Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 43
20% afsláttur af öllum vörum á föstudag og laugardag Glæsibæ kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur Allur ágóði rennur til verkefna innanlands. Kópavogsdeild Rauða krossins heldur jólabasar laugardaginn 26. nóvember kl. 14-18 í Rauða krosshúsinu Hamraborg 11, 2. hæð. Seld verða ýmis handverk sjálfboðaliða deildarinnar, sauma- og prjónavörur, handgert jólaskraut ásamt öðru föndri. JÓLABASAR Rauða krossins í Kópavogi 26. nóvember Heitt á könnunni! Framreiðsluföt og skálar eru jafnan mikið notuð um jól og áramót og um að gera að birgja sig upp af þeim. Það þarf föt undir mat og hliðarrétti en líka undir hnetur, sætindi og rjóma. Nýrri borðbúnaður þolir yfirleitt að fara í upp- þvottavél. Mynstr- ið er oftar en ekki glerjað þannig að það upplitast ekki. Þó skal gæta varúðar sé mynstrið handmál- að og ganga úr skugga um hvernig best er að þvo slíkan búnað. Ef einhvers vafa gætir er öruggara að handþvo. Eldri borðbúnað þarf að passa mun betur og skyldi alltaf handþvo. Þá hafa einhverjir brennt sig á því að setja diska með gyllingu eða silfri inn í örbylgjuofna sem má alls ekki. Geymið fínni borðbúnað á sér- stökum stað þannig að ekki þurfi að óþörfu að handleika dagsdaglega það sem er dýrt að brjóta. Til dæmis í borð- stofuskáp með glerhurðum og jafnvel lykli þannig að smáfólk á heimilinu opni ekki skápinn í óvitaskap og brjóti óvart ein- hvern grip úr safninu. Þegar hátíðarborðbúnaður er valinn á heimilið þarf að hafa í huga að hann eldist vel og sé ekki í tímabundinni fram- leiðslu. Til að bæta við safnið er sniðugt að óska eftir auka- diskum, skálum, sósu- könnum eða öðru í afmælis- og jólagjafir og muna að fallegt og gott safn verður ekki til á einum degi. Þess heldur að njóta þess að sjá það smám saman stækka og verða að eigulegri framtíðareign. Ef fólk ætlar sér að safna hnífa- parasetti þarf að máta það við borðbúnaðinn sem það á að notast með. Bæði út frá stærð; að hnífapörin séu ekki of nett fyrir borðbúnað sem er af grófari gerð og út frá formi. Fallegt hnífaparasett getur virkað afkára- legt við hlið diska sem passa illa við. Ekki gleyma að þótt það sé alltaf klassískt að velja látlaus sett, oft hvíta diska með gyll- ingu, silfri eða ein- hverjum mynstrum hefur það sýnt sig að það er ekki síður klass- ískt að velja sterk- ari liti. Borðbúnaður í sterkum rauðum lit er til frá öllum tímum og eldist vel. Má þar nefna borðbúnað Finnans Kaj Franck sem hefði orðið 100 ára í ár. juliam@frettabladid.is Að geyma gullin sín Fátt er skemmtilegra en að geta dregið fram fallegan borðbúnað á tyllidögum. Það að koma sér upp safni af fínum borðbúnaði er ekki eins dags verk enda oft dýrt að bæta við safnið. Þess heldur er mikil- vægt að fara vel með þann borðbúnað sem ætlunin er að eiga áfram fyrir hátíðleg tilefni. Finnski hönnuðurinn Kaj Franck hefði orðið 100 ára í ár og af því tilefni hefur hönnun hans verið einkar áberandi á finnskum hönnunarsýningum í ár og meðal annars ein sérstaklega tileinkuð honum. Hans þekktustu verk eru úr borðbúnaðarlínunni Teema sem Iiittala framleiðir og þessi fallegu glös úr Kartio-línunni. Krenit-skálarnar eru afar jólalegar undir meðlæti en einkenni þeirra eru afar skarpar brúnir. Herbert Krenchel er hönnuður þeirra, sú upphaflega var hönnuð árið 1953, en þær eru enn í framleiðslu. Það færist ekki aðeins í aukana að heimilisfólk komi sér upp fallegu safni hnífapara heldur eiga margir sérstakt safn sushi- prjóna og -tanga enda slíkar máltíðir æ algengari hérlendis síðustu árin. Þetta skemmtilega áhald kallast Pick up og er eftir Svíann Stig Ahlström. Til að dýrari borðbúnaður heimilisins endist og eyðileggist ekki er mikilvægt að geyma hann á góðum stað þegar hann er ekki í notkun. Til dæmis í læstum glerskáp. alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel Hemmi Gunn – og svaraðu nú! Fjölbreyttur og fjörugur þáttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.