Morgunblaðið - 03.08.2010, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. Á G Ú S T 2 0 1 0
Stofnað 1913 178. tölublað 98. árgangur
VETRARSAGA
KVIKMYNDUÐ
AÐ SUMARLAGI
LEIKARASKAPUR
PLÁGA Í
KNATTSPYRNU
KENNIR FÓLKI
AÐ ELDA
HOLLAN MAT
MIKIL MEINSEMD ÍÞRÓTTIR ELDAR ÚR ARFA 10GAURAGANGUR 32
Morgunblaðið/Ómar
Í áætlunum Íbúðalánasjóðs, ÍLS,
er ekki gert ráð fyrir tapi vegna
neikvæðs vaxtamunar, að sögn
Ástu H. Bragadóttur, aðstoðar-
framkvæmdastjóra sjóðsins. Fjöldi
uppboðsíbúða í bókum Íbúðalána-
sjóðs hefur aukist mjög á undan-
förnum misserum, en fram kom í
Morgunblaðinu nýverið að birgða-
staða uppboðsíbúða hefði náð 739
um mitt ár. Á fyrstu sex mánuðum
ársins hefði sjóðurinn jafnframt
leyst til sín tæplega tvöfaldan fjölda
allra innleystra íbúða síðasta árs.
Aukin vanskil hjá sjóðnum orsaka
þessa aukningu fullnustugerða
sjóðsins, en uppboðsíbúðir eru
óvaxtaberandi eignir eins og gefur
að skilja og hafa því áhrif á vaxta-
mun sjóðsins. »12
Ekki gert ráð fyrir
tapi ÍLS vegna
vaxtamunar
Mikill fjöldi
» 12.000 manns mættu á
Sparitónleika á Einni með öllu
á Akureyri.
» 6.000 manns á Síldarævin-
týri á Siglufirði og aðkomu-
menn 3.000 á Neistaflugi.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Skemmtanahald fór víðast hvar vel
fram um helgina og hún var ein sú ró-
legasta í tvo áratugi hvað umferðina
varðar. Samt voru tvær nauðganir til-
kynntar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um. Þar komu upp 40 fíkniefnamál og
voru um 300 grömm af efnum gerð
upptæk, mest afmetamín og kókaín,
en furðulítið af kannabisefnum. Met-
fjöldi var í Eyjum, um 16.000 manns
þegar mest var. Þessu var hins vegar
öfugt farið í umdæmi lögreglunnar í
Borgarnesi, þar sem Unglingalands-
mót UMFÍ fór fram um helgina, þar
sem 12.000 manns voru saman komn-
ir þegar leikar stóðu sem hæst. Þar
var hátt í hálft kíló af efnum gert upp-
tækt frá miðvikudegi til mánudags,
mest kannabisefni, en minna af hvít-
um efnum. Það var þó mest úr um-
ferðinni og ekki tengt landsmótinu. Á
mörgum öðrum útihátíðum komu
engin fíkniefnamál upp.
Flug lá niðri frá Eyjum í um einn
og hálfan tíma í gær, en í gærkvöldi
hafði Flugfélag Íslands farið 32 ferðir
frá Eyjum og hafði allt gengið vel.
Mest tekið í Borgarfirði
Metfjöldi í Eyjum, 16.000 manns, 40 fíkniefnamál og tvær nauðganir tilkynntar
Um hálft kíló af fíkniefnum gert upptækt í Borgarfirði en minna úti í Eyjum
MGóð skemmtun » 2, 4
Ljósmynd/SL
Hjálp Björgun við Vatnajökul um
helgina. Fjórhjólið dregið á land.
„Sú ákvörðun að leggja út í svell-
kalda ána og storka náttúruöflunum
var alfarið mín og ég sit eftir með
sárt ennið. Núna er mér þó efst í
huga þakklæti til björgunarsveit-
armanna sem sýndu snarræði við
björgun,“ segir Gunnar Maríusson í
Keflavík.
Björgunarsveitarmenn björguðu
Gunnari, sem ekið hafði á fjórhjóli út
í jökulá norðan Jökulheima við
Vatnajökul sl. laugardag. Á vettvang
fóru björgunarsveitarmenn úr
Reykjavík og frá Kópaskeri sem
voru á hálendisvakt sem Slysavarna-
félagið Landsbjörg heldur úti yfir
sumartímann. Gert er út frá fjórum
stöðum á hálendinu. Kristinn Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Lands-
bjargar, segir varðstöðu öryggis-
sveita skipta miklu enda sé með því
hægt að bregðast skjótt við þegar vá
steðjar að. Þá auki það öryggi fjalla-
fara hve þéttriðið net GSM-kerfisins
er nú orðið.
„Mér finnst það einstakt og sýna
mikla fórnarlund hjá björgunarsveit-
armönnum að vera til þjónustu reiðu-
búnir ef vá steðjar að,“ segir Gunnar
Maríusson. sbs@mbl.is »6
Lagði út í svellkalda ána
Hálendisvakt björgunarsveitanna hefur sannað gildi sitt
Crown Princess, stærsta skemmtiferðaskipið
sem kemur til Reykjavíkur í sumar, lagði úr höfn
síðdegis í gær. Skipið er 113 þúsund tonn. Alls
3.306 farþegar voru með skipinu og 1.200 manna
áhöfn þannig að samanlagt eru um borð ámóta
margir og búa í Fjarðabyggð svo eitthvert við-
mið sé haft. Héðan kom skipið frá Bretlandi og
frá Reykjavík var stefnan tekin til Akureyrar,
þangað sem skipið kemur í morgunsárið.
Prinsessan siglir út sundin með 4.500 manns um borð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á fyrstu sex
mánuðum þessa
árs hafa 12,3
milljarðar króna
verið greiddir í
atvinnuleysis-
bætur. Áætlað er
að heildar-
greiðslur at-
vinnuleysisbóta
árið 2010 verði 23 milljarðar króna,
sem er þremur milljörðum króna
minna en áætlað er í fjárlögum fyr-
ir árið. Til grundvallar liggur spá
Vinnumálastofnunar um að með-
alatvinnuleysi ársins verði 8,1%
sem er töluvert minna en gert var
ráð fyrir í fjárlögum. Í álagningar-
tölum ríkisskattstjóra kemur m.a.
fram að atvinnuleysisbætur námu á
síðasta ári 20,5 milljörðum króna
en efnahagskreppan kemur skýrt
fram í þeim tölum. »14
23 milljarðar í
atvinnuleysisbætur