Fréttablaðið - 19.11.2011, Qupperneq 120
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR84
Við fjölskyldan sjáum
alls ekki eftir því að
hafa farið í þetta ævintýri.
ÞÓRIR ÓLAFSSON
LEIKMAÐUR KIELCE
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildarfélag-
ið Manchester City gaf það út í gær
að tap félagsins á rekstrarárinu
2010-2011 hefði alls numið 194,9
milljónum punda, eða tæplega 36,3
milljörðum króna.
Þetta er vitaskuld mesta tap sem
enskt knattspyrnufélag hefur til-
kynnt fyrir aðeins eitt ár og sýnir
hversu stórtækir eigendur félags-
ins hafa verið síðan þeir keyptu
það í ágúst árið 2008.
Á þessum tíma hafa þeir breytt
liðinu úr miðlungsúrvalsdeildar-
liði í eitt öflugasta félagslið Eng-
lands, og þótt víðar væri leitað, en
það trónir nú á toppi ensku úrvals-
deildarinnar.
Forráðamenn félagsins segja
að tapið hafi ekki komið á óvart
og sé í samræmi við áætlanir
félagsins sem tóku mið af því að
leggja háar upphæðir í félagið
fyrstu þrjú árin. Enda hefur liðið
verið styrkt með gríðarsterkum
leikmönnum sem margir eru
meðal þeirra allra launahæstu í
knattspyrnuheiminum.
Forráðamennirnir segja hins
vegar líka að markmiðið sé að
félagið verði sjálfbært með árun-
um. Tekjur þess hafi aukist mikið
síðustu ár og ef það standi sig jafn
vel og stefni í sé mögulegt að þær
muni hækka enn meira á kom-
andi árum. Velta Manchester City
á þessu sama tímabili nam 153,2
milljónum punda, sem er met hjá
félaginu.
Samkvæmt nýjum reglum Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA,
um rekstur knattspyrnufélaga má
ekkert félag skila meira tapi en 40
milljónum punda ár hvert, frá og
með núverandi rekstrarári. For-
ráðamenn City eru vongóðir um
að geta staðist þær kröfur enda sé
liðið það vel mannað í dag að ekki
þurfi að eyða jafn miklu í leik-
mannakaup og á síðustu árum. - esá
Ótrúlegar upphæðir sem Manchester City tapaði á rekstrarárinu 2010-2011:
Tap Man. City nam 36,3 milljörðum
SJEIK MANSOUR Eigandi Manchester
City stefnir á að félagið geti staðið undir
eigin rekstri í framtíðinni.
NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Hornamaðurinn Þórir
Ólafsson ákvað að söðla um í
sumar. Eftir sex góð ár í Þýska-
landi ákvað hann að reyna fyrir
sér í Póllandi, fyrstur allra Íslend-
inga. Fleiri Íslendingar hafa feng-
ið boð um að fara þangað en ekki
verið til í að taka slaginn.
Þórir skrifaði þá undir tveggja
ára samning við pólska stórlið-
ið Kielce. Það er frá samnefndri
borg, en í henni búa um 200 þús-
und manns.
„Lífið í Póllandi er ágætt. Þetta
er í rauninni svipað og annars
staðar. Ég bjóst ekki við neinu sér-
stöku en lífið er fínt þarna. Borg-
in er fín og þetta er alls ekki eins
og margur heldur,“ segir Þórir, en
hann segir margt hafa samt komið
sér á óvart.
Eins og hver önnur evrópsk borg
„Bæjarlífið kom mér á óvart og
gæðin á mörgu. Bílaflotinn er
flottur og alls ekki bara Lödur og
Skódar. Íbúðirnar eru líka fínar
og greinilega ótrúlegur uppgang-
ur í Póllandi. Þetta er bara eins og
hver önnur evrópsk borg.“
Evrópumótið í knattspyrnu fer
fram í Póllandi næsta sumar og
Þórir segir augljóst að búið sé að
eyða miklum peningum svo heima-
menn komi vel fyrir á öllum svið-
um. Á því græði þjóðin þó svo að
þjóðvegirnir séu ekki allir upp á
marga fiska.
„Það er mun meira líf þarna en
þar sem við vorum í Þýskalandi.
Þá bjuggum við aðeins í 25 þúsund
manna bæ. Við höfum komið okkur
fyrir í fínni íbúð við miðbæinn.
Það er ekki yfir neinu að kvarta
og reynslan ekkert nema ánægju-
leg hingað til.“
Deildin í Póllandi er ekki sú
sterkasta. Tvö lið – Kielce og
Wisla Plock – eru áberandi sterk-
ust enda hafa þau eytt talsverðu fé
í leikmenn.
„Við höfum oft átt mjög lélega
leiki en samt unnið með svona tíu
mörkum. Það segir sitt. Þetta gæti
verið betra, en deildin er samt að
styrkjast,“ segir Þórir en hvaða
markmið hefur félagið hans?
„Félagið vill vinna deildina og
vildi líka komast í Meistaradeild-
ina,“ segir Þórir, en Kielce lagði
lið Guðmundur Guðmundssonar,
Rhein-Neckar Löwen, í hreinum
úrslitaleik um sæti í Meistara-
deildinni. „Við lentum svo í mjög
erfiðum riðli og þar er ekkert gef-
ins. Það verður erfitt að ná þriðja
sæti en við förum samt áfram í
fjórða sæti. Stefnan er að vinna
heimaleikina og sjá svo til hverju
það skilar.“
Selfyssingurinn neitar því ekki
að reynslan sé jákvæðari en hann
gerði ráð fyrir.
„Ég hafði komið þarna áður og
séð aðstæður hjá félaginu. Gott lið
með góða aðstöðu. Það skemmdi
svo ekki fyrir að liðið var á leið
í Meistaradeildina. Ég vildi líka
vera í liði sem vinnur eitthvað.“
Félagið á ekki sína eigin rútu
Þó svo að félagið virðist eiga nóg
af peningum er ekki allur aðbún-
aður í kringum liðið alveg eins og
best verður á kosið.
„Félagið á ekki sína eigin rútu
og því vitum við aldrei við hverju
er að búast þegar þarf að ferðast.
Oft er þetta ekkert merkilegt
og vegirnir margir hverjir frek-
ar slæmir. Ég tek því með tón-
list, bækur og DVD-myndir til að
drepa tímann.
Vandamálið er samt oftast að
það er ekkert rafmagn í rútun-
um og þegar rafhlaðan er dáin
er maður í vondum málum. Það
kom mér aðeins á óvart að það
væri ekki staðið betur að þessum
málum. Í heildina er þetta samt
mjög gott og við fjölskyldan sjáum
alls ekki eftir því að hafa farið í
þetta ævintýri.“
Þórir segist vera ýmsu vanur en
þó komi ýmislegt honum spánskt
fyrir sjónir. „Það er aðeins þyngra
yfir þessu og stundum er öskrað
svolítið á mann á æfingum. Það er
eðlilegt fyrir þeim að öskra svo-
lítið en það er ekkert illa meint,“
segir Þórir, en skilur hann eitthvað
hvað er verið að segja við hann?
„Handboltamálið gengur ágæt-
lega en stundum er ég alveg týnd-
ur. Ég get samt pantað mér á veit-
ingahúsi og svona. Þetta er allt
að koma og sumir skilja þýsku og
ensku. Þetta bjargast allt saman,“
segir Þórir léttur.
Hornamaðurinn ætlar að klára
seinna árið í Póllandi og svo er
framtíðin alveg óráðin.
„Ég verð að sjá hvort ég nenni
þessu þá áfram og er í formi. Það
er allt opið og hver veit nema
ég komi heim og fari að spila á
Selfossi. Maður veit aldrei.“
henry@frettabladid.is
Ekki bara Lödur á götunni hérna
Hornamaðurinn Þórir Ólafsson kann vel við sig í Póllandi og sér alls ekki eftir því að hafa farið þangað frá
Þýskalandi, þar sem hann lék í bestu deild heims. Hann spilar með sterku liði sem ætlar sér stóra hluti.
SÁTTUR VIÐ LÍFIÐ Þórir Ólafsson er búinn að koma sér vel fyrir í Póllandi og ætlar að
leika þar áfram á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Billy Hunter, fram-
kvæmdastjóri NBA-leikmanna-
samtakanna sem voru leyst upp í
byrjun síðustu viku, hefur talað
um þann möguleika að NBA-
leikmennirnir taki sig saman og
stofni bara nýja deild. Kjarn-
orkuveturinn er hafinn í NBA-
deildinni eftir að leikmennirn-
ir ákváðu að fara með deiluna
í réttarsalinn og samninga-
viðræður við eigendur NBA-
liðanna fóru í algjört frost.
„Kannski getum við bara búið
til nýja deild. Við verðum ekki
í Madison Square Garden en
getum ef til vill spilað á heima-
velli St John’s-skólans,“ sagði
Billy Hunter.
Amare Stoudemire, leikmaður
New York Knicks, talaði á sömu
nótum fyrir nokkru. „Við skulum
sjá til hvernig þetta verkbann
þróast. Ef það tekur eitt til tvö ár
verðum við bara að stofna nýja
deild,“ sagði Stoudemire.
Ekkert kom úr fundi Davids
Stern með eigendunum í fyrra-
dag, en það þarf mikið til að
stofna nýja deild og ekki er bara
nóg að redda lausum íþróttahús-
um. Orð Hunters og Stoudemires
verða því ekki tekin alvarlega
eins og er en það gæti breyst
dragist verkbannið á langinn. - óój
Kjarnorkuvetur í NBA:
Við búum bara
til nýja deild
DEREK FISHER OG BILLY HUNTER Gefa
ekkert eftir í NBA-deilunni. MYND/AP
KÖRFUBOLTI Það verður söguleg
stund fyrir íslenskan körfubolta í
hádeginu á morgun þegar Assignia
Manresa tekur á móti CAI Zara-
goza í spænsku úrvalsdeildinni
í körfubolta. Með þessum liðum
spila nefnilega íslenskir landsliðs-
menn og verður þetta í fyrsta sinn
sem Íslendingar mætast í bestu
körfuboltadeild í Evrópu.
Jón Arnór Stefánsson er á sínu
fjórða tímabili í spænsku deild-
inni, en hann leikur nú með CAI
Zaragoza eftir að hafa verið hjá
CB Granada síðustu tvö tímabil
þar á undan. Jón Arnór hefur verið
eini íslenski leikmaðurinn í bestu
deildum Evrópu undanfarin ár en
hann var líka sér á báti þegar hann
lék á Ítalíu og í Rússlandi.
Haukur Helgi Pálsson hætti í
Maryland-háskólanum eftir síð-
asta vetur og gekk til liðs við
Assignia Manresa. Hann byrj-
aði tímabilið í byrjunarliðinu en
hefur fengið minna að spreyta sig
að undanförnu. Það er vonandi að
Haukur Helgi, sem er aðeins 19
ára gamall, fái að reyna sig á móti
Jóni Arnóri og félögum á morgun.
Leikurinn fer fram á heimavelli
Assignia Manresa og má búast
við góðri mætingu enda eru þetta
nágrannalið á Norður-Spáni.
CAI Zaragoza getur náð
Assignia Manresa að stigum með
sigri. Það yrði þá þriðji sigur
Zaragoza-liðsins í röð, en það
hefur verið að braggast eftir erf-
iða byrjun. Það er hægt að segja
öfuga sögu af Manresa, sem byrj-
aði mjög vel en hefur verið að gefa
eftir.
Leikurinn hefst klukkan 11.15 að
íslenskum tíma. - óój
Fyrsti Íslendingaslagurinn frá upphafi í bestu körfuboltadeild í Evrópu fer fram í hádeginu á morgun:
Jón Arnór og Haukur Helgi mætast á morgun
JÓN ARNÓR OG HAUKUR HELGI
FRJÁLSAR Mikið verður um að
vera í Laugardalshöllinni í dag
þegar Silfurleikar ÍR fara fram
í sextánda sinn, en leikarnir eru
haldnir til heiðurs Vilhjálmi
Einarssyni, sem vann til silfur-
verðlauna í þrístökki á Ólympíu-
leikunum í Melbourne 1956. Alls
er skráður 541 keppandi á mótið
frá 23 félögum um land allt.
Silfurleikarnir hafa unnið
sér sess sem eitt fjölmennasta
frjálsíþróttamót sem haldið er
á hverju ári hér á landi. Mótið
stendur frá kl. 9 til 18.20 í dag
og er frítt inn. Keppt verður á 20
stöðum samtímis í Laugardals-
höllinni þegar mest verður um
að vera. - óój
Sextándu Silfurleikar ÍR í dag:
Fjör í Höllinni