Morgunblaðið - 03.08.2010, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 215. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Tjöld fjúka í Herjólfsdal
2. Styðja ekki björgun bankanna
3. Vefmyndavél í Herjólfsdal
4. Góðir gestir á leið heim
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Ég var frá árinu 1996 að reyna að
finna leið til að gera þessa mynd,“
segir Erlendur Sveinsson um mynd-
ina Draumurinn um veginn sem frum-
sýnd var á Spáni síðastliðinn fimmtu-
dag. »28
Mynd um pílagríms-
göngu Thors
Að vanda var
Flugan á ferð og
flugi um versl-
unarmannahelg-
ina og kom hún
víða við. Hún fór
m.a. á Alþjóðlegt
orgelsumar í Hall-
grímskirkju, tón-
leika Super Mama
Djombo frá Gíneu Bissá og á stór-
tónleika með Nýdanskri, GusGus og
Hjaltalín á Akureyri. »29
Flugan kom víða við
um helgina
Sem hluti af dagskrá Reykjavík Pu-
blic Space Programme á artFart í ár
heldur breski listamaðurinn Richard
DeDomenici fyrirlest-
urinn Did Priya Pat-
hak Ever Get Her
Wallet Back? í Út-
gerðinni, Granda-
garði 12, kl. 17 í dag.
Fyrirlesturinn er
fluttur á ensku
og tekur um
klukkustund í
flutningi.
Richard DeDomenici
á artFart í dag
Á miðvikudag Fremur hæg norðlæg átt og bjartviðri SV- og V-lands, annars skýjað en
úrkomulítið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast suðvestantil.
Á fimmtudag Suðlæg átt og dálítil væta á suðvestanverðu landinu, en léttir víða til fyrir
norðan og austan. Hiti 12 til 18 stig, hlýjast NA-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt og áfram dálítil væta en úrkomulítið S- og V-lands síð-
degis. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig.
VEÐUR
Frjálsíþróttakonan Helga
Margrét Þorsteinsdóttir
varð fyrir barðinu á þjófum í
Barcelona. Helga hætti
keppni í sjöþrautinni á EM
vegna meiðsla en hún
hreifst með í stemningunni
sem áhorfandi á stór-
mótinu. Næsta Evrópu-
meistaramót fer fram í
Sviss eftir fjögur ár og þar
ætlar Helga að láta að sér
kveða. »3
Þjófar stálu tösk-
unni af Helgu
Birgir Leifur Hafþórsson, Ís-
landsmeistari í höggleik,
sigraði á góðgerðar-
mótinu „Einvíginu
á Nesinu“. Þetta er í
fyrsta sinn sem
Birgir sigrar á
þessu móti en
hann þurfti að
hafa mikið fyrir
sigrinum. » 1
Birgir Leifur sigraði í
„Einvíginu á Nesinu“
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
þjálfari A-landsliðs karla í handbolta,
er spenntur fyrir nýju verkefni sem
hann hefur tekið að sér hjá þýska lið-
inu Rhein-Neckar Löwen. Guðmundur
er nú yfirmaður íþróttamála hjá
danska liðinu AG Köbenhavn og RN-
Löwen. „Þetta er rosalega metnaðar-
fullt verkefni og alls ekki tjaldað til
einnar nætur,“ segir Guðmundur. »1
„Rosalega metnaðar-
fullt verkefni“
ÍÞRÓTTIR
„Áhugi fólks á því að sjá mannfólk í
búri var mikill. Þetta gefur ein-
hverjum væntanlega alveg nýtt
sjónarhorn á tilveruna og sumir sjá
hlutskipti dýra, sem alltaf eru inni-
lokuð, ef til vill í nýju ljósi þegar þeir
hafa séð mannfólk lokað innan girð-
ingar,“ segir Sigrún Thorlacius, að-
stoðarforstöðumaður Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins í Laugardalnum í
Reykjavík. Fjölmargir heimsóttu
garðinn góða um helgina. Gestir á
laugardag og sunnudag voru nokkuð
á sjötta þúsund og margir komu í
gærdag. Fólkið í búrinu vakti at-
hygli, en fleira var á dagskrá. Sveitin
Super Mama Djombo frá Gíneu
Bissá, ásamt Agli Ólafssyni, hélt
tvenna tónleika og skólalúðrasveit
frá Trönsberg í Noregi lék fyrir
gesti. Tónleikar með Stuðmönnum,
sem verið hafa í garðinum síðustu
ár, voru hins vegar ekki nú, enda er
sveitin ekki starfandi sem sakir
standa. sbs@mbl.is »29
Nýtt sjónarhorn á tilveruna
Fólk í búrum og
afrískir tónleikar í
Húsdýragarðinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveifla Gestir dilluðu sér með þegar Afríkusveitin Super Mama Djombo lék fyrir gesti í Húsdýragarðinum.
„Þessi íþrótt nýtur mikilla og sívax-
andi vinsælda á Norðurlöndum. Eft-
ir því sem bensínverð hefur hækkað
hafa vinsældir siglinga, til dæmis á
sjóþotum og bátum, dalað en í stað-
inn velja margir að keyra kapal, eins
og þetta sport er gjarnan kallað í
lauslegri þýðingu,“ segir Kristján
Fannar Sigurðarson.
Siglingar á vötnum þar sem fólk
er dregið áfram eftir köplum í raf-
knúnum brautum, sem strengdar
eru í möstur, eru íþrótt sem nýtur
vinsælda í Skandinavíu. Kristján,
sem hefur verið búsettur í Svíþjóð
síðastliðin fjögur ár, stendur að fyr-
irtækinu Nordic Surfers, en á þess
vegum er skipulagt keppnishald í
kaplakeyrslu í Svíþjóð, Danmörku
og Noregi, kallað Urban Cable Tour.
Þá hefur Kristján rekið eigin Kite-
surf-skóla í Varberg yfir sumartím-
ann og í Sälen yfir veturinn.
Vertíð keppnishalds Urban Cable
Tour er um þessar mundir. Keppt
var í Ósló í Noregi nú um helgina og
Danmerkurkeppnin verður haldin í
höfuðborginni við Eyrarsund 13. til
14. ágúst. Svíþjóðarkeppnin verður
haldin í Malmö 25.-26. ágúst.
sbs@mbl.is
Kaplakeyrslan slær í gegn
Íslendingur ryður braut fyrir nýja og vinsæla íþróttagrein á Norðurlöndum
Iðkendur dregnir á köplum sem dregnir eru áfram í rafknúnum brautum
Ofurmót er framundan
» Úrslitakeppni Urban Cable
Tour verður haldin í Malmö á
sama tíma og stærsta hátíð
Norðurlanda fer fram, Malm-
öfestivalen.
» Ekki hefur verið keppt í
þessu sporti hér á landi en að-
stæður eru þó ákjósanlegar,
segir Kristján.
Flug Keyrt á fullu í köplunum.