Morgunblaðið - 03.08.2010, Page 13
Fréttir 13ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010
Lán til endurbóta
og viðbygginga
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við húsnæði.
Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði. Hámarkslán eru
20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru á þessum lánum og
almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
hans. Áður en talað var við flokkinn
voru þó gerðar tvær tilraunir til
stjórnarmyndunar sem báðar runnu
út í sandinn.
Áhrif á innflytjendamál
Viðræðurnar sem nú eru að
hefjast gera ráð fyrir myndun minni-
hlutastjórnar frjálslyndra og kristi-
legra demókrata með stuðningi
Frelsisflokksins. Ef viðræðurnar
skila árangri er gert ráð fyrir að
Mark Rutte, leiðtogi frjálslyndra,
veiti nýrri ríkisstjórn forystu. Helsta
verkefni hennar verður að ná tökum
á rekstri hins opinbera og skera
hann niður um 18 milljarða evra.
Frelsisflokkurinn hefur þegar fallist
á að styðja þær aðgerðir en leggst þó
gegn niðurskurði í heilbrigðiskerfinu
og lækkun atvinnuleysisbóta. Hins
vegar er flokkurinn hlynntur því að
draga úr þróunaraðstoð. Gegn
stuðningi við niðurskurð hins opin-
bera hefur Frelsisflokkurinn fengið
vilyrði fyrir því að hafa áhrif á inn-
flytjendastefnu Hollands og að hún
verði hert verulega. Þá leggur flokk-
urinn áherslu á aukna löggæslu í
landinu.
Áhyggjur af Wilders
Ekki eru allir á eitt sáttir í röð-
um frjálslyndra og kristilegra demó-
krata að gera Frelsisflokknum og
leiðtoga hans, Geert Wilders, mögu-
legt að hafa áhrif á stjórn landsins.
Einkum eru uppi miklar áhyggjur af
stefnu flokksins í innflytjendamálum
sem þykir mjög hörð og sérstaklega
málflutningi Wilders um múslima en
hann hefur verið mjög berorður í
þeim efnum.
Skemmst er að minnast þess
þegar Wilders líkti Kóraninum,
helgiriti múslima, við bók Adolfs
Hitlers, Mein Kampf, í mynd sinni
Fitna. Í kjölfar þess að myndin var
sýnd opinberlega hefur Wilders búið
við stöðuga lögregluvernd vegna
hótana sem honum hafa borist.
Reuters
Glaður Geert Wilders brosleitur eft-
ir að úrslit kosninganna lágu fyrir.
Geert Wilders í lykilaðstöðu
Myndun ríkisstjórnar í Hollandi í undirbúningi Gert ráð fyrir því að Frelsis-
flokkurinn verji stjórnina falli Fær áhrif á mótun innflytjendastefnu landsins
Ný ríkisstjórn
» Myndun minnihluta-
stjórnar frjálslyndra og kristi-
legra demókrata er í burð-
arliðnum í Hollandi.
» Frelsisflokkurinn mun
verja stjórnina falli en hann
hefur verið skilgreindur sem
öfgahægriflokkur.
» Áhyggjur eru af málflutn-
ingi leiðtoga Frelsisflokksins
um innflytjendur.
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Formlegar viðræður eru að hefjast
um myndun ríkisstjórnar í Hollandi
með hliðstæðum hætti og dæmi eru
um t.a.m. frá Noregi og Danmörku.
Þar hafa á undanförnum árum verið
myndaðar minnihlutastjórnir sem
varðar hafa verið falli af stjórnmála-
flokkum sem skilgreindir eru sem
hægriöfgaflokkar og ekki hefur ver-
ið vilji fyrir að hleypa með beinum
hætti inn í ríkisstjórnarsamstarfið.
Er slíkt ríkisstjórnarsamstarf enn til
staðar í Danmörku.
Sigur Frelsisflokksins
Frelsisflokkurinn í Hollandi
vann stórsigur í þingkosningunum
sem fram fóru þar í landi 9. júní í
sumar. Flokkurinn hlaut 25 þing-
menn en hafði fyrir níu. Skoðana-
kannanir höfðu spáð fyrir um sigur
Frelsisflokksins og gerðu stjórn-
málaskýrendur ráð fyrir að erfitt
yrði að mynda ríkisstjórn án aðkomu
Barack Obama,
forseti Banda-
ríkjanna, sagði í
ræðu sem hann
flutti í gær á
samkomu með
fyrrum her-
mönnum í
Bandaríkjaher
að hann myndi
standa við kosn-
ingaloforð sín um að bandaríski
herinn hætti að sinna beinum
hernaðaraðgerðum í Írak 31.
ágúst nk. Eftirleiðis yrðu Banda-
ríkjamenn aðallega í hlutverki
ráðgjafa.
Obama sagði að stríðið í landinu
væri á réttri leið og að brátt gætu
írösk stjórnvöld tekið að fullu við
stjórn þess. Illa hefur þó gengið
að koma á starfhæfri ríkisstjórn í
landinu til þessa, en ummæli hans
koma í kjölfar mikillar gagnrýni
vegna stríðsins í Afganistan.
Þá sagði Obama í ræðu sinni að
bandaríski herinn færi frá Írak
strax á næsta ári og að í lok þessa
mánaðar hefðu alls 90 þúsund
bandarískir hermenn verið kall-
aðir heim frá því að hann tók við
embætti.
BANDARÍKIN
Segir Bandaríkja-
menn vera að ná
árangri í Írak
Barack Obama
Forseti Rúss-
lands, Dimitrí
Medvedev, hefur
lýst yfir neyðar-
ástandi í sjö hér-
uðum í landinu
vegna skógar-
elda sem geisað
hafa að undan-
förnu. Yfirlýsing
forsetans felur
m.a. í sér að lokað er fyrir almenna
umferð til héraðanna.
Samkvæmt upplýsingum frá
rússneskum heilbrigðisyfirvöldum
hafa 40 manns látið lífið vegna eld-
anna. Nær helmingur dauðsfall-
anna, eða 19, áttu sér stað í hér-
aðinu Nizhny Novgorod, sem hefur
orðið einna verst úti. Heimili hafa
orðið eldinum að bráð í 14 hér-
uðum. Þúsundir hafa neyðst til þess
að flýja heimili sín og nær hálf
milljón manna berst við að ná nið-
urlögum eldanna.
Orsök eldanna eru miklir hitar í
Rússlandi að undanförnu og þurrk-
ar. Rússar búa sig nú undir það að
hitabylgjan haldi áfram næstu vik-
una miðað við veðurspár. Þá er því
einnig spáð að vindasamt verði í
einhverjum af héruðunum, sem
mun auka enn á eldana.
RÚSSLAND
Neyðarástandi lýst
yfir vegna mikilla
skógarelda
Dimitrí Medvedev
Gríðarleg flóð í Pakistan í kjölfar
hitabeltisrigninga hafa kostað
1.500 manns lífið og óttast pak-
istönsk yfirvöld að sú tala kunni að
tvöfaldast þegar björgunarsveitir
ná til afskekktari svæða landsins.
Talið er að um tvær og hálf
milljón manna eigi um sárt að
binda vegna flóðanna. Ástandið er
verst í héraðinu Khyber-Pak-
htunkhwa þar sem ein og hálf
milljón manna hefur orðið að flýja
heimili sín.
Óttast sjúkdóma
Þúsundir manna eru enn inni-
lokaðar á svæðum sem björgunar-
sveitum hefur ekki enn tekist að
ná til og hafast margir þeirra við á
húsþökum án matar og án aðgangs
að hreinu vatni. Óttast er að alvar-
legir sjúkdómar eins og malaría og
kólera breiðist út ef ekki verði
komið í veg fyrir það í tæka tíð.
Veðurspár næstu daga gera ráð
fyrir áframhaldandi rigningum á
svæðinu. hjorturjg@mbl.is
Verstu
flóð í
áratugi
1.500 manns látnir
Reuters
Flóðin Hermenn í pakistanska hernum bera öldunga
upp í hærra landslag á öruggari stað. Þeir höfðu áður
verið fluttir með bát frá bænum Nowshera þar sem
þeir bjuggu. Miklar hitabeltisrigningar að undanförnu
hafa leitt til verstu flóða í Pakistan í áratugi sem kostað
hafa 1.500 manns lífið.