Fréttablaðið - 25.11.2011, Page 2
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR2
AKUREYRI Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Leikfélags Akureyr-
ar (LA) var ráðinn til félagsins af
þáverandi stjórn um mitt ár 2008,
vegna „meðmæla utan úr bæ frá
fólki sem þekkti til hans verka“ að
sögn Sigmundar Ernis Rúnarsson-
ar, fyrrverandi stjórnarformanns.
Staða framkvæmdastjóra var
ekki auglýst líkt og áskilið er í sam-
þykktum LA. Sigmundur vill ekki
gefa upp frá hverjum meðmæl-
in voru fengin eða hvað hafi falist
í þeim. Maðurinn hafi tekið þátt í
rekstri á dansstúdíói og þar að auki
hafði hann þekkt mjög vel til leik-
félagsins þar sem eiginkona hans
hafi unnið þar.
Í úttekt sem bæjarráð Akur-
eyrar lét gera á fjármálum LA,
kemur meðal annars fram að
framkvæmdastjórinn fyrrverandi
hafi blandað saman eigin fjárhag
og fjárhag LA og í sumum tilvik-
um leynt þeirri bágu fjárhagslegu
stöðu sem félagið var komið í fyrir
stjórn félagsins og leikhússtjóra.
Manninum var sagt upp störfum
í júlí síðastliðnum, en leikfélag-
ið tapaði um 70 milljónum króna
á síðasta leikári og hefur nýlega
fengið 30 milljóna króna lán frá
Akureyrarbæ til að geta haldið
rekstrinum áfram.
Spurður hvort ráðning fram-
kvæmdastjórans á sínum tíma hafi
verið mistök, segir Sigmundur:
„Miðað við það sem kom á dag-
inn hljóta það að hafa verið mis-
tök.“ Hann segir viðkomandi aðila
klárlega ekki hafa staðið undir
væntingum og ljóst megi vera að
þær upplýsingar sem stjórnin hafi
fengið um hæfni mannsins hafi
verið rangar.
sunna@frettabladid.is
Meðmæli utan úr bæ
forsenda ráðningar
Störf fyrrverandi forsvarsmanna LA eru harðlega gagnrýnd í nýrri úttekt.
Framkvæmdastjóri var ráðinn án auglýsingar vegna „meðmæla utan úr bæ“,
segir fyrrverandi stjórnarformaður. Hann segir ráðninguna hafa verið mistök.
Sigmundur Ernir, þingmaður Samfylkingar, var meðal
þeirra þingmanna sem gagnrýndu þá starfshætti í ráðu-
neytum að ráða fólk til starfa tímabundið án auglýsinga,
líkt og greint var frá á mbl.is í nóvember árið 2009.
Sigmundur sagðist þá ekki geta tekið upp hanskann
fyrir ráðningar sem ákveðnar væru í reykfylltum bakher-
bergjum og afleiðingarnar birtust síðan á forsíðum dag-
blaða. Það bæri að ráða hæft fólk fyrst og fremst í störf
hjá ríkinu og ríkja þyrfti algert gagnsæi þegar ráðið væri í
opinber störf.
Gagnrýndi ráðningar án auglýsinga
LEIKFÉLAG AKUREYRAR Rekstur leikfélagsins er harðlega gagnrýndur í úttekt sem
gerð var fyrir Akureyrarbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SIGMUNDUR ERNIR
RÚNARSSON
KJARAMÁL Tveggja mánaða löngu
verkfalli rannsóknarsjómanna
Hafrannsóknastofnunar lauk í
gærkvöld þegar lausn fannst á
kjaradeilu þeirra og samninga-
nefndar ríkisins hjá ríkissátta-
semjara. Ákveðið verður í dag
hvaða rannsóknarleiðangra ráðist
verður í á þessu hausti, er greint
var frá í fréttum RÚV. Ekki hafa
árlegir stofnmælingaleiðangrar
verið gerðir á þessu hausti vegna
verkfallsins.
Miðað er við að ljúka samnings-
gerð 11. desember næstkomandi,
en búið er að ganga frá ramma
kjarasamningsins. - sv
Framhaldið ákveðið í dag:
Verkfalli Hafró
lauk í gærkvöld
VIÐSKIPTI Alþingi hefur samþykkt
sölu á hlut ríkisins í Byr hf. til
Íslandsbanka. Þar með stendur
ekkert í vegi fyrir því að sam-
eining bankanna gangi í gegn en
starfsemi sameinaðs banka verður
með óbreyttu sniði fyrst um sinn.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, tilkynnti starfs-
mönnum bankanna í gær að upp-
sagnir verði í höfuðstöðvum
Íslandsbanka og Byrs á næstu
dögum. Þá verði nokkur útibú
bankanna sameinuð á næsta ári og
einnig megi búast við uppsögnum í
tengslum við það. Þá áréttaði hún
að mikilvægt væri að eyða óvissu
sem allra fyrst.
Sameinaður efnahagsreikn-
ingur bankans er 814 milljarðar.
Eigin fjárhlutfall bankans er að
því er fram kemur í tilkynningu
frá bankanum vel yfir 20 prósent-
um en Fjármálaeftirlitið gerir lág-
markskröfu um 16 prósenta eigið
fé. Kaupverðið á 11,8 prósenta
hlut ríkisins og 88,2 prósenta hlut
skilanefndar Byrs er 6,6 milljarð-
ar króna.
Birna Einarsdóttir segist fagna
þessum tímamótum og býður nýja
viðskiptavini og starfsfólk velkom-
ið í bankann. Sameinaður banki
verði eitt öflugasta fjármálafyr-
irtæki á Íslandi. Þá fagnar Jón
Finnbogason, forstjóri Byrs, því
að óvissutíma um framtíð Byrs sé
lokið. Nú skapist tækifæri til að
horfa til framtíðar og byggja upp
sterkt og traust fjármálafyrirtæki.
- mþl
Sameining Íslandsbanka og Byrs gengur loks í gegn, uppsagnir í höfuðstöðvum:
Íslandsbanki og Byr sameinast
ÍSLANDSBANKI Sameinaður banki
verður einhver öflugasta fjármálastofnun
landsins með efnahagsreikning upp á
814 milljarða króna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Ráðnir voru framkvæmdastjórar með litla starfsreynslu tengda fjármálum.
2. Stjórnarformaður hefði að lágmarki átt að hitta endurskoðendur vegna
ársreiknings, en gerði það ekki.
3. Leikhússtjóra og einstaka stjórnarmönnum bárust upplýsingar um
ógreidda reikninga en tóku ekki í taumana fyrr en í júlí síðastliðnum.
4. Fyrrverandi framkvæmdastjóri lét ekki færa alla reikninga til bókar og eftir
að hann fór frá störfum fundust ógreiddir reikningar í skrifborði hans. Þá
blandaði hann saman sínum eigin fjárhag og fjárhag félagsins, ásamt því
að færa fé úr styrktarsjóði LA inn í reksturinn.
5. Laun voru ekki færð reglulega inn í aðalbókhald.
6. Rekstraruppgjör LA til Akureyrarbæjar voru ekki alltaf rétt.
*ÚR ÚTTEKT BÆJARRÁÐS AKUREYRAR Á LA
Alvarlegar athugasemdir við rekstur LA
UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, fékk
ekki jólakort frá breska forsætis-
ráðherranum í fyrra. Í breska dag-
blaðinu Daily Mail segir að með
því að senda þjóðarleiðtogum ekki
jólakort sé ráðherrann að sýna
hverjir úr þeirra hópi séu í ónáð.
David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, brá út af þeirri
venju sinni að senda öllum þjóð-
arleiðtogum aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins jólakort í fyrra.
Tveir voru skildir út undan: Ivo
Josipovic, forseti Króatíu, og Ólaf-
ur Ragnar Grímsson. Í frétt Daily
Mail segir að Cameron sé með því
að sýna óánægju sína með afstöðu
Íslands í Icesave-deilunni.
Alls fengu 88 þjóðarleiðtogar
jólakort frá Cameron í fyrra, en
áhugaverðara er að skoða hverjir
fengu ekki kort. Á þeim lista eru til
dæmis Hugo Chavez, forseti Venes-
úela, Mahmoud Ahmedinejad, for-
seti Írans, Kim Jong-Il, forseti
Norður-Kóreu, og Róbert Mugabe,
forseti Simbabve.
Þar voru einnig fyrrverandi leið-
togar Líbíu, Túnis og Egyptalands,
sem nú hafa ýmist verið hraktir frá
völdum eða drepnir. - bj
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, notar jólakort til að sýna hvaða leiðtogar eru í ónáð:
Ólafur Ragnar í slæmum félagsskap
Forseti Íslands sendir þjóðhöfð-
ingjum allra ríkja sem eru í Sam-
einuðu þjóðunum (SÞ) jólakveðju
á hverju ári, segir í svari embættis-
ins við fyrirspurn Fréttablaðsins.
„Auk þess sendir forseti jóla-
kveðjur til forsætisráðherra Norður-
landa og nokkurra annarra ríkja í
Evrópu og hafa forsætisráðherrar
Bretlands jafnan verið í þeim hópi.
Þessari venju verður einnig fylgt í
ár,“ segir í svari embættisins.
Sendir öllum í SÞ
MYNDAKORT Jólakortið sem forsætis-
ráðherra Bretland sendi í fyrra var með
mynd af honum, eiginkonu hans og
dóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Matsfyrirtækið Stand-
ard & Poor‘s hefur breytt horfum
á lánshæfismati Landsvirkjunar
úr neikvæðum í stöðugar.
Lánshæfiseinkunn fyrirtækis-
ins helst hins vegar óbreytt en
hún er BB. Tilkynning Standard
& Poor‘s um þetta kemur degi
eftir að sams konar breyting var
gerð á horfum á lánshæfismati
ríkissjóðs. Þar segir að breyting-
in endurspegli almennt bættar
efnahagshorfur á Íslandi.
Í tilkynningu frá Landsvirkj-
un segir að fyrirtækið telji þessa
breytingu hafa takmörkuð áhrif
á útistandandi skuldabréf fyrir-
tækisins. - mþl
Lánshæfismat Landsvirkjunar:
Betri horfur
Landsvirkjunar
LANDSVIRKJUN Breytingin á horfum
lánshæfismats Landsvirkjunar kemur í
beinu framhaldi af sams konar breyt-
ingu á horfum lánshæfismats ríkissjóðs.
JAFNRÉTTISMÁL Kynjahlutfall í
ráðum nefndum Reykjavíkurborg-
ar er nokkuð jafnt á heildina litið.
Þetta kemur fram í samantekt
mannréttindaskrifstofu borgar-
innar sem var lögð fyrir borgar-
ráð í gær.
Í samantektinni kemur fram að
hlutfall kvenna sem eru aðalmenn
hjá Reykjavíkurborg er 47,3 pró-
sent og karla 52,7 prósent.
Borgarráð samþykkti í kjölfarið
bókun þar sem segir að ráðið sé
stolt af jafnri aðkomu kynjanna að
ráðum og nefndum borgarinnar.
Þá skorar borgarráð á Alþingi að
taka Reykjavíkurborg sér til fyr-
irmyndar í þessum efnum. - mþl
Borgarráð skorar á Alþingi:
Kynjahlutföll
jöfn í Reykjavík
DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í
gær dóm yfir manni sem sló annan
mann með bjórglasi og skar hann
í hálsinn með glerbroti. Héraðs-
dómur hafði dæmt manninn í
fimmtán mánaða fangelsi, þar af
tólf mánuði á skilorði. Hæstiréttur
þyngdi fangelsisrefsinguna í átján
mánuði, þar af fimmtán mánuði á
skilorði. Þá var árásarmaðurinn
dæmdur til að greiða fórnarlamb-
inu 400 þúsund krónur í miska-
bætur. Atlaga mannsins þótt mjög
hættuleg en áverkarnir sem af
henni hlutust voru að áliti lækna
ekki lífshættulegir. - jss
Hæstiréttur þyngdi dóm:
Átján mánuðir
fyrir að skera
mann í hálsinn
Minna vægi verðtryggingar
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
samþykkti í gær bókun um að hefja
undirbúning þverpólitískrar áætlunar
um minnkað vægi verðtryggingar á
fjármálamarkaði. Fulltrúar allra flokka
í nefndinni áætla að leggja fram
þingmál í kjölfarið.
STJÓRNMÁL
í ísinn
500 ml rjómi
3 stk. eggjarauður
2 stk. egg
130 g sykur
Vanilludropar
Þeytið rjómann og setjið í kæli. Þeytið vel
saman eggjarauður, egg og sykur. Blandið
saman við rjómann og bragðbætið með
vanilludropum. Setjið í form og frystið.
Þú getur einnig bætt uppáhaldssælgætinu
þínu við blönduna.
SPURNING DAGSINS
Egill, er þetta ekki svolítið
taktlaust hjá þér?
„Jú, vissulega. Taktlaust en líka
taktfast.“
Trommuleikarinn Egill Rafnsson er axlar-
brotinn en hyggst þó áfram berja húðir
eins og hann getur.