Morgunblaðið - 07.08.2010, Page 24

Morgunblaðið - 07.08.2010, Page 24
24 Umræðan BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Enn og aftur er blásið í her- lúðra og boðað til styrjaldar af afturhaldsöflum ríkisvaldsins gegn ellilífeyrisþegum. Ríkiskerfið hefur boðið að enn ein herferðin gegn ellilíf- eyrisþegum sé að hefjast. Hafa stjórnvöld boðað að 2,3 millj- arðar verði endurkrafðir af elli- lífeyrisþegum vegna ofgreidds lífeyris. Samkvæmt fréttum er um að ræða hinar svonefndu fjár- magnstekjur sem hafi verið vantaldar fram. Sú svívirðing viðgengst á Ís- landi að einstaklingar eru fé- flettir í krafti ræningjalaga og yrði þetta víðast hvar í heim- inum kallað þjófnaður. Margur landinn hefur nurlað saman peningum á langri ævi vegna biturrar reynslu af óstjórn og ránsferðum stjórn- valda með gengisfellingum á gjaldmiðlinum. Stjórnvöld hafa skipulega verðfellt hinn ís- lenska gjaldmiðil til að ná inn meiri tekjum til sóunar af þeim sem stjórna. Hinar svokölluðu fjármagns- tekjur er skattlagðar af óstjórn- legri ósvífni. Fjármagn ein- staklinga sem geymt er í vörslu lánastofnana hefur rýrnað svo að 1000 kr. verðgildi um áramót verður að verðgildi 850 kr. við næst áramót. Fjármagnstekjur eru 85 kr. yfir árið og verðgildi eignarinnar rýrnar því um 65 kr. miðað við áramótin á undan. Af þessum 85 kr. sem taldar eru fjármagnstekjur hirðir ríkið nú 18% sem gera um 15 krónur svo að eftir standa af fjár- magnstekjum 70 kr. M.ö.o. 1000 kr. eign viðkomandi hefur rýrn- að um 80 krónur miðað við verðgildi áramótin áður og er að verðgildi aðeins 920 krónur. Spurt er: Hverjar eru fjár- magnstekjurnar. Verðgildi fjár- muna hefur rýrnað um 8% þrátt fyr- ir hinar svo- kölluðu fjár- magnstekjur. Ofan á þessa ræn- ingjaaðferð ríkisvaldsins við að rýra verðmæti fjármuna ætlar ein und- irstofnun að hefja eina ráns- ferðina enn og ná 2,3 millj- örðum af sparifé ellilífeyrisþega. Íslendingar hafa verið gjarnir á að tala í háði um ríki, þar sem bananar eru ræktaðir og fullyrt að óstjórn, fjáraustur og fjárkúgun þegnanna viðgangist í krafti skattaálagna, og ríkin kölluð bananalýðveldi. Íslend- ingar ættu að líta sér nær og skoða þá óstjórn, fjáraustur og fjárkúgun í krafti ósvífni í skattaálögum er ríkir í þessu landi. Samkvæmt ákvæðum í lögum er bannað að hvetja til óhlýðni við stjórnvöld. Samt ætla ég mér að benda fólki á að taka nú alla fjármuni út af bankareikningum sínum þar sem aðeins skaði verður af því að láta þá vera í vörslu banka og sparisjóða. Neitið að taka við ávísunum og krefjist peninga. Verður fróðlegt að sjá hvern- ig ríkisbáknið koðnar niður þegar ellilífeyrisþegar taka út sparifé sitt og þurrð verður hjá lánastofnunum. Ekki yrði upplitið á stjórn- völdum hressilegt ef hinn al- menni þegn þessa lands styddi ellilífeyrisþega með nýrri búsá- haldabyltingu. KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, fv. skipstjóri. Frá Kristjáni Guðmundssyni Kristján Guðmundsson Lúðrablástur afturhaldsins Ég hef verið búsettur síðustu 10 árin í Danmörku. Það hefur þó ekki breytt því að ég er fyrst og fremst Íslendingur. En sem gestur í Danaveldi hef ég þurft að tileinka mér reglur og siði þess samfélags svo ekki sé talað um tungumálið þeirra. Fyrst þegar ég flutti til Danmörku var ég nánast mállaus á dönsku. Ég bjargaði mér á ensku en fékk oftar en ekki að heyra að erlent fólk sem búsetur sig í Danmörku ætti í það minnsta að reyna að tala dönsku. Ég sótti um heilmörg störf fyrstu mánuðina sem ég var búsettur þar en var alltaf hafnað vegna þess að ég talaði ekki málið. Það tók hins vegar bara 6 mán- uði og þá var ég altalandi á dönsku. Ég hef verið meira og minna á hverju ári í fríi á Íslandi síðan ég flutti frá landinu. Einnig hef ég fylgst með þjóðfélagsumræð- unni í gegnum fjölmiðla. Það sem ég hef tekið eftir í gegnum árin er að stærri og stærri hluti af þjóðinni er af erlendu bergi brotinn. Ég hef svo sem ekkert út á það að setja að fólk frá öðr- um löndum setjist að á Íslandi. Það kryddar einfaldlega upp á mannlífið. Hins vegar hef ég þá skoðun að fólk sem sest að á Ís- landi eigi að tileinka sér reglur og siði sem tíðkast á landinu. Einnig ætti það að leggja sig fram við að læra málið. Ég var í fríi á Íslandi síðast- liðinn júní og júlímánuð. Ég fór mikið á kaffi- hús og veit- ingastaði á höfuð- borgarsvæð- inu í fríinu. Í allmörg skipti var erlent starfsfólk að þjóna til borðs. Það væri svo sem ekki í frásögu færandi nema hvað starfsfólkið talaði oftar ensku en íslensku. Einnig get ég talið upp fleiri verslanir, bensínstöðvar og sjoppur sem ég verslaði við þar sem starfs- fólkið talaði ekki íslensku. Ég hef svo sem lent í þessu áður á Íslandi en ekki í sama mæli. Í dag las ég svo auglýsingu frá Subway sem fyllti mælinn. Subway óskar eftir starfsmanni á næturvakt þar sem tekið er fram að íslenskukunnátta sé æskileg en ekki nauðsynleg! Af hverju er ekki í það minnsta gerð krafa um að starfsfólk tali einhverja ís- lensku? Að minnsta kosti í þjón- ustu- og verslunargeiranum þar sem mikil mannleg samskipti eiga sér stað. Í flestum öðrum löndum er það að tala tungu- málið í viðkomandi landi krafa ef sótt er um vinnu. Því finnst mér að undir engum kring- umstæðum eigi að slaka á kröfu um íslenskukunnáttu þegar sótt er um starf á Íslandi. HILMAR ÖGMUNDSSON, hagfræðingur. Frá Hilmari Ögmundssyni Hilmar Ögmundsson Starf í boði – Íslensku- kunnátta æskileg Í hádegisfréttum Rúv, 17. júlí sl., kom fram að 95% þeirra sem þiggja umönn- unarbætur frá Tryggingarstofnun rík- isins eru konur. 95% þeirra sem þiggja með- lag eru konur. Kristín Ástgeirsdóttir, jafnréttisstýra, sagði þetta sláandi tölfræði sem veki upp spurningar eins og: Axla feður ekki ábyrgð? Eða halda konur svona fast í börnin? Hvað er best fyrir börnin? Félag um foreldrajafnrétti hefur bent á þessa staðreynd í mörg ár og við teljum okkur þekkja svarið við spurningum jafnréttisstýru. Ef eitt- hvað á Íslandi getur talist alveg sér- íslenskt þá eru það sennilega íslensku barnalögin og meðferð mála sam- kvæmt þeim hjá sýslumönnum. Í V- Evrópu er foreldrajafnrétti hvergi minna en á Íslandi. Þegar foreldrar búa ekki saman sker sýslumaður venjulega úr um hver hefur lögheimili barns, hversu mikla umgengni barnið hefur við hitt foreldrið og hversu mikið meðlag umgengnisforeldrið skal greiða því foreldri sem barnið hefur lögheimili hjá. Við meðhöndlun mála hjá sýslumönnum er það móðurrétt- urinn sem ræður ríkjum. Móðurrétt- urinn kemur fyrst, langt á eftir kemur réttur barnsins og að endingu réttur föðursins. Sýslumaður kemur því oftast fyrir þannig að móðirin verður skráður ábyrgaraðili barnsins með þeim hlunn- indum og skyldum sem því fylgja. Barnið er yfirleitt skráð með lögheim- ili hjá móður og faðir fær um það bil eins mikla umgengni og móðirin leyfir og jafnvel minni. Faðirinn er þá skráð- ur ábyrgðarlaus, en þó með „sameig- inlega forsjá“ sem á Íslandi gefur ekki meiri réttindi en hvert einasta um- gengnisforeldri ætti að hafa, óháð forsjá, svo sem rétt til skriflegra upp- lýsinga um barn úr skól- um, þar með talið skrif- lega stundaskrá og einkunnir. Í öðrum lönd- um er „sameiginleg forsjá“ ákveðin rétt- arstaða sem hefur tölu- verða þýðingu og vert að halda í. Hinn skráði ábyrgð- arlausi og réttlausi faðir ber hins vegar fjárhags- lega ábyrgð á barninu og er meðlagsskyldur. Með- lagið getur orðið að þungri greiðslu- byrði ef tekjur föður eru sagðar leyfa það eða ef börnin eru fleiri. Þegar greiðslubyrði meðlagsgreiðanda verð- ur það þung að hann þarf að leita sér aðstoðar, þá rekst hann á veggi. Hann er skráður ábyrgðarlaus og hefur ekki fyrir neinu öðru að sjá en sjálfum sér. Meðlagsgreiðslur teljast ekki fram- færsla á barni. Feður, sem reyna að sækja þann rétt að vera skráðir ábyrgðaraðilar barns, þurfa að vaða eld og brennistein í kynbundnu réttarkerfi. Baráttan er ekki vonlaus en hún er svo torveld að flestir feður sjá ekki fram á að komast í gegnum þá baráttu. Kerfið sér hins vegar að mestu leyti um baráttuna fyr- ir mæður. Fyrst með mæðraveldi á meðan mál eru til úrlausnar hjá sýslu- mönnum en síðar með gjafsóknum til mæðra þegar málin rata til dómstóla. Svo við víkjum okkur að spurn- ingum jafnréttisstýru: Axla feður ekki ábyrgð? Þessi spurning getur engan veginn verið tímabær. Fyrst þarf að festa foreldra- jafnrétti í lög þannig að feðrum verði boðið upp á að axla ábyrgð til jafns við mæður. Ef ábyrgðin verður áfram skráð á mæður í 95% tilfella að því loknu þá getum við spurt þessarar spurningar. Foreldrajafnrétti í lögum þýðir að réttur barnsins komi fyrst og svo réttindi foreldra jöfn þar á eftir. Halda konur svona fast í börnin? Já. Það liggur alveg ljóst fyrir að kven- réttindasamtök hafa barist gegn breytingum á barnalögum í átt til for- eldrajafnréttis. Kvenréttindasamtök standa í vegi fyrir því að á Íslandi séu barnalög eins og í öðrum V-Evr- ópuríkjum þar sem barnið kemur í fyrsta sæti og foreldrarnir sem jafn- astir þar á eftir. Kvenréttindasamtök halda í þá bábilju að réttur móður eigi að ganga fyrir öllum öðrum rétti því að barnið njóti afleidds réttar móður. Kvenréttindasamtök mótmæltu því harðlega þegar það litla hænuskref var tekið árið 2006 að gera sameiginlega forsjá að meginreglu, jafnvel þó sam- eiginleg forsjá hafi nánast enga merk- ingu. Hvað er best fyrir börnin? Rann- sóknir sýna að foreldrajafnrétti er best fyrir börnin. Jöfn foreldra- ábyrgð, jöfn umgengni og tveir for- eldrar til staðar fyrir barnið eftir skilnað er það sem barninu er fyrir bestu. Börnum er fyrir bestu að réttur þeirra verði virtur í stað þess að réttur þeirra þurfi að lúta í lægra haldi fyrir kvenréttindum. Þegar feðrum er ýtt til hliðar af kerfinu þá hefur það þær afleiðingar að mæður bera meiri ábyrgð á dag- legri umönnun barna. Það liggur í aug- um uppi að þessi ábyrgð kvenna á börnum hefur áhrif á launamun kynjanna á vinnumarkaði. Starfs- maður með mikla ábyrgð heima fyrir er líklega ekki eins verðmikill á vinnu- markaði og sá starfsmaður sem getur sinnt starfinu án truflunar að heiman. Það er því kaldhæðið að á sama tíma og kvenréttindasamtök krefjast jafnra launa á vinnumarkaði þá ríghalda þau í einkaréttinn á börnunum. Eftir Heimi Hilmarsson Heimir Hilmarsson » Þegar feðrum er ýtt til hliðar af kerfinu þá hefur það þær afleiðingar að mæður bera meiri ábyrgð á daglegri umönn- un barna. Höfundur er formaður Félags um for- eldrajafnrétti og tilheyrir þeim 5% feðra sem hafa lögheimili barns. Axla feður ekki ábyrgð? Umræðan um frum- varp til breytingar á bú- vörulögum hefur verið skrautleg undanfarna daga. En hvert er raun- verulegt efni málsins? Í frumvarpinu er engin eðlisbreyting gerð á gildandi lögum. Það er ekki heimilt að markaðs- setja mjólk sem fram- leidd er utan útgefins greiðslumarks. Það hefur ekkert með að gera að ekki geti verið samkeppni um kaup mjólkur af bændum, úr- vinnslu hennar og markaðssetningu. Öllum, sem hafa leyfi heilbrigðisyf- irvalda til vinnslu á mjólk, er heimilt að kaupa og vinna mjólk. Þannig gæti sem dæmi Ölgerðin hafið móttöku mjólkur og markaðssett afurðir. Ummæli þess efnis að frumvarpinu sé beint gegn Vesturmjólk eða þar áður Mjólku, er dæmi um að verið sé að blanda saman tveimur ólíkum hlutum í umræðunni. Hvort eigi að banna að setja mjólk á markað sem framleidd er utan greiðslumarks er annað mál. Þannig getur landbúnaðarráðherra í raun, að fenginni umsögn framkvæmdanefndar búvörusamninga, heimilað markaðs- setningu slíkrar mjólkur á innanlands- markaði. Eða hreinlega ákveðið að gefa út stærra greiðslumark, sem myndi innifela alla mjólkurframleiðslu. Hins vegar er útgefið greiðslumark, kvótakerfi, til að stýra framleiðslu- magni í takti við innanlandsneyslu. Greiðslumarkið er einnig grunnur að framleiðsluskyldu á bændur. Þannig hefur verið búið um hnútana að bænd- ur eru skyldaðir til að framleiða mjólk fyrir innanlandssölu á grundvelli þess. Slíkum skyldum fylgja síðan ákveðin réttindi. Hugmyndin um sekt- argreiðslur er vafalaust tekin úr landbún- aðarkerfi ESB, en þar eru bændur sektaðir um háar fjárhæðir, ef þeir fara yfir kvóta sína. Þar eru nú margir ósiðirnir. Umrætt frumvarp bætir, eins og áður sagði, engu við gildandi lög nema úrræðum til að bregðast við brotum á þeim. Að mínu viti eru lögin skýr, en í þau hefur vantað viðurlög. Hvort þau brjóta gegn atvinnufrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar verða aðrir að dæma um og eðlilegt að þeir sem telja á sér brotið biðji dómstóla að skera þar úr um. Það er hins vegar að verða eins- konar lenska hér að lög geti ekki staðið nema skýrt sé kveðið á um refsiúrræði. Er þá í lagi að brjóta lög, ef refsi- ákvæði vantar? Fjölbreyttari flóra vinnslu- og sölu- aðila á að geta aukið vöruval og gæði, neytendum og framleiðendum til heilla. Miklu frekar ætti að vera skýrt kveðið á um að hið stóra fyrirtæki MS ætti að afhenda mjólk til vinnslu, sem safnað hefur verið saman frá bændum og farið í gegnum strangt gæða- og heilbrigðiseftirlit. Forsvarsmenn MS ættu miklu frekar að fagna innkomu fyrirtækja á markaðinn sem vilja vinna og markaðssetja vörur úr íslenskri mjólk. En að sjálfsögðu, ef allir sitja þá við sama borð gagnvart þeim lögum og reglum sem gildandi eru. Hvort núverandi kvótakerfi og fyr- irkomulag „landbúnaðarkerfisins“ á rétt á sér er allt önnur umræða. Bænd- ur hafa margsinnis lýst sig tilbúna til að endurskoða slíkt fyrirkomulag. Nú síðast í tengslum við samkomulag um skerðingar á búvörusamningum frá 18. apríl 2009. Ekkert skal dregið undan í því að núverandi fyrirkomulag hefur marga galla. En öfgarnar eru líka til í hina áttina. Í fréttum RÚV 4. ágúst sl. sagt frá því að Arion banki hafi selt tvö svínabú. Á þeim tíma sem bankinn rak búin hafi hann tapað rúmlega 100 kr. á hverju framleiddu kg af kjöti. Allt þetta lendir endanlega á neytendum. Hringir það engum bjöllum um að eitt- hvað þurfi að fara betur? Endurskoðun búvörulaga strandar miklu oftar á stjórnmálamönnum sem vilja ekki eða treysta sér ekki til að ræða efnislega um sameiginlega hags- muni bænda og neytenda. Heldur fell- ur umræðan í far „hefðbundins fár- viðris“ um vafasama landbúnaðarstefnu. Þannig hafa bænd- ur nú beðið árum saman eftir að ákvæðum gildandi laga um verðmiðlun mjólkur verði breytt. Breytingar sem t.d. lækka „gegnumstreymisgjöld“ í ríkissjóð um hundruð milljóna króna. Landbúnaður er ekki atvinnugrein sem getur staðið undir öllum duttl- ungum hins frjálsa markaðar. Það ger- ir hann heldur ekki hjá nánast neinni þjóð. Um hann verður hins vegar að ríkja samstaða og bændur eru full- komlega meðvitaðir um að breytingar þurfa að vera á hverjum tíma. Enda er það margstaðfest að þjóðin hefur mikl- ar mætur á sínum landbúnaði. Eftir Harald Benediktsson »Endurskoðun búvöru- laga strandar miklu oftar á stjórnmálamönn- um sem vilja ekki eða treysta sér ekki til að ræða efnislega um sam- eiginlega hagsmuni bænda og neytenda. Haraldur Benediktsson Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands. Hefðbundið fárviðri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.