Morgunblaðið - 03.08.2010, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010
Lín Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
10-50% afsláttur af öllum vörum.
Útsalan er hafin.Lagerhreinsun
Fatnaður frá 1000 kr.
Meyjarnar Austurveri, Háaleitisbraut 68,sími 553 3305.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56
Bolir og toppar
40% afsláttur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Útsala - Útsala
Enn meiri verðlækkun á útsölu
Verðdæmi:
Verð áður; Verð nú;
Síðir toppar 5.900- 1.990-
Kjólar 12.900- 4.900-
Ermar 7.900- 990-
Leggings 7.900- 1.990-
Bolir 4.500- 1.990-
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Gróska hefur verið í skógum á Suð-
urlandi í sumar. Miklir hitar hafa
skilað góðum trjávexti og fræ mynd-
ast í meira mæli en áður á ungum
birkiplöntum. Fiðrildalirfan ertuygla
hefur líka haldið sig til hlés. Í Goða-
landi og í Þórsmörk hefur svört ask-
an haldið hita á plöntum í skóg-
arbotnum auk þess sem
næringarefni eru í öskunni.
Hreinn Óskarsson, skógarvörður á
Suðurlandi og verkefnisstjóri Heklu-
skógaverkefnisins, segir að í þjóð-
skógum Skógræktar ríkisins í Goða-
landi og Þórsmörk séu plöntur
einstaklega gróskumiklar inni í skóg-
inum. „Það er eins og þarna hafi ver-
ið dreift áburði, sem náttúran sjálf sá
í raun um að gera með öskunni úr
Eyjafjallajökli,“segir Hreinn.
„Mikil næring er í öskunni og
gróður er kominn langt, bæði út af
hitanum og öskunni. Ég hef ekki áð-
ur séð eins mikla grósku í niturbind-
andi jurtum og það hefur verið ótrú-
legur kraftur í umfeðmingi, bauna-
grasi og smára svo dæmi séu tekin,“
Í öskunni eru til dæmis fosfór,
brennisteinn og kalí. Í jarðvegs-
yfirborðinu er að finna áratugab-
irgðir af þessum og fleiri plöntunær-
ingarefnum.
Skógarnir í Goðalandi og Þórs-
mörk hafa líka tekið hressilega við
sér í sumar og hafa birkið og víðirinn
þar ekki verið jafn gróskumiklir í
manna minnum.
Ýmsar blómjurtir og grös eru
einnig mjög kraftmikil í sumar.
Hreinn nefnir sem dæmi að smá-
plöntur sem rétt hafi gægst upp úr
öskunni í vor hafi vaxið um 10-20
sentimetra.
Hraðari útbreiðsla Hekluskóga
Ekki vill Hreinn fullyrða á þessu
stigi að ársprotar verði lengri í sunn-
lenskum skógum en áður, en mikil
gróska sé alls staðar. Hann nefnir
sem dæmi að árs gamlar birkiplöntur
beri víða fræ í ár og geti flýtt fyrir út-
breiðslu Hekluskóga.
„Við gerðum ráð fyrir í Heklu-
skógum að fimm ára gamlar plöntur
myndu smám saman fara að sá sér
út. 10-15 ára yrðu komin mikil fræ á
birkiplönturnar, en nú er þetta farið
að gerast á þessum litlu plöntum.“
Birkiplöntur eru settar niður í litla
lundi með það í huga að þær sái sér
síðan út. Tæplega 150 landeigendur
taka þátt í Hekluskógaverkefninu og
hefur birkilundum fjölgað ört á gróð-
ursnauðum Heklusöndum síðustu ár-
in. „Það er ekki spurning að sjálf-
sprottið birki verður veigamikið í
skógrækt á Íslandi á næstu árum,“
segir Hreinn.
Hreinn segir að í sumar hafi lítið
sést af ertuyglu, sem hefur étið upp
lúpínubreiður og trjágróður á síðustu
árum.
Gróska í gjósku og hlýindum
Góður vöxtur trjáa á Suðurlandi Óvenju ungar birkiplöntur skila fræjum
Mikil næring í öskunni Líflegt í þjóðskógunum í Goðalandi og Þórsmörk
Í berjamó Freyr og Ásrún Hreinsbörn voru að tína aðalbláber í Goðaland-
inu. Berin eru orðin þroskuð og þóttu afar bragðgóð.
Endurheimt
» Meginmarkmið Hekluskóga
er að verja landið fyrir mögu-
legum áföllum vegna öskufalls
líkt og í vor dundu á Þórsmörk
og Goðalandi með því að end-
urheimta náttúrulegan birki-
skóg og kjarrlendi á stórum,
samfelldum svæðum í ná-
grenni Heklu.
» Starfssvæði Hekluskóga
nær yfir um 90 þúsund hekt-
ara lands í nágrenni Heklu eða
nálægt 1% af Íslandi. Um 70%
þess lands er nú lítið gróið og
á hluta þess er sandfok og
mikið rof.
» Aðgerðir á svæðinu miða
fyrst og fremst að því að örva
gróðurframvindu, fremur en að
um samfellda ræktun verði að
ræða.
Ljósmynd/Hreinn
Líflegt Niturbindandi jurtir eins og
umfeðmingur, smári og baunagras
hafa verið óvenju gróskumiklar í
öskunni frá Eyjafjallajökli. Huml-
urnar í Þórsmörk njóta góðs af
blómskrúðinu í umfeðmingnum en
hann vefur sig meira en 1,5 m upp
eftir trjágróðrinum.
Hvítasunnumenn héldu árvisst mót
sitt um verslunarmannahelgi að
þessu sinni í Stykkishólmi. Mótin
hafa verið haldin í Kirkjulækjar-
koti í Fljótshlíð allt frá 1950.
„Mótið hefur gengið mjög vel og
stemningin verið frábær. Hólmarar
hafa tekið okkur mjög vel og mótið
hefur vakið mikla athygli í bæn-
um,“ sagði Jón Þór Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri Kotmótsins.
Hann taldi að mótsgestir hefðu ver-
ið 1.800 til 2.000 talsins á laugar-
dag.
Jón Þór sagði að aðstaða til móts-
haldsins í Stykkishólmi hefði verið
frábær og til fyrirmyndar. Mót-
tökur Stykkishólmsbæjar hefðu
sannarlega verið höfðinglegar. Allt
gekk að óskum og veðrið lék við
mótsgesti sem voru á öllum aldri.
Mjög góð
stemning á
Kotmóti
Ljósmynd/Ragnar Þór Gunnarsson