Morgunblaðið - 07.08.2010, Side 8

Morgunblaðið - 07.08.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Eftir að ríkisstjórnin hafði tekiðsér rúman tíma til að velja í nefnd til að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku og starfs- umhverfi orkugeirans hér á landi var loks tilkynnt, eins og lesa má á vef forsætisráðuneytisins, að for- sætisráðherra hefði skipað nefnd- ina. Þetta var á þriðjudag.     Á fimmtudag er svo sagt frá því ífrétt RÚV að forsætisráðherra treysti sér ekki til að skrifa upp á skipunarbréf eins nefndar- mannsins.     Þrátt fyrirfrétt for- sætisráðherra á eigin vef um að nefndin hefði verið skipuð ásamt upptalningu á nefndarmönnum virðist því vera að svo hafi alls ekki verið. Frétt forsætisráðuneytisins um nefndarskipunina var því röng.     Upplýsingagjöf af þessu tagi fráæðsta stjórnvaldi er vitaskuld ámælisverð og veldur þeim miklum vanda sem þurfa að reiða sig á upp- lýsingar frá stjórnvöldum.     Enn alvarlegra má þó telja aðríkisstjórnin skuli varla komast vandræðalaust í gegnum eitt ein- asta mál. Í það minnsta ef um er að ræða skipunarmál.     Hvaða skýringar eru á þessumstöðuga vandræðagangi hjá ríkisstjórninni? Hvernig stendur á því að ítrekað þarf að margskipa og taka til baka skipanir, fyrir utan þær skipanir sem ríkisstjórnin hindrar af annarlegum ástæðum?     Telja ráðherrar ef til vill að traustá ríkisstjórninni aukist við hverja mislukkaða embættisfærslu? Jóhanna Sigurðardóttir Mislukkaðar embættisfærslur Veður víða um heim 6.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 rigning Bolungarvík 12 rigning Akureyri 15 alskýjað Egilsstaðir 16 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 13 skýjað Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 17 skýjað Kaupmannahöfn 21 skýjað Stokkhólmur 22 léttskýjað Helsinki 23 heiðskírt Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 21 heiðskírt Dublin 17 skýjað Glasgow 17 skýjað London 18 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 22 léttskýjað Berlín 20 skúrir Vín 19 skýjað Moskva 35 þoka Algarve 30 heiðskírt Madríd 32 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 20 léttskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 30 skýjað Chicago 25 léttskýjað Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:55 22:14 ÍSAFJÖRÐUR 4:41 22:37 SIGLUFJÖRÐUR 4:24 22:20 DJÚPIVOGUR 4:20 21:48 Eldgosið í Eyjafjallajökli og öskufallið í kjölfarið var ótrúlega heppilegt fyrir vísindamenn, að sögn sjávarlíffræðingsins Erics Achterberg. Hann leið- ir alþjóðlegt rannsóknarteymi frá Sjávarrann- sóknarstöðinni í Southampton, sem hefur safnað vatnssýnum úr sjónum í grennd við Ísland á rann- sóknarskipinu RRS Discovery í 5 vikur. Lengir líftíma svifs í hafinu Í samtali við norska dagblaðið Aftenposten seg- ir Achterberg að eldfjallið hafi fært vísindamönn- um á silfurfati risastórt náttúrulegt rannsóknar- verkefni, sem geti m.a. kennt okkur mjög mikið um eðli úthafanna. Markmið sýnatökunnar er að ákvarða hversu mikil áhrif öskufallið hefur á hafið. Hækkandi járngildi í hafinu geti lengt líftíma svifa í sjónum langt fram á haust. Lengri líftími svifa geti svo í kjölfarið haft áhrif á loftslagið því plöntu- svif gleypi koltvíoxíð úr loftinu. Þegar lífverurnar örsmáu deyja og sökkva til botns taka þær koltví- oxíðið með sér niður í hafdjúpin. Þar sem höfin taka um 40% af öllum koltvísýr- ingi úr andrúmsloftinu skiptir þetta miklu máli fyrir loftslagið. „Yfirleitt er þessi hluti Atlantshafsins mjög snauður af svifum. Eldgos sem varði í tvo mánuði hefur án efa haft áhrif og við ætlum að kortleggja þau með rannsókninni,“ segir Acherberg. una@mbl.is Askan gæti haft jákvæð áhrif  Eldfjallið færði vísindamönnum risastórt rannsóknarverkefni á silfurfati Markmið sýnatöku norsku vísindamannanna hér á landi er að ákvarða hversu mikil áhrif öskufallið hef- ur á hafið. Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Sala á skólavörum fer vel af stað og er jafnvel fyrr á ferðinni en áður. Verð á helstu skólavörum stendur að mestu leyti í stað frá því í fyrra, en þá var nokkuð um verðhækkanir. Eitthvað er þó um verðhækkanir í ár sem rekja má til gengisflökts að sögn verslunarrekenda. Þeir versl- unarmenn sem blaðamaður náði tali af eru bjartsýnir á góða sölu og segja úrvalið sjaldan hafa verið meira. Skólarnir virðast vel undirbúnir. Margir þeirra hafa sett innkaupa- lista á netið svo nemendur og for- eldrar geti snemma farið að huga að því sem þarf til skólastarfsins. Það skal ef til vill engan að undra að sala á skólavörum fyrir yngstu nemend- urna taki fyrst við sér, enda tilhlökk- unin oftast mest í þeim hópi. Breytt verðbil „Hjá okkur hefur verið mjög mikil aukning í sölu á skólatöskum fyrir yngri krakkana. Það á svo eftir að koma í ljós hvort aukningin sé raun- veruleg eða hvort sala hafi bara farið fyrr af stað,“ segir Haukur Olavs- son, verslunarstjóri Griffils. Hann segir verð á skólatöskum lítillega hafa hækkað en Griffill reyni eftir megni að halda verðinu sem lægstu. Verðbilið á skólatöskunum sé frá 900 krónum upp í rúmar 20 þúsund krónur. „Vandaðri töskurnar eru á svipuðu verði og í fyrra sem er í kringum 15 þúsund krónur. Allir ættu þó að geta fundið skólatösku á viðráðanlegu verði.“ Hækkanir vegna gengisflökts „Við höfum orðið vör við sölu- aukningu hjá okkur á þessu ári,“ segir Sverrir Jónsson, fjármálastjóri Egilsson hf. sem rekur Office 1 verslanirnar á Íslandi. „Það hefur ekki verið mikil breyt- ing á verði á skólavörum nema sem tengist gengisflökti,“ segir hann. Hann segir verslanirnar vera með sömu verðstefnu og í fyrra og mark- miðið sé að vera sem ódýrastir. Aldrei meira úrval „Við höfum aldrei í okkar sögu verið með meira úrval,“ segir Val- gerður Vigfúsardóttir, sölustjóri A4. Hún segir vörurnar komnar upp, starfsfólk tilbúið og sala hafi farið vel af stað. „Verðið hefur ekki breyst mikið frá því í fyrra. Við erum með mjög ódýrar vörur inn á milli, fólk velur því hvort það vilji kaupa ódýrt eða dýrari merkjavöru.“ Búist er við að sala á skólavörum nái hámarki á næstu tveimur vikum. Framhaldsskólarnir fara nú margir fyrr af stað en áður. Þar af leiðandi hefur orðið aukning í viðskiptum á skiptibókamörkuðum. Skiptibóka- markaðirnir gefa nemendum kost á að fá námsbækurnar á lægra verði. Hjá Griffli er skiptibókamarkaður- inn opinn allt árið en Haukur Olavs- son verslunarstjóri segist nú mæla aukningu í verslun þar. Allir viðmæl- endur blaðamanns voru sammála um að framhaldsskólanemendur tækju þó seinna við sér en grunn- skólanemendur þegar kæmi að inn- kaupunum. Morgunblaðið/Eggert Skólalíf Þegar sumri hallar hefja skólarnir störf með öllu sem þeim tilheyrir. Sala á skólavörum fyrr í gang en áður Skólar hefja störf » Sala á skólavörum fer fyrr af stað en oft áður. » Verð hefur víðast hvar stað- ið í stað eða hækkað lítillega. Verslunarrekendur segja það megi rekja til gengisþróunar. » Verð á skólatöskum er allt frá 900 krónum og upp í rúmar 20 þúsund krónur. » Mikið úrval er í verslunum og því ættu allir að geta fengið vörur við sitt hæfi.  Verð hefur lítillega hækkað frá í fyrra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.