formanni Alþýðuflokksins. Undir forystu Kjartans hafði flokkurinn einungis fengið 11,7 prósent fylgi í kosning- unum árið áður en hafði liðið fyrir klofningsframboð Vilmundar Gylfasonar og stuðningsmanna hans undir merkjum Bandalags jafnaðarmanna. Jón Baldvin taldi, eins og margir flokksmenn, að flokknum væri ekki að takast að ná þeirri sterku stöðu sem tækifæri væri til. Í eftirminnilegri ræðu sem hann flutti fyrir formannskjör- ið sagði Jón: „Íslendingar sem þekkja til sjómennsku vita að ef skipin fiska ekki er tvennt til ráða: Að finna sér nýtt skiprúm eða skipta um karlinn í brúnni.“ Lands- fundarfulltrúar Alþýðuflokksins kusu að halda tryggð við flokkinn en skiptu um karl í brúnni. Jón Baldvin fékk 142 atkvæði gegn 92 atkvæðum Kjartans. Tíu árum síðar var Jón Baldvin í hlutverki formanns sem sótt var að þegar Jóhanna Sigurðardóttir, þá þingkona, bauð sig fram gegn honum. Jóhanna og Jón Baldvin höfðu verið samherjar um langa hríð og Jóhanna hafði stutt Jón Baldvin í formannskjörinu áratugi fyrr. Á árunum fyrir 1994 fóru samskipti þeirra hins vegar að súrna og þótti Jóhönnu og hluta flokks- manna sem svo að Jón Baldvin hefði fært flokkinn of langt til hægri. Þá höfðu sumir út á stjórnunarstíl Jóns Baldvins að setja auk þess sem áhyggjur voru af því að fylgi flokksins væri staðnað. Jóhanna hafði þó ekki erindi sem erfiði í kjörinu og tapaði gegn Jóni, hlaut tæp 39 prósent atkvæða. Þegar úrslit lágu fyrir flutti Jóhanna ræðu þar sem hún sagði hin fleygu orð: „Minn tími mun koma,“ sem hann átti svo sannarlega eftir að gera. ■ FLEYG ORÐ Í FORMANNSSLÖGUM JÓNS BALDVINS HANNIBALSSONAR Davíð Oddsson var sérlega farsæll sem borgarstjóri Reykjavíkur frá 1982 til 1991. Árið 1978 hafði Sjálfstæðisflokkurinn misst meirihluta sinn í borginni eftir áratuga stjórnartíð en undir forystu Davíðs vannst borgin aftur árið 1982. Davíð varð borgarstjóri og bætti flokkurinn við sig fylgi í kosningunum 1986 og í kosning- unum 1990 þar sem flokkurinn fékk 61 prósent atkvæða og 10 borgarfulltrúa af 15. Frá árinu 1983 hafði Þorsteinn verið formaður flokksins en honum hafði gengið erfiðlega að fóta sig í embættinu. Þegar Þorsteinn tók við var flokkurinn enn í sárum eftir klofninginn árið 1980 og settu átök fylkinganna í flokknum svip sinn á starf hans næstu árin. Fór svo að Albert Guðmundsson og stuðningsmenn hans klufu sig úr flokknum árið 1987 og stofnuðu Borgaraflokkinn. Í kosningunum 1987 fékk Sjálfstæðis- flokkurinn minnsta fylgi sem hann hafði fengið í sögunni en fór samt sem áður í ríkisstjórn að kosningum loknum og Þor- steinn varð forsætisráðherra. Sú ríkisstjórn varð hins vegar ekki langlíf. Hún sprakk í beinni útsendingu haustið 1988 og var mynduð vinstri stjórn í kjölfarið. Þegar líða fór að næstu kosn- ingum, sem skyldu haldnar vorið 1991, hafði fylgi flokksins aukist talsvert í skoðanakönn- unum og þótti Þorsteinn hafa eflst í stjórnarandstöðunni. Þorsteinn sá fram á kosninga- sigur og leist illa á að víkja fyrir Davíð. Davíð kaus hins vegar að láta slag standa og við tók sérlega tvísýnn formannsslagur sem Davíð tókst að vinna. Hlaut hann að lokum 733 atkvæði gegn 651 atkvæði Þorsteins. ■ DAVÍÐ ODDSSON FELLDI ÞORSTEIN PÁLSSON ALLIR RISU ÚR SÆTUM NEMA FORSÆTISRÁÐ- HERRANN Ein þekktasta ljósmynd íslenskrar stjórnmálasögu var tekin á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins í Háskólabíói árið 1981. Þá risu allir fundarmenn úr sætum til að hylla Geir Hallgrímsson, endurkjörinn formann flokksins, nema Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra og Vala kona hans. LJÓ SM YN D A SA FN R EYK JA VÍKU R /G VA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.