Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 8
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR8
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur dæmt Redouane Naoui,
39 ára, í sextán ára fangelsi fyrir
manndráp. Redouane réðst á Hilm-
ar Þóri Ólafsson, 45 ára, á kránni
Monte Carlo við Laugaveg í júlí
síðastliðnum og stakk hann í háls-
inn með hníf. Hilmar lést af sárum
sínum tólf dögum síðar.
Að sögn vitna hafði Redouane
falast eftir því að kaupa kannabis-
efni af Hilmari fyrr um kvöldið og
þeir lent í rifrildi þegar hann fékk
afsvar.
Redouane var ofurölvi þetta
kvöld, hélt heim til sín litlu ofar
á Laugaveginum eftir rifrildið,
vopnaðist þar stórum búrhníf
með tólf sentimetra blaði og sneri
rakleiðis aftur á Monte Carlo.
Þegar þangað var komið gekk
hann að Hilmari með hnífinn í
hönd. Starfskona á staðnum sá í
hvað stefndi og reyndi að tjónka
við Redouane, en án árang-
urs. „This isn‘t over yet. I have
another plan for him [Þessu er
ekki enn lokið. Ég ætla honum
önnur örlög],“ sagði hann áður en
hann stakk hnífnum á kaf í háls-
inn á Hilmari.
Þegar lögregla og sjúkralið
mættu á staðinn skömmu síðar lá
Hilmar á gólfinu í blóði sínu og
Redouane sat við spilakassa úti í
horni, svo ölvaður að lögregla gat
ekki rætt við hann.
Hann hefur borið að hann muni
ekkert eftir atburðum kvöldsins.
Þótt hann kannist við sjálfan sig
á upptökum úr öryggismynda-
vélum á staðnum muni hann ekki
eftir því sem þar sjáist.
Á grundvelli þess neitaði hann
sök í málinu en áðurnefndar
myndbandsupptökur og fram-
burður vitna þykja hins vegar
taka af allan vafa um að hann
hafi orðið Hilmari að bana.
Í umsögn geðlæknis sem mat
heilsu Redouane segir að hann
sé örugglega sakhæfur en eigi
sér sögu um áfengissýki og eitur-
lyfjamisnotkun.
Hann sé leiður og sjái eftir því
sem gerðist, sé staðráðinn í að
byggja líf sitt upp að nýju og að
fangelsisvist gæti nýst honum til
að bæta sig.
Redouane er jafnframt dæmd-
ur til að greiða dóttur Hilmars
samtals ríflega þrjár milljónir
króna í bætur fyrir miska, missi
framfæranda og útfararkostnað.
„Enginn vafi leikur á því að
ákærði hefur með broti sínu vald-
ið stúlkunni gríðarlegum miska,“
segir í dómnum. „Hún hefur
misst föður sinn með voveifleg-
um hætti, en fram er komið að
móðir hennar er einnig látin.“
stigur@frettabladid.is
Fróðleg og falleg bók
fyrir alla um nýjar
fornleifarannsóknir
á Íslandi
Fornleifastofnun Íslands
1. Hver er þjálfari kvennalands-
liðsins í handbolta?
2. Hvað heitir nýtt flugfélag Skúla
Mogensen?
3. Hvað heitir lónið sem þornaði
upp í Eyjafjallajökulsgosinu?
SVÖR
1. Ágúst Þór Jóhannsson. 2. Wow Air.
3. Gígjökulslón.
SAMFÉLAGSMÁL Sala á rauðum nefj-
um hefst í dag, en dagur rauða nefs-
ins verður haldinn í fjórða sinn 9.
desember.
Frú Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands og
verndari heimsforeldra UNICEF,
setti upp fyrsta rauða nefið í ár.
Nefin eru nú þrjú, Skjóða, Skotta
og Skreppur. Vigdís valdi nefið
Skottu auk þess sem hún valdi
þrjú nef til viðbótar fyrir barna-
börn sín.
Dagur rauða nefsins er lands-
söfnun fyrir UNICEF, barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna, og verð-
ur skemmti- og söfnunarþáttur í
opinni dagskrá á Stöð 2 að kvöldi 9.
desember. Markmiðið er að fjölga
heimsforeldrum UNICEF, en í dag
eru næstum 17 þúsund heimsfor-
eldrar á Íslandi og styrkja starf
í þágu barna með mánaðarleg-
um framlögum. Í sjónvarpsþætt-
inum verða sýnd sláandi innslög
frá Síerra Leóne, Haítí og víðar í
bland við íslenskt grín, uppistand
og tónlistaratriði.
Rauðu nefin verða seld frá og
með deginum í dag í Bónus, Hag-
kaupum, útibúum MP banka og á
kaffihúsum Te & kaffis. - þeb
Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra UNICEF, setti upp fyrsta rauða nefið:
Rauðu nefin fara í sölu í dag
Í 16 ára fangelsi fyrir
banvæna hnífstungu
Redouane Naoui dæmdur fyrir að stinga mann með búrhnífi í hálsinn á kránni
Monte Carlo. Var ofurölvi og segist ekkert muna. Kveðst leiður og sjá eftir öllu.
EITRAÐI VODKINN Tegundirnar eru
V24 Original Vodka, Premium Cosmos
Vodka og Vodka AntiVirus. Framleiðandi
er Bärenkrone GmbH & Co í Þýskalandi.
HEILBRIGÐISMÁL Matvælastofnun
hafa borist upplýsingar í gegn-
um viðvörunarkerfið RASFF
(Rapid Alert System for Food
and Feed) um að vodki sem
framleiddur er í Þýskalandi
innihaldi metanól, það er tré-
spíra, sem er mjög eitraður og
veldur blindu og jafnvel dauða.
Verksmiðjunni hefur verið
lokað. ÁTVR hefur ekki flutt
þessar tegundir inn.
Matvælastofnun beinir því
til neytenda sem kunna að hafa
keypt og eiga flösku af þessum
tegundum að tilkynna það við-
komandi heilbrigðiseftirliti og
hella innihaldinu niður. - jss
Viðvörun frá Matvælastofnun:
Eitraður vodki
FÓLK Dregið var í Víkingalottóinu
klukkan níu í gærmorgun, en
drættinum hafði verið frestað á
miðvikudagskvöld.
Ósamræmi var í sölutölum og
kerfistölum í Finnlandi sem olli
seinkuninni.
Tveir Danir skiptu með sér
fyrsta vinningi og fengu hvor um
sig 139 milljónir.
Ofurtalan kom ekki upp og því
gæti fyrsti vinningur orðið rúmir
2,8 milljarðar króna næst, sem
yrði langstærsti potturinn frá
upphafi. - þeb
Dregið var í gærmorgun:
Danir unnu í
Víkingalottói
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
skilaði ársreikningi fyrir árið
2010 til Ríkisendurskoðunar
að morgni miðvikudags, sam-
kvæmt upplýsingum frá flokkn-
um. Frestur til þess rann út
1. október.
Í Fréttablaðinu í gær var rætt
við starfsmann Ríkisendur-
skoðunar um ársreikningaskil
stjórnmálahreyfinga og mögu-
legar afleiðingar þess að trassa
þau. Stjórnmálasamtök geta þá
átt á hættu að verða af ríkis-
framlögum og vera kærð til lög-
reglu.
Fram kom í fréttinni að Fram-
sóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur hefðu enn ekki skilað
reikningi, einir flokka. - sh
Sjálfstæðismenn í var:
Hafa nú skilað
ársreikningi
Á SÉR ENGAR MÁLSBÆTUR Geðlæknir telur að það geti gert Redouane Naoui gott að
sitja í fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRAKKLAND „Við verðum að stíga
skref í áttina að fjármálabanda-
lagi,“ sagði Angela Merkel Þýska-
landskanslari í gær, að loknum
fundi þeirra Nicolas Sarkosy
Frakklandsforseta og Mario
Monti, hinum nýja forsætisráð-
herra Ítalíu.
Þau Merkel og Sarkozy sögð-
ust ætla að leggja fram á næstu
dögum mótaðar tillögur sínar um
breytingar á stofnsáttmála Evr-
ópusambandsins, sem meðal ann-
ars eiga að fela í sér sjálfkrafa
refsiaðgerðir gegn ríkjum sem
standa sig ekki í stjórn fjármála.
Merkel ítrekaði á fundinum and-
stöðu sína við útgáfu sameigin-
legra ríkisskuldabréfa, sem gætu
létt á skuldavanda verst settu
evruríkjanna.
Sarkozy hefur verið fylgjandi
slíkri útgáfu og José Manuel Barr-
oso, forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, lagði þetta
til nú í vikunni. Ágreiningur er
hins vegar um málið innan þýsku
stjórnarinnar. - gb
Leggja til breytingar á stofnsáttmála ESB:
Vilja sjálfvirk refsiákvæði
SAMMÁLA Sarkozy og Merkel að
loknum fundi sínum með forsætis-
ráðherra Ítalíu. NORDICPHOTOS/AFP
RAUÐU NEFIN SETT UPP Vigdís Finn-
bogadóttir og Stefán Ingi Stefánsson,
framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
settu upp nefin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÖTUR AF PENINGUM Fulltrúar frá
Hjartaheill og Vildarbörnum með
peningana.
FÓLK Hjartaheill, landssamtök
hjartasjúklinga hafa afhent Vild-
arbörnum Icelandair átta fullar
fötur af erlendri smámynt úr
söfnunarbaukum sínum.
Sjóðurinn Vildarbörn er meðal
annars fjármagnaður með söfnun
myntar um borð í vélum Ice-
landair og Hjartaheill taldi því
smámyntinni vel komið þar.
Rúmlega þrjú hundruð fjölskyld-
ur langveikra barna hafa notið
stuðnings frá Vildarbörnum við
að komast í ferðalög. - þeb
Hjartaheill gefa Vildarbörnum:
Gefa börnum
erlenda mynt
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
sýknaður af því að hafa nauðgað
konu sem var sofandi.
Konan var heima hjá vinkonu
sinni og neyttu þær matar og
víns. Um miðnætti fór konan að
sofa. Vinkonan fékk símhring-
ingu frá manni sem hún hafði
kynnst á einkamál.is og hitt einu
sinni.
Hann kom í heimsókn og fór
síðan upp í rúm með vinkonunni.
Eftir það hafði hann samræði
við þá gestkomandi, sem kærði
nauðgun til lögreglu. Bæði mað-
urinn og vinkonan báru fyrir
dómi að það hefði verið með
vilja konunnar og leit dómurinn
meðal annars til þess við ákvörð-
un sína. - jss
Framburður vitna vó þungt:
Var sýknaður
af nauðgun
VEISTU SVARIÐ?