Morgunblaðið - 03.08.2010, Side 12
VIÐTAL
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Í áætlunum Íbúðalánasjóðs er ekki
gert ráð fyrir tapi vegna neikvæðs
vaxtamunar. Þetta segir Ásta H.
Bragadóttir, aðstoðarframkvæmda-
stjóri sjóðsins, í samtali við Morg-
unblaðið. Fjöldi uppboðsíbúða í
bókum Íbúðalánsjóðs hefur aukist
mjög á undanförnum misserum, en
greint var frá því í Morgunblaðinu
í síðustu viku að birgðastaða upp-
boðsíbúða hefði náð 739 um mitt
ár. Á fyrstu sex mánuðum ársins
hefði sjóðurinn jafnframt leyst til
sín tæplega tvöfaldan fjölda allra
innleystra íbúða síðasta árs. Aukin
vanskil hjá sjóðnum orsaka þessa
aukningu fullnustugerða sjóðsins,
en uppboðsíbúðir eru óvaxtaber-
andi eignir, eins og gefur að skilja
og hafa því áhrif á vaxtamun sjóðs-
ins. Ein afleiðinga þessarar þróun-
ar er versnandi eiginfjárhlutfall, en
Ásta segir ekkert í lögum eða
reglugerðum sem skyldar sjóðinn
til að halda ákveðnu eiginfjárhlut-
falli, heldur er miðað við ákveðið
langtímamarkmiðið 5%. Við síðustu
áramót var eiginfjárhlutfall sjóðs-
ins 3%.
Fram hefur komið að Íbúðalána-
sjóður kynni að þurfa á tugmillj-
arða fjárframlagi frá ríkinu á
næstu árum til að geta haldið
áfram starfsemi. Ásta segir
ákvörðun um hvort leggja eigi fé
inn í sjóðinn, og þá hversu mikið,
byggjast á niðurstöðum nefndar á
vegum félagsmálaráðuneytisins
sem er ætlað að ræða eiginfjárhlut-
fall sjóðsins.
Engar sérstakar
reglur um sölu
Um 150 eignir eru skráðar til
sölu á heimasíðu Íbúðalánasjóðs og
um fjórðungur allra uppboðsíbúða
sjóðsins er í útleigu. „Hvað varðar
mismuninn á skráðum eignum
sjóðsins annars vegar og íbúðum í
útleigu og til sölu hins vegar, þá er
því til að svara að þær íbúðir eru í
frágangsferli hjá sjóðnum eftir
nauðungarsölu og eru á leiðinni í
sölu eða áframhaldandi útleigu.
Ljóst má vera að sjóðurinn getur
ekki sett allar íbúðir strax í sölu
um leið og hann eignast þær. Bíða
þarf eftir að fyrri eigendur íbúðar-
innar rými þær, síðan þarf að
skoða þær og meta og í framhaldi
þess eru þær settar í sölu,“ segir
Ásta. Hún segir engar sérstakar
reglur gilda um söluverð íbúða
sjóðsins.
Í reglugerð um útleigu uppboðs-
íbúða, sem samþykkt var á þessu
ári, segir að „leiguverð þess íbúð-
arhúsnæðis sem Íbúðalánasjóður
hefur eignast á nauðungaruppboði
skal vera fyrirliggjandi meðalleigu-
verð á viðkomandi markaðssvæði“.
Ásta segir hins vegar ekki rétta
túlkun á reglunum þá að sjóðurinn
geti ekki leigt út íbúðir, sé slík
leiga til þess fallin að lækka leigu-
verð á viðkomandi markaðssvæði:
„Skilyrði slíkrar útleigu er að sýnt
sé fram á að skortur sé á leigu-
íbúðum á viðkomandi markaðs-
svæði.“
Samkvæmt Ástu eru um 5,7% af
útlánum Íbúðalánasjóðs í frystingu.
Við síðustu áramót námu útlán
sjóðsins um 766 milljörðum króna.
Miðað við þá upphæð er um að
tefla tæplega 44 milljarða sem eru
í frystingu hjá sjóðnum.
Í október renna út lögbundnir
frestir á uppboðssölum, en þá má
að sögn Ástu búast við nokkurri
aukningu í uppboðum. „Hins vegar
er rétt að benda á að heimild til að
fresta nauðungarsölum var ætluð
til þess að veita lántakendum ráð-
rúm til að kynna sér, og eftir atvik-
um sækja um, þau úrræði sem í
boði eru fyrir skuldara til end-
urskipulagningar á fjármálum
þeirra þannig að koma megi í veg
fyrir nauðungarsölu. Nýti lántak-
endur frestinn ætti því ekki að
þurfa að koma til verulegrar aukn-
ingar á nauðungarsölum í haust.“
Ekki gert ráð fyrir tapi
vegna vaxtamunar
Íbúðalánasjóður með 150 fasteignir á sölu og fjórðungur þeirra í útleigu Aðstoðarframkvæmda-
stjóri sjóðsins býst við fleiri uppboðum í haust Um 44 milljarða króna útlán sjóðsins í frystingu
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignir Íbúðalánasjóður hefur þurft að leysa til sín fjölda íbúða eftir bankahrunið og er núna með um 150 íbúðir á sölu víða um land. Um fjórðungur þeirra er í útleigu.
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég er mjög sáttur við sumarið og við eigum
besta mánuðinn eftir. Bókanir hjá okkur í ágúst
eru margfaldar á við síðasta sumar. Auðvitað
setti hestapestin og afboðun landsmóts hesta-
manna strik í reikninginn
hjá okkur en annað hefur
bara komið í staðinn og ver-
ið brjálað að gera,“ segir
Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðaþjón-
ustunnar á Hólum í Hjalta-
dal í Skagafirði, um
vertíðina í sumar. Hann
áætlar að 10-12 þúsund
manns muni sækja Hóla
heim í sumar sem er svip-
aður fjöldi ferðamanna og á síðasta ári. Ólafur
segir að það geti talist mjög gott miðað við
hestapest og eldgos.
„Ferðasumarið hefur verið frábrugðið fyrri
árum að því leyti að umferð bílaleigubíla hefur
mikið til horfið. Í staðinn hafa komið hingað
stórir ferðahópar með rútum,“ segir Ólafur en
um 10 þúsund manns hafa skrifað í gestabók í
Hóladómkirkju í sumar, sem er viðmið ferða-
þjónustunnar um gestafjöldann.
Ættarmót í stað hestamóta
Hólar hafa eins og margir aðrir staðir á land-
inu ekki farið varhluta af hestapestinni og áhrif-
um hennar á ferðaþjónustu og hestatengda
starfsemi. Þannig var hætt við námskeið og
sumarskóla fyrir hestamenn sem átti að halda á
Hólum í sumar og eitthvað bar á afbókunum
vegna landsmótsins. En annað hefur komið í
staðinn, ekki síst ættarmót sem haldin hafa ver-
ið á Hólum um nánast hverja helgi í sumar.
Nóg verður um að vera hjá Ólafi og hans fólki
í ágúst, en alls starfa um 20 manns hjá Ferða-
þjónustunni á Hólum yfir sumartímann. Fram-
undan eru m.a. tvær stórar ráðstefnur, al-
þjóðlegt líffræðinámskeið, heimsókn 70-80
nemenda frá dönskum tækniháskóla, Hólahátíð
og tónlistarhátíð. Á Hólahátíðinni í ár, 13.-15.
ágúst, verður opnuð ný sýning og nýtt safn á
vegum Söguseturs íslenska hestsins, sem Ólaf-
ur fullyrðir að muni laða til sín hestaáhuga-
menn af öllu landinu.
„Við hófum sumarið með barokkhátíð og end-
um það á þjóðlagatónlist frá miðöldum á svo-
nefndri Ríkíni-hátíð,“ segir Ólafur en fyrir ári
var stofnað á Hólum félag áhugafólks um forna
tónlist, Ríkíni-félagið, og ætlar það að end-
urtaka leikinn í lok ágúst þegar sumarstarfsemi
ferðaþjónustunnar lýkur.
Yfir vetrartímann sinnir Ólafur veitingaþjón-
ustu fyrir nemendur Háskólans á Hólum, en
umsóknir um skólavist fyrir komandi vetur
hafa aldrei verið fleiri og því horfur á fjölgun
nemenda við skólann.
„Veðrið hjá okkur síðustu daga og tvær helg-
ar hefur verið ævintýri líkast. Mikill hiti og
staðurinn fullur af fólki, líflegt í sundlauginni og
á tjaldstæðinu og fólk skoðað sig um á staðnum.
Fólk hefur verið að dásama veðráttuna hér, þó
að frekar kalt hafi verið á Norðurlandi í sumar,“
segir Ólafur Jónsson.
Ágúst á Hólum margfaldur frá í fyrra
Búist við 12 þúsund manns heim að Hólum í Hjaltadal í sumar Verið brjálað að gera, segir fram-
kvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Sáttur við sumarið þrátt fyrir hestapest og áhrif eldgossins
Hólar Tjaldstæðin á Hólum í Hjaltadal hafa verið vel nýtt í sumar, ekki síst í góðviðriskafl-
anum seinni hluta júlímánaðar. Veðursæld er mikil í skóginum og gott skjól fyrir vindum.
Ólafur Jónsson
Við stofnun Íbúðalánasjóðs
voru teknar yfir eignir og
skuldir þriggja sjóða – Bygg-
ingasjóðs ríkisins, Bygg-
ingasjóðs verkamanna og
Húsbréfadeildar. Við yfirtök-
una voru eignir og skuldir
sjóðanna núvirtar með mark-
aðsvöxtum. Að sögn Ástu hafa
neikvæðir vextir á bréfum
Byggingasjóðs verkamanna
ekki áhrif á fjárhag Íbúðalána-
sjóðs í dag: „Afskriftir vegna
lána í Byggingasjóði verka-
manna eru mjög litlar, enda
að öllu jöfnu tiltölulega lítið
eftir af lánstíma þeirra og
jafnframt er veðsetningar-
hlutfall þeirra tiltölulega
lágt,“ segir hún.
Ekki vandamál
VERKAMANNASJÓÐUR