Fréttablaðið - 19.11.2011, Page 50
KYNNING − AUGLÝSINGjólagjafir LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 20114
Það ætti fátt að vera jafn-skemmtilegt og að fara í almennilega verslunar-
leiðangra um jólin og hafa löglega
afsökun til þess að spreða dálitlu
af peningum í þá sem manni þykir
vænt um. Það er engu að kvíða,
það er eitthvað til handa öllum
og sumar jólagjafir eru sígíldar og
gott að grípa til þeirra.
Það þarf engar áhyggjur að hafa
af blessuðum börnunum. Áhuga-
mál þeirra eru svo fjölbreytt
að það má alltaf finna gjafir
handa þeim, en bók er sígild
gjöf og börn ættu alltaf að
fá tvær til þrjár bækur um
hver jól svo að hver tölvu-
kynslóðin á fætur annarri læri
einnig hvernig orðin í bókun-
um geta gefið ímyndunaraflinu
lausan tauminn.
Flestir þeir sem eru að leita
að jólagjöfum fyrir sína nánustu
kvarta yfir að þeir eigi allt – en það
á líka við um þá sjálfa! Þegar við
erum að leita að gjöfum fyrir full-
orðna þá er gott að líta til áhuga-
m á l a v ið -
komandi
og kanna hvort hann kunni að
vanta eitthvað þar. Nú ef ekki þá er
fjöldinn allur af lífsnautnagjöfum
sem kitlar nautnasegginn í okkur.
Góð bók, hvort sem það er krimmi
eða ævisaga, er ævinlega gjöf sem
gleður og gott að eiga á jólunum
undir góðri sæng. Það sama má
segja um geisladisk.
Enginn slær hendinni á móti
góðri matarkörfu, ostum, heima-
lögðuðu sultutaui, paté, kon-
fekti, góðu rauðvíni eða sérríi
og ef til vill fallegu kerti. Ef
gefandinn vill koma nautna-
seggnum út úr húsi er gjafa-
bréf í leikhús góður kostur
og jafnvel gjafabréf í bíó. En
þeir sem vilja slá virkilega í
gegn ættu að gefa persónulegt
gjafabréf sem felur í sér samveru
með besta vininum, frænkunni,
mömmunni og svo framvegis og
gera eitthvað virkilega sérstakt.
Gleðileg jól.
Ekki kvíða
innkaupum
Allt of margir njóta þess ekki að kaupa og gefa jólagjafir því þeim finnst erfitt að finna hina
einu réttu handa ástvinum sínum. Þessi hugsunarháttur rænir fólk gleðinni yfir að gefa og
sumir kvíða jafnvel gjafakaupunum.
Verslunarleiðangra um jólin ætti að njóta eftir fremsta megni enda gefandi að finna eitthvað fallegt handa sínum nánustu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Það eru ekki allir auðkýfingar eins og hinn breski Skröggur, ein af aðal-söguhetjunum í jólasögu Charl-
es Dickens, frá 1843, sem ekki mátti
sjá af einum einsta eyri og þoldi
reyndar hvorki jólin né nokkuð það
sem gat veitt fólki hamingju.
Algjör andstæða hans verður að
teljast þokkadísin og þáttastjórn-
andinn bandaríski Oprah Winfrey,
sem er ein af ríkustu konum heims.
Hún heldur úti vikulegum þætti og
í hverjum þeirra eiga áhorfendur í
salnum von á góðum gjöfum en nú
fyrir jólin sló hún sjálfa sig endan-
lega út og salurinn ærðist þegar
hulunni var svipt af Wolkswagen-
bjöllu árgerð 2012. Heppinn gest-
ur hreppti svo bílinn í hálfgerða
jólagjöf. Það var ekkert skrítið þó
að fólkið hoppaði, skoppaði og grét
allt í senn af spenningi. Það má
með sanni segja að Oprah sé örlátur
auðkýfingur.
Það sama má segja um William
Henry Gates III, eða Bill Gates eins
og hann er jafnan nefndur, en hann
er stofnandi og stjórnarformaður
Microsoft. Hann hefur verið í hópi
ríkustu manna undanfarin ár þótt
svo virðist sem hann hafi engan sér-
legan hug á að vera það lengur, en
um tíma komust eignir hans yfir 100
milljarða Bandaríkjadala. Jólin eru
allt árið um kring hjá Bill og konu
hans Melindu, sem eru þó ekkert að
íhuga að kaupa jólagjafir sérstaklega
fyrir alla þessa peninga. Þau ætla
hins vegar að að gefa 95-99 pró-
sent af eigum sínum til góðra mála
áður en hann deyr. Í því felst ekki,
því miður, að greiða jólakreditkorta-
skuldir af handahófi eins og Opruh
gæti dottið í hug. Nei, Bill hefur
gefið 30 milljarða Bandaríkjadala til
Bill&Melindu Gates-stofnunar innar,
sem er stærsta góðgerðastofnun í
heimi, og hefur m.a. stutt verkefni í
þróunarlöndum.
Warren Buffet er annar megamilljarðamæringur sem hefur
engan áhuga lengur á því að láta svo mikla peninga loða við sig, þó
að hann hafi engar yfirlýsingar gefið um stórtækar jólagjafir til al-
mennings. Hann tilkynnti hins vegar fyrir nokkrum árum að hann
myndi gefa allar eigur sínar til sjóðsins sem Gates-hjónin reka og
tvöfalda þar með stærð hans. Er ekki yndislegt að eiga svona góða
jólasveina alla daga? Þessir hafa uppgötvað að græðgi er ekkert góð!
Örlátir
auðkýfingar
Warren Buffet
Bill Gates
Oprah Winfrey