Fréttablaðið - 25.11.2011, Side 12
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR12
Landsbankinn ármagnar
byggingu hótels við Mýrargötu
Við óskum Slippnum fasteignafélagi til hamingju með
byggingu hótels á Mýrargötu-slippasvæðinu í Reykjavík.
Frá og með næsta sumri mun Icelandair hótel hefja þar
rekstur. Landsbankinn er hreyfiafl í atvinnulífinu og
öflugur samstarfsaðili íslenskra fyrirtækja.
VIÐSKIPTI Finnur Árnason, forstjóri
Haga, og Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss, sem
fengu nýverið 0,8% hlut í félaginu
án endurgjalds, seldu hluti sem
þeir áttu í því á árunum 2008 og
2009 fyrir hundruð milljóna króna.
Kaupandinn að bréfunum sem þeir
áttu áður voru Hagar sjálfir. Þetta
kemur fram í árs- og árshlutareikn-
ingum Haga.
Selt fyrir milljarð
Hagar keyptu 3,74% hlut í sjálfum
sér í þremur atrennum á árunum
2008 og 2009. Seljendurnir voru þrír
lykilstarfsmenn:
Finnur Árnason,
forstjóri Haga,
Guðmundur
Marteinsson,
framkvæmda-
stjóri Bónuss og
Jóhanna Waag-
fjörð, þáverandi
fjármálastjóri
Haga. Fyrst
voru keypt bréf
af starfsmönn-
unum þremur
6. júlí og 6. sept-
ember 2008.
Samtals greiddu
Hagar starfs-
mönnunum
þremur 712,7
milljónir króna
fyrir hlutina.
Miðað við það
var viðskiptagengið 25,01 króna á
hlut.
Í október 2009 keyptu Hagar
síðan 1,4% hlut af starfsmönnunum
þremur. Fyrir hann greiddi félagið
315 milljónir króna. Viðskipta-
gengið var 18,53 krónur á hlut. Alls
greiddu Hagar því 1.027,7 milljónir
króna fyrir samanlagt 3,74% hlut í
sjálfu sér.
Hinn 19. október 2009, í sama
mánuði og seinni kaupin áttu sér
stað, leysti Arion banki til sín 95,7%
hlut í Högum vegna skulda fyrri
eigenda hans. Önnur útistandandi
bréf voru annars vegar þau sem
Hagar áttu sjálfir eftir að hafa
keypt af eigendunum og 0,5% hlut-
ir sem enn eru í eigu Finns, Jóhönnu
og Guðmundar, samkvæmt upplýs-
ingum frá Arion banka.
Vert er að taka fram að sam-
komulag lá fyrir milli Haga og
starfsmannanna þriggja um kaup
á umræddum hlutabréfum áður en
Arion banki leysti félagið til sín.
Arion gefur hlutafé og peninga
Í febrúar 2010 var gert samkomu-
lag við Jóhannes Jónsson, þáver-
andi stjórnarformann Haga, og
helstu stjórnendur félagsins um
forkaupsrétt á 15% hlut í því til að
tryggja áframhaldandi starfskrafta
þeirra á næstu árum. Í ágúst sama
ár var síðan gert annað samkomu-
lag við Jóhannes um að hann hyrfi
frá félaginu. Eftir stóð samkomulag
sem tryggði fimm lykilstjórnendum
Haga forkaupsrétt að 5% hlut með
afslætti. Auk þess var skaðleysis-
ákvæði í samkomulaginu sem tiltók
að Arion banki myndi greiða skatta
þeirra vegna kaupanna.
Í tengslum við ákvörðun um
sölu á 20-30% hlut í Högum í gegn-
um Kauphöll í nóvember 2011 var
samið upp á nýtt við lykilstjórnend-
urna fimm. Nú var ákveðið að tveir
þeirra, Finnur Árnason og Guð-
mundur Marteinsson, myndu fá
0,4% hlut hvor án endurgjalds og
þeir Gunnar Ingi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, Kjartan
Már Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Banana, og Lárus Óskarsson,
framkvæmdastjóri Aðfanga, 0,2%
hlut hver. Samtals fengu stjórnend-
urnir fimm því 1,4% hlut í Högum
frá Arion banka, miðað við gengið
10. Virði þessa hlutar, miðað við það
gengi, er 170 milljónir króna.
Hefur þegar hækkað
Útboðsgengi á hlutum í Högum
þegar þeir verða seldir fagfjárfest-
um og almenningi í byrjun desemb-
er er 11-13,5. Samkvæmt því verð-
bili er virði hlutar stjórnendanna
fimm strax orðið 187-229,5 milljónir
króna. Auk þess fengu þeir peninga-
greiðslu upp á 170 milljónir króna
til að standa skil af skattgreiðslum
vegna samkomulagsins. Alls samdi
því Eignabjarg, dótturfélag Arion
banka, við stjórnendurna fimm um
340 milljónir króna. Samkvæmt
síðasta birta árshlutareikningi
Haga, bindur samkomulagið þá til
að starfa áfram hjá Högum fram til
31. júlí 2012.
Jóhanna Waagfjörð hætti sem
fjármálastjóri Haga í mars 2010.
Seldu dýrt og fengu ný bréf síðar
Tveir stjórnendur Haga sem nýverið fengu 0,8% hlut í félaginu frá Arion banka seldu hluti í því skömmu áður en bankinn tók Haga
yfir. Þeir, ásamt fyrrverandi fjármálastjóra, seldu bréf fyrir rúman milljarð 2008-2009. Skuldbundnir að starfa hjá Högum út júlí 2012.
GUÐMUNDUR
MARTEINSSON
FINNUR ÁRNASON
HAGAR Félagið verður skráð í Kauphöll Íslands í desember. Um er að ræða fyrstu
nýskráningu félags eftir bankahrun.
Hagar eru stærsta smásölufyrir-
tækjasamsteypa á Íslandi. Félagið
á og rekur Bónus, Hagkaup, Útilíf,
Zara, Debenhams, Topshop, Evans,
Dorothy Perkins, Oasis, Karen
Millen, Saints, Day og Warehouse.
Auk þess eiga Hagar innkaupafyrir-
tækin Aðföng, Banana, Hýsingu og
Ferskar kjötvörur.
Arion banki tók yfir 95,7% hlut í
Högum í október 2009 og vistaði
síðar inni í dótturfélagi sínu Eigna-
bjargi. Fyrr á þessu ári var tilkynnt
að 34% hlutur hefði verið seldur
til Búvalla, hóps undir forystu Árna
Haukssonar og Hallbjörns Karls-
sonar, fyrir 10 krónur á hlut. Þeir
greiddu 4,1 milljarð króna fyrir hlut-
inn. Til viðbótar fengu þeir kauprétt,
sem þeir síðar nýttu, á 10% hlut
til viðbótar á genginu 11. Í byrjun
desember ætlar Eignabjarg síðan
að selja 20-30% hlut í félaginu í
gegnum Kauphöll. Þar verða hlutir
seldir á bilinu 11-13,5 krónur á hlut.
Miðað við gengið 10, sem
stjórnendurnir fengu að kaupa á, er
virði hlutafjár í Högum rúmlega 12
milljarðar króna. Arion endurfjár-
magnaði allar skuldir Haga í október
síðastliðnum. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins var lánum félags-
ins breytt úr um 6% verðtryggðum
lánum í lán sem ber um þessar
mundir um 6,5% breytilega en
óverðtryggða vexti. Endurfjármögn-
unin lækkaði því vaxtakostnað Haga
verulega og jók virði félagsins um
leið. Hagar veltu 33,7 milljörðum
króna á fyrstu sex mánuðum yfir-
standandi rekstrarárs og högnuðust
um 1,7 milljarða króna.
Gríðarlega verðmætur smásölurisi
FRÉTTASKÝRING: Kaup og sala stjórnenda Haga á bréfum í fyrirtækinu
Gengi Tegund viðskipta
Júlí og september 2008 25,01 sala
Október 2009 18,53 sala
Nóvember 2011 10,00 kaup
Viðskipti stjórnenda með bréf í Högum