Fréttablaðið - 25.11.2011, Qupperneq 29
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Taktu þátt í frábærum leik!
Allir krakkar sem gæða sér á barnamáltíð frá Grillhúsinu
fá skemmtilega þraut sem þau skila inn til að geta unnið
einn af þremur frábærum vinningum.
1.-3. vinningur
Leikhúsferð fyrir fjóra
á leikritið Hlini kóngsson
Vinningshafar verða birtir
á heimasíðu okkar
www.grillhusid.is
þann 10., 20., og 31. nóv.
Hlini kóngsson
Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is
Árleg Grýlugleði Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri verður
haldin á sunnudag klukkan 14. Að venju munu gaulálfar og
sagnálfar ráða ríkjum á skemmtuninni og fræða gesti um
ægivald og ógnir Grýlu og hyskis hennar. Þá verður kynnt
glóðvolg útgáfa litabókar um Grýlu með kvæðabrotum
austfirskra skálda.
Steikt blálanga
600 g blálanga
1 hvítlauksrif (skorið í sneiðar)
börkur af einni sítrónu
100 g salt og sykur (60% salt og 40%
sykur)
Snyrtið lönguna og skerið í 150 g bita.
Leggið á bakka með salt- og sykur-
blöndu. Stráið henni undir og yfir.
Rífið hálfa sítrónu yfir lönguna. Plastið
pakkann og látið í kæli í 8 mínútur.
Skerið fiskinn og þerrið. Hitið pönnu
þar til byrjar að rjúka úr henni. Steikið
bitana á hvorri hlið í tvær mínútur.
Gulrætur
8 íslenskar gulrætur
24 kartöflusmælki
500 ml grænmetissoð
4 hvítlauksrif
40 ml smjör
salt og sykur
Skrælið gulrætur og
skerið í tvennt, sömu-
leiðis kartöflurnar. Leggið í
eldfast mót með hvítlauk, salti, sykri,
smjöri og grænmetissoði og bakið við
160 gráður í 15 til 20 mínútur með
álpappír yfir. Gulræturnar eiga að vera
stökkar en kartöflurnar meyrar.
Rúgbrauðsmylsna
200 g rúgbrauð
10 ml olía
salt
Setjið rúgbrauðið í matvinnsluvél og
vinnið létt. Setjið á bakka með olíu
og salti. Bakið í ofni við 120°C í 15
mínútur. Dreifið svo yfir fiskinn.
Appelsínusósa
5 appelsínur
40 g sykur
100 ml vatn
100 ml niðursoðinn rjómi
350 ml olía
1 matarlímsblað
salt, sykur og sítrónusafi
Leggið matarlímið í kalt vatn í 10
mínútur Skrælið börkinn af
appelsínunum. Sjóðið
4 sinnum og kælið á
milli. Setjið vatn og
sykur í pott og sjóðið
upp með berkinum. Setjið
börkinn í blandara og maukið
með rjóma og matarlími. Blandið
olíunni rólega út í. Skerið utan af einni
appelsínu og skerið laufin úr. Bætið
laufunum í sósuna. Hún er smökkuð til
með sítrónusafa, salti og sykri.
Steikt blálanga með appelsínusósu
FYRIR FJÓRAÞ
ráinn Freyr Vigfússon,
yfirmatreiðslumaður á
veitingastaðnum Kola-
brautinni í Hörpu, er
einn þeirra sem standa að mat-
reiðslubókinni Eldum íslenskt
með kokkalandsliðinu sem fylgir
í fótspor bókarinnar Einfalt með
kokkalandsliðinu sem kom út í
fyrra og seldist upp. Í þeirri bók
var einungis unnið með fjögur hrá-
efni í hverri uppskrift en nú hefur
einu til viðbótar verið bætt við.
„Það var nú aðallega gert til að
vera ekki með nákvæmlega það
sama og til að geta spannað örlítið
stærra svið,“ segir Þráinn. „Ann-
ars er það svo ef fólk rýnir í upp-
skriftir að oft þarf ekki mikið
meira en fimm hráefni auk salts,
sykurs, vatns og annars sem er til
í öllum eldhúsum til að búa til dýr-
indis mat.“
Í nýju bókinni er fjöldi upp-
skrifta sem ýmist má elda sér
eða setja saman við aðrar. Höfuð-
áhersla er lögð á íslenskt hráefni,
en ástæða þess er að sögn Þráins
sú að það er yfirleitt hendi næst.
Ágóðinn af sölu bókarinnar
rennur til kokkalandsliðsins og
er hluti af fjáröflun liðsins fyrir
Ólympíuleikana á næsta ári.
vera@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í fyrra voru það fjögur hráefni, nú eru þau fimm hjá kokkalandsliði Íslands.
Einfalt og
aðgengilegt